Morgunblaðið - 26.08.2009, Qupperneq 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
Frá Ósló Átta af þeim tíu sem handteknir voru í Noregi í gær vegna gruns
um lánasvindl upp á 50 milljónir norskra króna, voru handteknir í Ósló.
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
FJÓRIR starfsmenn norska bank-
ans DnB NOR voru handteknir í
Ósló gær. Þá voru sex aðrir einstak-
lingar einnig handteknir.
Er þessi hópur manna grunaður
um að hafa staðið að stærsta banka-
svindli í norskri sögu. Það gekk út á
að svíkja út lán vegna íbúðakaupa
sem voru bara að nafninu til.
Er hópurinn grunaður um að hafa
svikið út að minnsta 50 milljónir
norskra króna, en það svarar til lið-
lega eins milljarðs íslenskra króna á
núverandi gengi. Átta hinna
grunuðu voru handteknir í Ósló en
tveir í Fredrikstad. Hinir handteknu
er á aldrinum frá 28 og upp í 45 ára.
Frekari upplýsingar um þá hafa ekki
verið gefnar upp.
Bankinn hjálpar til
Í yfirlýsingu frá DnB NOR segir
að yfirmenn bankans hafi grunað í
nokkurn tíma að starfsmenn hans í
útibúi í Ósló og í nágrannasveitar-
félagi hafi tekið þátt í hinum meintu
svikum. Það hafi verið tilkynnt til
lögregluyfirvalda í fyrra og aftur á
þessu ári. Þá hafi yfirmenn bankans
veitt lögregluyfirvöldum alla þá að-
stoð sem þau hafi farið fram á við að
upplýsa þetta mál.
Haft er eftir Nils Veger lögfræð-
ingi sem stýrir aðgerðum lögreglu-
yfirvalda, á norska fréttavefnum
E24, að hugsanlegt sé að fleiri teng-
ist þessu máli en þeir tíu einstakling-
ar sem handteknir hafi verið. Það
eigi eftir að koma í ljóst á næstu dög-
um og vikum.
DnB NOR er stærsti banki Nor-
egs með heildareignir upp á um
1.800 milljarða norskra króna.
Norska ríkið er stærsti eigandi
bankans með um 34% eignarhlut.
Umfangsmesta bankasvindl í Noregi
Tíu manns voru handteknir í Noregi í gær. Eru þeir grunaðir
um að hafa svikið út a.m.k. 50 milljónir norskra króna
Þetta helst ...
● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni á
Íslandi hækkaði í gær um 1,3% og er
lokagildi hennar 807 stig. Heildar-
viðskipt með hlutabréf námu 114 millj-
ónum en viðskipt með skuldabréf voru
hins vegar umtalsvert meiri, eins og
verið hefur, eða fyrir liðlega 22 millj-
arða króna. Mest hækkun varð á hluta-
bréfum Føroya banka, eða 5,7%.
gretar@mbl.is
Yfir átta hundruð stig
● BARACK Obama
Bandaríkjaforseti
tilkynnti í gær að
hann hefði ákveðið
að endurráða Ben
Bernanke í starf
seðlabankastjóra
Bandaríkjanna til
næstu fjögurra ára.
Bernanke hefur
almennt fengið
mikið lof fyrir það
hvernig hann og seðlabankinn hafa tek-
ið á efnahagskreppunni í Bandaríkj-
unum undanfarin misseri. Enda er talið
að endurráðning hans hafi þegar komið
fram í kauphöllum vestanhafs í gær.
Vísitölur hækkuðu almennt í kjölfar til-
kynningarinnar um endurráðninguna.
gretar@mbl.is
Ben Bernanke áfram í
stóli seðlabankastjóra
Ben Bernanke,
seðlabankastjóri.
