SunnudagsMogginn - 14.03.2010, Page 47
14. mars 2010 47
LÁRÉTT
1. Hvíld líkama í erlendri borg. (8)
4. Fjöll sem Iðunn myndar með efnahvarfi. (9)
7. Við birtu Gunnars og gulls skýr birtist (7)
9. Blóm sem maður setur ekki í vasa heldur í annað
ílát? (9)
11. Belti og guðir birtast ekki þeim sem eru getulausir
á ákveðnu sviði. (6)
12. Skal vitlaus finna niðurstöðu. (7)
13. Hermi eftir stað þar sem saklausu fólki er haldið í
svona verslun. (14)
15. Seyðin sem hálfgerður durgur fær veldur sárs-
auka. (9)
17. Allt í tómu tjóni í byrjun eins og er mjög algengt. (7)
19. Skammir sem fara í pakka. (9)
22. P með ró nær að kúra með umboði. (7)
25. Stök með hópana og nokkurs konar urg þeirra yfir
taumi. (12)
27. Kláraðist ílát við að rannsaka það. (10)
29. Kastar þar sem var par. (6)
30. Ílát eggja er óskiljanlegt tal. (9)
31. Gefa einhvern veginn Andra illt auga fyrir að vera
syngjandi. (9)
32. Leiðari er ys og rugl út af óróa. (11)
LÓÐRÉTT
1. Verðlaun og mál án halds verða að efnafræðiíláti
(9)
2. Stugguðu af litlu að hluta við veiði (9)
3. Kirkjudeild hafmeyja er fiskveiðar. (7)
4. Fá skrúð og tug til að flækjast fyrir fábreyttu. (10)
5. Allar fara eftir görmum. (6)
6. „Nauts maður“, segir óskýrmæltur við tæpar. (6)
8. Gef erfingja litning frá aðalskonu. (9)
10. Söngur passar handlögnum. (9)
12. Tímabil glefsar í morgunverð. (7)
14. Kjökra vegna gullhamra. (4)
16. Saumatól og ómerkilegur matur verður í fyrstu til
þess að við komum nær. (8)
18. Sko óþekktur nær einhvern veginn rota í bát (9)
20. Veiðarfærið veiðið með addressunni. (9)
21. Rakaefni án Ara er mikið. (5)
22. Einhvern veginn spar með eyrun í flíkunum. (9)
23. Ataðir utan um frú eina og skrifaðir upp. (9)
24. Hefur þann fyrsta með viti í kompás. (8)
26. Ó, þar finn ónauðsynjar. (6)
28. Sígarettur úr maðkameltu? (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausninni í umslagi
merktu: Krossgáta Morgunblaðsins,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn krossgátu
14. mars rennur út fimmtudaginn
18. mars. Nafn vinningshafans birt-
ist í blaðinu 21. mars. Heppinn þátttakandi hlýtur bók
í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 7. mars sl. er
Heba Fjeldsted. Hún hlýtur í verðlaun bókina Svo
fögur bein eftir Alice Sebold. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Taflfélag Bolungarvíkur er Ís-
landsmeistari skákfélaga. Fyrir
lokaumferðirnar stefndi allt í
æsispennandi keppni milli TB og
Taflfélags Vestmannaeyja sem
hafði þá hálfs vinnings forskot.
Liðin mættust í fimmtu umferð
og höfðu Eyjamenn sigur 4 ½ : 3
½. Sama dag og viðureignin fór
fram kærðu Bolvíkingar að rúss-
neski stórmeistarinn Alexey
Dreev skyldi tefla á 1. borði fyrir
Eyjamenn. Kæra Bolvíkinga
byggðist í aðalatriðum á því að
Dreev hafði við upphaf keppn-
istímabilsins verið skráður í
Fjölni. Að kröfu TB vék Helgi
Árnason formaður skákdeildar
Fjölnis úr mótsnefnd og tók
Vestfirðingurinn Einar S. Ein-
arsson sæti þar.
