Morgunblaðið - 17.04.2010, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2010
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
41
77
5
Borgarveisla
í vor
Barcelona 2 fyrir 1
22. apríl (Sumardagurinn fyrsti)
kr. 39.900 – flugsæti
Gisting á mann í tvíbýli frá kr. 6.900
á 4ra stjörnu hóteli pr. nótt.
Prag 2 fyrir 1
22. apríl (Sumardagurinn fyrsti)
kr. 39.900 – flugsæti
Gisting á mann í tvíbýli frá kr. 3.500
á 3ja störnu hóteli pr. nótt.
Búdapest 2 fyrir 1
29. apríl
kr. 39.900 – flugsæti
Gisting á mann í tvíbýli frá kr. 4.900
á 3ja störnu hóteli pr. nótt.
2 fyrir
1
– síðus
tu forv
öð í vo
r!
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„ÉG held að maður gleymi þessu
seint. Þetta var skelfilegur tími,
þegar maður hugsar um þetta núna,
ég veit ekki hvernig maður komst
fram úr þessu,“ segir Borgar Sím-
onarson, fyrrverandi bóndi í Goðdöl-
um í Skagafirði. Hann lenti í erf-
iðleikum með sauðfé sitt vegna
flúormengunar í kjölfar Heklugoss-
ins 1980.
Þegar bændur í fremstu dölum
Skagafjarðar tóku fé á gjöf haustið
1982 urðu þeir varir við gadd í tönn-
um yngri kindanna. Þær uxu vit-
laust og aflöguðust, jafnvel að svo
stór spjót mynduðust að þau særðu
holdið í góminum á móti. Tennur
fullorðnu kindanna slitnuðu líka
misjafnlega. Þetta var rakið til flú-
ormengunar af völdum öskufalls úr
Heklugosi sem hófst 17. ágúst 1980.
Hæg sunnanátt var og barst gjósk-
an yfir miðhluta Norðurlands. Mikið
öskufall varð í innstu dölum Skaga-
fjarðar.
Féð streymdi niður byggðina eins
og göngur væru komnar, grátt af
ösku, og kýrnar komu sótugar inn til
mjalta. Borgar segir að heyskap hafi
ekki verið lokið og aska því einnig
komist í hey.
Slátra þurfti fé af 14 bæjum
Kindur með mikinn gadd vanfóðr-
ast. Talið var að um 200 kindur
hefðu drepist af þessum sökum og í
nóvember 1982 þegar sérfræðingar
höfðu skoðað féð var 440 kindum frá
14 bæjum slátrað. Talið var að laga
mætti tennurnar í rúmlega 500
kindum en þó búist við meiri afföll-
um.
Bændur drógu fram þjalir og önn-
ur áhöld og reyndu að sverfa tennur
kinda sinna. „Þetta var geysilega
mikið en við náðum þessu eitthvað
niður,“ segir Borgar. Hann segir að
það hafi ekki aðeins verið gaddurinn
sem gerði þeim erfitt fyrir, féð hafi
verið eitthvað sjúkt út af efnum úr
öskunni. „Það kom ekki fram fyrr en
seinna. Ekki tók fyrir þetta fyrr en
við vorum búnir að endurnýja allan
stofninn,“ segir Borgar.
Hann er feginn því að ekki skuli
vera sunnanátt þessa dagana, á
meðan Eyjafjallajökull gýs. „En
auðvitað lendir vandinn á öðrum. Ég
öfunda þá ekki,“ segir Borgar.
„Ég veit ekki hvernig maður
komst fram úr þessu“
Borgar Símonarson í Goðdölum í Skagafirði glímdi lengi við gadd og aðrar afleiðingar gadds í sauðfé
eftir Heklugosið 1980 Bændur drógu fram þjalir og önnur áhöld og reyndu að sverfa tennur kinda
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Gaddurinn sorfinn Borgar Símonarson og Smári sonur hans beita þjölum til að sverfa gadd af tönnum kinda sinna í
Goðdölum í janúar 1983. Þeir glímdu lengi við afleiðingar öskufallsins frá Heklugosinu árið 1980.
Eldgosið í Eyjafjallajökli
JÓN Bjarnason sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra boðaði til fund-
ar í ráðuneytinu í gær um möguleg
áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á
landbúnað og sjávarútveg og við-
brögð við því, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Til fundarins voru
boðaðir fulltrúar frá Matvælastofnun,
Hafrannsóknastofnuninni, Veiðimála-
stofnun, MATÍS, Bændasamtökum
Íslands, Búnaðarsambandi Suður-
lands, Samtökum fiskvinnslustöðva
og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Ennfremur voru á fundinum fulltrúar
frá Almannavörnum og Háskóla Ís-
lands.
Tilgangurinn með fundinum var að
meta eins og hægt var á þessum tíma
möguleg áhrif gossins á landbúnað
þ.m.t. heilbrigði dýra, sjávarútveg,
matvæla- og fæðuöryggi þjóðarinnar
og aðra þætti sem falla undir ráðu-
neytið og tryggja að hlutaðeigandi
stofnanir og samtök séu tilbúin að
takast á við þau verkefni sem nauðsyn
getur borið til.
Fyrir liggur að áhrifin verða mest á
landbúnað og ekki síst heilbrigði bú-
fjár á þeim svæðum sem áhrif gossins
í Eyjafjallajökli ná til.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra ákvað að skipa strax starfshóp
undir forystu ráðuneytisins sem hefur
það hlutverk að fara yfir og halda ut-
an um samræmdar aðgerðir stofnana
og samtaka vegna gossins. Er honum
ætlað að marka skammtímaaðgerðir
og einnig aðgerðir til lengri tíma sem
kunna að vera nauðsynlegar.
Vilja samræma
viðbrögðin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á fundinum Ljóst er að áhrif gossins á landbúnað verða mikil.
Jón Bjarnason kallaði saman fund aðila
í matvælaframleiðslu vegna gossins til að
meta áhrifin af hamförunum á greinina
Í HNOTSKURN
»Ráðuneytið hvetur bænd-ur á öskusvæðum til að
taka búfé á hús og aðra til að
undirbúa slíkar ráðstafanir.