SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Blaðsíða 39
10. janúar 2010 39
S
ennilega er Boston
þekktust fyrir þá há-
skólamenningu sem
hún býður upp á. Í
borginni má finna yfir 50 há-
skóla en þeirra frægastir eru lík-
lega Harvard og Massachusetts
Institute of Technology (MIT).
Vegna þessa fjölda háskóla og
þess fjölda aðfluttra nemenda
sem sækja þá er afar fjölþjóðlegt
andrúmsloft í borginni. Í raun er
það svo að ég þekki ekki eina
einustu manneskju sem hér er
fædd og uppalin. Þá segja margir
að mikill Evrópubragur sé yfir
borginni sem er vissulega rétt að
sumu leyti. Hér er heilt hverfi,
Back Bay sem var hannað með
það í huga að svipa til Parísar og
mikið um gömul og tignarleg
múrsteinshús.
Fyrir þá sem hingað koma í
leit að afslöppun og afþreyingu
er margt í boði. Þar má t.a.m.
nefna vísindasafnið, Museum of
Science, og sædýrasafnið. Þá er
hér aragrúi leikhúsa og ósjaldan
sem góðar uppfærslur eru á fjöl-
unum. Hér fylgjast menn líka
mikið með íþróttum, enda á
Boston eitt af bestu liðunum í
hafnabolta, körfubolta og ís-
hokkíi! Fyrir þá sem kjósa held-
ur að eyða tíma sínum í búðum
er jafnvel meira í boði. Auk New-
bury Street er fjöldi versl-
unarmiðstöðva og -kjarna í ná-
grenni borgarinnar. Þar ber
einna helst að nefna Galleria
mollið í Cambridge, en það
þekkja Íslendingar mjög vel og
það þykir heyra undantekningu
til ef ekki heyrist íslenskt mál
þar hlusti maður vel. Að auki er
í nágrenninu Premium Outlets
verslunarkjarni þar sem hægt er
að kaupa merkjavöru á miklum
afslætti.
Venjulega
nær sumarið í
Boston inn í
byrjun októ-
ber en um
haustið rignir
meira og hit-
inn fellur í um
15 gráður að
jafnaði. Þá breytir borgin, sem
venjulega skartar miklum
grænum gróðri, um lit og verður
rauð og gul og brún.
Það er mjög skemmtilegt að fá
sér hádegismat á Top of the hub
veitingastaðnum á 52. hæð Pru-
dential-turnsins. Hann er ein af
hæstu byggingum borgarinnar
og er útsýnið þar alveg frábært.
Veitingastaðurinn sjálfur er
prýðisgóður. Þegar veturinn
tekur á endanum við verður
borgin jafnvel kaldari en heima
á klakanum. Það snjóar líka
stundum, en samt sem áður
verður Kaninn alltaf jafnhissa og
samgöngur fara í lamasess!
Ekki langt frá Prudential-
turninum er Newbury Street,
Laugavegur Boston. Þar er mik-
ill fjöldi lítilla búða og veit-
ingastaða og á sumrin iðar gatan
af lífi. Efst í götunni er einn af
bestu veitingastöðum borg-
arinnar, The Capital Grille,en
neðst í götunni eru fínu búð-
irnar. Við enda götunnar eru svo
tveir almenningsgarðar, Public
Garden þar sem á sumrin er
hægt að sigla um tjörn á bátum í
svanslíki og Boston Common.
Póstkort frá
Boston
Hér er heilt
hverfi, Back Bay,
sem var hannað
með það í huga að
svipa til Parísar ...
Gunnar Þór Pálsson
Munninn á þessum íshelli við Eyjabakka er gríðarstór.
Í ánni Spree í Berlín liggur gamall prammi sem breytt hefur verið í
sundlaug og kalla Þjóðverjarnir hann baðskip (Badeschiff á þýsku).
Baðskipið liggur við austurhöfnina í ánni og þar geta Berlínarbúar og
aðrir synt og buslað í öruggu og hreinu umhverfi en ekki þykir
öruggt að synda í Spree vegna mikillar mengunar.
Baðskipið var tekið í notkun fyrir fimm árum en borgarlistafélagið
í Berlín stóð fyrir gjörningnum. Það var búið til úr pramma og göml-
um skipsskrokki sem mælist 8 sinnum 32 metrar. Það er lokað yfir
háveturinn en annars opið daglega frá átta að morgni og til mið-
nættis. Reglulega mæta plötusnúðar og spila tónlist við innganginn
að skipinu en þar er einnig að finna bar svo ljóst er að mikið líf og
fjör getur verið að finna í skipinu á góðum dögum.
Staðurinn
Á sumrin flykkjast Berlínarbúar í sund í gamla skipsskrokknum.
Sundlaug í á
komin í eftirvinnsluna,“ segir Baldvin.
Hann hóf að fikta við kvikmyndagerð
ungur drengur á Akureyri. „Ég fékk
áhuga á þessu þegar ég var tíu ára og við
félagarnir byrjuðum að sýna myndir 18
eða 19 ára.“ Hann hefur gaman af við-
brögðum gamalla skólafélaga á endur-
fundum. „Þeir trúa því ekki að ég sé enn
að! En þetta er ótrúlega skemmtileg vinna
og það er hægt að lifa af henni með því að
vera í öðrum verkefnum líka,“ segir Bald-
vin sem fæst líka við auglýsingagerð og
þess háttar. Hann nam í Danmörku í þrjú
ár en flutti heim fyrir tveimur árum og fór
að vinna með Kvikmyndafélagi Íslands.
Félagið framleiddi fyrir hann stuttmynd-
ina Hótel jörð og er með Óróa á sínum
snærum.
Fyrsta myndin í fullri lengd er stór
áfangi. Skyldi Baldvin telja sig orðinn „al-
vöru“ leikstjóra? „Mér líkaði aldrei að
vera ávarpaður herra leikstjóri á sínum
tíma. Ég kallaði mig gjarnan Balla leik-
pabba þegar ég var að taka myndir í gamla
daga – og finnst það miklu betri titill.“
skapti@mbl.is
Baldvin Z leikstjóri og Katrín Björgvinsdóttir, annar aðstoð-
arleikstjóranna og skrifta, að störfum í Bretlandi.
Leikarar, leikstjóri og fleiri sem koma að gerð myndarinnar.
Þetta er tilfinninga-
þrungin mynd sem
fjallar um viðkvæm
mál og oft var erfitt fyrir
þau að leika í henni.