Morgunblaðið - 26.08.2009, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2009
er,“ segir Tarantino og bætir við:
„En hann er algjört tungumálaséní
og ég vissi að ég þyrfti jafnmikið
tungumálaséní til að leika hann. Og
ég fann ekki neinn, þeir gátu náð
ljóðrænunni í þessu tungumáli en
ekki hinu og öfugt – og þeir þurftu
að ná ljóðrænunni í öllum málunum
þremur. Það var augnablik sem ég
hélt ég fyndi hann ekki, ég hringdi í
framleiðendurna og sagði þeim: ef
ég finn ekki rétta manninn til að
leika Landa hættum bara við og gef-
um út handritið. Ég þurfti að hætta
við fyrir fimmtudag – annars yrðu
ekki bara mínir peningar í spilinu
lengur. Og framleiðendurnir voru
pollrólegir og sögðu einfaldlega:
Þessi vika verður bara: Landa,
Landa, Landa. Síðan kom Christoph
Waltz inn, las tvær senur. Laurence
[Bender framleiðandi] sat við hliðina
á mér og sagði: Við erum að gera
bíómynd!“ Við það stendur Waltz
upp og kyssir leikstjórann. „Sko,
hann er ljúflingur, bara misskilinn!“
segir Tarantino því um nasistann
sem hann loksins fann. „Ég tek samt
fram, þessi mynd skipti mig öllu, en
það var eitthvað frelsandi að geta
sagt: ég ætla að gera myndina ná-
kvæmlega eins og hún á að vera,
annars geng ég í burtu.“
Hinn Þjóðverjinn í myndinni erDaniel Brühl. „Þegar ég var
sextán sá ég Pulp Fiction og sagði
vinum mínum eftir á – ég ætla að
leika í bíómyndum. Fjórtán árum
seinna bauð Quentin mér í prufu, ég
var skelfilegur … en síðan voru þeir
að tala um að það vantaði ennþá
franska útgáfu af handritinu. Þann-
ig að ég fór að impróvísera á
frönsku, ég er hálf-spænskur og
vissi að Bandaríkjamenn myndu
ekki þekkja muninn. Og samdægurs
hringdi Quentin og bauð mér hlut-
verkið,“ segir Brühl og Tarantino
tekur orðið af honum: „Ég hafði
aldrei séð Bless Lenín [þar sem
Brühl er í aðalhlutverki] og sá ýms-
ar þýskar kvikmyndir. En Tom Tyk-
wer, sem þýddi handritið fyrir mig á
þýsku, benti mér á hana og þegar ég
sá hana hugsaði ég með mér: þetta
er Zollerinn minn, ég veit ekki hvort
ég hefði getað gert myndina án
Brühl.“ Brühl stendur upp og kyssir
leikstjórann.
En hvernig blandaðist Brad Pitt íþetta? „Quentin kom í heim-
sókn í sumarlok. Við töluðum um
söguna á bak við, töluðum um bíó-
myndir … og ég vaknaði morguninn
eftir og sá fimm flöskur af víni á
gólfinu. Og eitthvað sem virtist vera
einhvers konar reykingamaskína.
Og ég virðist hafa samþykkt að leika
í myndinni því sex vikum seinna var
ég kominn í búning sem Aldo Raine.
En það er heiður að vinna fyrir „au-
teur“ eins og Quentin, þú sérð að
hann elskar bíómyndir.“
Tarantino grípur inn í. „Listrænthöfum við Brad verið að daðra
lengi, löngunarfullt augnaráð yfir
herbergið í partíum, litlu miðarnir
undir borðið, ég fíla þig, fílar þú
mig? Og þessar litlu spurningar,
hvaða leikurum myndirðu vilja
vinna með? Brad hefur alltaf verið
einn þeirra sem ég hef nefnt, en ég
vinn bara ekki þannig, þetta snýst
um persónurnar. Þannig að ég hugs-
aði, ef ég skrifa einhvern tímann
persónu sem passar við Brad þá á
það samstarf eftir að koma okkur til
tunglsins. Og þegar ég var byrjaður
að skrifa Aldo áttaði ég mig á að
Brad yrði frábær í þessu. En þá fór
ég að verða stressaður: hvað geri ég
ef hann segir nei?“ Brad: „You had
me at hello.“ Quentin: „I had him at
bonsjúr.“ Brad: Je t’aime, Je t’aime,
Je’taime.“ asgeirhi@gmail.com
Erlendir dómar:
Roger Ebert 100 / 100
Time 100 / 100
Empire 80 / 100
Variety 80 / 100
Metacritic 69 / 100
» Listrænt höfum viðBrad verið að daðra
lengi, löngunarfullt
augnaráð yfir herbergið
í partíum, litlu miðarnir
undir borðið, ég fíla þig,
fílar þú mig?
