Morgunblaðið - 26.08.2009, Qupperneq 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár-
málaráðherra átti ásamt aðstoðar-
mönnum sínum í fjármálaráðuneyt-
inu fund með Ross Beaty, forstjóra
Magma Energy, í gær. Í samtölum
við Morgunblaðið að fundi loknum
lýstu báðir aðilar yfir ánægju með
fundinn og telja líklegt að frekari
viðræður muni fara fram. Kanadíska
orkufyrirtækið hefur sem kunnugt
er lýst áhuga á að auka hlut sinn í
HS orku og þá með því að kaupa hlut
Orkuveitu Reykjavíkur í félaginu,
sem varð til á síðasta ári við upp-
skiptingu Hitaveitu Suðurnesja í HS
orku og HS veitu.
Fjármálaráðherra hefur haft uppi
fyrirvara um að einkaaðilar eignist
ráðandi hlut í íslenskum orkufyrir-
tækjum við núverandi aðstæður.
Rætt hefur verið um að ríkið,
Reykjavíkurborg og Rarik komi að
HS orku. Hlutur Magma í HS orku
er núna um 11%, eftir kaup á eign-
arhlut af Geysi Green Energy fyrr í
sumar. Fáist hlutur Orkuveitunnar
keyptur líka verður kanadíska fyrir-
tækið ráðandi eigandi með um 43%
hlut í HS orku. Á fundinum í gær
skýrði Ross Beaty fyrir fjármála-
ráðherra aðkomu fyrirtækisins og
áætlanir þess á Íslandi. „Við þurfum
að átta okkur vel á hver áform þeirra
eru og hugmyndir hér á landi. Það
var gagnlegt að fá upplýsingar um
það. Ég útskýrði hvernig málið sneri
að opinberum aðilum hér innanlands
og hvað við höfum verið að gera síð-
ustu daga,“ segir Steingrímur um
fundinn með Magma Energy.
Hann vill ekki gefa upp hvort af-
staða sín í málinu hafi breyst í gær.
„Mér finnst mikilvægt að Íslend-
ingar reyni að treysta forræði sitt á
þessu mikilvæga sviði, þrátt fyrir
erfiðar aðstæður. Við þurfum að
hafa sem mest tök á því hvert orku-
auðlindunum er ráðstafað og hvert
arðurinn af nýtingu þeirra rennnur.
Ég tel það almenna afstöðu í þjóð-
félaginu að við verðum að stíga var-
lega til jarðar og halda forræði á
okkar undirstöðuauðlindum og at-
vinnugreinum sem mest í okkar
höndum,“ segir Steingrímur en
ítrekar jafnframt að hann fagni
áhuga Magma Energy og annarra
erlendra aðila á að fjárfesta á Ís-
landi. Málið snúist um að finna sam-
eiginlega hagsmuni.
Gegnsætt eignarhald
Orðrómur hefur verið um að ís-
lenskir fjárfestar standi með ein-
hverjum hætti að baki Magma
Energy og áformum þeirra hér á
landi. Ross Beaty þvertekur fyrir
það, í samtali við blaðið, og bendir á
að um almenningshlutafélag sé að
ræða. Eignarhaldið sé gegnsætt og
sér vitanlega séu engir Íslendingar
meðal hluthafa.
Beaty segist vera bjartsýnn á far-
sæla niðurstöðu fyrir Magma
Energy. „Ég mun gleðjast mjög ef
við fáum stuðning stjórnvalda og
heimamanna,“ segir Beaty og vonast
til að geta sameinað krafta og þekk-
ingu Magma og HS orku. Fáist
stuðningurinn ekki þá muni Magma
líklega leita annað eftir fjárfestingu í
jarðvarma.
UMFERÐARSLYS varð á Korp-
úlfsstaðavegi í Grafarvogi á áttunda
tímanum í gærkvöldi þegar vélhjól
og fólksbifreið lentu saman. Þrír
sjúkrabílar og dælubifreið voru
sendir á slysstað og voru fjórir flutt-
ir á slysadeild. Samkvæmt upplýs-
ingum frá slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins voru tveir hinna slösuðu á
vélhjólinu en hinir voru í bifreiðinni.
Ekki er talið að um mjög alvarleg
meiðsl sé að ræða en ökumaður mót-
orhjólsins fór í aðgerð vegna bein-
brots. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
er unnið að rannsókn slyssins.
Umferðarslys á Korpúlfsstaðavegi í Grafarvogi í gærkvöldi
Ekki al-
varleg
meiðsl
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Umferðarslys Hlúð var að hinum slösuðu sem voru fluttir á slysadeildina og reyndust ekki mjög alvarlega slasaðir.
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
LEIÐ ehf. hefur um tveggja ára
skeið unnið að nýjum samgöngu-
máta, sem byggist á aukinni samnýt-
ingu ökutækja. Samgönguráðuneyt-
ið hefur nú fallist á sjónarmið Leiðar
ehf. um að fyrirhuguð starfsemi fé-
lagsins falli ekki undir lög um leigu-
bifreiðar þegar ekið er með bifreið-
um sem eru fyrir átta farþega eða
færri. Hins vegar er kröfu Leiðar
hafnað um akstur með bifreiðum
sem eru fyrir níu farþega eða fleiri.
