SunnudagsMogginn - 06.03.2011, Page 26
26 6. mars 2011
M
ikil dansveisla var í Borgarleikhúsinu á
föstudagskvöldið þegar Íslenski dans-
flokkurinn frumsýndi þrjú ólík verk.
Veislan ber titilinn Sinnum þrír og segir í
tilkynningu að áhorfendur muni upplifa „kraftmikinn
dans, ærslafullan kabarett og sirkuslistir“.
Verkin þrjú sem sýnd eru heita Grossstadtsafari, sem
er nýtt verk eftir Jo Strömgren, Heilabrot eftir tvíeykið
Brian Gerke og Steinunni Ketilsdóttur og White for
Decay eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur sem kemur nú til
liðs við Íslenska dansflokkinn í fyrsta sinn.
Meðfylgjandi myndir sýna brot úr síðastnefnda verk-
inu ásamt undirbúningi. Sigríður Soffía stundaði nám
við fremsta sirkusskóla Evrópu og er í nýja verkinu
blandað saman samtímadansi og sirkuslist.
Sýningin Sinnum þrír er sýnd á Nýja sviði Borgarleik-
hússins núna í mars.
Sigga Soffía höfundur og dansari, Chris sviðsstjóri ásamt dönsurunum Hannesi Þór og Ásgeiri Helga gera sig klár fyrir fyrsta ljósa- og tæknirennslið.
Cameron hitar upp fyrir rennsli en hann dansar í öllum þremur verkunum sem sýnd eru á Sinnum þrír.
Það er steppatriði í upphafi verksins og eru búningarnir við hæfi.
Bak við tjöldin
Samtímadans
og sirkuslist
Verkið White for Decay er eitt
þriggja sem er til sýninga á
vegum Íslenska dansflokksins
á kvöldstundinni Sinnum þrír.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is