Morgunblaðið - 26.08.2009, Blaðsíða 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Garðar
GRÓÐURMOLD
Úrvals gróðurmold, hellusandur og
göngustígaefni afgr. á bíla og kerrur.
Kambur ehf., Geirlandi v/Suðurlands-
braut, sími 892 0111 / 554 3922,
kamburehf@simnet.is
Gisting
AKUREYRI
Sumarhús (130 fm) til leigu við
Akureyri. 4 svefnherb. + svefnloft, 2
baðherb, rúm fyrir 11 manns, verönd
og heitur pottur, glæsilegt útsýni yfir
Akureyri. www.orlofshus.is eða
Leó, sími 897 5300.
Húsnæði óskast
Sumarhús
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu eignarlóðir Möðruvöllum 1
(Norðurnes) í Kjós. Upplýsingar í
símum 561 6521 og 892 1938.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum til sölu.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Smart Motion
hlaupastílsnámskeið
Lærðu að hlaupa á léttari máta með
minna álagi á fætur, hné, mjaðmir
og mjóbak. Skráning á www.smart-
motion.org, Smári s. 896 2300.
Microsoft kerfisstjóranám
Windows Server 2008 Administrator
nám hefst 14.9. Verð kr. 229.000 fyrir
341 st. nám. Upplýs. og skráning á
www.raf.is og í síma 863 2186.
Rafiðnaðarskólinn.
Tómstundir
Óska eftir
Óska eftir eftir að kaupa
færanlegan söluvagn, og einnig tvö
stykki candy flos vélar.
Uppl. gefur: jón s. 661 3700.
KAUPUM GULL
Kaupum gull til að smíða úr. Spörum
gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins
í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og
Óskar - jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Vélar & tæki
Vélaleiga og hellulagnir
Traktorsgrafa, minigrafa og vörubíll.
Hellulagnir, drenlagnir og jarðvegs-
skipti. Margra ára reynsla og vönduð
vinnubrögð. Mr vélar, símar 698 1710
og 616 1170.
Bátar
Strandveiðimenn
Fiskiker gerðir 300, 350, 450
og 460. Línubalar 70 og 80 l.
Allt íslensk framleiðsla í hæsta
gæðaflokki.
www. borgarplast.is
Völuteig 31,
Mosfellsbæ,
s: 561 2211.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
KRINGLUBÓN ekið inn stóri-
litli turn. Opið mán.-fös. 8-18,
lau. 10-18. S. 534 2455
GÆÐABÓN Hafnarfirði bílakj.
Firðinum (undir verslunarm.)
Opið mán.-fös. 8-18. S. 555 3766
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, mössun, teflon, blettun,
bryngljái, djúphreinsun.
Bón og þvottur, Vatnagörðum 16,
sími 445 9090
Bón & þvottur. Gerir meira en að þvo
og bóna bílinn þinn, djúphreinsa og
nánast hvað sem þú biður um. Við
lagfærum bíla fyrir skoðun og skilum
þeim nýskoðuðum heim til þín. Fram-
kvæmum einnig smærri viðgerðir.
Bjóðum einnig fyrirtækjum upp á
nætur- eða helgarþjónustu - ódýr og
góð þjónusta. www.bonogtvottur.is
sími 445-9090, gsm 615-4090.
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.Varahlutir
www.netpartar.is
PARTASALA ...NOTAÐIR VARAHLUTIR Í NÝLEGA BÍLA
486 4499
486 4477
Lampar með stækkunargleri
í úrvali.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is
✝ Kristín Þorláks-dóttir fæddist á
Skútustöðum í Mý-
vatnssveit 8. maí
1920. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 20. ágúst sl.
Foreldrar hennar
voru hjónin Arn-
fríður Sigurgeirs-
dóttir, f. á Arnarvatni
1. ágúst 1880, d. 8.
mars 1954, og Þor-
lákur Jónsson bóndi,
f. á Helluvaði 31.
mars 1884, d. 15.
