Morgunblaðið - 26.08.2009, Blaðsíða 19
Daglegt líf 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
Ingólfur Ómar Ármannsson baðaði
sig í Landmannalaugum um versl-
unarmannahelgina:
Ferðin sú mér fögnuð bjó
fjölmargt var að kanna
og þar fann ég frið og ró
í faðmi öræfanna.
Rúnar Kristjánsson gerir skil lýs-
ingum í Velvakanda á gjafabréfum
Icelandair:
Góði vinur gættu að þér,
gildrur víða leyna á sér.
Seint þér gleði og gróða ber
gjafabréf frá Icelandair.
Hallmundur Kristinsson hreyfir
stuðlum og höfuðstöfum vegna
byltu forsetans:
Margra bíður mikill skellur.
Mun þá ljóst að saki.
Stundum þungt til foldar fellur
forsetinn af baki.
Þá Jón Arnljótsson:
Ekkert minnti á Alsírtyrki,
olli hún þó bresti,
bylting gerð hjá Borgarvirki,
bara af einum hesti.
Loks Friðrik Steingrímsson:
Í sama flokki situr kjur
sífellt heilaþveginn.
Ennþá fellur Ólafur
allaballa megin.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Í faðmi
öræfanna
Eftir Björn Björnsson
Sauðárkrókur | Fjölmenni var
viðstatt er prófastur Skagfirðinga,
sr. Dalla Þórðardóttir, vígði og
blessaði nýjan róðukross sem fé-
lag áhugafólks um sögu Skaga-
fjarðar lét setja upp á eyrunum
norðan Djúpadalsár þar sem talið
er að mannskæðasti bardagi Sturl-
ungaaldar hafi verið háður. Árið
1246 reið Þórður kakali með um
sex hundruð manna lið til Skaga-
fjarðar til hefnda eftir Örlygs-
staðafund þar sem vegnir voru
Sighvatur frændi hans Sturluson
og synir hans, ásamt mörgum liðs-
mönnum þeirra. Reynt var að
koma á sáttum milli Þórðar og
Brands Kolbeinssonar sem stýrði
liði Skagfirðinga, en án árangurs,
og í orrustunni við Haugsnes féll
Brandur og á sjöunda tug af liði
hans, en alls er talið að fallið hafi
rúmlega eitt hundrað manns.
Sögunni haldið á loft
Að sögn Kristínar Jónsdóttur,
sem leitt hefur starf áhugahóps-
ins, hófst undirbúningur síðastliðið
haust með því að ná saman og
virkja allt áhugafólk um söguna,
stofna les- og umræðuhópa og síð-
an undirbúa sumarstarfið. Á veg-
um hópsins hafa verið skipulagðar
ferðir um hverja helgi frá 20. júní
þar sem ýmist hefur verið ekið
eða gengið með leiðsögn um sögu-
slóð Sturlungu í Skagafirði. Sagði
Kristín að þátttaka í viðburðum
sumarsins hefði yfirleitt verið góð,
en hápunkturinn var viðburð-
ardagurinn um miðjan ágúst. Þar
hófst dagskrá fyrir hádegi með
umfjöllun rithöfundarins Einars
Kárasonar um Sturlungu, en síðan
rak hvert atriðið annað. Sigríður
Sigurðardóttir safnvörður flutti
erindi um Kolbein Tumason á
Víðimýri og einnig söng þar Helga
Rós Indriðadóttir óperusöngkona.
Tónleikar voru í Miklabæjarkirkju
en þar söng Voces Thules-
hópurinn, sögumaður var á Ör-
lygsstöðum en um kvöldið var Ás-
birningablót í Miðgarði þar sem
hlaðborð var að miðaldasið.
Vígður róðukross
á Róðugrund
En aðalviðburður dagsins var
vígsla róðukrossins á Róðugrund-
inni rétt austan Syðstu-Grundar,
en þar hefur verið hlaðinn vegleg-
ur stöpull og á hann fest róða;
kross með kristslíkneski, gert af
listamanninum Jóni Adolf Stein-
ólfssyni. Flutti sr. Dalla Þórð-
ardóttir hugvekju og vígði kross-
inn og blessaði. Fram kom í
orðum Jóns Adolfs að við smíðina
hefði verið hafður til hliðsjónar
gripur, svokallaður Ufsa-Kristur,
róða sem varðveitt er í Þjóðminja-
safni og talin er vera frá sama
tíma og sú róða sem sett var upp
til minningar um Brand Kolbeins-
son, höfðingja Ásbirninga. Sú er
sögð hafa staðið á Róðugrundinni
allt fram til siðaskipta, er flest var
brotið niður sem minnti á hinn
forna sið.
Að lokinni athöfn var gengið of-
ar á grundina en þar hefur Sig-
urður bóndi Hansen í Kringlumýri
hafið það stórvirki að skipa til
leiks öllum liðsmönnum þeirra
Þórðar og Brands og velur hann
björg úr eyrunum, og táknar hver
steinn einn liðsmann. Hefur Sig-
urður þegar skipað allmiklu af liði
beggja aðila. Sagði Sigurður að
hann vænti þess að sjá mætti
hvernig hann hugsaði sér atburð-
inn þegar menn heimsæktu vett-
vang Haugsnesbardaga að ári.
