Fréttablaðið - 17.12.2011, Side 4
17. desember 2011 LAUGARDAGUR4
FRÉTTASKÝRING
Gefur tölfræði um atvinnuleysi villandi
mynd af efnahagsástandinu vegna fjölda
brottfluttra?
Í opinberri umræðu um atvinnu-
leysi á Íslandi frá hruni er því haldið
fram að hafa beri fólksflótta í huga
á tímabilinu ef greina á vandann af
nákvæmni. Um sex þúsund manns
hafa flutt af landi brott umfram þá
sem hafa leitað aftur heim og því
haldið fram að atvinnuleysistölur
væru 3 til 4 prósentustigum hærra
ef ekki hefði komið til þessa. En er
það svo?
Hafa ber í huga í þessu samhengi
að fjölmargt ræður því hvort og
hvenær fólk flyst búferlum. En að
öllu öðru óbreyttu, ef engin breyt-
ing hefði orðið á búferlaflutningum
Íslendinga frá venjubundnu árferði,
má setja upp módel til að meta sam-
band fólksflótta og tölfræði um
atvinnuleysi.
Skráð atvinnuleysi í nóvember
2011 var 7,1%, eða 12.354 atvinnu-
lausir, samkvæmt nýjustu tölum
Vinnumálastofnunar.
Að jafnaði hafa tæplega 500
Íslendingar flutt frá landinu
umfram aðflutta á ári síðustu ára-
tugi, þannig að við horfum fram
hjá þeim fjölda. Á síðustu þremur
árum (2009-2011) hafa að auki 4.500
Íslendingar flust á brott, eða 1.500
að jafnaði á ári, og það er sá fjöldi
sem líta ber til.
Af þessum 4.500 voru um 4.200 á
vinnualdri. Af þessum 4.200 hefðu
um 750 farið í skóla eða verið heima-
vinnandi, ef miðað er við opinberar
tölur um atvinnuþátttöku almennt,
og 3.450 manns væru því á vinnu-
markaði.
Vandamálið er því að áætla hve
margir af þessum 3.450 væru
atvinnulausir.
Í fréttaskýringu um atvinnu-
leysi sem Fréttablaðið birti fyrr á
þessu ári kom fram að meirihluti
þeirra sem þá höfðu flutt var ekki
á atvinnuleysisskrá fyrir flutninga.
Trúlegt er að menn hafi samt í ein-
hverjum mæli flutt vegna þess að
þeir voru að missa vinnu og hefðu
skráð sig atvinnulausa að öðrum
kosti. Þegar menn hætta í vinnu og
flytja til útlanda er trúlega eitthvað
um ráðningar af atvinnuleysisskrá
í staðinn. Við vitum þó að í mörgum
tilvikum taka þeir starfsmenn sem
fyrir eru þau verkefni sem sá brott-
flutti sinnti, fremur en að ráðinn sé
nýr inn.
Síðan verður að gera ráð fyrir að
ef þessir 4.500 manns hefðu búið
áfram á Íslandi, þá hefðu þeir skap-
að einhver störf, bæði beint og svo
óbeint í þjónustu og verslun.
Því er forvitnilegt að reikna út frá
þeim forsendum hvernig dæmið liti
út ef þriðjungur áðurnefnda hóps-
ins væri atvinnulaus, helmingur eða
einn fjórði hópsins.
Dæmi með þriðjungi atvinnu-
lausra gefur að atvinnulausir væru
um 1.150 af 3.450. Atvinnulausir í
lok nóvember væru þá 13.504 í stað
12.354. Atvinnuleysið væri þá um
7,6% í stað 7,1%, eða hærra sem
næmi hálfu prósentustigi. Ef gert
er ráð fyrir að fjórðungur væri
atvinnulaus af þeim hópi sem flutti
brott gæfi það 7,4% atvinnuleysi.
Helmingur hópsins gæfi síðan 7,9%
atvinnuleysi.
Samkvæmt dæminu hefði
atvinnuleysið á Íslandi því verið
frá 0,3 og upp í 0,8 prósentustigum
hærra ef ekki hefði komið til þessi
brottflutningur Íslendinga síðustu
þrjú ár. svavar@frettabladid.is
Atvinnuleysi í
nóvember að
teknu tilliti til
brottfluttra Íslendinga.
7,9%
EFNAHAGSMÁL Matsfyrirtækið
Moody´s hefur staðfest lánshæf-
iseinkunn Íbúðalánasjóðs Baa3
með neikvæðum horfum.
Í rökstuðningi sínum bendir
Moody‘s á að þrátt fyrir ríkis-
ábyrgð á Íbúðalánasjóði tryggi
það ekki að greiðslur verði tíman-
legar fari Íbúðalánasjóður í þrot.
Þrot sjóðsins telur Moody‘s hins
vegar ólíklegt vegna virkrar
aðkomu stjórnvalda að rekstri
hans og stöðu Íbúðalánasjóðs á
íslenskum íbúðalána- og skulda-
bréfamarkaði. - óká
Lánshæfiseinkunn staðfest:
Horfurnar eru
enn neikvæðar
SVÍÞJÓÐ Tíu ára drengur hefur
viðurkennt að hafa valdið dauða
fjögurra ára drengs í Ljungby
í Svíþjóð í október síðastliðn-
um með því að kyrkja hann með
sippubandi.
