Morgunblaðið - 26.08.2009, Qupperneq 29
Minningar 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
✝ Geir Kristjánssonfæddist í Reykja-
vík 16. janúar 1934.
Hann lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 14. ágúst sl.
Foreldrar hans voru
Kristín Geirsdóttir
húsmóðir, f. í Múla í
Biskupstungum 3.1.
1908, d. 3.11. 1990,
og Kristján S. Elías-
son bifvélavirki, f. á
Laugalandi í Skjald-
fannardal 31.5. 1899,
d. 9.11. 1977. Systur
Geirs eru Guðbjörg, f. 22.2. 1931,
d. 23.9. 1931, Anna Guðbjörg
kennari, f. 3.2. 1935, og Halldóra
Elísabet kennari, f. 25.6. 1944.
Geir kvæntist hinn 2.6. 1962
Önnu Gísladóttur íþróttakennara,
f. í Reykjavík 25.6. 1933. For-
eldrar hennar voru Guðrún Sig-
og 2) Margrét, matvælafræðingur,
f. 10.5. 1970, í sambúð með Hauki
K. Bragasyni, f. 22.4. 1969, börn
þeirra eru a) Kristófer Geir, f.
14.1. 2006, b) Helga Margrét, f.
21.8. 2007.
Anna og Geir hófu búskap á
Gunnarsbraut í Reykjavík en
fluttu 1972 í nýbyggt hús sitt í
Brúnalandi 32, þar sem þau hafa
búið síðan. Geir starfaði í rúma
tvo áratugi sem skrifstofumaður
hjá Sameinaða gufuskipafélaginu
og Eimskip og síðan við byggingu
Sigölduvirkjunar. Þegar því verki
lauk hóf hann störf hjá fiskverk-
uninni Sæbjörgu en starfaði síðan
sem byggingarverkamaður, lengst
af hjá Ístaki hf. Fótboltinn átti
hug hans allan, hann lék lengi í
marki með Fram, varð m.a. Ís-
landsmeistari árið 1962. Geir var
sæmdur gullmerki Fram árið
1968. Fylgdist hann alla tíð grannt
með íslenskri knattspyrnu en
enski boltinn var hans ástríða.
Útför Geirs fer fram frá Nes-
kirkju í dag, 26. ágúst, kl. 15.
urðardóttir handa-
vinnukennari, f. í
Reykjavík 15.7. 1905,
d. 15.7. 1995, og Gísli
Gestsson safnvörður
frá Hæli, f. 6.5. 1907,
d. 4.10. 1984. Systk-
ini Önnu eru Mar-
grét forvörður, f.
7.5. 1935, Sigrún
lyfjafræðingur, f.
7.11. 1937, og Gest-
ur, jarðfræðingur, f.
26.4. 1946. Börn
Geirs og Önnu eru 1)
Kristján jarðfræð-
ingur, f. 25.5. 1963, kvæntur
Droplaugu Guðnadóttur forstöðu-
manni, f. 12.12. 1959, börn þeirra
eru a) Bjarni Páll, f. 19.1. 1988, d.
15.7. 2008, b) Birkir, f. 13.10.
1989, c) Anna Björk, f. 14.10.
1989, d) sonur Droplaugar er
Baldvin Eyjólfsson, f. 12.8. 1974;
Um leið og ég kom inn í stofu hjá
mágkonu minni og svila um daginn í
tveggja ára afmæli dóttur þeirra
fannst mér eitthvað vanta. Fljótlega
áttaði ég mig á því hvað það var, það
vantaði Geir afa. Ekki svo að skilja
að hann hafi verið svo fyrirferðar-
mikill að maður veitti því athygli ef
hann var ekki á staðnum, þvert á
móti. Hann lét yfirleitt ekki mikið
fyrir sér fara en var samt einhvern
veginn alltaf til staðar ef á þurfti að
halda, alltaf tilbúinn, allt sjálfsagt.
Ég kynntist tengdaföður mínum
fyrir meira en tuttugu árum og frá
fyrstu kynnum fór vel á með okkur,
hann ávarpaði mig yfirleitt „tengda-
dóttir góð“.
