Morgunblaðið - 26.08.2009, Síða 33
Dagbók 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
Orð dagsins: En ef einhver elskar
Guð, þá er hann þekktur af honum.
(I. Kor. 8, 3.)
Víkverji lifði sig inn í leik Íslandsog Frakklands á mánudag og
engdist um fyrir framan sjónvarpið
þegar á leikinn leið og ekkert virtist
ætla að falla með íslenska liðinu.
Fyrsta markið var glæsilegt, en fyrra
vítið, sem Frakkarnir fengu, var
ódýrt og erfitt að sjá að nokkurt brot
hefði átt sér stað. Í ljósi þess að það
skyldi dæmt var óskiljanlegt að rúss-
neski dómarinn skyldi ekki gefa víti
þegar Hólmfríður Magnúsdóttir var
felld í vítateig Frakkanna skömmu
síðar. Seinna víti Frakkanna var hins
vegar engin spurning þótt brotið hafi
verið klaufalegt og engin hætta.
x x x
Þótt Víkverji hefði dómarann áhornum sér fannst honum full-
mikið gert úr hans hlut í lýsingunni á
leiknum í Ríkissjónvarpinu. Þar var
nánast allt farið að snúast um dóm-
arann þannig að Víkverji brá á það
ráð að horfa á leikinn á Eurosport þar
sem púður þulanna fór í að lýsa leikn-
um. Þar sagði þulurinn að þeir, sem
vantaði lið til að halda með, gætu gert
margt verra en að taka upp málstað
Íslands. Í lok leiks sagði hann að Ís-
lendingar gætu tekið það með sér úr
leiknum að þrátt fyrir alla sína tækni
hefði franska liðinu aðeins einu sinni
tekist að rjúfa öftustu varnarlínu Ís-
lendinganna.
x x x
Þulur, sem lýsti leiknum á Rás 2,hafði þann skrítna sið að tala
ávallt um þær íslensku og þær
frönsku en aldrei einfaldlega um Ís-
lendinga og Frakka. Ólíklegt er að
staglast hefði verið á að nú væru þeir
frönsku með boltann og þeir íslensku
í vörn ef karlar hefðu verið að spila.
x x x
Hólmfríður Magnúsdóttir skoraðifallegt mark eftir glæsilega fyr-
irgjöf Margrétar Láru Viðarsdóttur,
en sú greining Hólmfríðar að endur-
skoða megi þá ákvörðun að hafa
kvendómara í úrslitakeppni var ekki
jafn traust. Ef vel er að gáð er nokk-
urn veginn víst að finna megi karl-
dómara sem gert hafi afdrífarík mis-
tök í úrslitakeppni. Ef ekki allsendis
öruggt. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kveða, 4
svíkja, 7 margtyggja, 8
tröll, 9 víð, 11 horað, 13
röskur, 14 gól, 15 ljós, 17
keyrðum, 20 bókstafur,
22 lítill poki, 23 bárur,
24 sefaði, 25 missa
marks.
Lóðrétt | 1 vermir, 2
málmur, 3 hermir eftir,
4 lögun, 5 veik, 6 pen-
ingar, 10 rándýr, 12 guð,
13 afgirt hólf, 15 drekk-
ur, 16 fiskinn, 18 svæfill,
19 kremja, 20 gufusjóði,
21 skökk.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sýnilegur, 8 Iðunn, 9 gadds, 10 inn, 11 stafn,
13 annar, 15 skens, 18 sakna, 21 kák, 22 tudda, 23 játar,
24 hrakyrðir.
Lóðrétt: 2 ýsuna, 3 iðnin, 4 eigna, 5 undin, 6 viss, 7 ásar,
12 fen, 14 nía, 15 sótt, 16 eldir, 17 skark, 18 skjór, 19
kætti, 20 akra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú verður í aðstöðu til að ráða
ungu fólki heilt í dag. Vertu ekkert að
velta þér upp úr þessu heldur njóttu
þess bara í einlægni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Svo virðist sem fólk reyni vísvit-
andi að reita þig til reiði í dag. Notaðu
þetta þér til framdráttar. Fólk hlustar á
þig núna.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ef þið eruð sannfærð um ágæti
eigin skoðana eigið þið að berjast fyrir
þeim af festu og öryggi. Aðrir sjá að þú
trúir á skoðanir þínar og vilja því sam-
þykkja tillögur þínar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú veist ekki hvernig þú vilt láta
koma fram við þig og verður sjálfur í
vandræðum með framkomu þína við
aðra.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ekki eyða tímanum í rifrildi um
stjórnmál og trúmál í dag. Bíddu með öll
innkaup til morguns og farðu þér í engu
óðslega.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Veltu þér ekki upp úr gömlum
málum því öllum verða á mistök. Brostu
framan í heiminn og taktu hlutunum létt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú gerir miklar kröfur til annarra
en þarft að læra að meta það að fólk hafi
gert sitt besta. Einhver reiðist þér fyrir
að vinna þér inn meiri peninga en hann.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Gefðu þér tíma til að koma
hlutunum þannig fyrir að þú getir verið
ánægð/ur með útkomuna.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Sama hversu annríkt þú átt,
þá skaltu gefa þér 15 mínútur í einrúmi.
Búðu þig undir ævintýri og ýttu frá þér
ótta og efasemdum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú hefur efasemdir um fram-
kvæmd máls sem þér er ætlað að hafa
áhrif á. En fólk er hjálplegt og sam-
vinnuþýtt.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú átt þér marga talsmenn og
þarft því ekki að örvænta um þinn hlut
þegar ákvarðanir verða teknar um fram-
tíðarstöðu þína.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ef þú eyðir tímanum með ein-
hverjum sem þú vilt alls ekki vera með
þá ertu í raun að eyða allra tíma til
einskis. Leggðu þig fram um að ná sátt-
um sem eru þér nauðsynlegar upp á
framtíðina.
26. ágúst 1950
Torfi Bryngeirsson varð
Evrópumeistari í langstökki
á móti í Brussel, stökk 7,32
metra.
26. ágúst 1984
Keppt var í fyrsta sinn í
Reykjavíkurmaraþoni, al-
þjóðlegu maraþonhlaupi.
Sigurður P. Sigmundsson
sigraði í maraþonhlaupi
karla og Leslie Watson í
kvennaflokki. Þátttakendur
voru 214 en síðustu ár hafa
yfir tíu þúsund tekið þátt.
26. ágúst 1991
Ísland stofnaði fyrst ríkja
formlega til stjórnmála-
sambands við Eystrasalts-
ríkin þrjú, Eistland, Lettland
og Litháen. Ritað var undir
yfirlýsingu um sambandið í
Höfða. „Við snúum nú aftur
inn í fjölskyldu Evr-
ópuþjóða,“ sagði Lennart
Meri, utanríkisráðherra Eist-
lands, að undirrituninni lok-
inni. Í kjölfarið viðurkenndu
aðrar þjóðir þessi ríki.
26. ágúst 1998
Guðrún Björnsdóttir Árna-
son lést í Winnipeg í Kan-
ada, 109 ára og 310 daga,
elst Íslendinga. Hún fæddist
í Vopnafirði 1888 en flutti til
Vesturheims fimm ára göm-
ul. „Ég heiti íslensku nafni,
er alíslensk og hef alltaf tal-
að íslensku,“ sagði hún í við-
tali þegar hún var orðin 107
ára.
26. ágúst 2007
Rúta fór út af veginum í
hlíðum Bessastaðafjalls í
Fljótsdal. Þrjátíu verkamenn
við Hraunaveitu voru í rút-
unni og voru fimmtán þeirra
fluttir á sjúkrahús.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„ÉG er búinn að hanna hinn fullkomna afmælis-
dag,“ segir Daníel Ágúst Haraldsson tónlistar-
maður. ,,Ég vakna með kærustunni og fæ mér svo
morgunmat með henni, dótturinni og dóttur-
dóttur. Eftir hann fer ég svo með afastelpuna í
leikskólann. Fæ mér svo eitthvað gott í hádeginu,“
segir hann. Klukkan tvö liggur svo leiðin í klipp-
ingu og svo verður haldið heim aftur til að huga að
undirbúningi kvöldsins. Er hann búinn að bjóða
vinum og vandamönnum í notalega litla hvers-
dagsveislu klukkan fimm. „Mig langaði til þess að
sjá aðeins framan í fólk og eiga notalegt spjall svo
ég býð í rússneskt kartöfluuppskeruafmælispartí og ætla að malla
einhverja góða, tæra kartöflusúpu að rússneskum hætti. Ég stefni á
svona ekta, grófa sveitasúpu en ekki kartöflumauksrjómasúpu.“
Daníel gróðursetti kartöflur í garðinum hjá sér í Samtúninu í vor og
er þessi fínasta uppskera að koma upp um þessar mundir. Undir borð-
haldi verður svo spiluð rússnesk karlakóratónlist upp á stemninguna.
