Morgunblaðið - 26.08.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
Jón Bjarnason landbúnaðarráð-herra er á fleygiferð til fortíðar í
stefnumörkun sinni fyrir atvinnu-
veginn.
Í viðtali við Spegil Ríkisútvarpsins ígærkvöldi sagðist ráðherrann
hafa sett á stofn starfshóp, sem
breyta ætti lög-
um um jarða- og
ábúðarmál.
Ráðherrannsagði að
meginstefnan
hlyti að felast í að
„halda utan um
og vernda núver-
andi og
framtíðarlandnæði til matvælafram-
leiðslu og gæta þess að það fari ekki
undan í einhver önnur not“.
Þetta vill ráðherrann gera með til-vísan til „matvælaöryggis þjóð-
arinnar“. Neytendur hafa lært að
gæta sín á þeim frasa. Hann er yfir-
leitt notaður þegar rökstyðja á
fáránlega hátt verð á búvörum og
skort á samkeppni.
Hvað ætli fólki til sveita finnist umáform ráðherrans um að lög-
binda tiltekin not á landi? Eru það
hagsmunir bænda sem vilja bregða
búi og selja eignir sínar að stjórn-
völd lækki þannig á þeim verðið?
Eru það hagsmunir sveitanna að
leggja stein í götu þeirra, sem vilja
gjarnan búa í sveit en gera eitthvað
annað en að stunda búskap?
Þá vill ráðherrann ekki útiloka aðríkið kaupi aftur jarðir, sem það
hefur selt, eða þá einhverjar aðrar
jarðir, eins og hann orðar það.
Í hvaða skyni vill Jón Bjarnasonverja peningum skattgreiðenda í
kaup á bújörðum?
Kannski til að stofna samyrkjubú?
Jón Bjarnason
Á fleygiferð til fortíðar
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 12 skúrir Lúxemborg 22 skýjað Algarve 26 heiðskírt
Bolungarvík 10 skýjað Brussel 20 léttskýjað Madríd 30 heiðskírt
Akureyri 15 skýjað Dublin 18 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað
Egilsstaðir 12 léttskýjað Glasgow 13 skúrir Mallorca 28 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 11 skýjað London 21 léttskýjað Róm 31 heiðskírt
Nuuk 12 heiðskírt París 24 heiðskírt Aþena 29 léttskýjað
Þórshöfn 14 léttskýjað Amsterdam 18 léttskýjað Winnipeg 20 heiðskírt
Ósló 19 skýjað Hamborg 22 heiðskírt Montreal 23 léttskýjað
Kaupmannahöfn 21 skúrir Berlín 29 heiðskírt New York 27 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt Vín 27 heiðskírt Chicago 23 skýjað
Helsinki 18 skýjað Moskva 15 alskýjað Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
26. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.01 0,8 10.23 3,5 16.34 1,0 22.43 3,2 5:54 21:06
ÍSAFJÖRÐUR 6.07 0,5 12.23 2,0 18.43 0,7 5:49 21:20
SIGLUFJÖRÐUR 2.38 1,3 8.30 0,4 14.54 1,3 20.53 0,4 5:32 21:04
DJÚPIVOGUR 1.02 0,5 7.18 2,1 13.44 0,6 19.30 1,8 5:21 20:38
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á fimmtudag
Norðaustlæg eða breytileg átt
3-8 m/s. Skúrir í flestum lands-
hlutum og hiti 8 til 15 stig, hlýj-
ast suðvestanlands.
Á föstudag og laugardag
Norðaustan 5-13 m/s. Víða
rigning um landið norðanvert,
en skýjað með köflum og þurrt
að kalla sunnan- og suðvest-
anlands. Kólnar heldur, einkum
norðantil.
Á sunnudag og mánudag
Austlæg átt og skúrir um landið
sunnanvert, en þurrt að mestu
norðantil. Hiti 6 til 12 stig.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Skúrir eða dálítil rigning með
köflum um landið sunnanvert,
en skýjað með köflum eða
bjartviðri norðantil og yfirleitt
þurrt. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast
norðan- og vestanlands.
SKILYRÐI greiðslna Sjúktrygg-
inga vegna lýtalækninga breytast
með reglugerð sem heilbrigðisráð-
herra hefur sett. Þetta þýðir að skil-
yrði fyrir niðurgreiðslum ríkisins t.d.
vegna æðahnútaaðgerða verða hert
og hætt verður að greiða niður
kostnað vegna aðgerða við rósroða.
