SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Blaðsíða 4
4 10. janúar 2010
Sérfræðingar í umferðaröryggismálum í Bandaríkj-
unum hafa varað við áformum hátæknifyrirtækja
sem hafa fundið nýjan stað fyrir nettengdar tölvur:
mælaborð bíla. Hátæknirisar á borð við Intel og
Google hafa þróað slíkar tölvur í samstarfi við bíla-
framleiðendur og sjá gríðarlega gróðamöguleika á
þessum markaði.
Fyrirtækin kynntu tölvurnar á árlegri tæknisýningu
í Las Vegas, sem lýkur í dag, og ætla að setja bún-
aðinn á markað síðar á árinu. Talið er líklegt að slík-
ar tölvur verði staðalbúnaður í mörgum bílum áður en
langt um líður, að sögn dagblaðsins The New York
Times.
Ekki verður hægt að horfa á hreyfimyndir eða spila
leiki í tölvunni á meðan bíllinn er á ferð en bílstjórinn
getur gert ýmislegt annað, til að mynda vafrað á net-
inu, meðal annars til að leita að upplýsingum um
veitingahús eða aðra ákvörðunarstaði. Sérfræðingar
í umferðaröryggismálum segja þetta enn eina við-
bótina við tæki á borð við farsíma sem dragi athygli
bílstjóra frá akstrinum og valdi þannig bílslysum.
„Þetta er í besta falli ábyrgðarlaust og í versta
falli banvænlegt,“ hafði The New York Times eftir
einum sérfræðinganna um þessa nýju græju. Hann
sakaði fyrirtækin um að taka gróðavonina fram yfir
öryggi bílstjóra og annarra vegfarenda.
Mótmæla nettengdum tölvum í mælaborð bíla
Hættuleg græja? Óttast er að nettengdar tölvur í
mælaborðum dragi athygli bílstjóra frá akstrinum.
L
íkurnar á því að demókrötum takist
að halda nægum meirihluta til að
hindra málþóf í öldungadeild Banda-
ríkjaþings minnkuðu verulega á dög-
unum þegar tveir gamalreyndir öldungadeild-
arþingmenn demókrata tilkynntu að þeir
hygðust draga sig í hlé og ekki gefa kost á sér í
þingkosningunum í nóvember.
Þingmennirnir hafa báðir átt undir högg að
sækja í heimaríkjum sínum og ólíklegt var að
þeir næðu endurkjöri í komandi kosningum á
miðju kjörtímabili Baracks Obama forseta. Sú
ákvörðun þeirra að draga sig í hlé endurspeglar
áhyggjur þingmanna demókrata af minnkandi
fylgi flokksins frá síðustu kosningum og þeir
óttast að hann bíði mikinn ósigur í nóvember.
Það gæti síðan komið niður á Barack Obama og
torveldað honum að knýja fram stefnu sína á
þinginu, til að mynda í loftslagsmálum.
Hversu stór verður ósigurinn?
Ákvörðun þingmannanna tveggja staðfestir að
meðbyrinn, sem demókratar hafa haft frá
sögulegum sigri Obama í forsetakosningunum,
er horfinn. Hugsanlegt er að fleiri þingmenn
demókrata, sem eiga á brattann að sækja, fari
að dæmi þingmannanna tveggja.
Þessi umskipti eru einkum rakin til óánægju
almennings með þróunina í efnahagsmálum,
mikils atvinnuleysis og deilnanna um breyt-
ingar á sjúkratryggingakerfinu.
Í kosningunum verður tekist á um öll sætin
435 í fulltrúadeild þingsins, þriðjung 100 sæta
öldungadeildarinnar, auk 37 ríkisstjóraemb-
ætta. Demókratar eru nú með 58 sæti í öld-
ungadeildinni og njóta stuðnings tveggja
óflokksbundinna þingmanna þannig að þeir
hafa nógu mörg atkvæði til að hindra málþóf
repúblikana, til að mynda í deilunum um
sjúkratryggingakerfið.
Talið er nú nánast öruggt að demókratar
missi þennan tíu sæta meirihluta í nóvember.
Jafnvel bjartsýnustu demókratar óttast veru-
legan ósigur í kosningunum í nóvember og
spurningin er aðeins hversu stór ósigurinn
verður, að sögn fréttaskýranda The Wash-
ington Post. Demókratar eru nú með 79 sæta
meirihluta í fulltrúadeildinni og margir stjórn-
málaskýrendur í Bandaríkjunum telja að flokk-
urinn tapi að minnsta kosti 20-25 sætum í
deildinni. Repúblikanar spá því einnig að þeir
verði með meirihluta ríkisstjóraembættanna
eftir kosningarnar í nóvember.
Vonast eftir efnahagsbata
Daginn áður en þingmennirnir tveir tilkynntu
að þeir hygðust draga sig í hlé sagði Michael
Steele, formaður landsnefndar repúblikana, að
ólíklegt væri að flokkurinn fengi meirihluta í
fulltrúadeildinni í nóvember. Sú yfirlýsing
sætti gagnrýni flokksbræðra hans og ákvörðun
demókratanna tveggja gaf Steele tækifæri til að
draga orð sín til baka og lýsa yfir því að flokk-
urinn gæti náð meirihluta í deildinni þótt til
þess þyrfti fylgissveiflu sem jafnaðist á við
sögulegan stórsigur repúblikana í kosning-
unum árið 1994 þegar þeir náðu meirihluta í
báðum deildum þingsins.
Margt kann þó að breytast fyrir kosningarnar
og ráðgjafar Obama telja að staða hans og
demókrata verði betri í haust ef forsetanum
tekst að knýja fram breytingar á sjúkratrygg-
ingakerfinu nú í vetur og ef efnahagurinn batn-
ar. Ólíkt kosningunum árið 1994, þegar repú-
blikanar komu demókrötum í opna skjöldu,
hefur þinglið demókrata enn nægan tíma til að
búa sig undir þennan mikilvæga kosningaslag.
Flótti í
liði demó-
krata?
Óttast ósigur á
miðju kjörtíma-
bili Obama
Christopher Dodd tilkynnir að hann sækist ekki eftir endurkjöri í öldungadeildina. Dóttir hans hallar höfðinu að öxl hans.
Reuters
Vikuspegill
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is
Demókratinn Byron Dorgan, sem hefur átt sæti á Banda-
ríkjaþingi í 28 ár fyrir Norður-Dakóta, tilkynnti á miðviku-
dag að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri í kosn-
ingunum í nóvember. Talið er nær öruggt að frambjóðandi
repúblikana fái sæti Dorgans í öldungadeild Bandaríkja-
þings í kosningunum.
Christopher John Dodd hyggst einnig draga sig í hlé eftir
að hafa setið á Bandaríkjaþingi í 35 ár, en hann var fyrst
kjörinn í fulltrúadeildina árið 1974 og hefur átt sæti í öld-
ungadeildinni frá 1981. Talið er að frambjóðandi demó-
krata eigi góða möguleika á að taka við af Dodd sem ann-
ar þingmanna Connecticut í öldungadeildinni.
Reyndir öldungar kveðja
Byron Dorgan
ER HAFIN
ÚTSALAN