Morgunblaðið - 26.08.2009, Blaðsíða 25
Minningar 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
✝ Þórey Erna Sig-valdadóttir fædd-
ist í Reykjavík 8. júní
1934. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ að morgni
19. ágúst síðastliðins.
Foreldrar hennur
voru Guðrún Þór-
arinsdóttir, f. 26.5.
1906, d. 25.12. 2001,
og Sigvaldi Jónsson,
f. 29.9. 1897, d. 25.7.
1981. Systkini Þór-
eyjar eru Guðbjörg
og Jón Sigvaldabörn.
Þórey giftist 29.12. 1956 Ægi
Jónssyni, f. 28.12. 1936 Börn þeirra
eru: 1) Sigvaldi Hafþór, f. 23.6.
1956, kvæntur Elísabetu
Reinhardsdóttur, og eru börn
þeirra Bjarki Freyr og Aldís Ósk. 2)
Jón, f. 22.3. 1959, kvæntur Svan-
borgu Þuríði Einarsdóttur, og er
barn þeirra Sigríður Ósk. Fyrir átti
Jón börnin Ægi og
Valdísi Hrönn. 3)
Hrönn, f. 15.1. 1961,
gift Guðmanni Reyni
Hilmarssyni, og eru
börn þeirra Hilmar
og Þórey Erna.
Barnabarnabörnin
eru orðin 4. Þórey út-
skrifaðist frá Hús-
mæðraskólanum á
Varmalandi árið
1954. Þórey var hús-
móðir á meðan börnin
þurftu þess, en fór
svo til starfa hjá
Reykjavíkurborg, en síðan ráku
þau hjóni verslunina Skósel ásamt
öðrum hjónum í 10 ár og var það
mikill gleðitími, eftir það fór Þórey
aftur til starfa hjá Reykjavík-
urborg.
Þórey verður jarðsungin frá Ár-
bæjarkirkju í dag, 26. ágúst, og
hefst athöfnin kl. 15.
Elsku mamma mín, þá er ferðalag-
ið hafið hjá þér, það verður skrýtið
lífið hjá mér að hafa þig ekki til að
leita til, þó að við höfum haft góðan
undirbúning fyrir ferðalagið.
Mamma var fædd og uppalin í Laug-
arnesinu, sá staður var henni mjög
kær og renndum við oft síðustu árin í
gegnum hverfið, eftir að við höfðum
verið í bæjarferð og hún leyfði minn-
ingunum að fljóta. Fyrstu æskuminn-
ingar mínar eru úr Laugarnesinu,
fyrst á Kleppsvegi 28 og svo á Bugð-
ulæk 10. Þar var sko mikið fjör oft á
tíðum. Við svona hress systkinin,
margar uppfinningar og mikið að
gera og alltaf tók mamma vel í allar
okkar hugmyndir og hjálpaði okkur
að láta þær rætast, þó að þær enduðu
kannski með plástri eða ferð á slysó.
Svo var flutt í Heiðarbæinn til að
vera nær hestunum en það sport var
búið að lokka okkur til sín. Í Heið-
arbænum var alltaf opið hús, hvort
sem það var fyrir vini okkar eða vini
mömmu og pabba. Þar kom hann
Reynir minn líka til sögunnar, við
bara 17 ára, mamma sá strax að
þarna var lífsförunautur minn kom-
inn, tók hann bara inn í hópinn og
hefur reynst okkur sem klettur.
