Morgunblaðið - 26.08.2009, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
Lag Emilíönu Torrini, „Jungle
Drum“ er enn í efsta sæti þýska vin-
sældalistans, áttundu vikuna í röð.
Löngu er orðið ljóst að hér er á
ferðinni eitthvert merkasta afrek
sem íslenskur popptónlistarmaður
hefur náð á erlendri grundu, og því
spurning hvort Emilíana kemur
ekki sterklega til greina við af-
hendingu á næstu fálkaorðu.
Getur ekkert stöðvað
Emilíönu Torrini?
Fólk
MARGT forvitnilegt verður í boði á Alþjóðlegri
kvikmyndahátíð í Reykjavík sem stendur yfir
dagana 17. til 27. september nk. Meðal sér-
viðburða í ár er hið rómaða sundbíó, en boðið er
upp á slíka sýningu í annað skipti á RIFF og
verður það nú í Sundhöll Reykjavíkur.
Myndin sem sýnd verður í sundbíóinu í ár ætti
að hleypa lífi í laugina og er ekki ólíklegt að tals-
verður öldugangur verði þegar mest gengur á
og að sundlaugarvatnið muni jafnvel renna milli
skinns og hörunds hjá mörgum.
Myndin er norsk og heitir Dauður snjór, eða
Død snø. Hún segir frá átta ungum læknisfræði-
stúdentum sem leggja af stað í páskafrí í norsk-
an fjallakofa þar sem ætlunin er að hafa það
notalegt. En þegar ungmennin koma í skálann
kemst hópurinn að því að óvenju ógeðfelldir nas-
istar höfðu ofsótt íbúa svæðisins á tímum seinni
heimsstyrjaldarinnar, rúmum sextíu árum fyrr
og ruplað þar og rænt allt þar til undir lok stríðs-
ins þegar bæjarbúar gerðu uppreisn gegn ofríki
þeirra. En þá náði foringi nasistanna með hópi
manna sinna að flýja upp í fjöllin með stóran
hluta ránsfengsins. Téðan ránsfeng finna stúd-
entarnir í fjallakofanum, en á honum hvílir bölv-
un. Því þótt nasistarnir illgjörnu hafi orðið úti í
snævi þöktum fjallshlíðunum sextíu árum áður
snúa þeir nú aftur sem uppvakningar og hafa
engu gleymt af illsku sinni. Hvernig hinum ungu
stúdentum reiðir af kemur í ljós í Sundhöll
Reykjavíkur föstudagskvöldið 18. september.
Leikstjóri myndarinnar er hinn þrítugi
Tommy Wirkola sem er fæddur í Norður-Noregi
og þekkir því sögusviðið af eigin raun.
Norskur nasistahrollur sýndur í Sundhöllinni
Hjálp! Þessir eru eflaust í vondu skapi.
Eins og greint var frá í fjöl-
miðlum í gær vekur Sólskinsdreng-
urinn, heimildarmynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar, töluverða at-
hygli um þessar mundir, og þá ekki
síst fyrir þá staðreynd að Kate
Winslet hefur nú talað inn á þá út-
gáfu myndarinnar sem sýna á úti í
hinum stóra heimi. Þar að auki hafa
fréttamenn bandarísku CNN-
sjónvarpsstöðvarinnar nú séð
myndina og munu þeir hafa hrifist
mjög. Sérstaklega fannst þeim
myndir af íslensku landslagi til-
komumiklar og í kjölfarið höfðu
þeir samband við Friðrik Þór sem
samþykkti að fara í hálftíma langt
viðtal við stöðina. Forsvarsmenn
hennar eru væntanlegir hingað til
lands og er ætlunin að taka viðtal
við leikstjórann úti í guðs grænni
íslenskri náttúru. Betri landkynn-
ingu er varla hægt að hugsa sér.
Frábær landkynning
Friðriks Þórs
Nýjasta plata hljómsveitarinnar
Múm var nýverið tekin fyrir í hinu
virta breska dagblaði Guardian.
Gagnrýnandi var í meðallagi sáttur
og gaf þrjár stjörnur. Áhugasamir
geta lesið dóminn á heimasíðu dag-
blaðsins, guardian.co.uk.
Múmplata í meðallagi
að gera góð skil. Saga hljómsveit-
arinnar verður síðan með á rituðu
máli.“
Varða á leið sveitarinnar
Tvö ný lög verða á diskinum
ásamt laginu „Sex mánuðir eftir“
sem hljómsveitin sendi frá sér fyrr í
sumar. „Við veljum síðan vinsælustu
lögin okkar og þau sem hafa farið í
spilun hverju sinni. Einhverjir litlir
ljótir andarungar sem við höfum
haft fulla trú á í gegnum tíðina fá
líka að fljóta með,“ segir Jónsi.
Spurður hvort safnplatan sé ein-
hverskonar lokapunktur á ferli
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
VON ER á stórri safnplötu frá
hljómsveitinni Í svörtum fötum fyrir
jól. „Þetta verður veglegur tvöfald-
ur diskur með mynddiski,“ segir
Jón Jósep Sæbjörnsson, Jónsi,
söngvari Í svörtum fötum. „Við er-
um búnir að gefa út það mikið af
myndböndum í gegnum tíðina að
það er kominn tími til að koma þeim
saman á einn stað. Svo eigum við
fullt af allskonar aukaefni á vídeói,
upptökur af útgáfutónleikum og
helling af myndum sem við ætlum
sveitarinnar svarar Jónsi neitandi.
