SunnudagsMogginn - 14.03.2010, Page 45
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
14. mars 2010 45
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Sun 11/4 kl. 16:00
Sun 18/4 kl. 16:00
Fös 23/4 kl. 20:00
Fös 30/4 kl. 20:00
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
Gunni Þórðar - Lífið og lögin (Söguloftið)
Lau 13/3 kl. 14:00 Ö
Lau 13/3 kl. 17:00 Ö
Fim 18/3 kl. 14:00 U
Fös 19/3 kl. 20:00
Lau 27/3 kl. 17:00 Ö
Fim 1/4 skírdagur kl. 20:00
Fös 9/4 kl. 20:00
Lau 17/4 kl. 17:00
Lau 24/4 kl. 17:00
Jón Gnarr. Lifandi í Landnámssetri (Söguloftið)
Lau 20/3 kl. 20:00 Ö
Fös 26/3 kl. 20:00
Lau 3/4 kl. 20:00
páskahelgin
Lau 10/4 kl. 20:00
Fös 16/4 kl. 20:00
Lau 24/4 kl. 20:00
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Hádegistónleikar Óp-hópsins með Jóhanni Smára
Sævarssyni
Þri 23/3 kl. 12:15
Miðaverð aðeins 1.000 kr. !
Hellisbúinn
Lau 27/3 kl. 20:00
Vinsælasti einleikur allra tíma!
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Ufsagrýlur (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Lau 13/3 kl. 20:00 Fim 18/3 kl. 20:00
sýðustu sýningar
Á
daginn er Heiðar Ingi Svansson mark-
aðsstjóri Forlagsins „eða bara verka-
maður í víngarði drottins“. En á kvöld-
in er hann bassaleikari í hljómsveitinni
Trúboðunum.
– Af hverju þetta nafn?
„Fyrstu tónleikarnir voru haldnir í Laugarnes-
kirkju á fertugsafmæli mínu, þannig að nafngiftin
átti vel við,“ segir Heiðar Ingi. „Í öðru lagi boðum
við sannleikann í víðasta skilningi þess orðs. Og í
þriðja lagi boðum við trúna sjálfa, að hafa trú á
því, komnir á þennan aldur, að menn eigi að vera
að stofna hljómsveit og spila rokk og ról.“
– Þið spilið rokk og ról?
„Þetta er melódískt rokk, þar sem reynt er að
forðast að láta poppskrímslið éta sig með húð og
hári. En svo er þetta kannski, þegar öllu er á botn-
inn hvolft, bara helvítis popp. En það er farið af
stað með að þetta sé rokk og ról.“
– Eru lögin frumsamin?
„Já, já, já, allt frumsamið. Nóg af sköpunargáfu.
Það alveg vella frá okkur lögin. Og merkilegt við
það, að framan af mínum tónlistarferli samdi ég
kannski eitt tvö lög, en svo gerðist ekkert, kom
aldrei neitt. En svo, eftir að ég varð fertugur, þá
gubbast út úr mér lögin. Kannski það sé trúboðið?
Í Trúboðunum voru menn kallaðir! Enda var eng-
inn ráðinn í hljómsveitina – menn fengu bara
köllun. Þeir áttuðu sig á því misfljótt, en það
kom!“
– Um hvað eru lögin?
„Við höfum gert tilraunir í textamálunum. Að
sjálfsögðu er trúboð í öllum þessum textum, en
þetta er ekki trúboð um daginn og veginn. Hall-
grímur Helgason hefur samið fyrir okkur texta,
annar fjallar um ástandið og hitt er skörp ádeila á
Davíð Oddsson og heitir Krónukallinn.
Svo höfum við prófað Fjölni tattú. Ég fékk hann
til að gera texta og hann er nánast óskiljanlegur,
en við þykjumst vita að djúp meining búi undir.
Hann skilur textann reyndar ekki sjálfur, en hann
er samt mjög fínn. Svo er einn eftir Gísla Ein-
arsson, Vantrúboð, sem fjallar um trúboð þeirra
sem enga trú hafa að eigin sögn.
Ég hef líka fiktað við textagerð sjálfur og Karl
Örvarsson söngvari. Honum tókst að gera mjög
fínan texta um skelfilegt málefni um daginn, um
Fritzl-viðbjóðinn. Þar kom hann sjálfum sér á
óvart og okkur líka. Textinn passar vel við lagið,
er dúndurrokkari, og auðvitað er ekki hægt að
fjalla um þetta mál öðruvísi en að fyllast viðbjóði.