TAKE That-meðlimurinn Mark
Owen ætlar að gifta sig í nóvember.
Sú heppna hefur verið kærasta
hans til langs tíma, Emma Fergu-
son, og saman eiga þau tvö börn,
þriggja ára og níu mánaða.
Boðskortin hafa verið send út.
Meðal gesta verða meðlimir Owens
úr strákabandinu; Gary Barlow,
Howard Donald og Jason Orange.
Talið er að fyrrverandi bandfélaga
þeirra Robbie Williams muni einnig
verða boðið. Gestir verða þó ekki
fleiri en fimmtíu.
Brúðkaupið fer fram í Skotlandi
en enginn fær að vita hvar í landinu
fyrr en á stóra deginum. Gestum er
sagt að mæta á einn tiltekinn stað
þangað sem þeir verða sóttir og
fluttir á leynistaðinn.
Giftir sig á leynistað
Par Ferguson og Mark Owen.
NICK Jonas úr Jonas-bræðrunum
vill verða forseti Bandaríkjanna.
Hinn sextán ára tónlistarmaður hef-
ur áhuga á að starfa við pólitík og
hefur viljað þjóna föðurlandinu síðan
hann var barn. „Ég hef alltaf sagt að
ég vildi verða forseti. Ég er að hefja
kosningabaráttuna núna,“ sagði
hann kankvís í viðtali á CNN.
Hann ræddi einnig um sykursýki
sem hann þjáist af og sagðist vilja
gera fólk meðvitaðra um þennan
sjúkdóm. „Ég reyni að vekja athygli
á sjúkdómnum hvenær sem ég get.
Augljóslega hafa orðið tækni-
framfarir í læknavísindunum svo við
ráðum betur við sjúkdóminn, en von-
andi finnst lækning einn daginn.“
Sykursjúkur forseti
Nick Jonas Góður forseti?
„Á ÉG AÐ GÆTA
SYSTUR MINNAR“
43.000 manns í aðsókn!
Íslenskt tal
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK STIEG LARSSON
38.000 manns í aðsókn!
Einstök kvikmyndaperla
sem engin má missa af!
Stórbrotin mynd
um óvenjulega sögu!
HASAR
OG TÆ
KNIBR
ELLUR
SEM A
LDREI H
AFA SÉ
ST ÁÐU
R
Frá Tony Scott, leikstjóra
Deja Vu og Man on Fire
kemur magnaður
spennutryllir.
Denzel Washington upplifir
sína verstu martröð þegar
hann þarf að takast á við
John Travolta höfuðpaur
glæpamannanna.
HHH
„Ein besta mynd
Tony Scott
seinni árin“
-S.V., MBL
HHHH
“Besta Tarantino-myndin
síðan Pulp Fiction og
klárlega ein af betri
myndum ársins”
T.V. - Kvikmyndir.is
POWER
SÝNIN
G
Á STÆ
RSTA D
IGITAL
TJALD
I LAND
SINS
KL. 10
:00
FRÁ LEIKSTJÓRA
QUENTIN TARANTINO
KEMUR HANS MAGNAÐASTA,
VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA
ÆVINTÝRI TIL ÞESSA.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
KEMUR EIN FLOTTASTA
STÓRMYND SUMARSINS
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is
Þú færð 5%
endurgreitt
í Smárabíó
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM
þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
SÝND Í REGNBOGANUM
SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM
SÝND Í SMÁRABÍÓI
-bara lúxus
Sími 553 2075
Inglorious Bastards kl. 5 - 8 - 11 B.i.16 ára Ísöld 3 3-D (ísl. tal) kl. 3:30 LEYFÐ
Inglorious Bastards kl. 5 - 8 - 11 Lúxus Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:30 LEYFÐ
Taking of Pelham 123 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
G.I. Joe: The Rise of Cobra kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
Karlar sem hata konur kl. 5 - 8 - 11 B.i.16 ára
Sýnd kl. 3:30 og 5:45 Sýnd m. ísl. tali kl. 3:45
Sýnd kl. 4, 7 og 10 (Powersýning)
Sýnd kl. 6, 8, og 10 Sýnd kl. 8 og 10:10