ágúst 1930. Systkini Kristínar eru
öll látin. Þau voru Jón, f. 17. maí
1912, d. 1996, Geirfinnur, f. 6. júlí
1914, d. 12. janúar 1942, og Málm-
fríður, f. 14. ágúst 1917, d. 6. maí
1982.
Hinn 9. ágúst 1941 giftist Kristín
Sigurði Halldórssyni, kaupmanni
og síðar útsölustjóra hjá ÁTVR, f.
maki Ólafur Brynjólfsson, börn
Brynjólfur Már og Regína Saga b)
María, f. 1978, maki Sigurður Arn-
ar Hermannsson, börn Ásdís Arna
og Emma. 4) Ásgeir, f. 26. maí
1946, kvæntur Marín Pétursdóttur,
f. 8. janúar 1949. Börn a) Fjóla
Ágústa, f. 21. október 1967, dætur
Steinunn Marín og Þóra María. b)
Sigurður, f. 1970, maki Sólveig
Hannesdóttir, börn Þorgerður
Katla og Pétur Þór. c) Pétur
Steinn, f. 24. ágúst 1979. 5) Halldór
Þorlákur, f. 11. október 1947, sam-
býliskona Björg Jónasdóttir, f. 21.
maí 1952. Dætur Halldórs eru a)
Sólveig, f. 1971, og b) Kristín Auð-
ur, f. 1975. Móðir Ólöf S. Rafns-
dóttir, f. 13. júlí 1946 (skildu). c)
Aðalheiður Björg, f. 7. nóvember
1987. Móðir Kristín María Haf-
steinsdóttir, f. 24. júlí 1955, d. 2005
(skildu). Dætur Bjargar eru Hall-
dóra Lísa, f. 1981 og Arna Björg, f.
1985, dóttir hennar Sunna Björg.
6) Kristín Huld, f. 1. apríl 1953.
Útför Kristínar fer fram frá
Dómkirkjunni í dag, 26. ágúst, og
hefst athöfnin kl. 15.
7. maí 1910, d. 24.
september 1982. Þau
bjuggu lengst af í
Öldugötu 33 í Reykja-
vík, en Kristín bjó
síðustu 30 árin í Há-
vallagötu 33. Börn
þeirra: 1) drengur, f.
20. ágúst 1942, d. 21.
ágúst sama ár. 2)
Arnfríður, f. 16.
ágúst 1943, búsett í
Seattle í Bandaríkj-
unum. Var gift Roger
P. Burke, f. 9. sept-
ember 1939, d. 1994
(skildu). Börn þeirra eru a) Erin, f.
4. 1971, gift Nicholas Haynes, börn
þeirra eru Karítas Ása og Óðinn
Nikulás. b) Patrick Steinn, f. 1976,
kvæntur Misty Burton, sonur henn-
ar Alexander. c) Þór Sigurður, f.
1978. 3) Erna, f. 19. október 1944,
gift Má Gunnarssyni, f. 2. maí 1951.
Dætur hans eru a) Ólafía, f. 1977,
„Við erum búnar að vera góðar
saman, við þrjár, er það ekki?“ sagði
mamma við Kristínu og Ernu daginn
áður en hún lést. Frá því að hún
veiktist í nóvember annaðist Erna
hana á daginn og síðan tók Kristín
við. Már sýndi mikinn skilning og
veitti aðstoð ásamt bræðrunum og
Marín. Mamma var yngst fjögurra
systkina og var tíu ára þegar faðir
hennar lést. Ungir bræður hennar
tóku við búinu og komu í veg fyrir að
heimilið leystist upp. Þótti henni afar
vænt um Jón alla tíð vegna þessa.
Fjögurra ára fékk mamma lömunar-
veiki en náði sér að fullu. Hún var
handsterk og liðug fram á síðasta
dag enda höfðu þau Geirfinnur hang-
ið á burðarbitum Skútustaðabæjar-
ins og iðkað ólíklegustu fimleika.