„Þetta er miklu frekar eins og varða
á leið okkar. Við erum búnir að spila
í tíu ár, höfum gefið út fjórar stórar
stúdíóplötur og nú ætlum við að líta
stuttlega um öxl og halda síðan
áfram á fullu blússi.“
Í svörtum fötum hefur spilað
reglulega í sumar og segist Jónsi
hafa fundið fyrir endurlífgun sveita-
ballanna. „Sveitaballamenningin er
að lifna við aftur. Nú er orðin ásókn
í ódýrari skemmtun og hvort sem
fólki líkar betur eða verr eru sveita-
böllin, þessi gamla grýla, rokin á
fætur.“
Í svörtum fötum heldur
áfram á fullu blússi
Í svörtum fötum Hljómsveitin hefur átt marga vinsæla smelli síðustu tíu ár.
Hljómsveitin sendir frá sér stóra safnplötu fyrir jólin
Bottlefed-leikhópurinn hefur
verið tilnefndur til tvennra verð-
launa fyrir Hold Me Until You
Break. Á Edinborgarhátíðinni
2007 var það tilnefnt í flokkn-
um Besta verkið eftir leikhóp og
árið 2006 var það tilnefnt á
Lost-leikhúshátíðinni fyrir
bestu leikstjórn.
Leikstjóri verksins er Kathrin
Yvonne Bigler og leikarar ásamt
Íslendingunum: Agnes Brekke,
Shu-Yi Chin, Rebeca Fernandez
Lopez, Catherine Lake, Tom
Mitchell og Irene Wernli.
Tilnefndur hópur
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
BRESKI leikhópurinn Bottlefed
er staddur hér á landi í tengslum
við leiklistarhátíðina artFart og
verður með tvær sýningar á verk-
inu Hold Me Until You Break í
Iðnó í kvöld og annað kvöld.
„Þetta er spunaverk um ást og
sambönd, um að finna ást og halda
utan um hana þangað til maður
gefst upp eða ekki,“ segir Vala
Ómarsdóttir leikkona sem er ann-
ar tveggja Íslendinga í Bottlefed,
hinn er Ástþór Ágústsson.
„Sýningin snýst um að við leik-
ararnir séum 100% hreinskilin við
hvert annað á sviðinu. Þetta er
hálfgert tilfinningaleikhús, við
verðum að vera opin og hreinskilin
en erum samt ákveðnir karakterar
allan tímann.“
Vala segir að um hálft ár sé síð-
an þau settu verkið upp í þeirri
mynd sem það er nú í. „Þetta er
spuni og því þróast það eftir okkur
og hvernig við breytum okkar að-
ferðum. Við höfum farið með verk-
ið víða um London, til Noregs og
Skotlands og förum til Sviss eftir
að hafa verið á Íslandi.“
Heilluð af hópavinnu
Tvö ár eru síðan Vala og Ástþór
gengu til liðs við Bottlefed.
„Ég og Ástþór lærðum bæði
leiklist í London en byrjuðum að
vinna með hópnum fyrir tveimur
árum. Þá ákváðu leikstjórarnir að
taka inn nýtt fólk sem væri tilbúið
að starfa með hópnum til lang-
frama, ekki bara koma inn í eitt og
eitt verk. Hópurinn er samsettur
af tólf sviðslistamönnum, sjö leik-
urum, leikstjóra, tónlistar- og
sviðsmönnum,“ segir Vala sem
stefnir að því að starfa með hópn-
um einhver ár í viðbót. „Ég var
fyrst í leiklistarnámi í New York,
þar var mikil áhersla lögð á ein-
staklinginn og mér fannst vanta
eitthvað. Mér hefur alltaf fundist
heillandi að vinna í hóp og þegar
ég kom til London leitaði ég eftir
því og fór í mastersnám þar sem
áhersla var lögð á hópavinnu leik-
ara. Um leið og ég kom út úr skól-
anum komst ég inn í Bottlefed. Ég
vinn stundum með öðrum hópum
en Bottlefed er mín fjölskylda, við
hittumst í hverri viku og æfum
saman þó að við séum ekki að fara
að sýna,“ segir Vala og er ánægð
með að sjá þróunina í leiklistinni
hér á landi. „Það er mikið að gera
hér hjá svona leiklistarhópum, það
sýnir sig á artFart.“
Bottlefed er með tvær sýningar
á artFart og um næstu helgi held-
ur hópurinn vinnustofu í Leikhús
Batteríinu. „Við höfum verið dug-
leg að vera með vinnustofur þar
sem við deilum okkar hug-
myndum. Vinnustofan er ekki
bundin við leikara heldur alla sem
vilja fá nýjar hugmyndir og finna
eitthvað nýtt hjá sér,“ segir Vala
að lokum.
Spuni um ást og sambönd
Vala Ómarsdóttir og Ástþór Ágústsson eru í breska leikhópnum Bottlefed
Sýna Hold Me Until You Break í Iðnó og halda vinnustofu í Batteríinu
Sýningar á Hold Me Until You
Break fara fram í Iðnó 26. og 27.
ágúst kl. 20. Miðasala er í síma
562-9700 og á midi.is.
www.bottlefed.org
www.artfart.is
Morgunblaðið/Heiddi
Leikhópur Íslendingarnir Vala og Ástþór lengst til vinstri með hluta af
samstarfsmönnum sínum í Bottlefed sem sýna verkið í kvöld og á morgun.