SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Side 15

SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Side 15
10. janúar 2010 15 V esturport hefur oft fengið lofsamlega gagnrýni gegnum tíðina. Ekki er þó allt jafn gott sem um hópinn hefur verið sagt opinberlega. Þannig kallaði María Krist- jánsdóttir, leiklistargagnrýnandi Ríkisútvarpsins, Vesturport „Kaupþingsleikhúsið“ á dögunum og full- yrti að hópurinn væri bóla sem nú væri sprungin eins og íslenska útrásin. „Viðkomandi virtist síður en svo syrgja þessi upp- diktuðu örlög Vesturports,“ segir Gísli Örn. „Við neyðumst þó til að hryggja hana með því að starf- semin hefur síður en svo dregist saman vegna krepp- unnar. Við erum að frumsýna Faust, erum meðfram- leiðendur að tveimur kvikmyndum sem eru frumsýndar um páskana og erum með fleiri kvik- myndir í undirbúningi, auk þess að vera bókuð með leiksýningar út um allan heim fram til ársins 2012. Þetta eru raddir meðalmennskunnar og þeim á að útrýma úr umræðunni.“ Haldi einhver að Vesturport standi og falli með stuðningi ákveðinna fyrirtækja eða fjárfesta, þá segir Gísli það rangt. „Auðvitað höfum við, eins og aðrir frjálsir leikhópar, notið aðstoðar ýmissa fyrirtækja, stórra sem smárra og fyrir það ber að þakka. Við vonum svo sannarlega að fyrirtæki haldi áfram að styrkja okkur í erfiðu árferði og sjálfstæðu leikhúsin almennt, en ef einhver einn aðili á sérstakar þakkir skilið fyrir að styðja okkur, þá er það Borgarleik- húsið, en samstarf okkar við það hefur verið mjög gott undanfarin ár, bæði fyrir og eftir kreppu.“ Óskiljanlegar hvatir Gísli segir Vesturport aldrei hafa kvartað undan gagnrýni. Hún eigi alltaf rétt á sér. „En það sem fer í taugarnar á okkur í opinberri umfjöllun um íslenskt leikhús er þegar fagfólk, eins og María Kristjánsdóttir og Páll Baldvin Baldvinsson, sem hefur af því atvinnu að skrifa um íslenskar leik- sýningar, er að halda á lofti ósönnum þvættingi um okkur. Þvættingi sem að því er virðist er settur fram af annarlegum og óskiljanlegum hvötum.“ Eitt sinn voru Gísli og félagar í leikhópnum staddir í Leifsstöð á leið í leikferð til New York þegar þeir lásu í grein eftir Pál Baldvin, í blaði frá þeim sama degi, að með falli Landsbankans væri Vesturport búið að vera og að aflýsa þyrfti umræddri leikferð á Woy- zeck og að áframhaldandi starfsemi Vesturports væri í uppnámi. „Þetta þótti okkur undarleg blaða- mennska. Sýningin gekk mjög vel í New York.“ Margir kynlegir kvistir koma við sögu í Faust. Vill útrýma röddum meðal- mennskunnar Gísli Örn: Mjög gott samstarf við Borgarleikhúsið. Við neyð- umst þó til að hryggja hana með því að starfsemin hefur síður en svo dregist saman vegna kreppunnar. Setning Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Skattar eða skatttekjur? Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Breytt landslag – nýjar frádráttarreglur fyrirtækja Gunnar Egill Egilsson, lögfræðingur á skatta- og lögfræðisviði Deloitte. Efnahagskreppa og skattheimta Ragnar Árnason, prófessor. Skattaleg mismunun – mismunandi skattlagning eftir rekstrarformum Vala Valtýsdóttir, forstöðumaður skatta- og lögfræðisviðs Deloitte. Fundarstjórn Guðrún Hálfdánardóttir, aðstoðarfréttastjóri mbl.is. Skattadagurinn Morgunverðarfundur 2010 þriðjudaginn 12. janúar kl. 8.15–10.15 á Grand Hótel Reykjavík Skráning á www.deloitte.is, netfanginu skraning@deloitte.is og í síma 580 3000. Fundarsalur: Gullteigur, Grand Hótel Reykjavík • léttur morgunverður • verð kr. 3.500. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 9 25 9 9

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.