Yngri drengurinn hvarf af leik-
velli 16. október síðastliðinn eftir
deilur. Sama kvöld fannst hann
látinn í skógarlundi nálægt heim-
ili sínu. Faðir, sem var á leikvell-
inum, kvaðst síðar hafa séð börn
elta litla drenginn í átt að skóg-
inum. Lögreglan vill ekki tjá sig
um ástæður deilnanna sem leiddu
til dauða litla drengsins. - ibs
Harmleikur í Svíþjóð:
10 ára kyrkti
fjögurra ára
TÓMSTUNDIR Góðir möguleikar
eru til að koma upp skautasvelli
á Vallargerðisvelli við Sund-
laug Kópavogs – séu veðurfars-
legar aðstæður hagstæðar. Þetta
kemur fram í
svari embættis-
manna bæjar-
ins við fyrir-
spurn Hjálmars
Hjálmarssonar,
fulltrúa Næst
besta flokksins
og forseta bæj-
arstjórnar.
Meðal annars
þarf að rífa upp
yfirborð vall-
arins áður en svellið er gert, flóð-
lýsa það síðan og hafa með því
eftirlit. Talið er að stofnkostn-
aður sé 180 til 200 þúsund krónur
og rekstrarkostnaður 30 til 35
þúsund krónur á dag. Bæjar-
stjórnin hefur ekki tekið afstöðu
til málsins.
- gar
Auka möguleika skautafólks:
Skoða svell við
Kópavogslaug
HJÁLMAR
HJÁLMARSSON
BRETLAND, AP Julian Assange,
stofnandi Wikileaks, hefur fengið
leyfi til að áfrýja til hæstaréttar
úrskurði um framsal hans til Sví-
þjóðar
Hæstiréttur Bretlands ætlar
að hlýða á málflutning Assange í
byrjun febrúar, en þangað til þarf
Assange að vera áfram í stofufang-
elsi heima hjá vini sínum.
Lögreglan í Svíþjóð vill yfir-
heyra Assange í tengslum við
ásakanir um kynferðisbrot gegn
tveimur konum. Í Bandaríkjun-
um hófust síðan í gær yfirheyrslur
yfir Bradley Manning, bandaríska
hermanninum sem sakaður er um
að hafa lekið til Wikileaks fjöl-
mörgum skjölum frá Bandaríkja-
her, sem áttu að vera leynileg en
voru birt á vef Wikileaks.
Í þeim yfirheyrslum er mein-
ingin að taka afstöðu til þess hvort
mál Mannings verður tekið fyrir
hjá herdómstól. Fyrsta verk lög-
manns Mannings var hins vegar
að fara fram á að Paul Almanza,
herforinginn sem átti að stjórna
yfirheyrslunum, víki frá í þessu
máli. Yfirheyrslunum yfir Mann-
ing var því frestað eftir aðeins
hálftíma. - gb
Assange fær að áfrýja í Bretlandi og Manning kemur fyrir rétt í Bandaríkjunum:
Endasleppt upphaf yfirheyrslna
JULIAN ASSANGE Verður áfram í stofu-
fangelsi í Bretlandi fram á næsta ár.
NORDICPHOTOS/AFP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
5°
4°
3°
6°
5°
4°
4°
22°
5°
17°
10°
23°
1°
11°
15°
4°Á MORGUN
Fremur hægur
vindur.
SUNNUDAGUR
Vaxandi S-átt
SV-til.
-4
-5
-4
-3
-3
-1
-3
0
-4
-3
-8
2
4 5
8
7
12
11
4
3
5
7
-2
-5
-6
-7
-6
-1
1
-6
-9
-5
HELGIN Strekk-
ingur austast í dag
en fremur hægur
vindur um allt
land á morgun.
Stöku él á morgun
en fínt veður í
jólaundirbúning.
Vaxandi S-átt SV-til
á sunnudag með
úrkomu síðdegis
og á sunnudags-
kvöld. Nokkuð bjart
og hægur vindur
A-til.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
Fullt verð: 69.900 kr.
Öflugur 700 W mótor.
Blandari og grænmetiskvörn
fylgja með.
GENGIÐ 16.12.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
217,1696
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
121,87 122,45
189,40 190,32
158,79 159,67
21,359 21,483
20,363 20,483
17,562 17,664
1,5636 1,5728
187,47 188,59
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Er fólksflóttinn ofmetinn?
Því er haldið fram í opinberri umræðu að mikill fólksflótti bjagi þá mynd sem tölur um atvinnuleysi gefa.
Þegar dæmið er reiknað er það ekki raunin. Atvinnuleysistölur væru aðeins 0,3 til 0,8% hærri en þær eru.
Í VINNU Verktakafyrirtæki hafa farið illa í hruninu en næga vinnu er að finna í Noregi fyrir iðnaðarmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM