Morgunblaðið - 26.08.2009, Síða 44
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 238. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
RUTH Reginalds
söngkona hefur stefnt
Séð og heyrt vegna
ummæla um hana sem
birtust í 42. tölublaði
blaðsins 2007. Meðal
ummæla sem Ruth vill
að verði ómerkt eru „Vilja Ruth úr
blokkinni“. „Ekki auðvelt að eiga við
stórstjörnur eins og nokkrir íbúar á
Kleppsvegi hafa komist að“ og
„Öskrandi og æpandi frá morgni til
kvölds, grýtandi húsgögnum og
hendandi barnsföður sínum út.“
Ruth Reginalds hefur
stefnt Séð og heyrt
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-..
+/.-01
**2-13
+4-01+
+*-++*
*2-/2/
*+/-1/
*-302+
*..-,/
*2+-20
5 675 +0# 758 9 +//.
*+2-3/
+*/-/,
**2-.2
+4-134
+*-+23
*2-*33
*+/-.4
*-31++
+//-3/
*23-31
+3,-0.20
&:;
*+2-1*
+*/-02
**.-33
+4-,/1
+*-340
*2-*21
*+*-+2
*-311+
+//-./
*23-2,
Heitast 17 °C | Kaldast 10 °C
Skúrir eða dálítil
rigning með köflum
um landið S-vert, skýj-
að með köflum eða
bjartviðri N-til. » 10
Kolbrún Bergþórs-
dóttir segir að ný
ævisaga ævintýra-
mannsins Casanova
sé bráðskemmtileg
lesning »40
BÆKUR»
Heillandi
Casanova
TÓNLIST»
Kallar sigurganga
Emilíönu á orðu? »36
Gagnrýnandi Morg-
unblaðsins skoðar
myndlist í samhengi
við tónlist á Kjar-
valsstöðum og finn-
ur goðsagnir. »37
GAGNRÝNI»
Innrammað-
ur djass
KVIKMYNDIR»
RIFF býður upp á nas-
ista í sundi. »36
TÓNLIST»
Menning
VEÐUR»
1. Höfða einkamál gegn hrunfólki
2. Fannst látinn í Hafnarfirði
3. Hinir vammlausu
4. Mannleg mistök við Herðubreið
Íslenska krónan styrktist um 0,04%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
DETTIFOSS er ekki aðgengilegasti foss landsins en hann er vel þess virði
að berja augum. Þess vegna leggja margir ferðalangar það á sig að klöngr-
ast því sem næst vegleysur til að geta síðan staulast niður að gljúfurbarm-
inum og bara horfa. Sumum getur þó orðið um og ó og leita leiða til að
komast sem fyrst aftur til baka; í öryggið. sia@mbl.is
Fegurðin er hrikaleg
Morgunblaðið/Golli
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
KRISTÓFER Þorgeirsson, 21 árs
gamall pípulagningameistari, hefur
beygt fleiri rör en venjulega að und-
anförnu. Hann er að æfa sig fyrir
heimsmeistaramót iðn- og verkgreina
fyrir 22 ára og yngri, WorldSkills,
sem fer fram í Kanada 2. til 5. sept-
ember næstkomandi.
Kristófer, sem æfir líka logsuðu
þessa dagana, tók þátt í Norður-
landamóti pípulagningamanna í maí
síðastliðnum og kveðst þess vegna
hafa verið í nokkuð góðri þjálfun þótt
hann þurfi auðvitað að æfa sig enn
frekar fyrir heimsmeistaramótið.
„Maður þarf að vinna hratt og örugg-
lega til þess að hafa allt á hreinu.“
Á Norðurlandamótinu, þar sem
hann náði góðum árangri, var hann
látinn leggja frárennslislögn, neyslu-
vatnslögn og hitalögn og tók keppnin
þrjá daga.
„Heimsmeistaramótið stendur yfir
í fjóra daga og ég keppi alla dagana,“
segir Kristófer sem hefur starfað við
pípulagnir frá því að hann var 15 ára.
Hann lauk burtfararprófi í pípulögn-
um frá Iðnskólanum í Hafnarfirði 18
ára og meistaraprófi nú í vor.
„Auk Kristófers keppa Þorbjörg
Bergþórsdóttir, 19 ára, og Stefán
Ingi Ingvarsson, 19 ára, á heims-
meistaramótinu. Þorbjörg er nem-
andi í hársnyrtiiðn og hlaut hún verð-
launin Best of Nation á Euro-Skills
síðastliðið haust. Stefán Ingi er nem-
andi í rafvirkjun og stóð sig vel á Ís-
landsmóti iðnnema í fyrra.
Beygir pípur
á heimsmóti
Þrír keppendur frá Íslandi á heims-
meistaramótinu í iðn- og verkgreinum fyrir
22 ára og yngri Hafa æft af kappi
Ljósmynd/Bogi Leiknisson
Full tilhlökkunar Þorbjörg Bergþórsdóttir, Kristófer Þorgeirsson og Stef-
án Ingi Ingvarsson verða fulltrúar Íslands á WorldSkills í Kanada.
Í HNOTSKURN
» WorldSkills er haldin ann-að hvert ár.
» Keppendur nú eru um1.000 talsins og koma þeir
frá 51 landi.
» Íslendingar eru þátttak-endur í annað sinn.
ÓVÍST er hvort for-
seti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, get-
ur sótt atvinnu- og
menningarsýninguna
Stefnumót á Ströndum
vegna axlarbrotsins
sem hann varð fyrir í síðustu viku.
Sýningin verður opnuð á Hólmavík á
laugardaginn og á Ólafur Ragnar
samkvæmt dagskrá að flytja hátíð-
arávarp. Forsetinn er verndari sýn-
ingarinnar.
Óvissa með Strandaferð
forseta vegna axlarbrots
LAG söngkonunnar
Elízu Geirsdóttur
Newman, „Ukulele
Song“ hefur notið mik-
illa vinsælda að und-
anförnu og hljómað ótt
og títt á öldum ljósvak-
ans. Elíza ætlar að hamra járnið
meðan heitt er og senda frá sér nýja
plötu innan skamms. Á twitter-síðu
hennar kemur fram að búið sé að
„mixa“ plötuna og því ætti biðin ekki
að vera löng. Nú er bara að sjá hvort
platan verði eins vinsæl og lagið.
Ný plata frá Elízu
Hilary Hahn leikur með
Sinfóníunni í vetur. »35