Morgunblaðið - 26.08.2009, Blaðsíða 14
FYRSTA maðkahollið í Langá á
Mýrum lauk veiðum í fyrradag, en
þá var leyft að veiða á maðk auk
flugunnar sem hefur verið eina
leyfða agnið í sumar. Samkvæmt
vef SVFR veiddust um 250 laxar
fyrstu fjóra maðkveiðidagana.
Hafa nú um 1.450 laxar veiðst í
Langá í sumar.
Mjög lítið vatn hefur verið í
250 laxar í fyrsta maðkahollinu
Langá upp á síðkastið en laxinn
mun vera vel dreifður um veiði-
svæðið og veiðist á öllum svæðum
árinnar, þótt efstu svæðin, á „fjall-
inu“, séu gjöfulust. Enn eru að
veiðast nýgengnir og lúsugir laxar
í Langá sem eru með græna slikju
og bera þess merki að hafa legið í
árósnum, og eru sagðir „þaralegn-
ir“.
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
Ítarleg umfjöllun um EM 2009 í Morgunblaðinu
Við höldum með
stelpunum okkar
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
SAMSKIPTI Svía og Íslendinga eru afbragðs
góð, við erum góðir grannar og grannar eiga að
hjálpa hvorir öðrum þegar vandi steðjar að,“
segir fráfarandi sendiherra Svíþjóðar á Íslandi,
Madeleine Ströje-Wilkens.
„Þetta er auðvitað hnattræn kreppa, sænska
krónan er líka veik. En ég er ákaflega ánægð
með að mín stjórnvöld skyldu strax sýna ykkur
samstöðu og bjóðast til að leggja fram skerf til
lánsins frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS).
Einnig skipti máli að Svíar gerðu strax gjaldeyr-
isskiptasamninga við Íslendinga og veittu aðstoð
í sambandi við útibú Kaupþings í Svíþjóð.“
Ströje-Wilkens kveður nú landið eftir fjögurra
ára dvöl og fer á eftirlaun. Hún segir samskiptin
í menningarmálum blómleg en hún hefur verið
ákaflega virk í starfi sínu, hefur t.d. ferðast mik-
ið um Ísland og dáir íslenska hestinn. Sendiherr-
ann hratt af stað verkefninu Garðarshólma á
Húsavík, fræðasetur og safn fyrir rannsóknir á
sviði sjálfbærrar þróunar og umhverfismála. Sví-
ar veittu í fyrra sem svarar nær 10 milljónum
króna til setursins, að sögn sendiherrans.
Icesave-lán, AGS og Svíþjóð
– Þú hlýtur að hafa séð og heyrt heldur óvin-
samleg ummæli frá sumum Íslendingum í garð
Svía, sagt er að þið hafið gengið erinda AGS í
sambandi við Icesave. Hvernig bregstu við?
„Ég held að þar sé um einhvern misskilning
að ræða og reyni að útskýra þessi mál fyrir fólki.
Það er ekki auðvelt að fá lán af þessu tagi og
ekki heldur að veita þau. Augljóst var frá upp-
hafi að okkar lán var hluti af öllum pakkanum
hjá AGS en sumir virðast ekki hafa vitað það.
Margvíslegir þættir þurfa að vera í höfn til að
öll lánin í sameiningu beri árangur, t.d. endur-
reisn bankanna, þættir sem íslenska rík-
isstjórnin, AGS og norrænu ríkin stefna að.“
Þurfti að beygja sig í Argentínu
Þegar ég kom hingað frá Argentínu, þar sem
ég var síðast, hugsaði ég með mér. Yndislegt, ég
er á leiðinni heim! Þetta er land sem er gerólíkt
Argentínu og það var einmitt það sem tók eftir,
við erum svo lík, Svíar og Íslendingar.
Og hérna gat ég loksins horft beint í augun á
karlmönnum án þess að beygja mig niður um
hálfan metra,“ segir Ströje-Wilkens hlæjandi en
hún er óvenju hávaxin.
– Þú átt ekki við að þú hafir þurft að beygja
þig fyrir karlrembunni í Rómönsku Ameríku?
„Hún er líka hluti af þessu, svo sannarlega.
Hún er ekki hérna. Það er svo margt sem er
svipað hér og í Svíþjóð, við lítum sömu augum á
mannréttindi, jafnrétti kynjanna, velferðarsam-
félagið, alls konar mál sem eru okkur hjartfólg-
in.