Geir var ekkert alltaf auðveldur,
dulur, fór sínar eigin leiðir í flestu,
hafði ákveðnar skoðanir á mönnum
og málefnum og ég ekki alltaf sam-
mála en það truflaði ekkert. Eitt
reyndi ég þó aldrei að ræða við hann
en það var fótbolti. Þau alvörumál
ræddi hann aðeins við aðra sérfræð-
inga, fótbolti var hans áhugamál
númer eitt, hann fylgdist með ís-
lenska fólboltanum en enski boltinn
var hrein ástríða. Sjálfur stundaði
Geir fótbolta á yngri árum, varð Ís-
landsmeistari með fótboltafélaginu
Fram og var handhafi gullmerkis
þess félags. Kvennaknattspyrna var
ekki hátt skrifuð hjá honum framan
af en það var gaman að fylgjast með
hvernig hann fór smám saman að
veita henni athygli eftir að Anna
Björk, sonardóttir hans, var komin á
fulla ferð í boltanum, jafnvel farinn
að mæta á leiki.
Geir var af þeirri kynslóð sem tók
ekki mikinn þátt í uppeldi sinna eig-
in barna en barnabörnin nutu hans
því meira. Í þeirra uppeldi tók hann
þátt og hjálpaði til eins og hann gat,
vildi allt fyrir þau gera. Sama má
segja um okkur fullorðna fólkið, ef
hann gat orðið að liði var hann boð-
inn og búinn. Við hjónin fluttum
tvisvar inn á heimili tengdaforeldra
minna um tíma með börnin okkar,
ekki bara að það þætti sjálfsagt mál
heldur lét hann lítið fyrir sér fara,
mér fannst stundum eins og hann
reyndi að vera ekki fyrir okkur á
sínu eigin heimili. Allir voru alltaf
velkomnir í Brúnalandið hvort held-
ur til lengri eða skemmri tíma. Það
hús byggði hann að mestu leyti
sjálfur og var ákaflega stoltur af,
þótti vænt um heimili sitt og vildi að
sem flestir nytu þess með honum. Í
því hafa þau tengdaforeldrar mínir
verið sem einn maður, heimilið
stendur öllum opið.
Geir var búinn að standa í
ströngu undanfarin ár. Tvígreindur
með krabbamein, tvær meðferðir,
sár ástvinamissir sem efalaust tók
sinn toll, þó lét hann á litlu bera,
kvartaði ekki og bar sig vel ef hann
var spurður.
En við fundum þó undanfarnar
vikur að hann var ekki eins og hann
átti að sér. Í ljós komu veikindin
enn eina ferðina og nú gerðist allt
mjög hratt, líkaminn virtist ekki
ráða við meira.
Um leið og ég kveð Geir, tengda-
föður minn, þakka ég af alhug hvað
hann var mér og mínum.
Droplaug.
Látinn er elskulegur bróðir og
mágur. Við systkinin og makar höf-
um í allmörg ár tekið viku saman í
sumarhúsi okkar í Borgarfirðinum.
Í ár var systkinavikan í byrjun júlí.
Við áttum yndislegar stundir sam-
an í fögru umhverfi og góðu veðri.
Það var mikið áfall fyrir okkur að
sjá hvað Geir var máttfarinn og
þreklaus en hann var fullviss um að
hann myndi sigrast á veikindunum.
Þrátt fyrir þrekleysið keyrði hann
daglega niður í Borgarnes til að
sækja Morgunblaðið. Veðrið var
yndislegt, mikið var gengið, spjall-
að og hlegið og áttum við góðar
samverustundir. Við systkinin og
fjölskyldur áttum frábært sumar
saman. Héldum upp á 110 ára ártíð
föður okkar Kristjáns S. Elíasson-
ar. Einnig áttum við yndislega sam-
verustund á þjóðhátíðardaginn í
skírnarveislu barnabarns Önnu
systur.
Það er margt sem kemur upp í
hugann á svona stundu og eru það
góðar minningar um frábæran
bróður. Árið 1956 lék hann í meist-
araflokki Fram. Þegar ég var ung-
lingur uppgötvaði ég að Geir bróðir
væri heimsfrægur fótboltamaður á
Íslandi. Það gerðist með þeim hætti
að bekkjarbræður mínir sáu mig
með þeim fræga markmanni í Fram
og vildu fá að vita hvernig ég
þekkti hann. Ég horfði undrandi á
drengina og sagði að hann væri
bróðir minn. Það var óborganlegt
að sjá svipbrigðin á drengjunum
enda allir Framarar í húð og hár.
Geir var vinamargur og hafði gam-
an af því að bjóða vinum sínum
heim eftir góðan knattspyrnuleik.
