Morgunblaðið - 26.08.2009, Síða 17
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
LJÓST er nú, að Ban Ki-moon,
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, mun sækja Norðmenn heim í
næstu viku þótt hann hafi verið
harðlega gagnrýndur í minnisblaði
frá Monu Juul, sendiherra Noregs
hjá SÞ, en því var lekið í fjölmiðla.
Jonas Gahr Støre, utanríkisráð-
herra Noregs, sagði í fyrradag, að
Ban Ki-moon væri „hjartanlega vel-
kominn“ og talskona framkvæmda-
stjórans, Michele Montas, staðfesti,
að af heimsókninni yrði. Sagði hún,
að minnisblaðið væri innanbúðarmál
hjá Norðmönnum og Ban Ki-moon
hefði ekkert um það að segja.
Áhugalaus gufa
Í minnisblaðinu frá Monu Juul fer
hún hörðum orðum um frammistöðu
Bans í embætti. Segir hún, að hann
hafi litla forystuhæfileika, hann sé
óaðlaðandi og áhugalaus og eftir
honum sé varla tekið. Nefnir hún
sem dæmi „máttlaus afskipti“ hans
af átökunum á Srí Lanka, Darfur,
Sómalíu, Simbabve og Kongó og al-
gjört afskiptaleysi hans af afvopn-
unarmálum. Þá veki athygli, að
hann hafi ekki valið sér til aðstoðar
neina kunna menn með einhvern
slagkraft og að því er virðist til að
koma í veg fyrir, að nokkur verði til
að skyggja á hans eigin persónu.
Juul segir, að fyrrverandi ríkis-
stjórn Bush Bandaríkjaforseta hafi
ráðið mestu um, að Ban Ki-moon
varð fyrir valinu enda hafi hún ekki
viljað fá í embættið mann, sem gæti
látið til sín taka. Ríkisstjórn Obama
hafi enn ekkert látið uppi um af-
stöðu sína til framkvæmdastjórans
en sagt sé, að Hillary Clinton sé af-
ar óánægð með hann. Meðal aðild-
arríkja SÞ sé vaxandi óánægja með
hann nema hvað Kínverjum líki
máttleysið vel.
Minnisblaðið endurspeglar
óánægju Norðmanna og margra
annarra með Ban enda hefur það
vakið mikla athygli á alþjóðavett-
vangi. Kofi Annan, fyrrverandi
framkvæmdastjóri SÞ, hafði náið
samband við Norðurlöndin enda eru
þau meðal þeirra ríkja, sem leggja
mest af mörkum til samtakanna. Á
árunum 2004 til 2006 lögðu Norð-
menn SÞ til rúmlega 2,4 milljarða
dollara og voru þá í sjöunda sæti á
listanum yfir þá, sem leggja mest af
mörkum. Ban hefur samt átt lítið
erindi til Noregs eða annarra Norð-
urlanda hingað til en hann er þeim
mun tíðari gestur á Spáni.
Tjáir sig ekki
um minnisblað
Ban Ki-moon til Noregs þrátt fyrir
ásakanir um getuleysi í embætti
Fréttir 17ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
FYRSTU tölur úr forsetakosningun-
um í Afganistan voru birtar í gær og
samkvæmt þeim hafði Hamid Karzai
forseti aðeins
vinninginn á
helsta keppinaut
sinn, Abdulla Ab-
dullah, fyrrver-
andi utanríkis-
ráðherra.
Stuðningsmenn
hans saka Karzai
um víðtækt kosn-
ingasvindl og
hóta að grípa til
vopna verði hann endurkjörinn í
skjóli þess.
Að sögn yfirkjörstjórnar hafði
Karzai fengið 212.000 atkvæði,
40,6%, en Abdullah 202.000, 38,7%,
er 10% atkvæða höfðu verið talin.
Fylgdi það sögunni, að aðeins væri
búið að telja 2% atkæða í Kandahar-
héraði og engin í Helmand-héraði en
Karzai hefur mikinn stuðning í þeim
báðum. Verður greint frá talning-
unni eftir því sem henni miðar fram
en ekki er búist við lokatölum fyrr en
eftir tvær vikur.
Abdullah hefur sakað Karzai um
gróft kosningasvindl og alþjóðlegir
eftirlitsmenn, sem sögðu í fyrstu, að
kosningarnar hefðu farið vel fram,
viðurkenna nú, að mikill og alvarleg-
ur misbrestur hafi verið á þeim víða.
