SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Síða 16
16 10. janúar 2010
N
ú er þetta orðinn blaðamanna-
fundur!“ hrópar Örn Árnason
er hann heilsar blaðamanni.
Betri hefði tímasetningin
ekki getað verið, því fyrr en varir er blaða-
maður sestur í sviðsmyndina og farinn að
hylla forsetann í gervi Elvis Presleys.
Sviðsmyndin er eins og á Bessastöðum,
nema í kjallaranum í Efstaleiti. Þar hangir
mynd af Ólafi Ragnari sjálfum á vegg og
málverk af Snæfellsjökli.
Svo hefjast tökur, sem eru ítrekað stöðv-
aðar. Í eitt skiptið er kallað: „Afsakið klip-
pimistök!“
„Það var óvart klippt út í port,“ skýtur
Örn Árnason inn í. „Á öryggismyndavél-
arnar!“
„Það er ekki víst að ég geti þetta oftar,“
kvartar Pálmi, sem farið hefur mikinn í
Elvisgallanum.
„Aldurinn færist yfir,“ bætir Sigurður
við brosandi.
Það eru orð að sönnu, því þetta er 21. ár
Spaugstofunnar í Sjónvarpinu, en í upphafi
áttu þættirnir aðeins að vera fjórir. Og það
fer ekkert á milli mála að þetta er þraut-
þjálfað lið. „Við erum farnir að leyfa okkur
meira,“ segir Karl Ágúst Úlfsson. „Við
ráðum orðið við flóknari atriði, hvað
varðar tölvuvinnslu, klippingu og hljóð.“
Og blaðamaður gýtur augunum á svið
Þjóðleikhússins til hliðar við Karl Ágúst,
þar sem sett hefur verið upp tilkomumikil
sviðsmynd, ekki úr Óliver, heldur Ólafi.
„Stopp!“ er kallað.
„Nú líður að langri pásu fyrir Pálma,“
segir Sigurður umhyggjusamur.
„Hann er farinn að líkjast Elvis!“ segir
annar samviskulaust.
„Ég er að missa Elvis úr mér,“ kvartar
Pálmi.
„Færið honum hamborgara!“ kallar
Örn.
Þegar allt er afstaðið og búið að leggja
Bessastaði í rúst eins og vant er, þá kallar
Sigurður til Karls Ágústs: „Einar!“
„Ha?“ segir Karl Ágúst.
„Þetta eru rústir, einar.“
Örn Árnason lifir sig inn í þá mynd sem aðrar þjóðir hafa af Íslendingum um þessar mundir.
Kolbrún farðar Sigurð Sigurjónsson í rútunni, þar sem jafnan eru höfð snögg fataskipti.
Þær verða svo fjörugar af þessu!
Eftir viðburðaríka viku var mikið um kræsingar
á veisluborði Spaugstofumanna þegar fylgst var
með þeim við tökur í vikunni. Forsetanum tókst
að stela senunni með synjun sinni á þriðjudag og
er áberandi á laugardagskvöld.
Texti Pétur Blöndal pebl@mbl.is Ljósmyndir Ragnar Axelsson rax@mbl.is