SunnudagsMogginn - 14.03.2010, Síða 25

SunnudagsMogginn - 14.03.2010, Síða 25
14. mars 2010 25 sem ég hafði tekið til að geta gert plötuna. Ég varð næst- um því gjaldþrota. Ég rétt slapp af því ég fór að vinna eins og jarðýta.“ Það hlýtur að hafa verið hræðilegt! „Það var ekki jafn hræðilegt og að vera einangraður og ófær um að mynda nokkur tengsl við annað fólk. Öll mín tengsl voru á sviði sem listamaður. Sem manneskja var ég hræddur við karlmenn og óttaðist að verða hafn- að. Hugsanir mínar voru á stöðugri ringulreið. Ef það komu einhver augnablik þar sem mér leið vel þá var ég ekki lengi að rifja upp eitthvað ömurlegt sem hafði gerst í fortíðinni eða fór að hafa áhyggjur af framtíðinni. Ég gat ekki lifað í núinu.“ Hamingjan er ákvörðun Eru þessir erfiðleikar sem þú hefur verið að lýsa að baki? „Ég vona það. Ég skapa mér ekki erfiðleika í dag. Ég vinn úr þeim ef þeir koma upp. Í dag er ég mjög sáttur og það er aðalatriðið. Ég sit ekki heima hjá mér og heimta að fá kærasta í verðlaun fyrir að hafa verið svona duglegur strákur. Ef almættið vill að ég eignist kærasta þá gerist það. Ef fyrir mér liggur að pipra þá er það allt í lagi. Ég á eftir að hafa það mjög gott á Grund. Eitt af því mikilvægasta sem hefur gerst á þessum tíu árum er að ég hef lært að láta mér líða vel einum. Það var magnað að læra það. Ég vissi ekki áður að það væri nauðsynlegt að maður þyrfti að geta ver- ið einn og ánægður. Fyrir tíu árum ætlaðist ég til þess að aðrar manneskjur eða utanaðkomandi að- stæður myndu gera mig hamingjusaman: Fullkominn kærasti, fullkominn íbúð, fullkominn ferill, fullkominn bíll. Peningar áttu að gera mig hamingjusaman. Kynlíf átti að gera mig hamingjusaman. Rétt eld- húsinnrétting átti að gera mig hamingju- saman. Svo fékk ég þetta allt – nema kær- astann – og hvað gerðist þá? Þá vildi ég losna við þessi fjögur kíló sem mynda bumbuna framaná mér og þá yrði ég hamingjusamur. Passaðu þig, listinn lengist bara. Hamingjan er ákvörðun. Þú ákveður að vera hamingjusamur, nákvæmlega eins og þú ert. Þótt ég myndi eignast kærasta og barn með kærastanum þá myndi ég ekki ætlast til að barn- ið gerði mig hamingjusaman. Ég myndi aldrei leggja þær kröfur á barnið því það gæti ekki staðið undir þeim. Hamingjan er ákvörðun. Eymd er valkostur. Manneskjan á alltaf val. Ég er búinn að velja.“ Ég vissi ekki áður að það væri nauðsynlegt að maður þyrfti að geta verið einn og ánægður. ’ Ég fór að upplifa karlmennina í klámbransanum allt í senn sem hetjur og kærastana mína. Ég leit upp til þeirra. En ég notaði hommaklám, ekki bara sem kærasta heldur einnig sem plástur á sárið. Klámið var líka nokkuð sem ég gat treyst, það var alltaf til staðar þegar ég vildi og hafnaði mér ekki. Það besta var að ég gat stjórnað því með fjarstýringunni. Morgunblaðið/Golli

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.