Morgunblaðið - 26.08.2009, Page 35
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands
hefur vetrarstarf sitt föstudaginn 4.
september með tónleikum þar sem
Ashkenazy-feðgarnir, Vovka Stefán
píanóleikari og Vladimir, verða í
aðalhlutverkum.
Árni Heimir Ingólfsson er tón-
listarstjóri hljómsveitarinnar.
„Það sem einkennir starfsárið er
annars vegar 60 ára afmæli hljóm-
sveitarinnar og hins vegar þau þrjú
stóru tónskáldaafmæli sem við höld-
um upp á. Sextugsafmælið er ástæða
til að gera betur og stefna enn hærra
í listrænum gæðum og verkefna-
vali.“
Árni Heimir segir hljómsveitina
sér mjög meðvitandi um að hún fari
með almannafé á erfiðum tímum.
„Þess vegna setjum við upp dagskrá
sem höfðar til allra, jafnt þeirra sem
vilja prófa sig áfram í klassíkinni og
hinna sem eru alvanir. Afmælisbörn
ársins, Chopin, Schumann og Mahl-
er, eru allt tónskáld sem höfða til
breiðs hóps en við tökum líka upp sí-
gild og vinsæl klassísk verk eins og
Árstíðirnar fjórar, Carmina burana
og Stjörnustíð eftir John Williams.
Ég held að allir finni eitthvað við sitt
hæfi hjá hljómsveitinni í vetur.“
Ungir Íslendingar áberandi
Ungir íslenskir einleikarar verða
„ánægjulega margir“ með hljóm-
sveitinni í vetur að sögn Árna Heim-
is. „Við fögnum 200 ára afmæli
Chopins með því að flytja báða pí-
anókonserta hans, með Ástríði Öldu
Sigurðardóttur og Víkingi Heiðari
Ólafssyni. Sæunn Þorsteinsdóttir
debúterar með okkur í sellókonsert
Dvoráks, sem er gleðilegt; henni hef-
ur gengið ákaflega vel úti í hinum
stóra heimi. Stefán Jón Bernharðs-
son hefur líka getið sér gott orð er-
lendis, en hann spilar hornkonsert
eftir Richard Strauss. Síðan er gleði-
efni að Elfa Rún Kristinsdóttir, sem
er geysilega fær flytjandi barokk-
tónlistar, skuli leika með okkur Árs-
tíðirnar fjórar.“ Það sem Árni Heim-
ir nefnir hér er aðeins brot af stórum
hópi íslenskra einleikara og ein-
söngvara með hljómsveitinni í vetur,
en erlendu gestirnir eru líka spenn-
andi. „Þetta verður ákjósanleg
blanda af erlendum og íslenskum
flytjendum.“
Staðarlistamaður ráðinn
Nýmæli hjá hljómsveitinni í vetur
er að ráða staðarlistamann, sem að
þessu sinni er heimsþekktur sænsk-
ur klarinettuleikari, Martin Fröst.
„Mér fannst það grátlegt að við flytj-
um hingað erlenda listamenn með
ærnum tilkostnaði – þeir koma oftast
á þriðjudagskvöldi, spila einn kons-
ert og eru farnir á föstudagsmorgni.
Það skapast ekki þau tengsl sem svo
gaman væri að ná fram. Staðar-
listamaðurinn kemur tvisvar yfir
veturinn og gerir margt fleira en að
standa á sviðinu í Háskólabíói; til
dæmis að halda annars konar tón-
leika, námskeið, fyrirlestra til þess
að tengjast grasrótinni. Ég held að
til lengri tíma geti þetta skilið mikið
eftir sig, ekki síst í uppeldi ungra
tónlistarmanna. Martin ætlar til
dæmis að halda námskeið fyrir unga
klarinettuleikara.“
Í vor lýkur starfssamningi aðal-
hljómsveitarstjórans Rumons
Gamba við hljómsveitina og í vetur
verður tækifærið notað til að bjóða
hljómsveitarstjórum sem hafa sýnt
starfinu áhuga að koma hingað sem
gestastjórnendur. Þannig fá bæði
áheyrendur og ekki síst hljómsveitin
tækifæri til að kynnast þeim.
