SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Page 10

SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Page 10
10 10. janúar 2010 M argir stjórnarliðar og talsmenn þess að hin nýju lög um ríkisábyrgð vegna Icesave verði staðfest, þótt fyrirvararnir sem settir voru síðastliðið haust og áttu að tryggja að landinu yrði forðað frá gjaldþroti, væru að engu orðnir, beittu sér með mjög einkennilegum hætti gegn undirskriftasöfnun þeirri sem InDefence-hópurinn stóð fyrir, til þess að skora á forsetann að synja lögunum staðfestingar. Þeir gerðu lítið úr áreiðanleika þeirrar söfnunar og létu í veðri vaka að þúsundir kennitalna væru á listanum, án þess að eig- endur kennitalnanna könnuðust við að hafa skráð sig á listann og gerðu lítið með þá staðreynd að listinn hefði af óháðum aðila ver- ið samkeyrður við þjóðskrá og þannig hefðu nokkur þúsund kennitölur verið hreinsaðar út af listanum. Samt sem áður voru undirskriftirnar frá rúmlega fjórðungi kosningabærra manna, eða rúmlega 56 þúsund manns. Meira að segja gengu talsmenn Icesave-samþykktar svo langt að upplýsa að kennitala félagsmálaráðuneytisins væri á undir- skriftalistanum! Hver eða hverjir hafa kennitölu ráðuneytisins á hreinu? Engir. Er ekki alveg augljóst að sá sem skráði kennitölu félagsmálaráðuneytisins á undirskriftalista InDefence fletti henni upp og skráði á undirskriftalistann, í þeim tilgangi einum að gera söfnunina tortryggilega? Lágkúruleg vinnubrögð, ekki satt? Því er nú tímabært að rifja upp áskorun sem þáverandi formað- ur Blaðamannafélags Íslands, Róbert Marshall, núverandi þing- maður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, sendi til hóps fjöl- miðlafólks um miðjan maí árið 2004. Áskorunina sendi hann frá sér af netfanginu marshall@press.is, sem var þáverandi netfang formanns B.Í.: „Félagar. Stundum er nóg komið. Nú er sú stund. Aðför stjórnvalda að starfsöryggi og starfsheiðri okkar sem vinnum hjá Norðurljósum náði hámarki í lagafrumvarpi forsætis- ráðherra á dögunum. Umræðan síðustu vikur hefur verið á mörkum hins vitræna. Við höfum horft upp á þingmenn fara hamförum með blöð og greinar; grenjandi í ræðustól um að hitt og þetta verði að stöðva. Svo ofsafengin framganga, svo ein- strengingsleg afstaða, svo blind heift hefur lamandi áhrif á þann sem fyrir verður. Slík eru áhrif sálfræðihernaðar; hann heggur að vilja andstæðingsins til að svara fyrir sig. Gerir óvininn óvirkan áður en til orrustu kemur. Nú reynir á okkur að rísa til varnar. Að óbreyttu verður fantafrumvarpið að lögum eftir helgi. Af- leiðingarnar fyrir störf okkar og afkomu eru óljósar. Við höfum eitt hálmstrá. Ólafur Ragnar Grímsson sagði í kosningabaráttunni 1996 að hefði hann verið forseti þegar rúmlega 30.000 manns skoruðu á Vigdísi Finnbogadóttur til að undirrita ekki EES- samninginn þá hefði hann orðið við því og neitað að staðfesta lögin. Tökum nú á öll sem eitt og söfnum 35.000 undirskriftum yfir helgina á askrift.is. Við höfum tíma á meðan stjórnarandstaðan heldur uppi málþófi. Sendið tölvupóst á ALLA sem þið þekkið, hringið í fjarskylda ættingja úti á landi sem þið hafið ekki heyrt í í sjö ár. Nú er tíminn til endurnýja kynnin. Fáið fólk til að skrifa nafn og kennitölu á askorun.is Sé fólk fylgjandi frumvarpinu, fáið það samt til að skrifa undir sem per- sónulegan greiða við ykkur. Mætið í vinnuna á morgun og á sunnudag eða sitjið við tölvuna heima við, hringið, djöflist, látið öllum illum látum, söfnum þessum undirskriftum, fáum þessum ólögum hrundið, kaupum tíma til að fá þau í það minnsta milduð í haust. Nú reynir á. Gjör rétt – þol ei órétt. Róbert Marshall.“ Það er eiginlega með ólíkindum að almennir félagar í þessu svokallaða stéttarfélagi okkar blaðamanna skuli hafa látið mis- beitingu formannsins í starfi óátalda og kannski ekki alveg út í hött að velta því fyrir sér, fyrst fyrrverandi formaður BÍ gat verið þekktur fyrir að senda frá sér áskorun þar sem m.a. sagði: „Sé fólk fylgjandi frumvarpinu, fáið það samt til að skrifa undir sem persónulegan greiða við ykkur,“ hvort honum er ekki trúandi til hvers sem er í hinu nýja hlutverki sínu sem þingmaður Samfylk- ingarinnar. Svo leyfði hann sér að ljúka bréfinu á orðunum „Gjör rétt – þol ei órétt“. Ég staðhæfi að sá sem notar þau orð í því samhengi sem Róbert Marshall gerði í ofangreindri áskorun til valdra félaga í BÍ þekki ekki muninn á réttu og röngu. „Gjör rétt – þol ei órétt!