● VBS fjárfestingarbanki hefur höfðað
mál gegn breska kaupsýslumanninum
Kevin Stanford vegna vangoldinnar
skuldar breska tískuhússins Ghost
Ltd., félags í hans eigu. Krafa VBS
hljóðar upp á 2,2 milljónir punda,
eða rúmlega 460 milljónir króna á nú-
verandi gengi og verður málið þingfest
hinn 3. september næstkomandi. Ke-
vin Stanford er í persónulegri ábyrgð
vegna lánsins til Ghost. Félagið rak
m.a. tískuverslanir og lánið frá VBS
var notað til að fjölga verslunum fyr-
irtækisins í Bretlandi. Ghost er nú í
greiðslustöðvun. Þegar dómur gengur
í málinu hér heima getur VBS gert
aðför í eigur Stanford í Bretlandi.
thorbjorn@mbl.is
VBS fjárfestingarbanki
stefnir Kevin Stanford
„Þetta snýst um það að menn hafa
haft tekjur með einum eða öðrum
hætti sem ekki hefur verið gerð
grein fyrir í skattframtali,“ segir
Bryndís Kristjánsdóttir skattrann-
sóknarstjóri. Að sögn Bryndísar
veltur það á eðli brotanna og alvar-
leika þeirra hvernig þau verða af-
greidd. Ef um minniháttar brot er að
ræða sé máli venjulega lokið með
sektargerð hjá skattrannsóknar-
stjóra eða yfirskattanefnd. Alvar-
legri mál, sem varði mjög háar upp-
hæðir, séu send til
efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjóra sem taki síðan ákvörðun um
hvort tilefni sé til útgáfu ákæru.
Grunur um skattsvik
þekktra kaupahéðna
Kaupsýslumenn földu tekjurnar með erlendum krítarkortum
Morgunblaðið/ÞÖK
Skattalagabrot Ríkisskattstjóri fékk heimild síðasta haust til að nálgast
upplýsingar um innlendar hreyfingar á erlendun greiðslukortum.
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
MAGNÚS Ármann, oft kenndur við
eignarhaldsfélagið Imon ehf., er að-
eins einn fjölmargra þjóðþekktra
kaupsýslumanna sem grunaðir eru
um skattalagabrot vegna greiðslu-
kortanotkunar á erlend greiðslukort,
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins.
Nöfn þeirra hafa ekki fengist upp
gefin, en fréttastofa Stöðvar 2
greindi frá því að velta á kort Magn-
úsar hefði verið á fjórða tug milljóna
króna á eins árs tímabili.
VISA lagðist gegn rannsókn
Ríkisskattstjóri (RSK) fékk heim-
ild síðasta haust til að nálgast upp-
lýsingar um hreyfingar á kortunum
svo fremi sem heildarúttekt hvers
korts á hverju kortatímabili næmi að
minnsta kosti fimm milljónum
króna. Valitor, sem er útgáfu- og
þjónustuaðili VISA á Íslandi, lagðist
gegn því að RSK fengi upplýsingar
um notkun kortanna. Fór ágreining-
urinn fyrir dómstóla og var það á
endanum niðurstaða Hæstaréttar að
heimila embætti RSK að skoða notk-
unina. Það var bráðabirgðaniður-
staða embættisins að korthafar
hefðu komið sér undan skatt-
greiðslum í ákveðnum tilfellum.
Voru mál þrjátíu aðila send skatt-
rannsóknarstjóra vegna gruns um
skattalagabrot.
Í HNOTSKURN
»Mál vegna kortanotkunar30 aðila hafa verið send
skattrannsóknarstjóra. Sum
kortin virðast hafa verið mjög
einkennilega notuð, t.d var
eitt eingöngu notað til þess að
taka peninga úr hraðbanka.
»Leikur grunur á að umpeningaþvætti sé að ræða,
en hugsanlega kann viðkom-
andi aðeins hafa viljað fela
neyslu sína.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÁVÖXTUNARKRAFA á stuttum ríkisskulda-
bréfum hélt áfram að lækka í gær. Áberandi mest
var lækkunin á skuldabréfum, sem eru á gjald-
daga í mars 2010, en krafan á þeim lækkaði um
0,51 prósentustig. Verð bréfanna hækkar með
lækkandi ávöxtunarkröfu og öfugt.
