SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Side 2
2 10. janúar 2010
10 Dagur í lífi ljósmóður
Harpa Ósk Valgeirsdóttir hefur í mörg horn að líta á Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaupstað.
24 Af hverju verðurðu ekki
almennileg frú?
Ólafía Einarsdóttir varð fyrst Íslendinga til að ljúka háskólaprófi í forn-
leifafræði og fyrst kvenna til að taka doktorspróf í sagnfræði.
32 Varð fyrir lest, lærði aldrei að lesa
og hefur reykt í 88 ár
Blúsmaðurinn Pinetop Perkins er enn í fullu fjöri, 96 ára, og skipu-
leggur tónleikaferðalög.
34 Uppbygging í Afganistan
Erlingur Erlingsson vinnur við friðargæslu og uppbyggingarstarf og er
stjórnmálafulltrúi SÞ í borginni Khost.
36 Í sófa skáldsins
Páll V. Bjarnason býr í Þrúðvangi, þar
sem Einar Ben. bjó áður, og hefur nú
fest kaup á sófasetti, flygli og fleiru
sem var í hans eigu.
40 Sóknarprestur
og sælkeri
Séra Svavar Alfreð Jónsson í Akureyr-
arkirkju hefur yndi af því að elda góð-
an mat enda hefur hann verið sælkeri
síðan hann var lítill drengur.
Lesbók
52 Illmennið og fagurkerinn
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um tvær bækur um lestrarhestana
Adolf Hitler og Oscar Wilde.
54 Af slangri og slettum
Hvers vegna liggur slangurgerð í láginni? spyr Ríkarður Ö. Pálsson.
22
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Ragnar Axelsson af Pálma Gestssyni í hlutverki forsetans.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Ingveldur Geirsdóttir,
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
Augnablikið
30
Þ
að er hálka á veginum út á Álftanes, svo
bíllinn skrikar til. En blaðamaður nær
aftur stjórn á honum. Icesave. Það er lítil
umferð þrátt fyrir blaðamannafund á
Bessastöðum, sem á eftir að reynast sögulegur.
Þrír hrafnar á eineygðum ljósastaur. Hvað
skyldi það nú þýða?
Í þessum þungu þönkum missir blaðamaður af
afleggjaranum, í fyrsta skipti sem það kemur fyrir,
og áttar sig ekki fyrr en hann er kominn út að
brimgarðinum. Er hann snýr við tekur hann eftir
lögreglubílunum, einum við afleggjarann og öðr-
um á veginum. Svona er nýja Ísland.
Klukkan er orðin ellefu.
Blaðamaður hleypur framhjá kirkjunni, yfir
grasflötina og heyrir þá karl í kuldagalla hrópa í
skjóli frá kirkjunni, þó að það sé blankalogn: „Ég
ætla annaðhvort að hlæja eða gráta fyrir þjóðina!“
Jóhann Gunnar Arnarsson staðarhaldari opnar
dyrnar og hristir hausinn er vinur hans að norðan
lítur á hann spyrjandi. „Nei, ég vil ekki vita það,
þá þarf ég ekki að ljúga neinu.“
Í hátíðarsalnum hefur jólatrénu verið ýtt til
hliðar og þar er lágvært skvaldur fréttamanna,
sem eru í útsendingu að spinna veikan þráð, þar til
forsetinn kemur. Ekkert í mynd nema þeir og
jólatréð. Og auðvitað lætur hann bíða eftir sér –
bara til að stríða þeim. Svo þagnar allt. „Nú held
ég að forsetinn …“ segir einn og verður svo mikið
um að hann missir diktafóninn.
Upphafsorð ræðunnar reynast vera um að
hlusta eftir vilja þjóðarinnar. En þar sem blaða-
maður er farinn að þekkja ræðustíl forsetans, þá
kippir hann sér ekkert upp við það. Það er of
snemmt að draga ályktanir. Og þar kemur að for-
setinn segir: „En einnig er mikilvægt …“ Um leið
skiptir hann um kúrs eins og allir góðir spennu-
sagnahöfundar gera – og eflaust hugsa margir með
sér, hann hlaut að skrifa undir.
Blaðamaður horfir yfir hópinn af ljósmyndurum
og fréttamönnum. Einhverjir laumast bakvið for-
setann, sem ku vera alveg bannað. Slíkt er tekið
alvarlega á Bessastöðum.
Í þessum þönkum renna á blaðamann tvær
grímur. Getur það verið? Er forsetinn aftur farinn
að tala um að valdið liggi hjá þjóðinni? Ætlar hann
ekki að skrifa undir! Arnaldur Indriðason gæti
ekki gert betur. Nú hefði verið gaman að vera fluga
á vegg í Stjórnarráðinu.
Nokkrir fréttamenn líta ósjálfrátt aftur fyrir sig
og gapa af undrun. Og blaðamaður kann ekki við
að gapa framan í forsetann, svo hann snýr sér við
og gapir framan í starfsfólkið á Bessastöðum.
„Nú á ég öngvan vin,“ er hvíslað í eyrað á hon-
um af manni með kímnissvip.
Ólafur Ragnar er tillitssamur, gefur fjölmiðla-
mönnunum færi á að jafna sig, áður en hann kallar
eftir spurningum. Arnþrúður Karlsdóttir rigsar
inn í þeim orðum töluðum og heilsar blaðamanni
kumpánlega: „Þetta var flott maður!“
Svo hefjast spurningarnar.
Pebl@mbl.is
Beðið eftir forsetanum á Bessastöðum. Ljósmyndarar stilla miðið.
Morgunblaðið/RAX
Á Bessastöðum
Laugardagur 9. janúar
Rósariddarinn, ein þekktasta ópera Richards Strauss, verður sýnd í
beinni útsendingu frá Metropolitan-óperunni í SAMbíóunum Kringl-
unni í dag, laugardag, kl. 18. Í verkinu segir frá skoplegu leynimakki,
ástum og misskilningi við hirðina í Vínarborg. Bassasöngvarinn Krist-
inn Sigmundsson fer með hlutverk Barons Ochs en hann hefur hlotið
mjög lofsamlega dóma í fjölmiðlum víða um heim fyrir hlutverk sitt.
Baron Ochs á hvíta tjaldinu
Við mælum með…
Sunnudagur 10. janúar
Steinunn Sigurð-
ardóttir heldur fyr-
irlestur á Kjarvals-
stöðum kl. 15 þar
sem hún fjallar um
feril sinn og hönn-
unarferlið og varpar
ljósi á mikilvægi um-
hverfis okkar í sköp-
unarferlinu.
Föstudagur 15. janúar
Frönsk kvik-
myndahátíð hefst í
Háskólabíói og
stendur til 28. janúar.
Sýndar verða tíu kvik-
myndir, þar af ein frá
Alsír, ein frá Túnis,
tvær frá Kanada og
sex frá Frakklandi. Er
þetta í tíunda skiptið sem hátíðin er
haldin og af því tilefni verða valdar mynd-
ir sýndar á Akureyri í febrúar.
Fimmtudagur
Davíð Logi Sigurðsson: Karlinn
stóð sig bara vel, það verður að
játast. Það er erfitt að komast
hjá því að Paxman vaði yfir við-
mælendur, en ÓRG tókst það.
Miðvikudagur
Jón Oddur Guðmundsson:
Fjórða frétt á ruv.is er nú ósköp
notaleg: „Árbók Barðastrand-
arsýslu komin út“.
Mánudagur
Bjarni Vestmann: Lokað vegna
vöðvatalningar.
Laugardagur
Rúnar Sigurpálsson óskar aðdá-
endum Leeds til hamingju. Vill
síðan gjarnan sjá Gary Neville
leggja skóna á hilluna … NÚNA.
Nýársdagur
Þorgrímur Þráinsson: Avatar er
óður til lífsins, náttúrunnar, óður
til Móður jarðar. Og myndin
endurspeglar þá hugsun sem
skekur jörðina í dag. Aðeins örfá-
ir bera virðingu fyrir náttúrunni,
orkunni, tengslum allra lífvera.
Hinir lifa lífinu með lokuð augun.
Hjalti Már Björnsson: Drukkn-
asti viðskiptavinurinn þessi ára-
mótin var með 2,6 promill og
vann eftir nokkuð harða sam-
keppni við aðra sauðölvaða
djammara. Hún er 89 ára og
kom úr partíi á elliheimilinu.
Hetja.
Gamlársdagur
Atli Bollason er alltaf meyr á
gamlársdag.
Fésbók vikunnar flett