Spurður um gjafir taldi Daníel ekki ólíklegt að einhverjar myndi hann
nú fá og þá sennilega nokkrar tengdar tónlistinni sem væri hans líf og
yndi. sigrunerna@mbl.is
Daníel Ágúst Haraldsson er 40 ára
Teiti að rússneskum hætti
Reykjavík Ingi fæddist
18. júní kl. 12.15. Hann vó
3.400 g og var 51 cm lang-
ur. Foreldrar hans eru
Linda Garðarsdóttir og
Hreggviður Ingason.
Reykjavík Hjalti fæddist
23. apríl kl. 22.28. Hann
vó 2.700 g og var 47 cm
langur. Foreldrar hans
eru Dóra Magnúsdóttir og
Guðmundur Jón Guðjóns-
son.
Sudoku
Frumstig
5 9 1
8 2 4 7
3 1 5
5 6 3 8
8 9
7 4 1 3
6 2 5
4 9 7
9 1 8
5
6 9 3
6 2 8
1
8 2 4 9
4 7 3
2 7 9 4
6 1
3 5
7 2
8 5 3
2 6 5
9 1 3
3 4 7
4 5
5 7 6
1 2 9
8 2 7 9 4 1 5 6 3
1 5 4 3 6 2 7 9 8
3 6 9 5 7 8 4 2 1
7 4 2 8 5 3 6 1 9
5 8 1 7 9 6 2 3 4
6 9 3 1 2 4 8 7 5
9 1 5 6 8 7 3 4 2
2 3 6 4 1 5 9 8 7
4 7 8 2 3 9 1 5 6
3 7 2 9 1 4 6 8 5
9 5 1 6 3 8 7 2 4
6 8 4 5 7 2 9 1 3
8 4 3 7 6 1 2 5 9
5 9 6 2 8 3 1 4 7
2 1 7 4 9 5 3 6 8
4 2 9 3 5 6 8 7 1
7 6 8 1 4 9 5 3 2
1 3 5 8 2 7 4 9 6
3 2 8 4 1 7 9 6 5
7 9 4 5 2 6 8 1 3
6 1 5 9 3 8 7 4 2
5 7 2 8 4 9 1 3 6
8 4 1 7 6 3 2 5 9
9 3 6 2 5 1 4 7 8
2 6 3 1 8 4 5 9 7
4 5 9 6 7 2 3 8 1
1 8 7 3 9 5 6 2 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 26. ágúst,
238. dagur ársins 2009
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 e5 4. Bc4 Be7
5. d3 d6 6. O-O Rf6 7. Rg5 O-O 8. f4 h6
9. Rf3 Bg4 10. h3 Bxf3 11. Dxf3 Rd4 12.
Df2 Hb8 13. a4 a6 14. fxe5 dxe5 15. Rd5
b5 16. axb5 axb5 17. Rxf6+ Bxf6 18.
Bd5 De7 19. Ha6 Bh4 20. g3 Bxg3 21.
Dg2 Dh4
Staðan kom upp á alþjóðlegri
skákhátíð sem lauk fyrir skömmu í
Kaupmannahöfn í Danmörku. Ind-
verski stórmeistarinn Parimarjan
Negi (2.590) hafði hvítt gegn Nicholas
Nielsen (2.196). 22. Hg6! Kh7 23. Hg4
Dh5 24. Hxg3 Re2+ 25. Kh2 Rxg3 26.
Dxg3 Hb6 27. Be3 Hg6 28. Df3 og
svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Skaðabætur.
Norður
♠63
♥KG43
♦K104
♣ÁK74
Vestur Austur
♠K109852 ♠G4
♥82 ♥Á7
♦Á2 ♦98653
♣DG2 ♣10985
Suður
♠ÁD7
♥D10965
♦DG7
♣63
Suður spilar 4♥.
Norður er gjafari og vekur á 1♣,
Standad. Suður svarar á 1♥ og vestur
stingur inn 1♠. Norður hækkar í 2♥ og
suður skellir sér í fjögur.
Vestur spilar út ♦Á og meiri tígli.
Sem þýðir bara eitt: hann er að búa í
haginn fyrir stungu. Er hægt að bregð-
ast við þeirri hættu?
Stunguna er ekki hægt að forðast,
en það má fara fram á skaðabætur.
Leiðin til þess er að spila laufi þrisvar
og trompa hátt, spila þá fyrst hjarta.
Austur drepur og gefur makker sínum
stungu, en nú á vestur ekkert eftir
nema spaða og neyðist til að spila upp í
gaffalinn.
Vestur þarf að eiga sexlit í spaða til
að laufhreinsunin skili árangri, en það
er ekki ólíklegt í ljósi þess að austur
studdi ekki spaðann við 2♥ norðurs.
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is