Hefur verð á áðurnefndum skuldabréfaflokki
hækkað um 13,1% á einni viku, en á næststysta
flokknum, sem er á gjalddaga í desember 2010,
nemur verðhækkunin á sama tímabili 7,04%.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu bendir
margt til þess að eftirspurn eftir styttri ríkisbréf-
um fari vaxandi á næstunni með lækkandi innláns-
vöxtum í viðskiptabönkum. Þá töldu greiningarað-
ilar að lesa mætti úr tilkynningu Seðlabankans frá
því á föstudag að dregið yrði úr útgáfu skulda-
bréfa á næstunni. Framboð myndi því aukast
hægar. Verðhækkun síðustu daga má væntanlega
því rekja til þessara tveggja þátta.
Útilokar ekki frekari útgáfu
„Með útgáfunni á föstudaginn höfum við náð því
markmiði, sem ríkissjóður setti í upphafi árs. Hef-
ur Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs nú gefið út
skuldabréf fyrir 145 milljarða króna,“ segir Björg-
vin Sighvatsson, hagfræðingur hjá Seðlabankan-
um. Segir hann að engin ákvörðun hafi verið tekin
um frekari útgáfu á þessu ári, en að ekkert sé úti-
lokað í því samhengi. Velta á skuldabréfamarkaði í
gær nam 22 milljörðum króna, en krafa á öðrum
skuldabréfaflokkum en þeim stysta hreyfðist lítið.
Mikil verðhækkun
Væntingar um aukna eftirspurn eftir stuttum skulda-
bréfum leiða til lækkunar ávöxtunarkröfu á bréfunum
Morgunblaðið/Ómar
Bréf Útgáfa nýrra skuldabréfa á árinu er nú
komin í 145 milljarða og markmiði ríkisins náð.
EXISTA mun
ekki birta árs-
reikning fyrir
rekstrarárið
2008 á aðalfundi
félagsins í dag.
Brýtur það gegn
19. grein sam-
þykkta Exista og
88. gr. hluta-
félagalaga, en
þar segir að viku
fyrir hluthafafund hið skemmsta
skuli ársreikningur lagður fram
hluthöfum til sýnis á skrifstofu fé-
lags og samtímis send sérhverjum
hluthafa sem þess óskar.
Sigurður Nordal, upplýsinga-
fulltrúi Exista, segir að ársreikn-
ingurinn verði ekki birtur vegna
óvissu um tiltekna liði hans, m.a. í
tengslum við uppgjör Exista við
innlendar fjármálastofnanir, en fé-
lagið telur sig eiga kröfur á bank-
ana vegna óuppgerðra gjaldmiðla-
skiptasamninga. Sigurður segir að
lögð verði fram tillaga á aðalfund-
inum um að birtingu ársreiknings
verði frestað til framhalds-
aðalfundar.
Á aðalfundinum í dag verður m.a
kosin ný stjórn og starfskjarastefna
Exista samþykkt, en stjórnendur
Exista hafa lagt til að rekstrar-
kostnaður félagsins, þar á meðal
laun, verði 800 milljónir króna fyrir
næsta ár. thorbjorn@mbl.is
Exista
birtir ekki
reikning
Sigurður
Nordal
Brýtur gegn lögum
og samþykktum
"#$
"#$
%
%
"#$
&$
%
%
'( )
%
%
+ '-$
%
%
"#$
"#$ .!
%
%
● HB Grandi hagnaðist um 6,0 milljónir
evra á fyrri helmingi þessa árs, eða um
1,1 milljarð íslenskra króna á núverandi
gengi. Hagnaður fyrir skatta nam 6,3
milljónum evra. Rekstrartekjur námu
56,7 milljónum evra en voru 62,9 millj-
ón evrur á sama tímabili árið áður.
Minni rekstrartekjur á þessu ári en í
fyrra skýrast af lægra afurðaverði í er-
lendri mynt og loðnuvertíðarbresti, að
því er fram kemur í tilkynningu frá HB
Granda. Þar segir þó að þetta hafi að
hluta verið vegið upp af aukinni veiði á
norsk-íslenskri síld, makríl og gulldeplu.
gretar@mbl.is
Hagnaður HB Granda
um 1,1 milljarður króna