Ég svaf í stofunni heima á Njáls-
inum og var oft vakin og send hálf-
sofandi burt úr stofunni í herbergið
hans Geirs þegar hann kom með
vini sína í partí. En svona var and-
inn á okkar heimili, bara léttleiki og
elskulegheit. Hann var í siglingum
á sínum yngri árum og kom þá með
ýmisleg góðgæti sem var sjaldséð á
þeim tíma á Íslandi. Ekki algengt
að fá Mackintosh-sælgæti og
ávexti. Það var alltaf mikil gleði-
stund og hátíð í bæ á Njálsgötunni
þegar stóribróðir kom heim eftir
siglingar. Þegar við Daði bjuggum í
Þrándheimi höfðum við ekki mikið
á milli handanna eins og fleiri
námsmenn. Hann sendi okkur góða
peningaupphæð sem við notuðum
skynsamlega og áttum við hansa-
hillurnar í marga áratugi. Hann var
einstaklega hjálplegur og gott að
biðja hann um aðstoð. Einnig hafði
hann mikla réttlætiskennd gagn-
vart þeim sem minna máttu sín.
Þegar hann starfaði á hálendinu
var oft brotið á mönnum með yf-
irvinnu og aðbúnað á vinnustað.
Geir tók upp hanskann fyrir þessa
menn og hafði rétt þeirra fram.
Geir bróðir var myndarlegur
maður, glettinn og hláturmildur og
átti því láni að fagna að eiga ein-
staka eiginkonu og fjölskyldu. Við
Daði þökkum fyrir ævilanga vin-
áttu og góðvild.
Elsku Anna mágkona, Margrét,
Haukur, Kristján, Dodda og barna-
börn. Það er aðeins eitt ár og einn
mánuður síðan Bjarni Páll barna-
barn Geirs og Önnu kvaddi. Það er
mikil sorg hjá ykkur að kveðja ung-
an efnilegan mann í blóma lífsins og
svo eiginmann og föður með svo
stuttu millibili. Við sendum ykkur
öllum hlýjar samúðarkveðjur. Megi
Guð veita ykkur styrk, kraft og trú
í sorg ykkar. Elsku bróðir og mág-
ur, hvíl í friði.
Halldóra og Daði.
Það er erfitt að átta sig á því að
hann Geir, móðurbróðir okkar,
skuli vera fallinn frá. Hann var
sjálfum sér líkur þegar við sáum
hann síðast 17. júní, glaður og reif-
ur og virtist ekkert vera á förum.
Hann fór á kostum þegar við
komum saman stórfjölskyldan um
hvítasunnuhelgina til að minnast
110 ára afmælis Kristjáns afa okk-
ar heitins. Þar rifjaði hann upp
skemmtisögur af föður sínum og
dró upp skýrari mynd fyrir okkur
barnabörnunum um hvern mann
hann afi hafði að geyma.
Geir minnti um margt á Kristján
afa í umgengninni við barnabörnin
sín. Óskipt athygli í garð lítilla sem
stórra barna. Geir bar góðan vitn-
isburð gildum bernskuheimilisins
og Brúnalandið var barnabörnun-
um sama griðland og Njálsgatan
hafði verið okkur.
Ástin og virðingin sem Kristín
amma og Kristján afi okkar báru
hvort fyrir öðru skilaði sér vel til
barnanna Geirs, Önnu og Dóru.
Hjá þeim giltu sömu lífsreglur og
fyrir þeim var haft. Það hefur verið
okkur góð fyrirmynd að alast upp
við samstöðu og samhygð systk-
inanna þriggja.
Þau hafa treyst böndin vel með
árunum og lagt rækt við sam-
bandið með systkinaferðum um
landið og miðin. Þau hafa farið í ár-
vissa ferð í Borgarfjörðinn til Dóru
og Daða og brugðið sér saman til
útlanda þegar þannig stóð á. Genf-
arferðin til Sólveigar er enn í minn-
um höfð.
Geir var vel kvæntur. Geir og
Anna Gísla hafa alla tíð verið órjúf-
anleg heild í okkar uppvexti. Og
gott fólk getur gott af sér. Börnin
tvö, tengdabörnin og barnabörnin
bera öll merki þeirra Geirs og
Önnu um traust og festu, kærleik
og kjark.
Geir frændi okkar var hávaxinn
og beinvaxinn, léttur í lund, kvikur
en þrjóskur þegar þannig bar við.
Hann var íþróttamaður, markmað-
ur í Fram þegar fótboltinn var að
festa sig í sessi hér á landi, og eft-
irminnilegur þeim sem sáu hann
spila. Geir var fjölskyldumaður
fyrst og fremst, traustur faðir,
sálufélagi Önnu Gísla og félagi
barnabarnanna. Hann missti mikið
þegar Bjarni Páll, elsti sonarson-
urinn, lést í fyrra, en fjölskyldan
öll sýndi þrautseigju sína og þor,
samheldni og styrk þegar hún
tókst saman á við veikindi hans.