Hóta að grípa til vopna
Nokkrir stuðningsmenn Abdullah
sögðu í gær, að yrði Karzai endur-
kjörinn með svikum, mætti búast
við, að þeir gripu til vopna.
Svo virðist sem óánægja Banda-
ríkjamanna með Karzai fari vaxandi.
Átti Richard Holbrooke, sendimaður
Baracks Obama Bandaríkjaforseta,
kuldalegan, hálftímalangan fund
með Karzai. Lýsti Holbrooke
óánægju sinni með það kosninga-
samkomulag, sem Karzai gerði við
ýmsa stríðsherra, sem sumir hafa
verið sakaðir um stríðsglæpi. Hol-
brooke átti hins vegar þriggja tíma
fund með Abdullah. svs@mbl.is
Karzai með forystu
Í HNOTSKURN
» Nærri 16 milljónir mannavoru á kjörskrá í forseta-
kosningunum 20. ágúst, þar af
38% konur.
»Talið er, að kjörsókn hafiverið dræm, líklega á
bilinu 40 til 50% og minnst á
landsbyggðinni.
Hamid Karzai
SEGJA má, að þetta fólk í Malda í Vestur-Bengal á Ind-
landi sé á hálfgerðu flæðiskeri statt en nú er tími mons-
únrigninganna með tilheyrandi flóðum. Úrhellið á
þessum tíma er sú lífslind, sem nærir indverskan land-
búnað, en að þessu sinni og raunar nokkur síðustu ár
hefur úrkoman verið minni en í meðalári. svs@mbl.is
Reuters
ALLT Á BÓLAKAFI Í BENGAL
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
DÁNARDÓMSTJÓRI í Los Angel-
es er nú sagður rannsaka dauða
Michaels Jacksons sem manndráp
og talið er líklegt að einkalæknir
söngvarans verði ákærður fyrir að
hafa valdið dauða hans með ban-
vænni lyfjablöndu.
Í málsskjölum, sem gerð hafa ver-
ið opinber, kemur fram að læknir
Jacksons, hjartasérfræðingurinn
Conrad Murray, gaf honum inn
stóra skammta af a.m.k. fimm lyfj-
um á hálfum sólarhring áður en
poppstjarnan dó.
Jackson þjáðist af svefnleysi og
réð Murray nokkrum vikum áður en
hann dó 25. júní. Hermt er að Jack-
son hafi greitt lækninum sem svarar
nítján milljónum króna á mánuði.
Murray játaði í eiðsvarinni yf-
irlýsingu tveimur dögum eftir dauða
Jacksons að hann hefði gefið popp-
stjörnunni inn 50 milligrömm af öfl-
ugu svæfingarlyfi, própófól (dipriv-
an), á hverri nóttu síðustu sex
vikurnar áður en Jackson dó.
Murray kvaðst hafa óttast að Jack-
son væri orðinn háður própófóli og
minnkað skammtinn um helming 22.
júní til að venja hann af svæfingar-
lyfinu. Jackson fékk þá einnig tvö
önnur lyf, lorazepam (svefnlyf) og
midazolam (róandi lyf).
Nóttina eftir fékk Jackson aðeins
tvö síðarnefndu lyfin en ekki própó-
fól og gat sofið. Lyfin tvö dugðu þó
ekki sólarhring síðar því Jackson lá
þá andvaka alla nóttina.
Læknirinn segir að síðustu
klukkustundirnar hafi Jackson sár-
beðið hann um „mjólk“, en popp-
stjarnan notaði það orð yfir própófól
sem er hvítt á litinn. Murray kveðst
hafa neitað því í fyrstu og gefið
Jackson inn valíum, lorazepam og
midazolam fimm sinnum á sex
klukkustundum. Murray gafst að
lokum upp og gaf honum inn 25
milligrömm af própófóli. Jackson
sofnaði þá loksins – en vaknaði aldr-
ei aftur.
Sérfræðingar segja að própófól sé
mjög öflugt svæfingarlyf sem eigi
aðeins að nota á sjúkrahúsum undir
eftirliti svæfingarlækna. Þótt 25
milligramma skammtur eigi ekki að
vera banvænn geti própófól sam-
hliða fyrrnefndri lyfjablöndu verið
stórhættulegt og leitt til hjarta-
stopps.
