Morgunblaðið - 17.04.2010, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.04.2010, Blaðsíða 34
34 Minningar MESSUR Á MORGUN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2010 AÐVENTKIRKJAN: Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Sam- koma í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp á biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 12. Þóra S. Jónsdóttir prédikar. Aðventsöfnuðurin Suðurnesjum | Sam- koma í dag, laugardag, kl. 11 í Reykja- nesbæ hefst með biblíufræðslu. Guðs- þjónusta kl. 12. Hulda Jensdóttir prédikar. Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Samkoma á Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 11. Jóhann Þorvalds- son prédikar. Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði | Sam- koma í Loftsalnum í dag, laugardag, hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11. Helgi Jónsson prédikar. Biblíufræðsla fyr- ir börn, unglinga og fullorðna kl. 11.50. Boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Samfélag Aðventista á Akureyri | Sam- koma í Gamla Lundi í dag, laugardag, hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðsþjónusta kl 12. AKUREYRARKIRKJA | Bókmenntamessa kl. 11. Prestar eru sr. Bolli Pétur Bolla- son og sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Sunna Dóra Möller, guðfræðingur, prédik- ar. Bók dagsins er Saga þernunnar eftir Margaret Atwood. Lesari er Hlín Bolla- dóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, organisti er Sigrún Magna Þór- steinsdóttir. Sunnudagaskóli í Safn- aðarheimilinu kl. 11. Umsjón Jóna Lovísa og Heimir Bjarni. ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Söngur, sögur og leikir. Stundin er ætluð fólki á öllum aldri. Mar- grét Ólöf Magnúsdóttir sér um sam- veruna ásamt sínu fólki. Kirkjukaffi á eft- ir. ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Ásdísar djákna og sr. Sigurðar. Messa kl. 14. Kór Áskirkju syngur, org- anisti er Magnús Ragnarsson. Kaffisopi eftir messu. Sjá askirkja.is. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón hafa Auður S. Arndal og Fjóla Guðnadóttir ásamt yngri leiðtogum. BORGARNESKIRKJA | Messa kl 14. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð kemur í heimsókn og syngur við athöfnina undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, organisti er Steinunn Árnadóttir, prestur Þorbjörn Hlynur Árnason. BREIÐHOLTSKIRKJA | Sameiginleg sunnudagaskólahátíð Breiðholtssafn- aðanna kl. 11. Barnakórar syngja. Leitað að fjársjóðskistunni. Boðið upp á grill- aðar pylsur. Messa kl. 14. Bisk- upsvísitasía. Athugið breyttan messu- tíma. Biskup Íslands herra Karl Sigurbjörnsson prédikar, sr. Bryndís Malla Elídóttir og sr. Gísli Jónasson þjóna fyrir altari. Kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er Julian Isaacs. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur, organisti Ant- onia Hevesi. Kaffi eftir messu. Sum- ardaginn fyrsta, 22. apríl, er hverfishátíð í Bústaðahverfi. Komið er saman við Grímsbæ kl. 12 í grill og hressingu. Skrúðganga í Bústaðakirkju og samvera kl. 13 með þátttöku allra yngri kóra kirkj- unnar undir stjórn Jóhönnu Þórhalls- dóttur. Bára Elíasdóttir leiðir stundina. Síðan haldið áfram í skrúðgöngu niður í Vík þar sem fjölbreytt dagskrá verður í boði. DIGRANESKIRKJA | Messa í Digra- neskirkju kl. 11. Prestur sr. Magnús Björn Björnsson, organisti er Kjartan Sig- urjónsson. Kór Digraneskirkju leiðir safn- aðarsöng, sunnudagaskóli á neðri hæð á sama tíma. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Erla Björk Jónsdóttir prédikar, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir þjónar fyrir altari, Dómkórinn syngur, organisti er Örn Magnússon. Barnastarf á kirkjuloftinu. Æðruleysis- messa kl. 20, sr. Karl V. Matthíasson prédikar en sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson þjónar ásamt honum, Bræðrabandið sér um tónlistina. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11 í Fella- og Hólakirkju. Prestur sr. Guð- mundur Karl Ágústsson. Sönghópurinn Kordía syngur og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur org- anista, meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Barnastarfshátíð allra sunnudagaskóla verður kl. 11 í Breið- holtskirkju. Barnakórar kirknanna í Breið- holti syngja. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudaga- skóli kl. 11. Stund fyrir alla fjölskylduna. