SunnudagsMogginn - 14.03.2010, Qupperneq 42
42 14. mars 2010
S
tærsta stund kvikmyndaársins
er í hugum flestra kvikmynda-
áhugamanna, afhendingarhátíð
verðlauna Bandarísku kvik-
myndaakademíunnar (AMPAS), en hún
hefur verið að fjarlægjast sinn breiða
áhorfendahóp síðustu áratugina. Fram-
leiðendur hátíðarinnar, sem er send út
til allra heimshorna, fá ómælt fé, mann-
skap, skemmtiatriði, leikmynda- og
búningahönnuði, hvað sem nöfnum tjáir
að nefna til liðs við sig, en allt kemur
fyrir ekki. Heimsins bestu uppistandarar
með bestu brandarasmiði, sem völ er á,
tala fyrur daufum eyrum: áhorfendum
hefur farið sífækkandi.
AMPAS hefur gripið til flestra ráða til
að snúa undanhaldinu í sókn og nú til
róttækra ráða og þá loks fór Eyjólfur að
sýna batamerki. Allt sem sneri að útlit-
inu var tilkomumikið og ekkert til spar-
að en það má segja að verðlaunahafarnir
hafi engu að síður verið í látlausari og
listrænni kantinum. Þessi blanda virk-
aði, handritinu var breytt fram á síðustu
stund og tilraunin tókst: Gerði þver-
sögnin galdurinn?
Aðalbreytingarnar, fjölgun tilnefninga
í flokki Bestu mynda ársins um helming
(úr 5 í 10), breytti heildarsvipnum í
gleðskap sem minnti á sumarsmell.
Myndavélunum var mikið beitt að Cloo-
ney, það var greinilega engin tilviljun
frekar en sú margþætta áhersla sem lögð
var á Avatar á meðan minnstu „Bestu
myndir ársins“, á borð við An Educa-
tion, virtust vera að flækjast fyrir há-
körlunum.
Opnunaratriðið var í tilkomumiklum
Las Vegas-stíl. Prýtt öllum sætustu
smástirnum kvikmyndaborgarinnar, á
borð við Kristen Stewart og Taylor
Lautner, hvað er heppilegra til að
glenna upp augu áhorfenda?
Árangurinn lét ekki á sér standa, 41
milljón áhorfendur horfðu á afhend-
inguna, sem er 14 % aukning frá síðasta
ári og mesti fjöldi síðan 2005, þegar 42
milljónir fylgdust með sigurgöngu
Crash.
Sigurvegararnir í ár voru yfirleitt í
ósamræmi við íburðinn og hástemmdar
væntingarnar, útkoman var verðlaun og
sýning frekar en verðlaunasýning.
Margir hafa saknað dramans sem ein-
kennt hefur mörg bestu Óskarskvöldin,
líkt og þegar Titanic og The Lord of the
Rings: Return of the King, hreinsuðu af
borðunum, eða þegar The Aviator
byggði upp spennu árið 2005 með því
að vinna hver minni háttar verðlaunin á
eftir öðrum, til þess eins að springa á
endasprettinum þegar Crash hirti rús-
ínurnar. Á þessum kvöldum voru það
verðlaunin sjálf sem hristu upp í mann-
skapnum. Á hinn bóginn virkuðu verð-
launin ekki beinlínis sem skemmtiefni
þegar myndir eins og Up In the Air
stóðu uppi tómhentar þrátt fyrir sex
veigamiklar tilnefningar og höfðinglega
meðhöndlun.
Ósamræmið var í sviðsljósinu. The
Hurt Locker, aðalsigurvegari kvöldsins,
með sex styttur, þar af verðlaun fyrir
bestu mynd og leikstjórn, var einnig ein
verst sótta „Besta mynd“ sögunnar. Á
hana seldust aðeins 14.7 milljónir að-
göngumiða í Norður-Ameríku og tæpar
7 milljónir til viðbótar um heim allan.
Yfir frumsýningarhelgina stóð handrits-
höfundurinn (nú Óskarsverðlaunahafi),
Mark Boal, á götuhorninu við annað
bíóið af þeim tveim sem sýndu verkið
hans í NewYork. Í þeim tilgangi einum
að áhorfendur yrðu það margir að bíóin
héldu áfram sýningum The Hurt Locker
viku til viðbótar!
Á meðan var lokað á Fox-myndina
Avatar, sem er búin að raka inn hátt í 3
milljarða dala, þegar kom að að-
alverðlaunaflokkunum. Hún hlaut að-
eins þrenn minniháttar verðaun og
Inglorious Basterds, sem hlaut 8 tilnefn-
ingar, bar aðeins ein úr býtum.
Sumir gamalreyndir akadem-
íumeðlimir telja að með því að dreifa
verðlaununum sem mest fari Ósk-
arsafhendingin að draga dám af Golden
Globe-hátíðinni sem er í höndum er-
lendra blaðamanna í Hollywood og er
fræg fyrir að spreða Gullhnettinum vítt
og breitt til að draga sem mest að af
fræga fólkinu – sem tryggir áhorfið.
