Morgunblaðið - 26.08.2009, Síða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
„VIÐ þolum vel milljón ferðamenn,“
segir Anna Dóra Sæþórsdóttir, dós-
ent í ferðamálafræði við Háskóla Ís-
lands. Hún segir að treysta þurfi
grunngerðina, innviði sem lúta að
ferðaþjónustu, svo hægt verði að
taka við þeirri fjölgun erlendra
ferðamanna sem spáð er.
„Eins og við þurftum að byggja
hafnir til að veiða fiskinn og koma
honum á land þurfum við að byggja
göngustíga, salerni og áningarstaði
til að taka við ferðamönnum. Við
þurfum líka að dreifa þeim betur um
landið, bæði í tíma og rúmi,“ sagði
Anna Dóra. En hvaða ferðamanna-
staði telur hún vera komna að þol-
mörkum vegna aðsóknar?
„Það eru t.d. Landmannalaugar á
hálendinu og Gullfoss og Geysir á
láglendi. Stígurinn niður að Gullfossi
þolir t.d. ekki þá umferð sem þar
er,“ sagði Anna Dóra. Hún telur
einnig að fjölga þurfi ferðamanna-
stöðum. Þar sem bryddað hafi verið
upp á nýjungum í ferðamennsku hafi
ferðafólk flykkst að. Anna Dóra
nefndi Húsavík og Hornafjörð sem
dæmi, en ferðamenn flykkjast í
hvalaskoðun frá Húsavík og til að
skoða Jöklasetrið á Höfn.
„Nýsköpun í ferðaþjónustu þarf
ekki að vera flókin. Með því einu að
merkja gönguleiðir eða útbúa
göngukort laðast fólk að staðnum,“
sagði Anna Dóra. Hún benti á
hvernig brugðist var við gríðarmiklu
álagi í hjarta Landmannalauga. Þar
voru merktar fleiri gönguleiðir og
gerð ný göngukort.
Þörf á landnýtingaráætlun
Samtök ferðaþjónustunnar skor-
uðu á stjórnvöld árið 2007 að vinna
landnýtingaráætlun með þarfir
ferðaþjónustunnar í huga. Fyrir Al-
þingi liggur nú tillaga til þingsálykt-
unar um að slík áætlun verði gerð
fyrir ferðamennsku á miðhálendinu.
Anna Dóra sagði að hún, ásamt
Rögnvaldi Ólafssyni, dósent við HÍ
og Rannveigu Ólafsdóttur, dósent
við HÍ, hafi reynt að fá styrk til að
gera landnýtingaráætlun um ferða-
mennsku á hálendinu. Þau gerðu
drög að grunnvinnu áætlunar.
Hugmyndavinnan gekk út á að
kortleggja hvað landið þolir mikla
aðsókn ferðamanna. Þá eru m.a.
teknar til greina væntingar ferða-
manna og hvað þeir upplifa, hve
mikið traðk náttúran þolir áður en
hún fer að láta á sjá. Hvað bygg-
ingar og aðrir innviðir á ferða-
mannastöðum ráða við mikið.
Einnig átti að kanna hvernig
svæði eru notuð til útivistar. Hvar
jeppamenn, mótorhjólafólk, göngu-
fólk og hestamenn halda sig og hvort
þetta truflar hvað annað. Þá átti að
hafa samráð við heimamenn og
ferðaþjónustuna um hvernig nýta
ætti landið og athuga hvort mark-
hópar þeirra voru sömu skoðunar.
„Við sóttum um styrk til þriggja
ára og vildum byrja á suðurhálend-
inu. Við skiptum því í Kjalarsvæðið,
Sprengisand og Fjallabak. Í þetta
áætluðum við tíu milljónir á ári eða
30 milljónir alls,“ sagði Anna Dóra.
Hún sagði að umsókninni hafi verið
hafnað hjá Rannís. Verkefnið hafi
hvorki þótt fela í sér nýsköpun né
vera nógu vísindalegt. Rannís hafði
þó styrkti þau Rögnvald og Önnu
Dóru til að leggja grunn að þessari
vinnu. Þá fóru þau og hittu sérfræð-
inga sem skipulögðu bandaríska
þjóðgarða og bjuggu til þessa að-
ferðafræði. Einnig fengu þau eina
milljón hjá Rannsóknasjóði Vega-
gerðarinnar til að prufukeyra þessa
hugmyndafræði á Lakasvæðinu.
