Fréttablaðið - 17.12.2011, Síða 18

Fréttablaðið - 17.12.2011, Síða 18
18 17. desember 2011 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Utanríkisráðherrann hefur lýst þeirri skoðun sinni að það væri and-stætt íslenskum hags- munum að slíta aðildarviðræðun- um við Evrópusambandið nú. Það allra jákvæðasta sem formælend- ur kröfunnar um viðræðuslit geta sagt er að sú afstaða lýsi einfeldn- ingshætti. Nýleg könnun bendir til að sú umsögn eigi ekki einasta við utanríkisráðherrann heldur nærri tvo þriðju hluta þjóðarinnar. Skoðanakannanir um stuðn- ing við að ljúka aðildarviðræð- unum lýsa að sönnu ekki afstöðu til hugsanlegs samnings. En það er athyglisvert að þrátt fyrir fjár- málavanda evruríkjanna er örugg- ur meirihlutastuðningur við þá afstöðu utanríkisráðherra að snúa ekki við í miðju straumvatninu. Samkomulag leiðtoga Evr- ópusambands- ins á dögunum þar sem Bret- ar einir skárust úr leik dregur upp meginlínur um markviss- ari stöðugleika- stefnu. Hennar er þörf á innri markaðnum bæði fyrir evruríkin og hin sem hafa hvert sína mynt. Bráðavandinn er hins vegar ekki úr sögunni. Ekki er enn útséð hvernig verst settu aðildarríkjun- um tekst að bregðast við honum og margar fjármálastofnanir á meg- inlandinu standa höllum fæti. Af hverju hefur þessi órói ekki breytt afstöðu fólks til aðildar- viðræðnanna? Trúlegasta skýr- ingin er sú að flestum er ljóst að þrátt fyrir erfiðleikana innan evr- usvæðisins er hinn kosturinn ekki betri. Sú staðreynd að stjórnend- ur peningamála gátu ekki komið í veg fyrir hrun krónunnar þrátt fyrir góðan vilja er einfaldlega geymd en ekki gleymd. Óróinn á evrusvæðinu megnar því ekki að stöðva þá sem vilja láta reyna til þrautar á aðra kosti. Krafan um viðræðuslit virð- ist veikjast eftir því sem formæl- endur hennar gerast stóryrtari í persónulýsingum á þeim sem tala í samræmi við það sem kannanir segja að sé vilji meirihluta fólks- ins í landinu. Afstaða „einfeldninga“ ÞORSTEINN PÁLSSON Baráttan fyrir viðræðus-litum hófst á útmánuð-um árið 2010 með þings-ályktunartillögu. Síðan hafa nokkrar tillögur af því tagi verið fluttar. Hvorki flutnings- menn né ríkisstjórnin hafa knúið á um atkvæðagreiðslu. Það lýsir veikleika beggja. Samtökin Heimssýn stóðu að baki þessum tillöguflutningi í byrj- un. Þau höfðu erindi sem erfiði á aukalandsfundi Sjálfstæðisflokks- ins sumarið 2010. Þá var gengið út frá því að VG myndi samþykkja kröfu um viðræðuslit á flokks- ráðsfundi um haustið. Þau áform fóru út um þúfur og í framhaldinu flosnaði vinstri armur VG upp. Næsta tilraun var gerð á flokks- þingi Framsóknarflokksins fyrr á þessu ári. Sú tilraun mistókst einnig. Á haustmánuðum var síðan gerð enn ein tilraun til að knýja á um framgang kröfunnar um viðræðuslit með skipulagðri undirskriftasöfnun á netinu. Hún misheppnaðist. Á landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins í síðasta mánuði voru álykt- anir um viðræðuslit felldar með afgerandi meirihluta. Að þessu leyti var blaðinu snúið við frá árinu áður. Andstaðan við viðræðuslit segir að sjálfsögðu ekki alla söguna um afstöðu manna til aðildar. Á hinn bóginn liggur nú fyrir að æðstu valdastofnanir þeirra þriggja flokka sem ekki hafa aðild á dag- skrá hafa hafnað kröfunni um viðræðuslit. Það segir sína sögu. Þrjú flokksþing og undirskriftasöfnun Þótt orðspor Íslands kunni að versna verði umsókn-in dregin til baka er það ekki neitt aðalatriði. Aðild Íslands er leiðtogum Evr- ópusambandsins ekki það kapps- mál þó að þeir hafi boðið Íslend- inga velkomna. Málið snýst um það sem for- ystumenn ASÍ hafa fært rík rök fyrir að undanförnu, að stöðug- leiki í peningamálum er nauðsyn- legur til þess að verja hagsmuni almennings. Þeir hafa einnig sýnt fram á hversu vonlítið er að ná því takmarki með krónunni. Stefna meirihluta forystumanna atvinnulífsins er einnig skýr um stöðugri mynt og samkeppnis- stöðu atvinnulífsins. Það eru þessir íslensku hagsmunir sem kalla á staðfestu. Fjármálaóróleikinn í Evrópu