Á vegum Leiðar ehf. er unnið að
þróun vefsíðu, farthegi.is, sem ætlað
er að miðla upplýsingum um bílfar í
boði og bílfar sem óskast. Auk þess
er gert ráð fyrir að hringja megi
með upplýsingar um laust far í boði
hjá símaþjónustumiðstöð. Er gert
ráð fyrir að þeir sem þiggja far fyrir
tilstilli vefsíðunnar taki þátt í kostn-
aði við aksturinn. Ráðuneytið fellst á
það með Leið ehf. að heimilt sé að
nota vefinn til miðlunar upplýsinga
til farþega eða ökumanna
Leið ehf. lítur ekki á að um akstur
í atvinnuskyni sé að ræða þar sem
fjárhæðir verði það lágar að ábati
ökumanns verður einkum lækkun
kostnaðar við aksturinn. Á þetta
sjónarmið hefur samgönguráðu-
neytið nú fallist. Í úrskurði ráðu-
neytisins frá 27. júlí kemur fram að
það er ökumaðurinn sem ræður
ferðinni, hvert er ekið, hvenær ferð-
in hefst og hvenær henni lýkur en
ekki farþeginn eins og þegar um
leiguakstur er að ræða.
Vegagerðin á öndverðum meiði
Vegagerðin fjallaði á síðasta ári
um þessa þjónustu og í áliti hennar
segir m.a. að ekki verði litið framhjá
því að gjaldtaka, hversu hófleg sem
hún er, skapi tilteknar tekjur fyrir
móttakandann sem hann hefði ann-
ars ekki fengið. Ferðirnar séu farn-
ar hvort sem farþegi er með eða ekki
og kostnaðarþátttaka því hreinar
tekjur fyrir viðkomandi ökumann.
Þá vakti Vegagerðin athygli á að
ökumaður sem hyggst flytja farþega
gegn gjaldi verði að hafa til þess sér-
stök ökuréttindi. Stofnunin taldi að
þjónustan kynni að falla undir laga-
ákvæði um leigubifreiðar þegar not-
aðar eru bifreiðar fyrir átta farþega
eða færri. Varðandi akstur á bílum
fyrir níu farþega eða fleiri telur
Vegagerðin að hann sé leyfisskyld-
ur.
Mega nota netið
til að auka sam-
nýtingu bifreiða
Farþegavefnum heimilt að hafa milli-
göngu um greiðslu gjalds til ökumanna
Fjárfestingasjóður í eigu Bill Gates, stofnanda Micro-
soft, er meðal hluthafa Magma Energy. Magma er al-
menningshlutafélag með nokkrum þúsundum hluthafa,
en skráningu félagsins á hlutabréfamarkað í Toronto í
Kanada lauk fyrr í sumar. Sjóður Bill Gates, Cascade In-
vestment, á um 2,5% hlut en Ross Beaty og félag á hans
vegum á stærstan hlut, eða um 47%. Cascade Investment
er einnig stór hluthafi í silfurnámufyrirtæki á vegum
Beatys. Að hans sögn hefur Bill Gates sýnt áætlunum
Magma mikinn áhuga. „Ég er stoltur yfir því að Gates er
meðal hluthafa en allir hluthafar eru mikilvægir í mín-
um augum,“ segir Beaty. Hann segist ekki vita til þess að
nokkrir fjárfestar frá Íslandi séu í hluthafahópnum.
Gates meðal eigenda Magma
Bill
Gates
Morgunblaðið/Heiddi
Viðræður Steingrímur J. Sigfússon ræðir við Ross Beaty (t.h.), forstjóra Magma Energy, og Magnús Bjarnason frá
Capacent Glacier sem veitt hefur kanadíska orkufyrirtækinu ráðgjöf í fjárfestingum sínum á Íslandi í jarðvarma.
Von um stuðning
Fjármálaráðherra og forstjóri Magma Energy eru ánægð-
ir með fund sinn Búist við frekari viðræðum um HS orku
Aðaleigandi Magma Energy er
bjartsýnn á að hann fái að auka
hlut sinn í HS orku. Að öðrum
kosti séu ýmsir áhugaverðir fjár-
festingarkostir í jarðvarma-
fyrirtækjum í heiminum.
Næstu skref eru nú til skoð-
unar af hálfu Leiðar ehf., en
hugmyndir eru um að þeir sem
það kjósa og ferðast vilja fyrir
tilstilli vefjarins skrái sig og
geti greitt fyrir far með því að
senda SMS þar sem fram
kæmi númer ökutækis og ekn-
ir kílómetrar.
Jónas Guðmundsson í Bol-
ungarvík er forsvarsmaður
Leiðar ehf. og er honum ekki
kunnugt um að slíkt hafi verið
reynt áður, hvorki hérlendis né
erlendis. Einnig er til skoðunar
að miðla upplýsingum um
síma, þ.e. að fólk geti hringt
og skráð far eða óskað eftir
upplýsingum.
Hann segir að bið kunni að
verða á því að greiða megi far-
gjald fyrir tilstilli vefjarins og
enn um sinn þurfi farþegi að
greiða bílstjóra beint. „Ætlunin
er að kynna vefinn og mögu-
leika hans til dæmis fyrir
sveitarfélögum og framhalds-
skólum með það í huga að íbú-
ar þessa lands fari að nýta
þennan hagkvæma ferðamáta í
ríkari mæli,“ segir Jónas.
Skráð með SMS
ÞEGAR málningu er skvett á bíl
eins og gerst hefur undanfarið
flokkast það sem skemmdarverk og
nær kaskótrygging bifreiða yfir
það. Sjálfsábyrgð kemur þó alltaf
inn í og er hún yfirleitt á bilinu 63-
67 þúsund og upp úr. Þetta má sjá
þegar skoðaðir eru tryggingaskil-
málar tryggingafélaganna og var
staðfest af tveimur trygginga-
félögum, Verði og VÍS.
sigrunerna@mbl.is
Tjón vegna máln-
ingarsletta á bif-
reiðar fæst bætt
Tjón Skemmdarverk eru bætt.