Fjölskyldusamkomur verða ekki
samar, Geirs verður sárt saknað.
Móðir okkar hefur misst góðan
bróður. En missir Önnu, Kristjáns
og Doddu, Margrétar og Hauks, og
barnabarnanna er mestur. En Geir
lést eins og hann lifði, í friði og sátt
við Guð og menn.
Hugi, Sólveig og Kristín.
Geir hefur alltaf verið hluti af lífi
okkar systkinanna. Frá barnsaldri
og þar til við komumst á fullorðinsár
bjuggum við í næsta húsi við hann í
Brúnalandi. Börnin þeirra og
frændsystkin okkar, Kristján og
Margrét, eru á okkar aldri og vor-
um við því heimagangar á heimili
Önnu og Geirs á þessum árum. Það
var alltaf, og er enn, gott að koma á
heimilið í Brúnalandi 32. Þar á bæ
var jafnan rólegt og yfirvegað and-
rúmsloft og ekki asi á hlutunum.
Þegar fjölskyldan hittist hafði Geir
sig yfirleitt ekki mikið í frammi en
hann var samt alltaf tilbúinn að
ræða menn og málefni og hann var
ákveðinn og mikill prinsippmaður.
Veikindi Geirs áttu sér nokkuð
langa sögu. Hann tók þeim með
jafnaðargeði og hafði jafnan fá orð
um sína líðan. Tvisvar sinnum sigr-
aðist hann á sínum veikindum. Við
systkinin töldum því að veikindin
væru að baki þegar við hittum hann
á ættarmóti á Laugarvatni nú í sum-
ar. Við áttum þar góða stund saman
en þegar Geir var spurður hvort
hann vildi vera með í brennibolta
svaraði gamli markmaðurinn á sinn
hægláta hátt: „Nei, það er búið að
skjóta nóg í mig um ævina.“
Þegar sjúkdómurinn tók sig upp í
þriðja sinn var baráttan hins vegar
stutt. Nú verður ekki fleiri boltum
skotið í Geir.
Það er skammt stórra högga á
milli því fyrir rétt rúmu ári lést
elsta barnabarnið þeirra, ljúfi
drengurinn Bjarni Páll Kristjáns-
son, úr illkynja sjúkdómi. Hugur
okkar er því hjá Önnu, Kristjáni og
Margréti, tengdabörnum og barna-
börnum og vottum við þeim samúð á
þessari sorgarstundu.
Gísli, Már, Guðrún og Vigdís.
Kveðja frá Knattspyrnu-
félaginu Fram
Geir Kristjánsson fæddist árið
1934 og ólst upp við Njálsgötu.
Svæðið umhverfis Njálsgötuna var
þá þegar orðið eitt helsta vígi
Knattspyrnufélagsins Fram. Hverf-
ið var barnmargt og í hverju húsi
mátti finna einn eða fleiri stráka á
fótboltaaldri. Strákafélög spruttu
upp eins og gorkúlur og æft var af
kappi hvar sem færi gafst. Þegar
Framarar efndu til knattspyrnuæf-
inga héldu drengirnir svo í fríðri
fylkingu, tugum saman, á nýja völl-
inn sem félagið hafði komið upp fyr-
ir neðan Sjómannaskólann sumarið
1945.
Ekkert hinna Reykjavíkurliðanna
gat státað af álíka fjölda ungra iðk-
enda og Knattspyrnufélagið Fram á
frumbýlingsárum sínum í Skipholt-
inu. Árangurinn lét heldur ekki á
sér standa og Framarar eignuðust
mörg geysisterk kapplið í yngri
flokkum. Geir Kristjánsson var
markvörður í einu þessara liða,
ásamt góðum félögum sem síðar
áttu eftir að leika fyrir hönd félags-
ins í meistaraflokki. Vináttubönd
drengjanna úr Austurbænum hafa
haldist órofin til þessa dags.
Snemma varð Geir aðalmarkvörð-
ur meistaraflokksliðs Fram í knatt-
spyrnu. Hann þótti litríkur leikmað-
ur og kunnu knattspyrnu-
áhugamenn ýmsar sögur að
skemmtilegum uppátækjum hans á
leikvellinum. Hápunkturinn á ferli
Geirs var ótvírætt Íslandsmeistara-
titillinn árið 1962 þegar Framarar
unnu Íslandsmótið í fyrsta sinn í
fimmtán ár. Þar kom markvörður-
inn mikið við sögu, ekki hvað síst í
frægum úrslitaleik gegn Valsmönn-
um í hávaðaroki.