Hún hafði frá fyrstu tíð mikinn
áhuga á stjórnmálum og sat á barns-
aldri í þinghúsinu og hlustaði á
frændur sína og aðra stjórnmála-
menn rökræða um landsins gagn og
nauðsynjar. Henni leiddist heyskap-
ur, var klaufsk að mjólka og kom
ekki að miklu gagni í sauðburði. Hún
hélt því til Reykjavíkur árið 1939 til
að læra kjólasaum. Á heimili föður-
ömmu okkar hitti hún pabba.
Mamma gekk í skóla í Mývatnssveit
og lauk einnig prófi frá Húsmæðra-
skólanum á Laugum. Hún var sér-
staklega vandvirk, hafði gott lita-
skyn og var það góður og
afkastamikill vefari að hún var feng-
in til að vefa áklæði á húsgögn hús-
mæðraskólans. Foreldrar okkar
misstu fyrsta barnið, dagsgamlan
son, árið 1942. Sama ár hafði Geir-
finnur látist af slysförum. Mamma
hafði fram á síðasta dag áhuga á að
þroska hugann. Enda var móðir
hennar félagsmálakona sem fékkst
við skriftir. Mamma lagði fyrir sig
tungumálanám. Hún var trúuð og
hafði áhuga á andlegum málefnum.
Hún var góð íslenskukona. Hún
hlustaði á tónlist, sótti tónleika og
fannst verst, þegar sjónin brást, að
geta ekki lesið, enda mikill lestrar-
hestur. Hún var að mestu heima-
vinnandi.
Það var líflegt að alast upp við
Öldugötuna. Mikill gestagangur og
vinir okkar voru alltaf velkomnir.
Garðurinn var svað eftir fótboltaleiki
og við fengum að leggja undir okkur
háaloftið til ýmissa leikja. Mamma ól
okkur upp í jafnrétti, væntumþykju
og virðingu fyrir náunganum.
Mamma var bóngóð kona og aðstoð-
uðu þau pabbi Halldór með Sólveigu
og Kristínu Auði. Eins áttu börn
Öffu athvarf hjá afa sínum og ömmu.
Mamma hafði unun af að ferðast.
Líbanon og Jamaíka voru henni
hjartfólgin. Einnig Saudi-Arabía,
þar sem þau pabbi dvöldu oft hjá
Öffu og fjölskyldu.
Við viljum þakka öllum sem hafa
stutt okkur undanfarið við að gera líf
mömmu bærilegt. Rakel sjúkraþjálfi
hefur verið einstök og einnig Sigríð-
ur og Hildur. Auður Gísla létti henni
stundir og teymið á A7, með Jenný
og Inger í broddi fylkingar veitti
okkur öryggi og henni aðstoð síðustu
stundirnar.
Við viljum kveðja mömmu og
þakka fyrir umhyggjuna með ljóði
sem Arnfríður amma orti þegar
stelpan hennar flutti til Reykjavíkur
árið 1939:
Nú krýp ég mætti, er stillir storma,
fær stjörnubirtu í hug mér fest,
og ber þig, kæra í bænum mínum
að brjósti hans, sem ég treysti bezt.
Arnfríður, Erna, Ásgeir,
Halldór og Kristín.
Elsku amma mín, ég kveð þig í
dag með sorg og söknuði. Takk fyrir
allar þær stundir sem við áttum sam-
an, við vorum rækalli duglegar að
spila og púsla og spjölluðum oft vel
og lengi. Síðan ég var lítil hef ég allt-
af litið upp til þín og finnst mér sárt
að þurfa að kveðja þig í dag. Takk
fyrir allt, elsku amma, ég sakna þín
og mun aldrei gleyma þér.
Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn,
til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á
himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð,
og fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum vorum
skuldunautum.
Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa
oss frá illu.
Því að þitt er ríkið,
mátturinn og dýrðin
að eilífu. Amen.
