Morgunblaðið - 17.04.2010, Blaðsíða 17
Nefkok
Munnur
Barki
Lungu
Berkja
(Lungnapípa)
Þind
(Vöðvi milli
brjósthols og
kviðarhols)
17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2010
Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður
Starfsemi stofnunarinnar árið 2009
Úlfar Bragason rannsóknarprófessor
Icelandic Online. Íslenskukennsla á Netinu
Jónína Hafsteinsdóttir deildarstjóri
Hvaðan koma örnefnin?
Kristín Bjarnadóttir rannsóknarlektor
Hugvitssamleg nýting BÍN
Ari Páll Kristinsson rannsóknarprófessor
Lifandi mál. Þjónusta við almenning
Rósa Þorsteinsdóttir rannsóknarlektor
Safnið stækkar. Handritagjöf Kvæðamannafélagsins Iðunnar
Sigurgeir Steingrímsson rannsóknardósent og Örn Hrafnkelsson, forstöðumaður
handritadeildar Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns
Handritasöfn Árnastofnananna tveggja og Landsbókasafns sameinuð á Netinu
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra
Ávarp og vígsla www.handrit.org
Slit
Skráning á www.árnastofnun.is fyrir 20. apríl eða í síma 525 4010
UPPSPRETTURNAR
Ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum verður haldinn á Hótel Sögu, Harvard-salnum, kl. 8.15−10.00
síðasta vetrardag, 21. apríl 2010. Á fundinum verður fjallað um starfsemi og framtíðarsýn stofnunarinnar og bent á þau
miklu verðmæti sem búa í þeim margvíslegu gögnum (handritum, örnefnaskrám, þjóðfræðiefni, orðfræðasöfnum) sem
stofnunin varðveitir. Stofnunin hefur markað sér skýra stefnu um opinn aðgang að þeim.
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
GOSASKA getur haft skaðleg áhrif
á lungu og augu fólks. Því er afar
mikilvægt á svæðum þar sem ösku-
fall er sýnilegt að fólk noti grímur
fyrir öndunarfæri og hlífðargler-
augu. Hlífðargrímur er hægt að fá
á heilsugæslustöðum, apótekum og
einnig í byggingavöruverslunum.
Séu grímur ekki tiltækar er vel
hægt að nota vasaklút eða annan
klæðnað til að halda ögnum frá.
Gott gæti verið að bleyta jafnvel í
efninu.
Á vef landlæknisembættisins og
umhverfisstofnunar er að finna
leiðbeiningar fyrir almenning vegna
gjósku og öskufallsins.
Smáu agnirnar í öskunni
eru lang-hættulegastar
Gunnar Guðmundsson lungna-
læknir segir greiningu á öskunni
benda til að um 25 prósent hennar
séu afar smáar agnir sem mælist
undir 10 míkron. „Stærstu kornin
stoppa strax í nefi og munni og
valda ertingu í nefi og hálsi. Það
veldur óþægindum ein og nef-
rennsli og hósta en er ekki líklegt
til að valda skaða. Hins vegar getur
smæsta askan komist niður í berkj-
ur og jafnvel alla leið niður í
lungnablöðrur. Þar gæti hún í
versta tilfelli ekki hreinsað sig út.
Það getur valdið bólgubreytingum
og gert lungun viðkvæmari fyrir
sýkingum. Sem betur fer eru lung-
un búin öflugum hreinsivörnum. En
það er vel hugsanlegt að eitthvað
geti setið eftir í lungunum ef maður
er óvarinn í miklu öskufalli eða er
óvarinn lengi.“ Gunnar segir rann-
sóknir sýna fram á að fólk getur
búið við langtímaafleiðingar af því
að anda að sér gosösku.
„Afleiðingarnar geta verið krón-
ísk berkjubólgu og einnig er hugs-
anlegt að það geti myndast band-
vefur í lungunum. Það leiðir til
mæði, sérstaklega við áreynslu, og
lungun verða viðkvæm fyrir sýk-
ingum. Þetta getur verið óviðsnú-
anlegt. Þess vegna er afar mik-
ilvægt að fólk noti grímur því þær
taka mikið af þessum litlu ögnum
sem eru hættulegastar.“ Gunnar
segir ekki hættu á að askan geti
skorið eða sært alvarlega önd-
unarfæri eða lungu.
