Morgunblaðið - 26.08.2009, Side 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
REYKJAVÍKURBORG niður-
greiðir í vetur hvert nemakort sem
reykvískir framhalds- og háskóla-
nemendur kaupa hjá Strætó bs. um
15.000 þúsund krónur.
Reykjavíkurborg felldi niður
gjald fyrir reykvíska framhalds- og
háskólanemendur síðastliðin tvö
skólaár í tilraunaskyni. Verkefnið
gafst vel og hefur notið vinsælda
nemenda og bættust milljón farþeg-
ar við hóp viðskiptavina Strætó
vegna kortanna hvert skólaár. Í
könnun sem gerð var kom fram að
80% námsmanna sem fara í strætó á
annað borð gera það vegna kort-
anna, og að hópur nemenda hætti
við að kaupa einkabíl vegna þeirra.
Nemendur geta á næstu dögum
sótt um og greitt fyrir nemakortin
á straeto.is.
Morgunblaðið/Sverrir
Kostar Ekki ókeypis í strætó í vetur.
Nemakort Strætó
niðurgreidd
STUTT
INNLAUSN Á HLUTUM Í ALFESCA HF.
Lur Berri Iceland ehf., kt. 420409-0790, Skógarhlíð 12, Reykjavík, („Lur Berri Iceland”) og stjórn Alfesca
hf., kt. 580293-2989, Kringlunni 7, Reykjavík, („Alfesca”) hafa ákveðið að þeir hluthafar í Alfesca sem ekki
samþykktu yfirtökutilboð Lur Berri Iceland og eru ekki í hópi samstarfsaðila um stjórn og rekstur Alfesca
skuli sæta innlausn af hálfu Lur Berri Iceland á hlutum sínum, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um verðbréfavið-
skipti nr. 108/2007.
Lur Berri Iceland og samstarfsaðilar um stjórn og rekstur Alfesca eiga samtals 91,34% hlutafjár í Alfesca
og fara með 91,87% atkvæðisréttar í félaginu. Innlausnin tekur til allra annarra hluta og nær til annarra
hluthafa Alfesca sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í upphafi dags 26. ágúst 2009. Þeim hluthöfum er
send þessi tilkynning ásamt framsalseyðublaði. Tilkynning þessi er birt í dagblöðum í samræmi við sam-
þykktir Alfesca um boðun aðalfundar, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.
Hluthafar í Alfesca, sem innlausnin tekur til, eru hvattir til að framselja Lur Berri Iceland hluti sína í Alfesca
innan fjögurra vikna frá dagsetningu þessarar tilkynningar.
Innlausnarverðið er 4,5 kr. fyrir hvern hlut í Alfesca. Greitt verður fyrir hlutina með reiðufé. Er um að ræða
sama verð og Lur Berri Iceland bauð hluthöfum Alfesca í yfirtökutilboði frá 25. júní 2009. Greiðslan verður
innt af hendi 29. september 2009.
Til að framselja Lur Berri Iceland hluti sína í Alfesca þurfa hluthafar að fylla út framsalseyðublað sem þeim
mun verða sent með þessari tilkynningu. Rétt útfyllt framsalseyðublað verður að berast Fyrirtækjaráðgjöf
Nýja Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík, fyrir kl. 12:00 þann 24. september 2009.
Hafi hlutir í Alfesca ekki verið framseldir Lur Berri Iceland í samræmi við framangreint, verður andvirði
hlutanna í Alfesca greitt inn á geymslureikning í nafni viðkomandi hluthafa. Frá þeim tíma telst Lur Berri
Iceland réttur eigandi viðkomandi hluta í Alfesca, sbr. 2. mgr. 110. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr.
108/2007.
Nýi Kaupþing banki hf. hefur umsjón með innlausninni fyrir hönd Lur Berri Iceland. Nánari upplýsingar
veita verðbréfaráðgjafar bankans í síma 444-7000.