Þín,
Aðalheiður Björg (Heiða.)
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Með þessari litlu bæn vil ég kveðja
Kristínu Þorláksdóttur og þakka
henni fyrir einstaka vináttu og um-
hyggju í hartnær þrjátíu ár. Kristín,
sem var mamma Kristínar Huldar
vinkonu minnar, var um leið svo
sannarlega ein af mínum bestu vin-
konum sem deildi með mér gleði og
sorgum daglegs lífs og amsturs.
Kristín var einstök kona með afar
hlýtt og glaðlegt viðmót. Ekkert
mannlegt var henni óviðkomandi og
bar hún mikla umhyggju fyrir sam-
ferðamönnum sínum. Hún var vel
lesin og hafði ferðast víða og naut ég
þess að spjalla við hana tímunum
saman – enda oft þaulsætin á Há-
vallagötunni. Kristín var mikil fjöl-
skyldukona og var sérstök væntum-
þykja og hlýja í rödd hennar er hún
talaði um barnabörnin sín, líf þeirra
og fjölskyldur. Hún var mikill húm-
oristi og hafði oft gaman af uppá-
tækjum yngstu meðlima fjölskyld-
unnar. Heimili þeirra Kristínar
Huldar á Hávallagötunni stóð fjöl-
skyldunni alltaf opið og var ósjaldan
glatt á hjalla við stofuborðið þar sem
endalaust rúmuðust gestir. Síðasta
ár reyndist Kristínu erfitt vegna
veikinda en þær Kristín Huld og
Erna studdu hana á alla lund og um-
vöfðu ást og umhyggju allt fram á
hinstu stund. Fyrir það var hún
óendanlega þakklát.
Nú er komið að leiðarlokum. Ég
votta Kristínu Huld, Ernu, Öffu,
Halldóri, Ásgeiri og fjölskyldum
þeirra innilega samúð mína. Missir
þeirra er mikill. Guð blessi minningu
Kristínar og veiti syrgjendum henn-
ar styrk.
Ósa Knútsdóttir.
Það voru forréttindi að þekkja
Kristínu Þorláksdóttur sem er nýlát-
in því að það eru forréttindi að
þekkja gott fólk.
Kristínu þekkti ég frá því að ég
var tveggja ára á Öldugötunni.
Kristín var mamma Kristínar minn-
ar Huldar, en við urðum vinkonur
mjög ungar.
Ég man hve gaman mér þótti á
heimili Kristínar og Sigurðar. Þar
voru fimm systkini og mér einka-
barninu fannst það ansi heillandi.
Þetta var annar heimur. Ég var hjá
ömmu, afa og kisu á daginn, en
mömmu á kvöldin. Það var því gam-
an að vera í stórum systkinahópi.
Það er svo margt sem kemur upp í
hugann frá Öldugötuárunum, Stiga-
hlíðarárunum og ekki síst Hávalla-
götuárunum.
Kristín Þorláksdóttir var einstak-
lega góð falleg kona, vel gefin, stolt
og vildi öllum vel. Hún var sannköll-
uð ættmóðir. Það var hún fram á síð-
asta dag.
Kristín var svo lánsöm að Kristín
Huld yngsta dóttir hennar hélt með
henni heimili alla tíð. Kristínarnar
voru ekki bara mæðgur heldur mikl-
ar vinkonur sem báðu virðingu hvor
fyrir annarri. Missir Kristínar Huld-
ar er því afar mikill.
Síðustu misserin önnuðust syst-
urnar Kristín og Erna móður sína
mest. Skiptust alfarið á að vera hjá
henni svo að hún væri aldrei ein.
Kristín Þorláksdóttir var lánsöm
kona í einkalífinu þótt hún missti
Sigga sinn allt of snemma. Hans var
og er sárt saknað.
Ég sendi ættboganum öllum sam-
úðarkveðjur.
Sigrún.
Kristín Þorláksdóttir