Skýrsla þeirra um ferðamennsku á
Lakasvæðinu kom út 2007.
Efla þarf grunngerð
ferðaþjónustunnar
Ferðamálafræðingur telur að Ísland geti vel tekið á móti milljón ferðamönnum
Í HNOTSKURN
»Á árunum 2003-2008 fjölg-aði erlendum ferðamönn-
um um 9,8% á ári. Við það bæt-
ast innlendir ferðamenn.
» Í fyrra komu um 502 þús-und erlendir ferðamenn til
Íslands. Búist er við lítils-
háttar fækkun á þessu ári.
»Þess er vænst að árið 2016eða skömmu síðar nái
fjöldi erlendra ferðamanna á
Íslandi einni milljón á ári.
»Kannanir sýna að 76% er-lendra ferðamanna koma
hingað til að njóta náttúrunn-
ar. Um 26% þeirra fóru í Land-
mannalaugar 2008.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Landmannalaugar Þessi vinsæli viðkomustaður ferðamanna er kominn að
þolmörkum vegna mikillar ásóknar, að mati Önnu Dóru Sæþórsdóttur.
Styrkja þarf innviði ferðaþjón-
ustunnar til að taka við þeirri
fjölgun erlendra ferðamanna
sem hér er spáð á næstu árum.
Landnýtingaráætlun er talin mik-
ilvægur þáttur í þeirri vinnu.
fjárhagslegu tjóni
með athöfnum
sínum í aðdrag-
anda banka-
hrunsins.
Steingrímur
segir forskoðun
fjármálaráðu-
neytisins hafa
sýnt að full
ástæða sé til að
skoða í botn
möguleika á skaðabótamáli. Kröfur
ríkisins yrðu einkaréttarlegs eðlis,
þ.e. að ríkið fái bætur fyrir tjón sem
það hefur orðið fyrir vegna verka
annarra.
Í minnisblaði fjármálaráðherra,
sem lagt var fyrir ríkisstjórn, segir
m.a. að sönnunarkröfur í skaðabóta-
málum séu með öðrum hætti en í op-
inberum málum. Ef fyrirliggjandi
gögn sýni brotlega eða gáleysislega
framgöngu tiltekinna einstaklinga
eða lögaðila, sem leitt hafi til tjóns
fyrir íslenska ríkið, þá sé unnt að
huga að skaðabótamálum án þess að
afráða fyrst um refsiverða háttsemi.
Verkefni starfshópsins og lög-
mannanna verður m.a. að gera á því
athugun í hvaða tilvikum líklegt er
að hefja megi skaðabótamál með ár-
angri. Steingrímur segir þetta geta
farið af stað samhliða öðrum rann-
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„ÞETTA hefur verið til skoðunar í
ráðuneytinu um nokkurt skeið, sem
liður í almennri hagsmunagæslu fyr-
ir ríkið og því að stuðla að framvindu
rannsókna og aðgerða þannig að
réttlætið nái fram að ganga,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra. Hann fékk tillögu sína
samþykkta í ríkisstjórn í gær um að
skipa starfshóp sem ætlað er að
kanna möguleika á að höfða skaða-
bótamál á hendur þeim lögaðilum og
einstaklingum sem mögulega hafa
valdið ríkinu og almenningi í landinu
sóknum á bankahruninu. Leiði könn-
unin í ljós skýr tjónstilvik, sökunaut
og tengsl atviks og tjónvalds við tjón
ríkisins, þá verði hægt að óska eftir
kyrrsetningu eigna viðkomandi að-
ila. Síðan verði farið í málsókn í kjöl-
farið.
Hvort að mögulegir tjónvaldar séu
borgunarmenn fyrir kröfum sínum
segir Steingrímur að það verði að
koma í ljós. Kyrrsetning eigna gæti
leitt til þess að eitthvað fáist upp í
bætur.