„Ef hins vegar öskufall er meira
en 100 g á fermetra er ástandið er
orðið mjög alvarlegt fyrir fólk með
asma eða langvinna lungnateppu.
Fólk með þessa sjúkdóma ætti að
fylgjast vel með einkennum sjúk-
dómsins, jafnvel auka lyfjameðferð-
ina og hafa samband við lækni.“
Hann segir litlar líkur á að flúor
hafi heilsuspillandi áhrif á fólk þar
sem vel sé hugað að vatnsbólum.
Nauðsyn að verja vitin
Innöndun gosösku getur veiklað lungun Fjórðungur öskunnar smáar
agnir sem eru verstar heilsu Einfaldar grímur eða klútar duga til vel varnar
Eldgosið í Eyjafjallajökli
Öndunarfærin Gosaskan getur komist ofan í lungun og jafnvel valdið óbæt-
anlegum skaða. Einföld gríma eða klútur dugar til að verjast öskunni.
SÖKUM viðbún-
aðar vegna
svínaflensu er
þjóðin vel birg
af hlífð-
argrímum. Har-
aldur Briem
sóttvarnalæknir
segir að búið sé
að senda birgðir
á svæðin þar
sem öskufallið
er og einnig á Suðurland og til
Vestmannaeyja. „Það má líka verja
vitin með klút og jafnvel bleyta í
efninu. Það síar vel agnirnar frá.
Annars á fólk að halda sig mest inni
við með lokaða glugga.“ Hann segir
ástæðulaust að grípa til róttækari
aðgerða við að þétta hús.“ Að-
spurður um áhrif öskufalls fjær
gosstöðvum segir hann líklega ekki
ástæðu til mikilla ráðstafana.
Vart hefur orðið aukinnar sölu á
hlífðargrímum. Rúnar Viðar Gunn-
laugsson verslunarstjóri hjá Byko
segir að ódýrari grímur hafi hrein-
lega klárast í búðinni. „Það eru ein-
staklingar að kaupa sér grímur en
við höfum líka selt talsvert í versl-
anir fyrir austan.“
Rykgrímur að selj-
ast upp í bygginga-
vöruverslunum
Hlífðargrímur Selj-
ast sem aldrei fyrr.
VEL er fylgst með vatnsbólum á
svæðinu þar sem aska hefur fallið.
Elsa Ingjaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands segir sýru og leiðni í
vatninu mælda og ekki hafi orðið
vart efnamengunar. „Við höfum
litlar áhyggjur af lokuðum vatns-
bólum en hins vegar er mikið af
einkavatnsbólum sem jafnvel eru
ekki nógu vel lokuð.“ Elsa segir að
ef vart verði við ösku í vatnsbóli
eigi að hafa samband við heilbrigð-
isfulltrúa og ekki neyta vatnsins.
Lítið gagni að sjóða eða sía vatnið
þar sem þetta sé efnamengun sem
ekki sé hægt að sía úr vatni.
Vatnsból ómenguð
þrátt fyrir öskufall
„Að lenda í gosöskumekki er
eins og að vinna í glerull, þetta
er bara andstyggilegt,“ segir
Árni B. Stefánsson augnlæknir.
„Það er kannski hægt að
ímynda sér að augun séu nudd-
uð með fíngerðum sandpappír.
Að auki geta verið sýrur í ösk-
unni sem valda meiri ertingu.
Hins vegar er ekki mikil hætta
á að askan skeri augað illa eða
valdi óbætanlegum skaða.“
Hann hvetur fólk til að halda
sig inni við ef öskufall er mikið.
Ef nauðsyn krefji að það fari út
í öskuregnið verði að verja aug-
un með hlífðargleraugum eða
skíðagleraugum. Árni segir
augnlinsur afar óheppilegar við
þessar aðstæður. „Fólk á draga
fram gleraugun. Askan er svo
fíngerð að hún smýgur undir
linsurnar og getur skaðað aug-
að. Hins vegar eru augun búin
góðum varnarbúnaði. Askan
festist að mestu í slímhimn-
unni og safnast svo í augnkrók-
inn.“
Tilviljun réð því að Árni var
staddur við störf á Kirkjubæj-
arklaustri í gær. Hann segir
engan hafa leitað til sín vegna
óþæginda af völdum öskunnar.
„Glerull í augun“