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Söngur, föndur og létt snarl. Almenn samkoma kl. 14. Björg R. Pálsdóttir pré- dikar, lofgjörð, barnastarf og fyrirbænir fyrir þá sem vilja. Að samkomu lokinni verður kaffi og samvera. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarguðs- þjónusta kl. 14. Margrét Lilja og Ágústa Ebba sjá um barnastarfið. Tónlistina leiða Anna Sigríður Helgadóttir og Að- alheiður Þorsteinsdóttir ásamt kór Frí- kirkjunnar, prestur Pétur Þorsteinsson. Altarisganga. Fermingarguðsþjónusta fimmtudaginn 22. apríl kl.14, sumardag- inn fyrsta. Margrét Lilja og Ágústa Ebba sjá um barnastarfið. Tónlistina leiða Anna Sigríður Helgadóttir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir ásamt kór Fríkirkjunnar, prestur Pétur Þorsteinsson. Altarisganga. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10, bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu og unglinga úr kirkjustarfinu. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot í líknarsjóð, messuhópur þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur og organisti er Árni Arinbjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jó- hannsson. Molasopi eftir messu. Þriðju- dagur kl. 12, kyrrðarstund. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta klukkan 14. Séra Brynj- ólfur Gíslason prédikar og sr. Sigfús Jón Árnason þjónar fyrir altari ásamt Brynj- ólfi, organisti er Kristín Waage. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Ferm- ingarmessa kl. 11. Sunnudagaskóli verð- ur í tónmenntastofu Ingunnarskóla á sama tíma. Prestar sr. Sigríður Guðmars- dóttir og sr. Karl Valgarður Matthíasson, organisti er Ester Ólafsdóttir og kór Guð- ríðarkirkju syngur. Á sumardaginn fyrsta er dýrablessun kl. 12, sr. Sigríður bless- ar gæludýr sunnan megin við kirkjuna. Útileikir við kirkjuna og skrúðganga frá Þórðarsveig 3 kl. 14. Skólahljómsveit Grafarvogs og Grafarholts leikur í göng- unni, síðan er fjölskyldumessa, prestur sr. Sigríður Guðmarsdóttir, barnakór Guð- ríðarkirkju syngur undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur. Skírt verður í messunni. Sýning á verkum barna í frístundaheim- ilinu Stjörnulandi í Guðríðarkirkju. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fermingar- guðsþjónustur kl. 11 og kl. 14. Sr.Guð- björg Jóhannesdóttir og sr. Þórhallur Heimisson þjóna. Kantor er Guðmundur Sigurðsson. Barbörukórinn syngur. Sunnudagaskóli fer fram í safnaðarheim- ilinu kl. 11. Síðasta morgunmessa vetr- arins verður haldin miðvikudaginn 21. apríl kl. 8.15. HALLGRÍMSKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson fjallar um messuna, tilurð hennar og þróun. Messa og barnastarf kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Messuþjónar aðstoða. Eldri félagar í Karlakór Reykjavíkur syngja undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar, organisti er Björn Steinar Sólbergsson. HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnaguðs- þjónusta kl. 11, Sunna Kristrún og Páll Ágúst sjá um barnaguðsþjónustuna. Mar- íuerlurnar og litli drengjakórinn syngja undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur, organisti er Douglas A. Brotchie, prestur er Tómas Sveinsson. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Fermingar- guðsþjónustur kl. 10.30 og 13.30. Prest- ar kirkjunnar þjóna, félagar úr kór kirkj- unnar syngja og leiða safnaðarsöng, organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudagaskóli kl. 13 í neðri safn- aðarsal. Sjá www.hjallakirkja.is. HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Gosp- elkór Akureyrar verður með tónleika í Hjálpræðishernum kl. 17. Snorri Ósk- arsson flytur hugvekju. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam- koma kl. 14. Umsjón hefur kafteinn Sig- urður Hörður Ingimarsson, flokksstjóri. Skúli Svavarsson prédikar. Bænastund kl. 13.30. HVALSNESSÓKN | Fermingarmessa í Safnaðarheimilinu í Sandgerði kl. 14. Prestur sr. Sigurður Grétar Sigurðsson, organisti er Steinar Guðmundsson. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam- koma og starf fyrir alla aldurshópa kl. 11. Brauðsbrotning. Ræðumaður er Vörð- ur Leví Traustason. Alþjóðakirkjan. Sam- koma á ensku kl. 14. Ath. breyttan sam- komutíma. