SunnudagsMogginn - 14.03.2010, Page 15
14. mars 2010 15
bæjarstjórnar um tíma – eftir að veikindi Erlings upp-
götvuðust reyndar, í óteljandi stjórnum, nefndum og ráð-
um og haustið 1987 hafði hún meira að segja tekið slag við
Ólaf Ragnar Grímsson í formannskjöri í flokknum, eftir
að Svavar Gestsson hætti. Ólafur Ragnar varð formaður:
Auðvitað voru það henni vonbrigði að bíða lægri hlut en
stóra höggið kom nokkrum mánuðum síðar.
Sigríður segist aldrei gleyma þeirri stundu þegar eig-
inmaðurinn sagði henni tíðindin í bílnum á leið heim frá
flugvellinum, þegar Erlingur kom úr læknisrannsókn í
Reykjavík. „Það hafði lengi verið augljóst að eitthvað var
að, en parkinsonsveiki – var það ekki sjúkdómur sem
bara gamalt fólk fékk? Hvað þýddi þetta eiginlega?
Hvernig yrði þróunin? Var þetta banvænt? Ég man enn
eftir högginu og hvað mér brá,“ segir Sigríður nú.
„Ég var búinn að finna fyrir þessu í tvö eða þrjú ár áður
en ég fékk greiningu; fann að ekki fúnkeraði allt eins og
það átti að gera en fannst ég talinn móðursjúkur,“ segir
Erlingur.
Hann fann fyrir óþægindum í skrokknum, þróttleysi og
skynjaði að áræðið var ekki hið sama og áður. „Við keyrð-
um oft austur í Mývatnssveit um helgar en ég fór að hlífa
mér við að leggja í slíka för ef óvissa var með færð eða
veður.“
Erlingur ekur þrátt fyrir allt enn um eins og herforingi
og segir það ganga slysalaust. Að öðru leyti en því að þau
Sigríður lentu út af í Aðaldalshrauni í haust, en voru
reyndar í fullum rétti. Bíll sem kom á móti fór yfir á öfug-
an vegarhelming, lenti á jeppa Erlings með þeim afleið-
ingum að eitt hjólið fór undan og jeppinn staðnæmdist
ekki fyrr en langt utan vegar. Sigríður segist hafa fengið
töluverðan hnykk á bakið, en Erlingur að hann sé hvorki
verri né betri en áður! „Lappi var haltur í tvo daga,“ segir
Sigríður brosandi og hundurinn sperrir eyrun þegar hann
er nefndur.
Erlingur segist ekki gera sér grein fyrir þróuninni dag
frá degi á sínum tíma en ein fyrstu merkin hafi líklega
verið þau að fólk nefndi hve horaður hann væri orðinn.
„Þegar ég leit í spegil sá ég að útlitið á mér var orðið hel-
víti tuskulegt,“ segir hann nú. Sigríður man, þegar hún
lítur til baka, að eiginmaður hennar var hættur að sveifla
annarri hendinni þegar hann arkaði um. „Þetta eru
dæmigerð einkenni en ég hafði bara ekki hugmynd um
það.“
Henni fannst Erlingur reyndar óeðlilega oft í vondu
skapi og sýna lítil svipbrigði. „Þá fór ég að spyrja sjálfa
mig hvað ég hefði nú gert! Og spurði hvort hann gæti ekki
verið glaðlegri. Hvers vegna hann væri svona daufur?“
Erlingur kannaðist hins vegar ekki við að neitt sérstakt
væri að …
Skildu í tvö ár
Hann segir það hafa verið ákveðinn létti þegar honum var
tilkynnt hvers kyns var, eins einkennilega og það kann að
hljóma. Óvissan var svo slæm. En þau undrast hve litla
vitneskju var að fá. „Fyrst þegar ég fór með Erlingi til
læknis eftir greininguna vissi ég ekkert um hvað ætti að
spyrja og við fengum mjög litlar upplýsingar. Læknirinn
sagði okkur að vera ekki að hugsa mikið um þetta, sem er
að vissu leyti ágætt vegna þess að það má ekki láta sjúk-
dóminn taka yfir lífið; það þýðir ekki að sökkva, en samt
sem áður vakna margar spurningar þegar fólk í blóma
lífsins lendir í svona áfalli. Því fylgir vanlíðan og kvíði og
það eiga læknar að vita.“
Lífið hefur sannarlega ekki verið dans á rósum. Erling-
ur og Sigríður skildu meira að segja fyrir 10 árum en tóku
saman á ný tveimur árum síðar.
„Þetta var hræðilegur tími en erfitt að segja hvað var
sjúkdómnum að kenna og hvað einhverju öðru. Það þýðir
heldur ekki að vera að velta sér stanslaust upp úr því
heldur hugsa sem svo að maður lærir og þroskast á öllu.
Sér heiminn í svolítið nýju ljósi,“ segir Sigríður.
Erlingur botnar: „Maður metur lífið öðruvísi eftir svona
áfall. Finnst það meira virði en ella. Lífið er of dýrt til að
lifa því ekki.“
Síðustu setninguna lét hann falla fyrir allmörgum ár-
um, og segir hana líklega þá gáfulegustu sem honum hafi
dottið í hug um ævina! Á svipuðum tíma orti hann lítið,
magnað ljóð. Hann kallar það Líf?
Landið: Tötrar.
Ljósið: Blekkingin.
Leiðindi marka
leiki barnanna.
Líkaminn: Fjötrar.
Lygi: Þekkingin.
Lífið: Harka.
Langt til stjarnanna.
Morgunbaðið/Skapti Hallgrímsson
„Þó að ég sé alvön að tala um hvað sem er og hvernig sem er
var það meira átak en ég hélt að standa upp og ræða þetta
mál.“ Sigríður og Erlingur heima í stofu í Suðurbyggðinni.