„Við finnum það núna í þeim með-
byr sem við njótum á alþjóðavett-
vangi að það er talsvert um það að
við fáum fyrirspurnir frá virtum
hljómsveitarstjórum um starfið og
hvers vænst sé af aðalhljómsveit-
arstjóranum. Á flestum þeim tón-
leikum sem Rumon stjórnar ekki í
vetur, þar erum við að prófa okkur
áfram með stjórnendur.“
Eins og frá hefur verið greint hef-
ur einn kunnasti stjórnandi heims í
dag, Rússinn Gennadí Rosdest-
venskíj, verið ráðinn aðalgesta-
stjórnandi hljómsveitarinnar frá vori
2011 og mun hann brúa bilið þar til
nýr aðalhljómsveitarstjóri tekur við
störfum. „Það er fyrirséð að þótt nýr
aðalstjórnandi verði ráðinn í vor, þá
verður hann ekki áberandi í dagskrá
hljómsveitarinnar veturinn 2010-11.
Til þess erum við einfaldlega komin
of langt í skipulagningu hans. Því er-
um við heppin að hafa Rosdest-
venskíj með okkur einmitt þá.“
Rumon Gamba kveður
Rumon Gamba hefur verið aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í sjö ár og hefur
hljómsveitin tekið stöðugum fram-
förum undir hans stjórn og unnið
stóra sigra. Héðan fer hann til Sví-
þjóðar og verður aðalhljómsveitar-
stjóri Norrlands-óperunnar í Umeå.
„Samningurinn við Rumon var fram-
lengdur um ár, til þess tíma að
hljómsveitin flytti í Tónlistarhúsið,
en þegar fyrir lá að húsið yrði ekki
tilbúið var það ákvörðun allra hlut-
aðeigandi að hann myndi hætta. Við
höldum þó samvinnu við hann áfram,
bæði sem gestastjórnanda og í upp-
tökum á verkum D’Indy.
Sjálfum finnst mér hljómsveitin
hafa orðið agaðri undir stjórn Rum-
ons, faglegri og náð betri vinnu-
brögðum. Hljómsveitin hefur færst
upp nokkur þrep á alþjóðlega skal-
anum undir hans stjórn. Svo fær
hann líka mikið hrós fyrir upptökur
sínar með hljómsveitinni, sem hafa
skilað henni meiri alþjóðlegri viður-
kenningu á síðustu árum en dæmi
eru um nokkru sinni áður.“
Alþjóðlegur meðbyr
Ungir íslenskir einleikarar áberandi með Sinfóníuhljómsveit Íslands í vetur
Hljómsveitin fagnar 60 ára afmæli í mars Hilary Hahn meðal einleikara
Menning 35FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
STEFÁNI Ragnari Höskuldssyni
flautuleikara var nýverið boðið að
halda tónleika í tengslum við sum-
arnámskeið sem flautuleikarinn
heimsfrægi James Galway heldur
árlega við Lucerne í Sviss. „Ég var
gestalistamaður á námskeiðinu og
það gekk vel og var gaman.“
Stefán er fyrsti flautuleikari
hljómsveitar Metropolitan-
óperunnar í New York. „Hann
heyrði í mér í óperunni Lucia di
Lammermoor [þar er flautan í
veigamiklu einleikshlutverki] og
bauð mér þetta í kjölfarið. Þetta er
heiður því það er vel að námskeið-
unum hans staðið.“
Þeir sem sáu beina sendingu Sam-
bíóanna á Luciu di Lammermoor frá
Metropolitan-óperunni í Kringlubíói
í vor, sáu Stefán og heyrðu og
myndavélarnar beindu sérstakri
atygli að honum.
Stefán og Mostly Mozart
En það er fleira sem á daga Stef-
áns hefur drifið í New York nýverið,
því honum var einnig boðið að spila á
einni virtustu tónlistarhátíð þar um
slóðir, Mostly Mozart-hátíðinni sem
haldin er í Lincoln Center.
„Mér var boðið að spila fyrstu
flautu með hátíðarhljómsveitinni í
þær tvær vikur sem hátíðin stóð.
Mostly Mozart-hátíðin hefur verið
haldin árlega allt frá 1966 og hefur
alltaf verið mjög vinsæl. Tónleikum
sem ég spilaði á með fiðuleikaranum
Joshua Bell var sjónvarpað beint frá
Avery Fisher Hall, en Bell spilaði
fiðlukonsert Mendelssohns. Stjórn-
andi var Louis Langrée. Hann er
franskur og geysilega fínn stjórn-
andi,“ segir Stefán Ragnar.
Æfingar hjá Metropolitan-
óperunni fyrir veturinn hefjast á
mánudaginn og þá verður byrjað á
Tosku og Rósariddaranum, en báðar
óperurnar verða sýndar beint frá
Metropolitan-óperunni í Kringlubíói
í vetur.
Gestur hjá
Galway
Stefán Ragnar Hösk-
uldsson nýtur vel-
gengni í New York
Velgengni Stefán Ragnar.