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnastarf kl. 11 í aldursskiptum hópum. Fræðsla fyrir fullorðna á sama tíma. Rannsóknar- skýrslan - hvernig á kristið fólk að bregð- ast við? Þrjú stutt ávörp og orðið gefið frjálst. Samkoma kl. 20. Lofgjörð og fyr- irbænir. Friðrik Schram prédikar, www.kristskirkjan.is. KAÞÓLSKA kirkjan: Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og laugardag kl. 18. Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11 og 19. Virka daga er messa kl. 18. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema föstudaga). Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8. Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30, á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl. 18. Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugar- daga er messa á ensku kl. 18.30. Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga kl. 18.30. Ísafjörður | Messa kl. 11. Flateyri | Messa laugardag kl. 18. Bolungarvík | Messa kl. 16. Suðureyri | Messa kl. 19. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16. KÓPAVOGSKIRKJA | Bókmenntamessa klukkan 11. Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri, fjallar um Faust og Nína Dögg Filippusdóttir, leikari, les valda kafla úr verkinu. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari, kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskóli á sama tíma í safn- aðarheimilinu Borgum (skáhallt á móti Gerðarsafni) í umsjón Ingu Harðardóttur, Sigríðar Stefánsdóttur og Sólveigar Ara- dóttur. Aðalsafnaðarfundur Kárs- nessóknar í Borgum eftir guðsþjón- ustuna. KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta í Ár- bæjarkirkju klukkan 20. Yfirskrift mess- unnar er: Hvað hefur trúin gert fyrir mig til að auðga líf mitt? Kvennakirkjukon- urnar Ingibjörg Kjartansdóttir og María Teresa Belles prédika. Kór Kvennakirkj- unnar leiðir söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir verður kaffi í safn- aðarheimilinu. LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Landa- koti kl. 14 á stigapalli á 2. hæð. Prestur Gunnar Rúnar Matthíasson, organisti er Ingunn Hildur Hauksdóttir. LANGHOLTSKIRKJA | Fermingarmessa og barnastarf kl. 11. Barnastarfið verður allan tíman í safnaðarheimilinu með Rut og Aroni. Prestar sr. Arna Ýrr Sigurðar- dóttir og sr. Jón Helgi Þórarinsson, Kór Langholtskirkju syngur, organisti er Jón Stefánsson. LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Hildur Eir Bolladóttir þjónar ásamt kór og organista safnaðar- ins, sunnudagaskólakennurum og hópi messuþjóna. Kaffi að athöfn lokinni. LÁGAFELLSKIRKJA | Fermingarguðsþjón- usta kl. 10.30. Þjónandi eru sr. Skírnir Garðarsson og Arndís G. Bernhardsdóttir Linn guðfræðingur, organisti er Jónas Þórir. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur, sjá www.lagafellskirkja.is. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudaga- skóli kl. 11. Messa kl. 14. Kór Linda- kirkju syngur undir stjórn Óskars Ein- arssonar. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar fyrir altari. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfs- son héraðsprestur prédikar. MOSFELLSKIRKJA | Fermingarguðsþjón- usta kl. 13.30. Sr. Skírnir Garðarsson þjónar, Arndís G. Bernhardsdóttir Linn guðfræðingur aðstoðar, organisti er Jón- as Þórir. Kirkjukórinn syngur, einsöngvari er Hanna Björk Guðjónsdóttir, trompet- leikari er Sveinn Þ. Birgisson. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng, organisti er Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárð- ur Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og leikir í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, María og Ari. Samfélag, súpa, brauð og kaffi á Torginu eftir messu. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17, Hjónaband, að viðhalda ástinni. Ræðumenn Friðrik og Vilborg Schram. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Að þessu sinni munu söfnuðirnir í Breiðholti sameinast í barnaguðsþjón- ustu og vorhátíð í Breiðholtskirkju. Al- menn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar, kór Seljakirkju leiðir safnaðarsönginn, organisti er Tómas Guðni Eggertsson. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson pré- dikar, Þorvaldur Halldórsson stýrir tónlist- inni ásamt kirkjukórnum. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kammerkór kirkjunnar leiðir al- mennan safnaðarsöng undir stjórn Frið- riks Vignis Stefánssonar organista. Sunnudagaskólinn er á sama tíma. Prestur sr. Hans Markús Hafsteinsson, héraðsprestur. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Egill Hallgrímsson, organisti er Jón Bjarnason. SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Ester Ólafsdóttir organisti leiðir al- mennan safnaðarsöng, meðhjálparar eru Ólafía E. Guðmundsdóttir, Eyþór Jó- hannsson og Erla Thomsen. TORFASTAÐAKIRKJA | Fermingarguðs- þjónusta kl. 14. Fermdur verður Teitur Sævarsson, Arnarholti, Biskupstungum, prestur sr. Egill Hallgrímsson, organisti er Jón Bjarnason. Félagar úr Skálholts- kórnum leiða sönginn. ÚTSKÁLAKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11. Prestur sr. Sigurður G. Sigurðsson, organisti er Steinar Guðmundsson. VEGURINN kirkja fyrir þig | Samkoma kl. 14. Barnastarf, lofgjörð, prédikun og fyr- irbæn. Högni Valsson prédikar. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar fyrir altari, kór Vídalínskirkju syngur, organisti er Jóhann Baldvinsson. Barn skírt og barn frá Kaupmannahöfn fermt. Sjá www.gardasokn.is. Orð dagsins Ég er góði hirðirinn. Jóh. 10 Morgunblaðið/Ómar Gamla kirkjan í Stykkishólmi ✝ Laufey Jeremías-dóttir fæddist 3. ágúst 1947 á Þórdísar- stöðum í Eyrarsveit. Hún lést á St. Franc- iskusspítalanum í Stykkishólmi hinn 10. apríl sl. Foreldrar hennar voru Jeremías Kjart- ansson, bóndi á Þórdísarstöðum í Eyr- arsveit, f. 28. júní 1913, d. 3. júlí 2003. Móðir hennar var Cecilía Kristjánsdóttir, f. 10. maí 1919, d. 15. október 2006. Laufey var 6. í röðinni af 11 systkinum. Systkini hennar eru: Kristín, f. 1940; Svandís, f. 1942; Salbjörg Steinunn, f. 1943, d. 7. september 2001. Áslaug- ur Ingiberg, f. 1945; Kjartan, f. 1946; Þórdís, f. 1948; Hulda, f. 1950; Ásta, f. 1952; Sæunn, f. 1954; og yngst er Dagný, f. 1958. Eiginmaður Laufeyjar er Stefán Björgvinsson bifreiðastjóri. Hann fæddist 24. júní 1945 í Stykkishólmi. Foreldrar hans voru Björgvin Þor- steinsson og Alexía Páls- dóttir. Börn Laufeyjar og Stefáns eru: Stefanía, f. 7. júlí 1966, maður hennar er Benedikt Kristjánsson, þau eru búsett í Reykjavík; Sig- urður, f. 8. maí 1970, kona hans er Guðrún Rut Danelíusdóttir, þau búa í Mos- fellsbæ; Bryndís, f. 29. ágúst 1977, maður hennar er Hannes Páll Þórð- arson, þau eru búsett á Suðaustur- Englandi. Barnabörnin eru átta. Útför Laufeyjar fer fram í Stykk- ishólmskirkju í dag, 17. apríl 2010, og hefst athöfnin kl. 14. Elsku Laufey mín, skrítið að þú sért farin og ekki nema 62 ára gömul. Mér fannst sem ég væri rétt að kynnast þér og sá fyrir mér að þú yrðir með okkur í ellinni. Þrátt fyrir erfið veikindi þín fannst okkur öllum þú standa þig svo vel og mér þótti afskaplega vænt um að það síðasta sem þú sagðir við Sigga var að þú bæðir að heilsa mér og krökkunum. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér bæði sem elskulegri tengdamóður og ekki síður sem vinkonu minni sem kom í klippingu reglulega þar sem við gátum spjallað um lífið og tilveruna, dottið á trúnó og hvað- eina. Ég vona að ég hafi getað komið því til skila hvað það var dýrmætt fyrir mig að fá að kynnast þér í ró og næði. Ég hugsa með bros á vör til þess þegar ég kom í fyrsta sinn í Árnatúnið fyrir u.þ.b. fimm árum þegar við Siggi vorum að kynnast. Það var svo krúttlegt þegar þú sóttir eldhússkærin, lagðir þau í hendurnar á mér og sagðir: „Ertu til í að særa á mér hárið“ … hvílík skæri. Þarna kom pjattrófan upp í þér og seinna skildi ég hvað hárið var þér mikilvægt. Þú varst svo handlagin og vand- virk og þótti mér mjög vænt um þegar þú gafst systkinabörnum mínum vettlinga og sokka eftir þig, með þessum hætti sýndir þú svo mörgum í kringum þig umhyggju- semi og væntumþykju. Þú varst alltaf með eitthvað á prjónunum í orðsins fyllstu merkingu. Við áttum okkar sameiginlega áhugamál, sem var að gera upp gömul húsgögn. Og vorum við svo- lítið flottar þegar við fórum saman í Góða hirðinn og drösluðumst með einhverja kommóðu í skottið á bíln- um, ég held að Siggi hafi haft smááhyggjur af þróun mála hjá okkur þá, en við skemmtum okkur vel, það var sko alveg á hreinu. Takk fyrir allar samverustund- irnar elsku Laufey mín, ég skal hugsa vel um hann Sigga þinn. Þín tengdadóttir, Guðrún Rut Danelíusdóttir. Laufey Jeremíasdóttir Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efn- isliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.