Morgunblaðið - 26.08.2009, Side 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
SUNNUDAGINN 30. ágúst verður
þess minnst að hundrað og fimmtíu
ár eru liðin frá byggingu Reynivalla-
kirkju í Kjós. Séra Gísli Jóhannes-
son lét reisa kirkjuna en yfirsmiður
var Bjarni Jónsson frá Brúarhrauni.
Fyrr á öldum voru Reynivellir
kirkjustaður í þjóðbraut þegar
helsta hafskipahöfn landsins var
Maríuhöfn í Hvalfirði og um hlaðið
lá leiðin til Þingvalla og Skálholts.
Hátíðarguðsþjónusta hefst kl. 14
og síðan verður dagskrá í Félags-
garði. Sóknarpresturinn, séra Gunn-
ar Kristjánsson, prédikar.
Í Félagsgarði segir séra Brynj-
ólfur Gíslason frá langafa sínum,
séra Gísla Jóhannessyni. Sögusýn-
ing um kirkjuna verður í umsjón
Ólafs J. Engilbertssonar sagnfræð-
ings.
Reynivallakirkja 150 ára
Morgunblaðið/Sverrir
Reynivallakirkja Það var séra Gísli
Jóhannesson sem lét reisa kirkjuna.
Arnar Þór
Jensson verk-
fræðingur varði
doktorsritgerð
sína „A develop-
ment of a speech
recognition syst-
em for resource
deficient lang-
uages“ hinn 23.
febrúar sl. við Tokyo Institute of
Technology í Japan. Leiðbeinandi
verkefnisins var Sadaoki Furui, pró-
fessor við Tokyo Institute of
Technology.
Í ritgerðinni var fjallað um tal-
greinakerfi fyrir tungumál þar sem
gögn eru af skornum skammti. Við
gerð talgreinakerfis þarf mikið
magn af gögnum bæði í texta og
hljóðum. Tímafrekt er að safna
gögnunum saman og einungis verið
gert fyrir örfá tungumál með við-
unandi árangri. Doktorsverkefnið
sneri að því hvernig hægt væri að
minnka þessa vinnu. Notast var m.a.
við svokallað wfst-net og var það
prófað fyrir íslenskt tal og gaf vís-
bendingar um að vera raunhæfur
kostur við gerð talgreina fyrir
tungumál þar sem gögn eru af
skornum skammti.
Arnar lauk BS-gráðu í rafmagns-
og tölvuverkfræði árið 2001 frá Há-
skóla Íslands. Hann lauk MS-gráðu í
tölvuverkfræði árið 2006 frá Tokyo
Institute of Technology og hóf dokt-
orsnám sitt sama ár. Hann er nú bú-
settur í Tókýó þar sem hann vinnur
að stofnun fyrirtækis. Foreldrar
Arnars eru Jens Helgason rafvirkja-
meistari og Guðrún Ragnars hjúkr-
unarfræðingur.
Doktor í
verkfræði
ALLIR ungling-
ar á Norður-
löndum á aldr-
inum 15 til 19 ára
ættu nú að leggja
höfuðið í bleyti,
dusta rykið af
sköpunargáfunni
og gera stutt-
mynd um hlýnun
jarðar og lofts-
lagsmál því nú í
haust hefst samkeppnin REClimate
–myndir til varnar loftslaginu.
Myndirnar geta verið af ýmsum
toga: tónlistarmyndbönd, til-
raunamyndir, mini-heimildarmyndir
eða heimagerðar stuttmyndir.
REClimate er ætlað að hvetja ungt
fólk til að gera myndir sem geta orð-
ið innlegg í pólitíska umræðu. Bestu
myndirnar verða sýndar á leiðtoga-
fundi Sameinuðu þjóðanna í Kaup-
mannahöfn í desember.
Þátttakendur geta hlaðið mynd-
um sínum á heimasíðuna www.recli-
mate.net frá 24. ágúst til 23. október.
Eftir það ráðast úrslitin í atkvæða-
greiðslu á heimasíðunni og með vali
sérstakrar dómnefndar.
Stuttmyndakeppni
um hlýnun jarðar
Sköpunargáfan á
að ráða ferðinni.
Brynhildur
Bjarnadóttir hef-
ur varið doktors-
ritgerð sína, „Car-
bon stocks and
fluxes in a young
Siberian larch
(Larix sibirica)
plantation in Ice-
land“, við land-
upplýsinga- og vistfræðideild Lund-
arháskóla í Svíþjóð.
Leiðbeinendur voru dr. Anders
Lindroth, prófessor við Lundarhá-
skóla, og dr. Bjarni Diðrik Sigurðs-
son, prófessor við Landbúnaðarhá-
skóla Íslands.
Í doktorsverkefninu var kolefn-
ishringrás ungs lerkiskógar á Fljóts-
dalshéraði rannsökuð ítarlega og
tvær aðferðir til að meta kolefnis-
bindingu með nýskógrækt bornar
saman. Annars vegar var fylgst með
flæði koltvíoxíðs milli andrúmslofts
og vistkerfis yfir þriggja ára tímabil
með svokallaðri iðufylgniaðferð (e:
eddy covariance) og hins vegar var
bindingin í jarðvegi, botngróðri og
trjám metin með uppskerumæl-
ingum. Niðurstöður verkefnins sýndu
að þrátt fyrir ungan aldur batt skóg-
urinn umtalsvert magn af kolefni.
Mesta bindingin í þessum aldurs-
flokki skógar átti sér stað neðan-
jarðar, þ.e. í rótum og jarðvegi. Veð-
urfarsbreytur eins og lofthiti og inn-
geislun höfðu mikil áhrif á árlegan
vöxt trjáa og botngróðurs sem og á
niðurbrot lífræns efnis í jarðvegi og
ákvörðuðu heildarkolefnisbindingu
skógarins.
Brynhildur fæddist árið 1974. Hún
lauk BS-prófi í líffræði frá Háskóla
Íslands árið 1997 og prófi í uppeldis-
og kennslufræði frá sama skóla árið
1999. Hún hefur starfað sem sérfræð-
ingur hjá Rannsóknarstöð Skógrækt-
ar ríkisins á Akureyri frá árinu 2003.
Brynhildur er gift Sigurði Inga
Friðleifssyni, framkvæmdastjóra
Orkuseturs á Akureyri, og eiga þau
þrjú börn. Foreldrar Brynhildar eru
Pálína S. Jóhannesdóttir sjúkraliði
og Bjarni E. Guðleifsson nátt-
úrufræðingur á Möðruvöllum í Hörg-
árdal.
Doktor í
skógvistfræði