Ekki rofnuðu tengsl Geirs og
Fram þótt hann legði hanskana á
hilluna. Hann fylgdist alla tíð
grannt með gengi félagsins og sýndi
t.d. ritun nýútkominnar 100 ára
sögu Fram mikinn áhuga og lagði
sitt af mörkum með frásögnum og
gömlum ljósmyndum.
Knattspyrnufélagið Fram sér nú
á eftir góðum félaga og vottar fjöl-
skyldu Geirs Kristjánssonar samúð
sína.
F.h. Knattspyrnufélagsins Fram,
Stefán Pálsson.
Nú hefur verið höggvið vandfyllt
skarð í vinahópinn þar sem Geir
Kristjánsson er allur. Þar með lýkur
samferð sem stóð í tæplega 60 ár.
Límið í þessum vinahóp voru fimm
stöllur sem höfðu haldið hópinn allt
frá því í æsku og hittust reglulega í
því ágæta félagslega fyrirbæri sem
kennt er við saumaskap, þó að okk-
ur mökum þeirra sem áttum ekki
sæti á þeim fundum fyndist oft ann-
að mikilvægara vera á prjónunum
þ.e. upprifjanir og umræður um af-
komendur. Þó skal lítt fullyrt hvað
þar var rætt því að okkur körlunum
var vinsamlega bent á það að halda
okkur til hlés þegar fundir voru
haldnir á heimilum okkar. En kynni
annars okkar undirritaðra hófust
fyrir ríflega 50 árum við íþróttaiðk-
anir, nánar tiltekið þar sem við lék-
um saman körfuknattleik í Körfu-
knattleiksfélagi Reykjavíkur (KFR
sem síðar varð deild í Val). Geir var
á yngri árum knár íþróttamaður,
einkum í knattspyrnu þar sem hann
var lengi markvörður í Fram. Við
vorum að því leyti kollegar þar eð
ég lék í marki KR nokkru fyrr. Geir
var mjög íhugull og gagnrýninn og
fræddi undirritaðan oft um í hverju
galdur markvörslunnar fælist en
íhygli hann beindist ekki einungis
að knattspyrnu heldur einnig að
samfélagsmálum. Hann tók engu
sem gefnu, þ.e. hvorki í íþróttum né
samfélagsmálum, en braut hlutina
til mergjar og tók mjög svo sjálf-
stæða afstöðu til mála. Það er
margs að minnast frá heimsóknum
ýmist á því fallega heimili sem Anna
bjó þeim í Brúnalandi eða hjá okkur
í Hæðargarði. Hann var launkíminn
og hló oft hjartanlega þegar við vor-
um í bullstuði. Fyrir allmörgum ár-
um tók hann þann illkynja sjúkdóm
sem dró hann til dauða. Hann tók
því með æðruleysi sem og harðvít-
ugri meðferð sem virtist skila ár-
angri. En fyrir skömmu tók sjúk-
dómurinn sig upp að nýju og varð
nú við ekkert ráðið. Minnisstæð er
mér heimsókn hans nýverið og sé þá
fyrir mér sitja í sófanum heima hjá
okkur son minn og hann í hróka-
samræðum. Þar var hið margum-
rædda kynslóðabil ekki til staðar.
Hugur okkar og samúð er hjá Önnu
og afkomendum þeirra og vensla-
fólki á þessari kveðjustund. Blessuð
sé minning Geirs og þökk fyrir
langa og ánægjulega samfylgd.
Örbrún Halldórsdóttir og
Guðmundur Georgsson.
Geir Kristjánsson
Björg
Svavarsdóttir
✝ Björg Svav-arsdóttir fæddist
á Höfn 12. ágúst 1951.
Hún lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut laugardaginn
15. ágúst síðastliðinn.
Björg var jarð-
sungin frá Hafnarkirkju laugardaginn
22. ágúst sl.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
✝ Ingibjörg Guð-mundsdóttir
fæddist í Hnífsdal
27. október 1912.
Hún andaðist 7.
ágúst síðastliðinn.
Útför Ingibjargar
fór fram frá Ísa-
fjarðarkirkju 15.
ágúst sl.
Meira: mbl.is/minningar
Ingibjörg Guð-
mundsdóttir