Þegar bráðatæknar komu á heim-
ili Jacksons og reyndu að bjarga lífi
hans lét læknirinn hjá líða að skýra
þeim frá því að poppstjarnan hefði
fengið própófól.
V
A
L
I U M
(R
)
DAUÐI MICHAELS JACKSONS
25. júní, fimmtudagur 26. júní, föstudagur 27. júní, laugardagur
11.30 f.h. (18.30 að ísl.)
Hermt er að læknir
Jacksons, Conrad
Murray, hafi gefið
honum inn nokkur lyf á
heimili hans í Los
Angeles
12.21 e.h. (19.21 að ísl. tíma)
Starfsmaður Jacksons hringir í
neyðarlínu úr húsinu, segir að
Jackson sé meðvitundarlaus og
andi ekki. Bráðatæknar koma á
staðinn nokkrum mínum síðar og
veita honum skyndihjálp í 42
mínútur. Hann er síðan fluttur á
nálægt sjúkrahús
2.26 e.h. (21.26 að ísl.) - Jackson er
úrskurðaður látinn á sjúkrahúsinu.
Lík hans er flutt með þyrlu á
skrifstofu dánardómstjóra, um 27
km frá sjúkrahúinu, nálægt miðborg
Los Angeles
4.35 e.h. (23.35 að ísl.)
Dánardómstjórinn staðfestir dauða
Jacksons
2.20 e.h.
(21.20 að ísl.) -
Dánardómstjórinn
segir að við líkskoðun
hafi ekki fundist neinir
áverkar á líkinu og hann fyrirskipar
eiturefnarannsókn sem getur tekið allt
að sex vikur
9.30 e.h.
(04.30 að ísl./
laugardag)
Fjölskylda
Jacksons fær
lík hans
11.47 f.h.
(18.47 að ísl.) -
Vefsíðan TMZ.com
segir að fjölskylda
Jacksons hafi
óskað eftir annarri
líkskoðun
4 e.h. (23.00)
TMZ.com skýrir frá
því að önnur
líkskoðun hafi verið
hafin að beiðni
fjölskyldu Jacksons
7 e.h.
(02.00 á sunnd. að ísl.)
Lögreglan yfirheyrir
Conrad Murray lækni,
sem var hjá Jackson
og gaf honum inn lyf
skömmu áður en
poppstjarnan dó
25. júní
26. júní 27. júní
Poppstjarnan Michael Jackson dó af völdum banvænnar blöndu lyfja, m.a. öflugs svæfingarlyfs, própófóls, sem læknir
gaf honum inn. Yfirvöld gruna því lækninn um manndráp, að því er fram kemur í málsskjölum sem hafa verið gerð opinber.
ATIVAN (Lorazepam)
Einkum notað sem svefnlyf, en
einnig við kvíða
VALÍUM (Diazepam)
Róandi, kvíðastillandi lyf sem
getur verið vanabindandi
VERSED
(Midazolam)
Róandi lyf sem
notað er til að
róa sjúklinga
fyrir skurð-
aðgerðir
LÍDÓKAÍN
(Xylocaine)
Staðdeyfilyf,
getur orðið til
þess að
sjúklingur missi
meðvitund
DIPRIVAN (própófól)
Notað til að svæfa
sjúklinga fyrir
skurðaðgerðir, þeim
er þá oft haldið
sofandi í öndunarvél
LYF SEM JACKSON ER SAGÐUR HAFA FENGIÐ
Læknir grunaður
um manndráp
Gaf Jackson inn banvæna lyfjablöndu
Ban Ki-moon var kjörinn fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna
í október 2006 og tók við af Kofi
Annan 1. janúar 2007. Þá hafði
hann verið utanríkisráðherra Suð-
ur-Kóreu frá 2004.
Ekki verður sagt að hann hafi
látið mikið að sér kveða í embætti
og bandaríska tímaritið Foreign
Policy segir að hann sé orðinn að
nýrri viðmiðun þegar um klúður og
mistök sé að ræða. Hann sé jafn eft-
irtektarverður og áhorfandi sem
hafi álpast fyrir slysni inn á sviðið
en ekki ratað út aftur.
Litleysi, klúður
og mistök?
Ban Ki-moon Mona Juul