“ Eða þannig! Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is 0:00 Kona sem er nýbúin í keisaraskurði þarfnast að- hlynningar svo ég fer frá skurðstofunni upp á fæðing- ardeild. Þar þarf líka að sinna konu með sólarhrings gamalt barn og konu sem er í fæðingu. Ég er þá búin að vera á vakt síðan klukkan átta um morguninn. Hér á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað er aðeins ein ljósmóðir á vakt í einu svo maður fer ekkert heim ef mikið er að gera. Eftir keis- araskurð þarf að fylgjast með barni og athuga hvort það sé ekki að braggast vel og lífs- mörk tekin á því. Það þarf líka að huga vel að konunni því hún er á sama tíma ný- komin úr aðgerð og að upp- götva að hún er orðin mamma. Það getur oft verið erfitt svo maður reynir að hafa allt eins kósý og hægt er. Mæður þurfa oft aðstoð við að leggja börn sín á brjóst svo það er líka hlutverk mitt og eins að hjálpa þeim við að upplifa þessa miklu nánd fyrstu sólarhringana. Ég mæli til dæmis ekki með því að börnin séu klædd alveg strax svo bæði barn og móðir upplifi nánari snertingu. 02:00 Það er komin góð sótt hjá þeirri konu sem er fæðandi. Ég er búin að vera svo heppin að vera með tvo nema, þannig að annar nem- inn getur sinnt keisarakon- unni á meðan hinn sinnir konunni sem er í fæðingu og ég fer á milli. 04:00 Stúlkubarn kemur í heiminn, voðalega falleg. Þriðja barnið hjá okkur á þremur sólarhringum. Þá tekur við smá saumaskapur og frágangur á stofunni og svo auðvitað stuðningur hjá þessari móður líka. Ég fer þá með nemunum í alla papp- írsvinnuna. Við höfum ekki ritara líkt og á Landspít- alanum svo við þurfum að sjá um að skila nauðsyn- legum gögnum til Hagstof- unnar. Það eru samt svo mikil forréttindi að vinna svona úti á landi því maður fylgir konunni alla leið og þetta verður engin færibandavinna eins og ég upplifði svolítið á fæðingaganginum í Reykja- vík. Maður er með konurnar í mæðravernd og þekkir þær þegar þær koma í fæðingu og svo fylgir maður þeim líka eftir að fæðingu lokinni. Ákvarðanir sem ég tek hafa ekki einungis áhrif á móð- urina heldur líka á mig. Ef ég ákveð að bíða með að örva konu í fæðingu þýðir það að öllum líkindum svefnleysi fyrir mig. 7:30 Maðurinn minn og sonur sækja mig í vinnuna um leið og þeir fara í vinnu og leikskóla svo ég næ að smella kossi á þá báða áður en ég fer og legg mig eftir sólarhringsvinnu. Þremur tímum seinna hringir síminn og ég þarf að hitta stelpu sem heldur að hún sé að fara af stað. Þegar ég er búin að skoða hana sendi ég hana heim aftur til að hvíla sig. Þá þarf að sinna nýbökuðu mæðrunum þremur og börn- unum þeirra. Í hádeginu næ ég að fá mér kærkominn há- degismat. Það er nefnilega rosalega góður matur hér á sjúkrahúsinu. Við erum svo heppin að hafa skipskokk til að elda fyrir okkur. Í fyrra voru 82 fæðingar hjá okkur og árið þar á undan 70. Þó að það virðist mikið að fá þrjú börn á þremur sólar- hringum þá er það samt alveg algengt að börnin hér komi í hrönnum. Það er eins og þegar eitt barn kemur í heiminn þá vilji hin vera með. 17:00 Ég skýst heim til að fá mér samloku í kvöldmat og fæ þá tuttugu mínútna hvíld. Þarf síðan að fara og sinna konu sem kemur frá Egilsstöðum í skoðun. Hún fær pláss úti í bæ til að hvíla sig. Þá nota ég tækifærið og sinni börnunum þremur og mæðrum þeirra. 23:00 Líkami minn kallar á hvíld svo ég fer heim og legg mig. Klukkan tvö hringir síðan síminn og þá þarf konan frá Egilsstöðum aðstoð þar sem hún er í byrj- andi fæðingu og við tekur annar annasamur sólar- hringur og efni í annað við- tal. signyg@mbl.is Dagur í lífi Hörpu Óskar Valgeirsdóttur ljósmóður Það hefur verið annasamt hjá Hörpu Ósk á Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaupstað á nýju ári. Börnin koma í hrönnum

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.