Í þessu máli virðist aðalvand-
inn vera sá að ýmsir þeir sem að
því komu t.d. úrskurðaraðilar,
stjórn SÍ, gleymdu að spyrja
mikilvægra spurninga:
A skráir B í lið að B for-
spurðum. Hver er réttur B? Er
hann í liðinu þó hann hafi ekki
gefið neitt samþykki þess efnis?
Alexey Dreev hafði engan
formlegan samning gert við
Fjölni og ekki teflt eina einustu
skák fyrir það félag. Taflfélag
Vestmannaeyja lagði fram rétt-
mæt gögn um skráningu hans.
Við upphaf umferðar gekk Jón
G. Briem fram og tilkynnti fyrir
hönd mótsnefndar að Dreev væri
ólöglegur með TV; á laugardegi
var básúnað um allan keppnissal
að búið væri að draga frá TV all-
an árangur Dreev.
Íslandsmót taflfélaga gerir þótt
ótrúlegt sé ráð fyrir mismunun
sem m.a. kemur fram í því að
stærri taflfélögin hafa verið með
A- og B-lið í efstu deild. Skrán-
ingar liðsmanna eru síðan kapít-
uli út af fyrir sig en þar skiptir
greinilega engu máli hvort við-
komandi skákmaður hafi sam-
þykkt að tefla fyrir félag. Bolvík-
ingar í stjórn SÍ komu því svo í
gegn að send voru út boð til tafl-
félaga um skil á félagaskrám,
marklaus tilskipan þar sem áð-
urnefnd formskilyrði voru
hvergi sett fram. Það á að vera
hægur vandi að útbúa staðlað
eyðublað sem tekur til fé-
lagsskipta og skráningar liðs-
manna.
Úrskurðaraðilar í þessu máli,
mótsnefndin og síðan dómstóll
SÍ, virtu síðan að vettugi and-
mælarétt TV á öllum stigum
málsmeðferðar. Að sögn Karls
Gauta Hjaltasonar sýslumanns
og formanns TV, sem lengi hefur
setið í áfrýjunardómstól ÍSÍ, eru
það óverjandi vinnubrögð. Ekki
var það til að lægja öldurnar
þegar mótsnefndin vísaði um-
svifalaust frá réttmætri kröfu TV
vegna úrslitaviðureignar í 4.
deild byggðri á reglu sem enginn
ágreiningur er um og varðar
borðaröðun í einstökum við-
ureignum.
Eyjamenn stóðu sem sagt uppi
með slitinn bogastreng fyrir allar
úrslitarimmurnar en gátu þrátt
fyrir allt sagt eins og sá frægi
kappi Íslendingasagnanna, að
„hefur hver til síns ágætis nokk-
uð.“ Tóku menn hinum op-
inberu tölum um úrslit keppn-
innar með miklu jafnaðargeði:
1. TB 39 ½ v. 2. TV 36 ½ v. 3.
TR 32 ½ v. 4. Haukar (a) 31 ½ v.
5. Hellir (a) 31 ½ v. 6. Fjölnir 27
v. 7. Hellir (b) 19 v. 8. Haukar (b)
6 ½ v.
Það er mikið að gerast hjá Bol-
víkingum þessa dagana og til
marks um styrk þeirra má nefna
að í b-liði félagsins tefldu þrír
skákmenn sem nýlega voru
valdir í landsliðshóp Íslands.
Í 2. deild vann Skákfélag Ak-
ureyrar glæstan sigur, í 3. deild
sigruðu Mátar örugglega og í 4.
deild vann Víkingaklúbburinn
eftir harða keppni. Aðstæður í
Rimaskóla voru til fyrirmyndar
og hinir reyndu skákstjórar
stóðu sig með mikilli prýði.
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is
Bolvíkingar Íslandsmeistarar taflfélaga
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang