SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Blaðsíða 38
38 10. janúar 2010
B
enedikt Bragason hefur haft unun
af ferðalögum um hálendið síðan
hann var ungur og hefur áhugi
hans vaxið svo með árunum að
hann rekur nú ferðaþjónustuna Arcanum
sem sérhæfir sig í vélsleðaferðum upp á Mýr-
dalsjökul. Það sem Benedikt heillast þó helst
af eru íshellar. „Áhuginn kviknaði í gamla
daga þegar ég var að alast upp á Egilsstöðum
og fékk að fara með ferðaköllum sem þar
voru inn á hálendið. Ég fór með þeim inn í
þekktan íshelli í Kverkfjöllum, fyrir innan
Sigurðarskála. Þar rann heitur lækur í botn-
inum og maður gat farið inn og baðað sig.
Það kveikti áhugann á íshellum ásamt ferða-
lögum almennt að vetri til þegar landið er
snævi þakið og fallegt.“
Benedikt ferðast milli hellanna á vélsleða,
stundum í góðra vina hópi en oft aðeins með
eiginkonunni, Andrínu Erlingsdóttur. Hann
segir erfitt að útskýra hvað sé svona heillandi
við íshella. „Ætli það sé ekki þetta fyrirbæri
sjálft, íshellirinn, hvernig hann myndast og
breytist. Ef þú kemur þrjú eða fjögur ár í röð
í sama hellinn sérðu hvernig hann breytist,
hvernig jökullinn hleypur fram og brýtur
jöklana niður,“ segir Benedikt. „Íshellar eru í
sjálfu sér athyglisverðir en þeir eru flestir
hérna út af jarðhita. Svo myndast íshellar á
sumrin, þegar ár renna undan jöklum, sem
maður kemst inn í á veturna þegar árnar
frjósa. Þá getur maður einfaldlega gengið eft-
ir ánni inn í jöklana.“ Hann segir hellana
hins vegar varhugaverða og þurfi að fara með
mikilli gát þegar þeir eru skoðaðir. „Maður
reynir að skoða vel loftið í hellunum og sjá
hvernig ísinn er lagskiptur í því. Það mynd-
ast oft stangir sem geta dottið niður en það
er misjafnt milli hella hvað þeir eru traustir.
Flestir þessir minni, eins og eru í Mýrdals-
jökli, endast ekki í mörg ár. Þeir geta verið
ótraustir og maður fer helst ekki inn í þá ef
hitinn er fyrir ofan frostmark.“
ylfa@mbl.is
Ferðast
um snævi
þakið landið
Benedikt Bragason hefur haft
áhuga á íshellum síðan hann var
gutti og fékk að baða sig í heitum
læk í íshelli í Kverkfjöllum.
Fara þarf með mikilli gát þegar íshellar eru skoðaðir. Hér er Benedikt í íshelli við Söðul í Hrafntinnuskeri og býr blys til fallega, rauða birtu innan í hellinum.
Ljósmyndir/Benedikt Bragason
Ferðalög
B
aldvin stefnir að því að frum-
sýna kvikmyndina næsta sum-
ar. Hann skrifar handritið ásamt
Ingibjörgu Reynisdóttur, en það
er einmitt byggt á tveimur unglingabók-
um eftir hana; Strákunum með strípurnar
og Rokki, rótleysi og rómantík.
Aðalleikarar myndarinnar eru flestir
unglingar en myndina skilgreinir leik-
stjórinn þó alls ekki sérstaklega fyrir þann
aldurshóp heldur segir hana fullorð-
insmynd með unglingum.
„Atli Fjalar Óskarsson er aðalleikarinn,
þekktastur fyrir aðalhlutverkið í Smá-
fuglum eftir Rúnar Rúnarsson. Ótrúlegur
leikari og þessir krakkar hafa allir verið
frábærir. Þetta er tilfinningaþrungin
mynd sem fjallar um viðkvæm mál og oft
var erfitt fyrir þau að leika í henni. En þau
stóð sig öll ótrúlega vel; ferðalagið með
krökkunum hefur verið mjög skemmti-
legt,“ segir Baldvin Z. í samtali við Morg-
unblaðið.
Ellefu unglingar eru í stórum hlut-
verkum en með stærstu fullorð-
inshlutverkin fara Gísli Örn Garðarsson,
Þorsteinn Bachmann, Ingibjörg Reyn-
isdóttir höfundur bókanna og leikkona,
Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Bergur
Ingólfsson. „Myndin fjallar um árin þar
sem unglingar eru að þroskast upp í það
að verða fullorðnar manneskjur; lífið er
þannig að hver dagur skiptir máli. Hver
ákvörðun er ákvörðunin í lífinu. Þetta
geta verið erfiðir og tilfinningaþrungnir
tímar en mér finnst gaman að rifja þá
upp,“ segir leikstjórinn.
„Við byrjuðum á verkefninu í sept-
ember í fyrra og lukum tökum fyrir
nokkrum vikum í Bretlandi. Nú erum við
Stórt
skref leik-
pabbans
Leikstjórinn Baldvin Z.
hefur nýlokið tökum á
fyrstu kvikmyndinni í
fullri lengd, Óróa.
Hreindís Ylfa Garðarsdóttir Hólm, og Ervin Shala í myndinni. Shala leikur mann sem rænir verslun 10-11 þar sem stúlkan Stella
starfar, en Hreindís fer með hlutverk hennar.