Börnin okkar Hilmar og Þórey gátu
ekki fengið betri vini en mömmu og
pabba. Í Heiðarbænum höfum við átt
okkur skemmtilegustu stundir og oft
hljómaði þar söngur og gleði og sagð-
ar voru sögur; mamma sagði frá
Hrafnseyri þar sem hún og Gógó
eyddu æskusumrum sínum og voru
auðheyranlega góðar minningar sem
hún átti þaðan. En jafnframt voru
teknar alvarlegar ákvarðanir við
eldshúsborðið, við öll sitjandi við
borðið og mamma í eldhúskróknum
að bera mat á borð og það var með
ólíkindum að ef við komum með gesti
heim þá var alltaf borin fram dýrindis
veisla um leið, það var eins og hún
gæti framleitt allt úr litlu, úr varð
dásamlegur matur. Í hestamennsk-
unni naut mamma sín í botn, stjan-
andi við gesti, í brekkunum að fylgj-
ast með Silla og Nonna að keppa og
jafnvel hann pabbi einhvers staðar að
vinna í félagsmálum. En bestu stund-
irnar hennar voru þegar þau lögðu á
hrossin og fóru í reiðtúra, lengri sem
skemmri. Mamma og pabbi fóru mik-
ið í ferðalög á hestum, enda vinahóp-
urinn stór og margar fjallaferðirnar
farnar með góðum vinum og á góðum
gæðingum. Síðar var ráðist í bygg-
inguna á Þóreyjarnúp, þá hófst kafli í
lífi mömmu sem hún naut fyllilega,
þarna bjó hún sér og pabba hreiður.
Smíðaði eldhúsborð, það vantaði borð
og hún og Hanna æskuvinkona henn-
ar skelltu sér bara á smíðanámskeið.
Hún var mikið fyrir að ferðast, og
fóru hún og pabbi til Kanarí á hverju
ári á meðan heilsa hennar leyfði, síð-
asta ferðin var farin þegar pabbi varð
70 ára og þau áttu 50 ára brúðkaups-
afmæli. Við Reynir fórum út til
þeirra, þá var fjör, farið út að borða
góðan mat og drukkin góð vín, mikið
hlegið og spjallað og þau pabbi sýndu
okkur uppáhaldsstaðina sína. Við
Reynir nutum þessara samvista með
þeim. En nú er komið að leiðarlokum,
elsku mamma mín, oft hafa síðustu
mánuðir verið strembnir og við höf-
um talað saman um að það væri kom-
ið nóg, stundirnar okkar hafa gefið
mér svo mikið og daginn áður en þú
kvaddir áttum við yndislega stund
með hlátri og faðmlögum.
Ég er sátt við að þú fékkst loksins
hvíldina, elsku mamma mín, og kveð
þig með bæninni sem þú og amma
Guðrún kennduð mér.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þín
Hrönn.
Elsku besta amma mín og nafna.
Nú er þinn tími kominn. Eins og mér
fannst óraunverulegt og erfitt að
horfast í augu við þá staðreynd að þú
værir farin frá okkur síðasta mið-
vikudag þá veit ég að þér líður svo
miklu betur. Síðasta ár hefur verið
þér mjög erfitt og það var svo gott að
fá að sjá þig á miðvikudaginn því þú
varst svo friðsæl og falleg. Minning-
arnar eru margar en það situr svo
sterkt í mér hvað þú varst alltaf með
allt á hreinu varðandi okkur krakk-
ana og hafðir mikinn áhuga á að fylgj-
ast með hvernig okkur gekk í skól-
anum. Enda var vaninn oftast sá að
hringja fyrst í þig þegar einkunnir
komu í hús.
Þegar ég hugsa til baka stendur
Heiðarbærinn upp úr og allur tíminn
sem við áttum saman þar. Allur tím-
inn sem ég eyddi inni í hjónaherbergi
að máta skóna þína og skartgripina.
Allur tíminn sem ég eyddi í að velta
fyrir mér hvað væri eiginlega í bláu
tunnunum inni í þvottahúsi. Allir
mánudagarnir sem við fengum af-
gangsgrjónagrautinn úr Lönguhlíð-
inni í eftirmat. Ég gæti haldið enda-
laust áfram en þú og afi hafið svo
sannarlega átt stóran þátt í öllum
þeim góðu minningum sem ég mun
geyma um ókomna tíð. Það eru for-
réttindi að eiga svona góða að eins og
ykkur afa og ég er svo stolt af að fá að
bera nafnið þitt.
Hlakka til að sjá þig aftur og veit
að Guð geymir þig um ókomna tíð.
Þín,
Þórey Erna.