Ég heyri suma lýsa áhyggjum af því að ungir
Íslendingar segist í könnunum vilja flytja úr
landi. En þegar litið er á niðurstöður kannana í
ESB-ríkjum er algengt að helmingur unga fólks-
ins segist vilja fara til annarra landa. Þið ættuð
ekki að hafa svona miklar áhyggjur, þau munu
koma heim aftur og koma með nýjar hugmyndir
og viðhorf,“ segir Madeleine Ströje-Wilkens að
lokum á ágætri íslensku.
„Góðir grannar eiga að
hjálpa hvorir öðrum“
Fráfarandi sendiherra Svía segir hvorki auðvelt að veita stór lán né fá þau
Morgunblaðið/Eggert
Brottför Ströje-Wilkens „Það er svo margt sem er svipað hér og í Svíþjóð, við lítum sömu augum á
mannréttindi, jafnrétti kynjanna, velferðarsamfélagið, alls konar mál sem eru okkur hjartfólgin.“
Hver finnst þér að sé helsti munurinn á Svíum
og Íslendingum?
„Ég hef einu sinni skrifað grein þar sem ég tel
upp 10 atriði sem skilja á milli þjóðanna,“ segir
Ströje-Wilkens. „Sumir kalla ykkur Grikki norð-
ursins, ég held að það sé rétt! Þið eruð ekki al-
veg eins stundvís og við. Þið vinnið fleiri stundir
en framleiðnin er minni. Við erum svo streitt
heima en þið kunnið að slaka á, tala saman.
Kannski er hér besta velferðarríki heims. Ein
ástæðan er að smátt er fagurt og samskipti í
fjölskyldum mikil.
Við getum lært af Íslendingum að meta fjöl-
breytileika lífsins, þið eruð miklu betri í því að
njóta náttúrunnar í gönguferðum og gerið svo
margt af því tagi. Áhugi á hönnun og þátttaka í
menningarviðburðum er sennilega meiri en í
nokkru öðru landi í heiminum.
Og þið notið bæði heilahvelin. Ég á vin hérna
sem er skurðlæknir. En á kvöldin er hann nú að
vinna í húsi bróður síns af því að hann er líka af-
bragðs trésmiður, hann er svo handlaginn.“
Margt líkt með skyldum
ÁRNI Helgason
mun láta af störf-
um sem fram-
kvæmdastjóri
þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins
nú um mánaða-
mótin. Hann hef-
ur ráðið sig til
starfa hjá lög-
fræðistofunni JS-
lögmenn.
Árni er lögfræðingur að mennt
og hefur starfað fyrir þingflokkinn
í rúm tvö ár, eða frá því í júní 2007,
að því er fram kemur á vef Sjálf-
stæðisflokksins. Ekki kemur fram
hver tekur við starfi Árna.
Árni hættir
hjá Sjálfstæðis-
flokknum
Árni Helgason
Á BLÓMSTRANDI dögum í Hvera-
gerði verður opið hús 29.-30. ágúst í
Þorlákssetri, húsi Félags eldri borg-
ara, í Breiðumörk 25b. Þessa daga
setur Félag eldri borgara í Hvera-
gerði upp sýningu á hannyrðum Ár-
nýjar Ingibjargar Filippusdóttur,
skólastjóra kvennaskólans á Hvera-
bökkum. Árný andaðist 2. mars
1977, tæpra 83 ára að aldri. Sýningin
verður opnuð kl. 14 laugardaginn 29.
ágúst og eru allir velkomnir.
Hannyrðir Árnýjar
Á HAUSTMARKAÐI Árbæjar-
safnsins, sem verður nk. sunnudag,
mun kenna ýmissa grasa. Fólk get-
ur komið með grænmeti, sultur,
handverk eða annað skemmtilegt
sem það hefur verið að búa til og
selt á markaðnum. Það kostar ekk-
ert að vera með. Árbæjarsafn býð-
ur upp á aðstöðu á torginu en fólk
verður sjálft að koma með borð,
stóla, tjald eða það sem hverjum
hentar. Þeir sem hafa áhuga á að
vera með geta haft samband við
safnið. Markaðurinn verður á torg-
inu og hefst kl. 13.
Sultur, grænmeti og
handverk á markaði
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐIN Sand-
gerðisdagar verður haldnir um
næstu helgi. Litaglaðir bæjarbúar
skreyta hús sín og götur og fjöl-
breytt dagskrá er í boði, s.s. karla-
kvöld, kósýkvöld kvenna, göngur,
litbolti, hvalaskoðun, markaður og
tónleikar af ýmsum toga. Hápunkt-
urinn er svo bryggjuball á laug-
ardagskvöldið. Dagskrána má
finna í heild á slóðinni www.sand-
gerdisdagar.is.
Fjölbreytt hátíð
STUTT