Framleiðendur Up In the Air, hinnar
lofuðu og prísuðu gæðamyndar, hrista
enn höfuðið yfir úrslitunum sunnudag-
inn var. Yfir hverju skyldu framleið-
endur hrista sinn haus að ári?
Oprah Winfrey og Gabourey Sidibe kampakátar á Óskarsverðlaunahátíðinni á dögunum.
Reuters
Tímarnir
breytast
og Óskar-
inn með
Áhorf afhendingar-
hátíðar Óskarsverð-
launanna hefur
farið hnignandi
að undanförnu,
jákvæðar breytingar
mátti merkja í ár.
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Kvikmyndaheimurinn bjóst ekki við jafn höfðinglegum
móttökum endurgerðar Lísu í Undralandi – Alice In
Wonderland og raun bar vitni um liðna helgi. Áhorfendur
flykktust á þrívíddar-ævintýrið í öllum heimshornum og
létu ekki á sig fá miðlungsdóma gagnrýnenda. Þeir Tim
Burton, Johnny Depp – og þrívíddin (sem Avatar er búin
að pikkfesta í sessi) stungu keppinautana af, en Lísa tók
inn rúmlega 100 milljónum dala meira en næsta mynd yf-
ir fyrstu sýningarhelgina.
Lísa bætti ófá met með því að hesthúsa yfir 200 millj-
ónir dala á heimsvísu á þessum þrem dögum og eru menn
þegar lagstir yfir tölurnar til að reyna að lesa úr þeim hvar
hún endar dollaravís. Aðeins mikið fall í aðsókn (71%), frá
sunnudegi til mánudags, bendir til þess að ofuraðsóknin
hægi mun fyrr á sér en t.d. hjá Avatar (sem hafði þvílíkt
úthald að hún féll ekki niður fyrir milljón dala dagstekjur
fyrr en eftir 80 sýningardaga). Lísu er samt sem áður spáð
því að komast jafnvel í þriðja sætið yfir mest sóttu myndir
allra tíma, á eftir kassastykkjum Camerons, Avatar og Tit-
anic. Það væri ekki slælegur árangur.
Nú ber að hafa í huga að Avatar skapar nýtt viðmið hvað
aðsóknartölur snertir og vonir um að slá því við verða
áberandi næstu misserin. Hvað Lísu og aðra keppinauta
varðar, skiptir samkeppnin höfuðmáli og Lísa virðist eiga
náðuga daga fram undan, eða til 2. apríl, þegar næsti
Avatar-áskorandinn, The Clash of the Titans, verður
frumsýnd.
saebjorn@heimsnet.is
Kvikmyndafréttir
Undrandi yfir Undralandi
Lísa í Undralandi fékk höfðinglegar móttökur um liðna helgi.
Sunnudagur 14.03 (RUV) kl. 21:35
Sem oftar býður RUV upp á úrvalsmynd frá
Evrópu á sunnudag. Philibert (Stocker), er
ungur hefðarmaður sem býr tímabundið í
sama húsi og ræstingakonan Camille. Hjá
honum leigir upprennandi matreiðslumeist-
ari, einfari og kvennabósi sem heitir Franck
(Canet).
Þegar Camille veikist krefst Philibert þess
að hún flytjist inn til þeirra svo að hann geti
sinnt henni í veikindunum. Og þótt Camille
og Franck eigi ekki alltaf skap saman tekst
þremenningunum að þrauka í sambúðinni
og læra hver af öðrum. Leikstjóri: Claude
Berri. Aðalleikendur: Audrey Tatou, Laurent
Stocker, Guillaume Canet.
Ensemble,
c’est tout
Laugardagur 13.03. kl. 23.05. (RUV)
Cronenberg heldur áfram á svipuðum nótum
í Eastern Promises og í þeirri þrælmögnuðu
A History of Violance. Hún var besta mynd
þessa jafnan athyglisverða leikstjóra um
langt skeið, nú bætir hann um betur með
grimmilegum, ofbeldisfullum og jafnvel enn
miskunnarlausari glæpatrylli. Cronenberg
hefur flutt sig yfir hafið ásamt eftirlætisleik-
aranum sínum, Mortensen. Baksvið Eastern
Promises er grá og köld veröld rússnesku
mafíunnar í Lundúnaborg. Lítt þekkt utan
innvígðra og af afspurn, en uppgangur henn-
ar hefur verið með ólíkindum og blossað upp
líkt og djöflaveira um hinn vestræna heim
eftir að Sovétið hrundi. Ath. Hér eru atriði
sem ofbjóða viðkvæmum sálum. Aðalleik-
endur: Viggo Mortensen, Vincent Cassel,
Armin Mueller-Stahl, Naomi Watts og Sinéad
Cusack. bbbb
Myndir vikunnnar í sjónvarpi
Eastern Promises
Kvikmyndir