Vakin er sérstök athygli hluthafa á því að Nýja Kaupþingi banka hf. er óskylt að meta hvort viðskipti í
tengslum við innlausnina séu viðeigandi fyrir þá. Þeir njóta því ekki þeirrar verndar sem í slíku mati felst
samkvæmt 16. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Er hluthöfum bent á að leita sér sérfræðiað-
stoðar vegna viðskiptanna.
Reykjavík, 26. ágúst 2009
Fyrir hönd Lur Berri Iceland ehf. og stjórnar Alfesca hf.
Nýi Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjaráðgjöf
ÍS
LE
N
S
K
A
SÍ
A
.ÍS
K
A
U
47
06
4
08
/0
9
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt 24 ára gamlan
karlmann í 10 mánaða fangelsi fyr-
ir að vera með 487 e-töflur og lítil-
ræði af hassi í fórum sínum, en töfl-
urnar fundust í húsi frænku
mannsins.
Maðurinn hélt því fram að hann
hefði ekki komið töflunum fyrir í
húsinu heldur hefði hann átt að
sækja þær fyrir annan ónafn-
greindan mann. Dómurinn taldi að
ákæruvaldinu hefði ekki tekist að
sanna að maðurinn hefði fengið
töflurnar í hendur og falið þær.
Hins vegar væri sannað að hann
hefði haft þær í vörslu sinni.
Maðurinn hefur frá því hann var
18 ára fjórtán sinnum verið sak-
felldur fyrir afbrot, aðallega fíkni-
efnalagabrot, en einnig fyrir um-
ferðarlagabrot, eignaspjöll,
auðgunarbrot og líkamsárásir.
Hann rauf með brotunum nú skil-
yrði reynslulausnar sem hann fékk
í fyrra.
Með 487 e-töflur í
fórum sínum
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
SÍÐASTA Snorraverkefni ársins,
Snorri plús, hófst um helgina og á
meðal þátttakenda eru mæðgurnar
Sveinfríður Margaret Irene Wright
og Shelley McRynolds frá Calgary í
Kanada. Beth McReynolds, dóttir
Shelley, tók þátt í Snorraverkefni
ungmenna 2007 og heilsaði upp á
mömmu sína og ömmu í Reykjavík
um helgina.
Snorraverkefnin eru samstarfs-
verkefni Norræna félagsins á Íslandi
og Þjóðræknisfélags Íslendinga, ætl-
uð fólki í Vesturheimi af íslenskum
ættum, en sambærilegt verkefni,
Snorri vestur, er haldið í Manitoba í
Kanada fyrir íslensk ungmenni.
Snorri plús er fyrir eldri þátttak-
endur og er það nú haldið í sjöunda
sinn en alls hafa 78 manns tekið þátt
í því frá byrjun 2003.
Eldri mæðgurnar frá Calgary eru
á Íslandi í fyrsta sinn og Beth kynnt-
ist líka landi og þjóð í gegnum
Snorraverkefnið. Á fimmtudag fer
hópurinn m.a. um Snæfellsnes en
sama dag verður Sveinfríður 80 ára.
Þrír ættliðir taka þátt
í Snorraverkefninu
Morgunblaðið/Heiddi
Þrír ætliðir Sveinfridur Irene Wright, Shelley McReynolds og Beth McRey-
nolds hafa allar tekið þátt í Snorraverkefninu.
Slysavarna-
félagið Lands-
björg segir í til-
kynningu að upp
hafi komið mis-
skilningur varð-
andi aðkomu
Gæslunnar er
karlmaður lést á
Herðubreið.
„Beiðni um að-
stoð þyrlu LHG í
aðgerðum björgunarsveita getur
komið frá lögreglu, Neyðarlínu eða
í samráði við bakvakt Slysavarna-
félagsins Landsbjargar. Þeir ferlar
eru þrautreyndir og byggjast á for-
ræði aðila á yfirstjórn aðgerða og
reynslu aðila af aðgerðum. Það er
því í hæsta máta ófaglegt að leita
beint til ráðherra dómsmála og
blanda henni í aðgerð sem var í
vinnslu.“
Ófaglegt að leita
beint til ráðherra
Þyrla LHG á björg-
unaræfingu.