Saga - 1990, Síða 179
ANDMÆLI OG ATHUGASEMDIR
177
nýjatestamentis Odds Gottskálkssonar árið 1540, þar sem segir að ritið sé
útlagt á norrænu, og á titilblaði Guðbrandsbiblíu árið 1584 segir að þar sé hei-
lög ritning útlögð á norrænu.
Samkvæmt ævisögu Brynjólfs biskups Sveinssonar eftir Torfa prest Jóns-
son var Brynjólfur „kistulagður með hans N. T. Græco, Davíðs psaltara og
Fjórum guðspjallamönnum, er biskup Jón gamli að Hólum lét útleggja og
þrykkja, sem hans formáli útvísar, ef þar af finnst nokkurt exemplar."2 Torfi
prestur var bróðursonur Brynjólfs, lengi handgenginn honum og erfði hann
að miklu leyti.
Samkvæmt þessu voru kjörbækur Brynjólfs þrjú rit, og sams konar rit eru
skráð saman í stofu Jóns Arasonar. Munurinn er sá að nýjatestamentið er á
frummálinu hjá biskupi hinnar lútersku kirkju, en á latínu hjá biskupi páfa-
kirkju, og á öðrum staðnum eru „Fjórir guðspjallamenn", á hinum „guð-
spjallabók". Enn þann dag í dag segja menn Lúkas, Markús, Mattheus og
Jóhannes og eiga þá ekki við mennina, heldur guðspjöll þeirra.
Páll E. Ólason fjallar um þessi guðspjallarit þeirra biskupanna í ritfregn og
þykir trúlegt að Brynjólfur hafi erft ritið, en Jón var langalangafi hans (Stað-
arhóls-Páll var dóttursonur Jóns og afi Brynjólfs) og minnir á að Brynjólfur
hafi metið langalangafa sinn mikils.3 Ýmsum hefur þótt það merkilegt og
jafnvel ótrúlegt að kaþólskur biskup hafi látið þýða og birta á þjóðtungu
kjarna heilagrar ritningar, þar sem kirkja páfa hafi einskorðað sig við latn-
eska gerð hennar. Páll fullyrðir að í öðrum löndum mótmælenda hafi víða
verið til biblíuþýðingar prentaðar í kaþólskum sið fyrir siðaskiptin. Nýbirt
ntgerð Tryggva Pórhallssonar frá 1917 skýrir stöðu Jóns Arasonar frá árinu
1540, er Gissur tekur við embætti í Skálholti, til dauða Gissurar 1548.'*
1 ryggvi telur þá biskupana fljótlega hafa gert með sér samkomulag um að
standa saman gegn konungi til varnar eignum og veldi kirkjunnar og að hlut-
ast ekki til um kirkjuskipan í umdæmi hins. Hann greinir frá ferð þriggja full-
trúa Jóns Arasonar, þ. á m. Sigurðar sonar hans og ísleifs tengdasonar, á
fund danakonungs árið 1542 ásamt Gissuri biskupi, þar sem konungur
(Kristján III) hafi sætzt á að láta Jón halda biskupsdæmi.5 Tryggva þykir lík-
legt að í samkomulaginu hafi verið gert ráð fyrir að lúterskur biskup tæki við
af Jóni að honum gengnum og hafi áðurnefnd guðspjallaútgáfa Jóns verið í
anda samkomulagsins, og því telur hann ritið yngra en nýjatestamenti
Odds. Jón Arason hlaut einn kaþólskra biskupa í ríki danakonungs slík náð-
arár, og þakkar Tryggvi það atbeina Gissurar. Við þessar aðstæður var vita-
skuld ekki ástæða til að biðja páfa leyfis til slíkrar útgáfu, en kann að hafa
þött henta að hafa upplagið ekki stórt.
^ryggvi skýrir það, að Jón Arason reis síðar til varnar kirkjuskipan sinni,
svo, að samkomulagið hafi verið milli þeirra Gissurar persónulega og því
ekki gilt að honum látnum 1548, en þá hafi Jóni getað sýnzt horfur á að sigur
2 r°ri> Jónsson, 53.
Páll Eggert Ólason: Halldór Hermannsson: Islandica IX.
ryggvi Þórhallsson, aðallega VIII. kafli.
3 rryggvi, 174-5.
12~SAGA