Skemmtilegur tími
framundan
Kristín Jónsdóttir sagði að nú
sæi fyrir endann á mjög gjöfulu
og skemmtilegu sumri og næst
væri, eftir að fólk hefði kastað
mæðinni, að undirbúa vetr-
arstarfið, því fráleitt yrði hér látið
staðar numið og vænti hún þess
að enn meiri þátttaka yrði í vetur
og fleiri og skemmtilegri ferðir og
atburðir næsta sumar.
Róðukross á blóði
drifnum slóðum
Vígsla Dalla Þórðardóttir vígði og blessaði krossinn.
Í HNOTSKURN
»Frá síðastliðnu hausti hef-ur áhugahópur um skag-
firska sögu unnið að því að
kynna sagnaslóð Sturlungu í
Skagafirði. Hefur verið fjallað
um undirrót og aðdraganda
þess ófriðartímabils sem nefnt
hefur verið Sturlungaöld.
»Hefur hópurinn staðið fyrirmálþingum og ferðum um
helstu sögustaði í Skagafirði
þar sem örlagaatburðir gerð-
ust, svo sem Víðimýri, Flugu-
mýri, Örlygsstaði og Haugsnes.
»Um síðustu helgi var vígð-ur veglegur róðukross, í
líkingu við þann kross sem
reistur var á Róðugrund eftir
fall Brands Kolbeinssonar í
Haugsnesbardaga 1246, en
með falli hans var bundinn endi
á veldi Ásbirninga í Skagafirði.
STOFNAÐ hefur verið félag í þeim
tilgangi að kanna hvort raunhæft sé
að tína villt íslensk ber, hreinsa þau,
flokka, pakka, geyma og selja til ís-
lensks iðnaðar. Bjarni Óskarsson er
forsvarsmaður félagsins og segir
aðalástæðuna fyrir því að íslensk
iðnfyrirtæki flytja inn nær öll ber til
framleiðslu sinnar þá að ekki hefur
verið hægt að tryggja magn og
stöðugt framboð af íslenskum berj-
um. Sá iðnaður sem notar hvað
mest af berjum er mjólkuriðnaður-
inn, sultuframleiðendur einnig bak-
arí, drykkjarframleiðendur og veit-
ingahús. „Forsendur þess að þetta
sé hægt er að við leggjumst öll á eitt
við það að nýta þessa auðlind ís-
lenskrar náttúru,“ segir Bjarni.
Hann segir söfnun íslenskra berja
t.d. tilvalda fjáröflunarleið fyrir fé-
lagasamtök hvers konar og alla þá
sem vilja auka tekjur sínar.
„Hugmyndin er að í framtíðinni
verði komið upp safnstöðvum víðs
vegar um landið,“ segir Bjarni.
Nú í haust verður tekið á móti
berjum á tveimur stöðum; Í Dalvík-
urbyggð á Völlum í Svarfaðardal
alla virka daga og einnig tekur
Bjarni sjálfur við berjum á öðrum
tíma ef hringt er með nokkrum fyr-
irvara í 822-8844. Á Bíldudal mun
Haukur Már Kristinsson taka við
berjum.
Bjarni segir fyrirmyndina að
verkefninu komna frá Svíþjóð og
Finnlandi en þar hafa villt ber verið
tínd og nýtt til iðnaðarframleiðslu
til fjölda ára og flutt út um allan
heim þar sem þau nýtast m.a. til
lyfjaframleiðslu.
Í byrjun verður greitt ákveðið
lágmarksverð fyrir hreinsuð ber.
Umrætt lágmarksverð verður í
byrjun:
Fyrsta flokks hreinsuð að-
albláber 500 kr./kg.
Óhreinsuð aðalbláber 300,- kr./
kg.
Hreinsuð bláber 300 kr./kg.
Hreinsuð krækiber 200 kr. /kg.
Þeir sem tína berin þurfa að gæta
fyllsta hreinlætis og geyma berin á
köldum stað.
Berin geta nýst í íslenskum iðnaði
Vilja kaupa villt ís-
lensk ber í haust
Guðrún María
Þorbjörnsdóttir,
Námufélagi og nemi
í hjúkrunarfræði
La
us
n:
Ly
fs
ed
ill
Kynntu þér Námuna á landsbankinn.is,
í síma 410 4000 eða í næsta útibúi.
150 fríar færslurá ári
fyrirNámufélaga
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
9
2
2
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t.
4
7
10
0
8
-2
0
8
0
.
*
G
ild
ir
íL
au
g
ar
ás
b
íó
i,
S
m
ár
ab
íó
i,
R
eg
nb
og
an
um
,H
ás
kó
la
b
íó
io
g
B
or
g
ar
b
íó
im
án
.-
fim
.s
é
g
re
it
t
m
eð
N
ám
u
ko
rt
i
ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA MEÐ NÁMUNNI
Náman leggur námsmönnum lið með því að bjóða hagstæðari kjör,
betri yfirsýn yfir fjármálin, 2 fyrir 1 í bíó*, 150 fríar færslur á ári,
Námu A-kort með Aukakrónusöfnun auk fjölda annarra fríðinda.