Skoðar skaðabætur vegna hrunsins
Fjármálaráðherra vill láta kanna möguleika á skaðabótum til handa ríkissjóði vegna bankahrunsins
Kyrrsetning eigna gæti leitt til þess að eitthvað fáist upp í bætur, segir Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur J.
Sigfússon
Í HNOTSKURN
»Starfshópurinn verðurskipaður fulltrúum forsæt-
isráðuneytisins, fjármálaráðu-
neytisins, dómsmálaráðuneyt-
isins og viðskiptaráðuneytis-
ins, samkvæmt tillögu
fjármálaráðherra.
»Gert er ráð fyrir að starfs-hópurinn geti ráðið 2-3
sjálfstætt starfandi lögmenn
til að vinna að könnun og und-
irbúningi málshöfðunar.
Meira á mbl.is
Höfða einkamál gegn hrunfólkinu
Anna Dóra Sæ-
þórsdóttir, dós-
ent í ferða-
málafræði, var
í gær á
Sprengisandi á
vegum Ramma-
áætlunar um
nýtingu vatns-
afls og jarð-
varma. Hún
segir skort á
upplýsingum um ferðamennsku
tilfinnanlegan í þeirri vinnu.
„Það er búið að kortleggja gróð-
urframvindu í Þjórsárverum, mæla
orkuframleiðslu og rennsli, fugla-
lífið og allt þetta. En um ferða-
menn á þessum stöðum eru nán-
ast engar upplýsingar til.“
Anna Dóra benti á að hátt í tíu
þúsund manns gangi Laugaveginn
á hverju sumri. Meðfram honum
séu margir virkjanakostir. Vega
þurfi tekjurnar af þessum ferða-
mönnum á móti mögulegum
tekjum af virkjunum á svæðinu.
Margar rannsóknir voru gerðar á
milli Rammaáætlana I og II en eng-
in þeirra laut að ferðaþjónustu.
Upplýsingar um ferðamennsku skortir
Anna Dóra
Sæþórsdóttir
Á NÆSTU mánuðum munu frekari
rannsóknir og mælingar á rann-
sóknarholum, sem þegar hafa verið
boraðar á Hengilssvæðinu, leiða í
ljós hvort jarðhitinn á Hengils-
svæðinu sé mun umfangsmeiri auð-
lind en vísindamenn ætluðu í upp-
hafi.
Sterk vísbending hefur komið
fram um að jarðhitasvæðið í
grennd við Hengilinn sé mun
stærra en áður var talið eftir að ný
rannsóknarborhola við Hverahlíð
reyndist afar öflug. Borholan hefur
mælst gefa sem svarar til 15 til 17
megavatta í raforkuframleiðslu og
gæti því ein og sér þjónað þörfum
allrar byggðar vestan Snorrabraut-
ar í Reykjavík, að því er segir í
frétt á vef Orkuveitu Reykjavíkur.
OR hefur nú fengið leyfi til að
bora rannsóknarholu við Gráu-
hnúka til að athuga hvort þar sé
nýtanlegur jarðhiti.
Meiri auðlind en
ætlað var í upphafi?
UM 1,5 kg af hassi, ríflega 600
grömm af maríjúana og kókaín í
neysluskömmtum fannst við hús-
leit í íbúð í Grafarholti eftir há-
degi á mánudag. Tveir menn á
þrítugsaldri voru handteknir og
yfirheyrðir í tengslum við rann-
sókn málsins. Þeir hafa áður kom-
ið við sögu hjá lögreglu. Húsleitin
var framkvæmd að undangengn-
um dómsúrskurði.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að
hamla gegn sölu og dreifingu
fíkniefna en sem fyrr minnir lög-
reglan á fíkniefnasímann, 800-
5005. Í hann má hringja nafnlaust
til að koma á framfæri upplýs-
ingum um fíkniefnamál.
Fíkniefnasíminn er samvinnu-
verkefni lögreglu og tollyfirvalda
og er liður í baráttunni við fíkni-
efnavandann.
Tveir handteknir
vegna fíkniefna