Reglugerðin tekur gildi 1. október
og frá sama tíma fellur úr gildi eldri
reglugerð um greiðslur sjúkratrygg-
inga fyrir lýtalækningar og fegrun-
araðgerðir. Breytingarnar eru gerð-
ar í sparnaðarskyni. Markmiðið er
að spara 30 milljónir á þessu ári, en
reglugerðarbreytingin á að spara
um 90 milljónir reiknuð til heils árs.
Kostnaður vegna lýtalækninga er nú
um 400 milljónir á ári og af þeirri
upphæð greiða Sjúkratryggingar
um 300 milljónir, að því er segir á vef
heilbrigðisráðuneytis. aij@mbl.is
Dýrari æðahnútar
Ríkið greiðir 300 milljónir vegna lýta-
lækninga Spara á 90 milljónir á ári
NÁGRANNARNIR í Strandabyggð
og Reykhólasveit halda hvorir
tveggja hátíð á laugardaginn. Einn
atburður er sameiginlegur á þessum
samkomum er Strandamenn hlaupa
á laugardagsmorgun til móts við
íbúa úr Reykhólahreppi um nýja
veginn um Arnkötludal þar sem þeir
mætast á miðri leið. Við opnun veg-
arins í haust opnast ný tækifæri til
að efla tengsl og samstarf milli íbúa
á þessum tveimur svæðum.
Mikið verður um að vera á opn-
unarhátíð „Stefnumóts á Ströndum“
á laugardaginn, en sýningin verður
opin til 15. september í félagsheim-
ilinu á Hólmavík. Yfir 60 sýnendur,
fullorðnir og börn, allt frá Hrútafirði,
norður í Ófeigsfjörð og yfir í Djúp,
taka þátt í sýningunni sem er bæði
fjölbreytt og fróðleg. Markmiðið með
sýningunni er tvíþætt. Annars vegar
að efla ímynd Stranda út á við sem
aðlaðandi búsetu-, ráðstefnu- og
ferðamannasvæðis. Hins vegar að
efla tengsl ólíkra aðila á Ströndum
með því að leiða saman hefðbundna
og óhefðbundna starfsemi.
Meðal atburða á laugardaginn má
nefna að fjórir ættliðir Stranda-
manna reisa vörðu til framtíðar;
Sverrir Guðbrandsson eldri, Guð-
brandur Sverrisson, Sverrir Guð-
brandsson yngri og Jakob Ingi
Sverrisson. Allir þeir sem koma að
sýningunni leggja stein í vörðuna úr
sinni heimasveit.
Ljósmynd/ Svanlaug Sigurðardóttir
Stefnumót Sól Dögg Arnarsdóttir töltir niður slóðann af Eyrarhálsi í áttina
að Melarétt í Trékyllisvík. Reykjaneshyrna tignarleg í fjarska.
Stefnumót á Ströndum
og Reykhóladagurinn
Á setningarathöfn verður atriði
frá Tónskólanum á Hólmavík, von-
ast er til að forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, flytji hátíðar-
ávarp. Systurnar á Melum í Trékyll-
isvík flytja söngatriði, Jón Bjarna-
son sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra flytur ávarp,
Ása Ketilsdóttir á Laugalandi kveð-
ur lausavísur, galdramaður á
Ströndum les vinakveðju úr Reyk-
hólasveit og Bjarni Ómar flytur
frumsamda tónlist. Hólmadrangur
býður sýningargestum í heimsókn
og veisla verður haldin um kvöldið á
Café Riis.
Fjölbreyttur Reykhóladagur
Reykhóladagurinn byrjar í raun á
föstudaginn með spurningakeppni
Reykhólahrepps þar sem sveitungar
spreyta sig á ýmiss konar spurn-
ingum og leiklistarhæfileikarnir fá
að njóta sín. Meðal atburða á laug-
ardeginum má nefna gönguferð um
Reykhólasveit, sveitamarkað, báta-
sýningu, áætlunarferðir um Reyk-
hóla á heyvagni, kaffisölu að hætti
Kvenfélagsins Kötlu, ljósmyndasýn-
ingu Björns Antons frá Bátadögum
og kvöldverð, þar sem gestir gæða
sér á kræsingum sem eiga uppruna
sinn í Reykhólasveit. aij@mbl.is
Tenglar
strandir.is/stefnumot
reykholar.is