Yndislega amma mín, nú líður þér
vel. Það hefur verið svo erfitt að vera
frá þér síðasta árið, en vonandi hef ég
verið eitthvað til stuðnings. Það eru
ekki allir sem missa ömmu sína og
einn af sínum bestu vinum í einni og
sömu manneskjunni, en það gerði ég.
Hvert sem ég fór og hvað sem ég
gerði var alltaf hringt í ömmu og afa
og látið vita hvernig allt gengi. Þú
hafðir ávallt trú á mér og okkur
krökkunum og alltaf boðin og búin að
hjálpa okkur. Ég veit að þér líður bet-
ur núna eftir þessi leiðinlegu og erf-
iðu veikindi og ég mun ávallt varð-
veita minninguna um þig, elsku
amma mín. Án þín væri ég ekki sá
sem ég er í dag. Guð geymi þig um
ókomna tíð.
Þinn
Hilmar.
Þórey Erna
Sigvaldadóttir
✝
Ástkær faðir minn,
JÓN E. B. GUÐMUNDSSON
flugvélstjóri og flugmaður,
Háaleitisbraut 79,
andaðist á heimili okkar í Flórída mánudaginn
3. ágúst.
Útför hans fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn
28. ágúst kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á sjóðinn Blind börn á Íslandi
hjá Blindrafélaginu.
Larissa Jónsdóttir og fjölskylda.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
AUÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
fimmtudaginn 20. ágúst, verður jarðsungin frá
Selfosskirkju föstudaginn 28. ágúst kl. 13.30.
Sigurjón Bergsson, Pálína Tómasdóttir,
Þórir Bergsson, Bríet Þorsteinsdóttir,
Ólöf Helga Bergsdóttir, Smári Kristjánsson,
Arnlaugur Bergsson, Guðný Ósk Sigurbergsdóttir,
Þórmundur Bergsson, Margrét E. Laxness,
Bergur Heimir Bergsson, Þuríður Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞÓREY ERNA SIGVALDADÓTTIR,
Reiðvaði 1,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju í dag,
miðvikudaginn 26. ágúst kl. 15.00.
Ægir Jónsson,
Sigvaldi Ægisson, Elísabet Reinhardsdóttir,
Jón Ægisson, Svanborg Þ. Einarsdóttir,
Hrönn Ægisdóttir, Guðmann Reynir Hilmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi og
langafi,
STEFÁN MAGNÚSSON,
Ásgötu 12,
Raufarhöfn,
lést laugardaginn 22. ágúst.
Kristjana Ósk Kristinsdóttir,
Kolbrún Stefánsdóttir,
Særún Stefánsdóttir,
Guðrún Stefánsdóttir,
Magnús Stefánsson,
Stefán Jan Sverrisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN SIGURBJÖRG BJARNADÓTTIR,
Spítalastíg 8,
Hvammstanga,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn
24. ágúst.
Guðmundur Jónsson,
Bjarni Guðmundsson, Eygló Ólafsdóttir,
Unnar Atli Guðmundsson,
Jón Halldór Guðmundsson, Margrét Vera Knútsdóttir,
Reynir Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og
langamma,
SVANDÍS RAFNSDÓTTIR,
Litluskógum 3,
Egilsstöðum,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 20. ágúst.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju þriðjudaginn
1. september kl. 13.00.
Minningarathöfn á Egilsstöðum verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Níels Hermannsson,
Rafn Hermannsson
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
ÞORBJÖRG LILJA JÓNSDÓTTIR,
Skúlagötu 40,
Reykjavík,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðinesi
þriðjudaginn 18. ágúst, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju í Reykjavík föstudaginn 28. ágúst og
hefst athöfnin kl. 13.00.
Jón Hólm Stefánsson, Rósa Finnsdóttir,
Nína Áslaug Stefánsdóttir, Daníel Daníelsson,
Rannveig Margrét Stefánsdóttir,
Bergur Viðar Stefánsson, Ingibjörg Stefánsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Greinar, sem berast eftir að útför
hefur farið fram, eftir tiltekinn skila-
frests eða ef útförin hefur verið gerð
í kyrrþey, eru birtar á vefnum,
www.mbl.is/minningar. Æviágrip
með þeim greinum verður birt í
blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Minningargreinar