ÞRÁTT fyrir að þýska ofurfyrir-
tækið Siemens reikni með 28 pró-
senta tapi í rekstri á þriðja fjórðungi
ársins, hafa stjórnendur þess lýst
því yfir að þeir muni ekki draga úr
styrkjum til menningar og lista.
Stærstu verkefni Siemens á því
sviði eru Wagner-hátíðin í Bayreuth
í Þýskalandi og Tónlistarhátíðin í
Salzburg í Austurríki.
Upphæðin sem Siemens áætlar að
eyða í menningartengda starfsemi á
árinu nemur andvirði 9,3 milljarða-
íslenskra króna.
Í fyrra sagði fyrirtækið um 17
þúsund manns og vinnuhlutfall 15
þúsund starfsmanna var skert.
Styðja
listina þrátt
fyrir tap
NÍUNDU og síðustu hádeg-
istónleikar Kammerkórs Hall-
grímskirkju, Schola Cantorum,
í sumar verða í dag. Kórinn
hefur staðið fyrir tónleikaröð í
Hallgrímskirkju á miðviku-
dögum í júlí og ágúst við frá-
bærar undirtektir.
Á lokatónleikunum verða
fluttar fagrar perlur íslenskrar
og erlendrar kirkjutónlistar.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og
standa í u.þ.b. hálfa klukkustund, miðaverð er
1.000 kr. Stjórnandi kórsins er Hörður Áskelsson.
Næstu stórtónleikar Schola Cantorum verða 6.
september nk., gestastjórnandi þá verður Simon
Carrington frá Bretlandi.
Tónlist
Sumarlok hjá
Schola Cantorum
Hörður Áskelsson
TVÆR óperur, The Telephone
og Biðin, verða frumsýndar á
Akureyri á laugardaginn.
Með hlutverk fara Alex-
andra Chernyshova sópran,
Michael Jón Clarke barítón og
Daníel Þorsteinsson píanó. Að-
alsteinn Bergdal leikstýrir.
The Telephone er eftir Gian
Carlo Menotti og fjallar um
ástarþríhyrning Lucy, kærasta
hennar og símans. Biðin er eft-
ir Mikael Tariverdiev og fjallar um konu sem bíð-
ur eftir draumaprinsinum.
Sýningar á óperunum verða, 29. og 30. ágúst í
Leikhúsi Akureyrar, 4. og 5. september í Iðnó í
Reykjavík og 19. sept. í Miðgarði, Skagafirði.
Tónlist
Syngja óperur um
símann og biðina
Alexandra
Chernyshova
DANSSKOTNA leikhúsverkið
Lady’s Choice? eftir Sigríði
Soffíu Níelsdóttur verður
frumsýnt á morgun í kjallara
Batterísins. Verkið var út-
skriftarverkefni Sigríðar úr
LHÍ en hefur verið unnið
áfram og verður nú sýnt í nýj-
um búningi. Verkið var unnið
út frá heimildarmynd sem
fjallar um samband karlmanna
við kynlífsdúkkur sínar.
Í sýningunni koma fram auk Sigríðar; Margrét
Lilja Vilmundardóttir, Snædís Lilja Ingadóttir og
Svandís Dóra Einarsdóttir. Jóhann Friðgeir Jó-
hannsson gerði tónlistina. Tvær sýningar verða; á
morgun kl. 21 og á föstudaginn á sama tíma.
Dans
Óvenjulegt dans-
verk í kjallara
Úr dansverkinu.
Einn mesti fiðluleikari heims í
dag, Hilary Hahn, verður einleik-
ari á tónleikum hljómsveitarinnar
í mars í Fiðlukonserti nr. 1 eftir
Prokovijev. Hún var afburða-
námsmaður og 17 ára var hún bú-
in að læra 28 einleikskonserta
auk annarra verka. Hún var 11 ára
þegar hún kom fyrst fram með
Sinfóníuhljómsveitinni í Balti-
more. „Hún er einn af risunum
sem við fáum ekkert of oft hing-
að. Það var einskær heppni að við
náðum henni hingað í vor. Hún er
búin að vera í fremstu röð fiðlu-
leikara frá því hún var unglingur.
Það er einstakt að fá hingað
listamann eins og hana sem sam-
einar algjörlega fullkomna tækni
og mikla músíkalska gáfu. Hún er
enn að bæta við sig viðurkenn-
ingum.“
Hilary Hahn er einstök
Sigrún
Hjálmtýsdóttir
Martin Fröst
Jón Svavar
Jósepsson
Ástríður Alda
Sigurðardóttir
Sæunn Þorsteindóttir Lise de la Salle
Páll Óskar
Hjálmtýsson
Hvort sem fólki líkar
betur eða verr eru
sveitaböllin, þessi gamla
grýla, rokin á fætur... 36
»