En trúboð er ekki heilagt. Það fjallar um sannleik-
ann, hvort sem hann er ljótur eða fallegur. Og það
er ekki bara á miðjunni. Það er á öllum köntum.“
pebl@mbl.is
Morgunblaðið/hag
Trúboðar rokksins og poppskrímslið
Hin hliðin
Föstudagur
Bryndís Sveinsdóttir: pokak-
lemmurnar úr IKEA hafa ger-
breytt lífi mínu
Marsibil Sæmundardóttir stefnir
í gauragang með stelpunum í
kvöld …
Ásdís Ásgeirsdóttir var að
kveðja þurrkara-viðgerðarmann
sem spurði, er ég ekki sá al-
sterkasti sem þú hefur séð?
uhh … jú, svaraði ég … híhí …
hvað getur maður sagt?
Kári Sturluson býr við þver-
pólitíska harmstöðu.
Fimmtudagur
Svanhildur Hólm Valsdóttir vildi
að hún væri á Dalvík.
Þorvaldur Örn Kristmundsson
sestur við skriftir … með Hem-
ingway-andblæ í farteskinu :)
Hrafnhildur Mooney: Amma Sísí
áttræð í dag!! Eins og annað átt-
rætt fólk fagnar amma með
skíða- og djammferð til Akureyr-
ar. Og já … afi fékk að koma
með:)
Ingibjörg Rósa – is it just me or
is Joe Biden hot?
Miðvikudagur
Hermann Guðmundsson: Kóng-
urinn kom á Old Trafford en allt-
of seint – stórsigur United stað-
reynd.
Fésbók vikunnar flett
Ekki er með öllu ljóst hvað telst
vera fyrsti hjólastóllinn eða
hver fann hann upp. Fyrsti
hjólastóllinn sem vitað
er um með vissu var
búinn til árið 1595 fyr-
ir Filippus II Spán-
arkonung. Sextíu árum
síðar bjó hinn lamaði
úrsmiður Stephen
Farfler til sjálfknúinn
stól á undirvagni
með þremur hjól-
um.
Það var svo
ekki fyrr en árið
1783 sem Bretinn
John Dawson fann upp hjólastól
sem kenndur var við heimabæ
hans Bath. Stóllinn var nýstár-
legur að því leyti að hann hafði
tvö stór hjól og eitt lítið og varð
mest seldi hjólastóllinn fram á
fyrri hluta nítjándu aldar.
Bath-hjólastóllinn var hins veg-
ar ekki sérlega þægilegur svo
hann fór í gegn um margskonar
endurbætur á síðari hluta ald-
arinnar. Árið 1869 var fyrst gefið
út einkaleyfi fyrir hjólastól þar
sem gert var ráð fyrir tveimur
stórum hjólum að aftan þannig
að notandinn gæti ýtt sér sjálfur
áfram handvirkt og tveimur
litlum hjólum að framan. Á svip-
uðum tíma bættu uppfinning-
armenn við holum gúmmídekkj-
um svipuð þeim sem notuð voru
undir reiðhjól. Árið 1881 bætt-
ust svo við sérstakar grindur ut-
an á hjólin sem auðvelduðu not-
andanum að ýta stólnum áfram
og árið 1900 var farið að nota
gjarðir með teinum undir hjóla-
stóla.
Það var svo strax árið 1916
sem fyrsti vélknúni hjólastóllinn
var framleiddur í London og árið
1932 varð nokkur bylting með
tilkomu fyrsta samanbrjótanlega
hjólastólnum sem verkfræðing-
urinn Harry Jennings átti veg og
vanda af. Var þar komin fyrsta
gerð nútímahjólastóla sem not-
aðir eru um allan heim í dag.
Saga hlutanna Hjólastóllinn
Smíðaður fyrir
Spánarkonung
„Í bandinu eru Maggi Rún trommuleikari, gamall rokk-
hundur að norðan, sem spilaði meðal annars í einu af
mínum uppáhaldsböndum í gegnum tíðina, Hún and-
ar, dúndurrokkhljómsveit að norðan.
Snorri Barón Jónsson, gítarleikari sem er ekki hægt
að lýsa með orðum, það verður að hafa mynd af hon-
um eða horfa á hann til að geta lýst honum; það er
gæinn sem á Vatikanið, einhver róttækasti framsókn-
armaður sem ég þekki.
Svo kemur Karl Örvarsson út úr poppskápnum. Það
vita það fáir að í Karli blundar fól, rokkfól, sem loksins
er að komast upp á yfirborðið. Ég er búinn að vera að
reyna að særa rokkskrímslið upp lengi, en poppófétið
hefur alltaf haft betur þangað til núna.“
Heiðar Ingi spilar á bassann í forgrunni
og lýsir þannig félögum sínum:
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Upplýsingar um sýningar á
Borgarleikhus.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Mbl., GB
Mbl., IÞ
Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200
GERPLA