gefur á hinn bóginn tilefni til að endurskoða tímaáætlun við- ræðnanna. Skynsemisrök mæla með því að taka nokkurn tíma í að leggja mat á nýjar aðstæður og ræða hvar við viljum stað- setja Ísland ef Evrópusamstarf- ið verður lagskiptara en verið hefur. Klofningurinn í ríkis- stjórninni leiðir til sömu niður- stöðu. Hvernig á fjármálaráð- herra sem stendur fast á því að halda í íslensku krónuna að móta samningsmarkmið um aðild að evrópska myntbandalaginu? Það er ekki mannlegt að vera svo tvö- faldur í roðinu. Til þess að ljúka viðræðunum þarf meirihluta sem getur fellt sig við þau pólitísku og efnahags- legu markmið sem felast í aðild. Þó að hann blasi ekki við getur margt gerst á komandi ári. Póli- tíska staðan er ekki endilega eins lokuð og verið hefur. Gera þarf nýja tímaáætlun S amkomulagið sem náðist á loftslagsráðstefnu Samein- uðu þjóðanna í Durban um síðustu helgi var líklega það skársta sem var pólitískt mögulegt. Um tíma leit út fyrir að ekkert samkomulag næðist og að heimsbyggðin hefði gefizt upp í glímunni við hlýnun loftslags af mannavöld- um. Þótt nokkur árangur hafi þannig náðst, er þó hætt við að nauðsynlegar aðgerðir í loftslagsmálunum nái of skammt og komi of seint. Samkomulagið er í grundvall- aratriðum þríþætt. Í fyrsta lagi taka ríki Evrópusambandsins og fáein til viðbótar, þar á meðal Ísland, á sig áframhaldandi skuldbindingar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda eftir árið 2012 undir merkjum Kyoto-bókunarinnar. Í öðru lagi kemur á móti samkomulag um að öll ríki heims, líka þróunarríki sem til þessa hafa verið undanþegin slíkum skuldbindingum, geri fyrir árið 2015 lagalega bindandi samning um samdrátt útblást- urs. Sá samningur á þó ekki að ganga í gildi fyrr en 2020. Í þriðja lagi á að stofna risavaxinn sjóð til að hjálpa þróunarríkjunum að uppfylla skuldbindingar sínar. Þessar þrjár stoðir samkomulagsins eru í raun allar valtar. Bandaríkin, Kanada og fleiri ríki sem áttu að taka á sig sam- drátt í útblæstri samkvæmt Kyoto-bókuninni hafa nú gengið úr skaftinu. Ríkin sem eftir eru og axla alla ábyrgð á verkinu næstu árin, standa eingöngu fyrir um 15% af útblæstri gróðurhúsaloft- tegunda á heimsvísu. Ástandið í ríkisfjármálum iðnríkjanna vekur ekki bjartsýni um að sjóðurinn verði eins stór og hann á að verða. Og enn er eftir að semja samninginn, sem á að vera tilbúinn 2015. Vísindamenn benda á að úr því sem komið er sé ólíklegt að hægt sé að koma í veg fyrir að loftslag á Jörðinni hlýni um meira en tvær gráður frá því sem var fyrir iðnbyltingu. Það getur haft alvarlegar og óafturkallanlegar afleiðingar í för með sér fyrir veðurfar, lífríki og mannlíf á hnettinum eins og rakið var í frétta- skýringu hér í blaðinu í fyrradag. Þrátt fyrir þetta er ekki allt svart. Ban Ki-moon, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, benti í ræðu sinni í Durban á að fjár- festing í hreinni orku hefði fimmfaldazt á undanförnum sex árum. Margt er að gerast í þróun nýrra orkukosta, bæði í iðnríkjunum og vanþróaðri ríkjum, þar sem skilningur fer vaxandi á að efnahags- framfarir verða að eiga sér stað á forsendum sjálfbærrar þróunar. Fordæmi Vesturlanda, sem hafa auðgazt en um leið mengað hnött- inn og gengið gróflega á auðlindir hans, er ekki eftirsóknarvert. Hér á litla Íslandi getum við út af fyrir sig verið stolt af að vera í hópi þeirra ríkja, sem á næstu árum hyggjast uppfylla skyldur sínar. Ríkisstjórnin hefur samþykkt metnaðarfulla áætlun um það hvernig það skuli gert. Frétt af litlum sigri birtist í Fréttablaðinu í gær; einn af togurum Samherja sneri heim úr veiðitúr þar sem eldsneytið var lífdísill úr steikingarolíu og dýrafitu. Baráttan við loftslagsbreytingarnar vinnst með mörgum fleiri slíkum sigrum, sem safnast þegar saman koma. Við eigum að halda ótrauð áfram og reyna að sýna gott fordæmi. Það sem loftslagsráðstefnan í Durban kom sér saman um er of lítið og kemur of seint. Litlir sigrar Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.