Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.12.2011, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 17.12.2011, Qupperneq 22
22 17. desember 2011 LAUGARDAGUR Kastljós RÚV gaf okkur á dögun-um áhugaverða innsýn í flókið net viðskipta föllnu bankanna með eigin bréf. Fyrir venjulega borg- ara líta gjörningar af þessu tagi út sem hreinræktaðar svikamyllur en dómstólarnir munu hugsanlega gefa okkur allt aðra mynd. Almennt er þó víðtæk samstaða í fræða- heiminum um að efnahagsbrot séu með alvarlegustu brotum sam- félagsins og kostnaðurinn margfalt meiri en hlýst af venjulegum auðg- unar- og strætisbrotum. Hins vegar er jafnljóst að við- brögð samfélagsins og réttar- vörslukerfisins eru í litlu sam- ræmi við þennan alvarleika sem birtist t.d. í því að hvítflibbar eru sjaldséðir í fangelsum, ekki bara hér á landi, heldur víðar í V-Evr- ópu. Sumir telja ástæðuna felast í því að málin séu flókin og erfitt að sýna fram á saknæman ásetning meðan aðrir álíta löggjöfina sniðna að hagsmunum hinna auðugu og valdameiri. Stundum heyrum við að hart sé tekið á efnahagsbrotum í Bandaríkjunum og bent á Madoff og Enron-málið því til staðfesting- ar en þessi mál eru undantekning- ar. Sem dæmi má taka að engin víðtæk afbrotarannsókn er í gangi vegna fjármálakreppunnar vestra þótt margir telji fulla ástæðu til. Rannsókn sérstaks saksóknara Rannsókn sérstaks saksóknara hér á landi vekur því óneitanlega mikla athygli og ekki bara hér á landi heldur erlendis líka. Umfang- ið er stórfellt og ef eitthvað svip- að væri í gangi í Bandaríkjunum væru nokkur hundruð þúsund bankamanna með stöðu grunaðra á Wall Street, sem örugglega myndi sæta tíðindum í því landi. Af þessum sökum er brýnt að vandað sé til verka við rannsókn fjármálafyrirtækjanna. Málsmeð- ferðin verður að vera skotheld og dómsniðurstöður trúverðugar sem endurspegla allan málatilbúnað- inn. Ef málalyktir verða rýrar og almenningur fær á tilfinninguna að margir sleppi auðveldlega frá réttvísinni geta afleiðingarnar orðið dýrkeyptar. Því hvers vegna eiga venjulegir borgarar að fara eftir lögunum þegar efnamenn virðast komast upp með stórfelld brot án þess að lögum verði komið yfir þá? Og auðveldara verður fyrir síbrotamenn að réttlæta afbrotahegðan sína og erfiðara að fá þá til að snúa við blaðinu. Sumir fræðimenn telja alvar- legustu afleiðingar viðskiptabrota einmitt siðferðislegar. Traust almennings á fjármálakerfinu og opinberum stofnunum getur auð- veldlega dvínað og erfitt getur reynst að endurheimta það. Mikið er því í húfi að rannsókn sérstaks saksóknara byggist á traustum grunni og dómstólarnir reynist vandanum vaxnir. Voru föllnu bankarnir ein stór svikamylla? Efnahagsbrot Helgi Gunnlaugsson prófessor í félagsfræði við HÍ Ef málalyktir verða rýrar og almenningur fær á tilfinninguna að margir sleppi auðveldlega frá réttvísinni geta afleiðing- arnar orðið dýrkeyptar. Hænufet í rétta átt Nýlokið er árlegri loftslagsráð-stefnu Sameinuðu þjóðanna, sem þetta skiptið var haldin í Dur- ban í Suður-Afríku. Væntingar fyrir ráðstefnuna voru litlar sem engar, sér í lagi eftir vonbrigði sem urðu með loftslagsráðstefn- una í Kaupmannahöfn fyrir tveim- ur árum, en þvert á væntingar þokaði málum áfram. Því miður er varla hægt að segja að þar hafi verið um meira en eitt hænuskref að ræða, þó að vissulega hafi orðið vart við mjög mikil vægan sam- hljóm á ráðstefnunni. Samkomulag í sjónmáli? Leiðin að alþjóðlegum aðgerðum gegn loftslagsbreytingum hefur verið þyrnum stráð undanfarna tvo áratugi. Fljótt þótti ljóst að upphaflegur loftslagssamningur Sameinuðu þjóðanna, sem undir- ritaður var árið 1992, dygði ekki til að koma í veg fyrir loftslags- breytingar upp að því marki sem æskilegt væri. Til að bregðast við því var Kýótó-bókunin gerð við samninginn árið 1995, þar sem komið var á nokkuð skýru kerfi, með mælanlegum og lagalega bindandi markmiðum. Kýótó-bók- unin mætti talsverðri mótspyrnu og þess sér enn merki í því að Bandaríkin hafa aldrei staðfest bókunina. Þannig stendur eitt stærsta losunarríkið utan Kýótó- bókunarinnar, en jafnframt hafa ört vaxandi þróunarríki á borð við Kína, Indland og Brasilíu ekki tekið á sig skuldbindingar. Undanfarin ár hafa ríki sem nú losa um 16% gróðurhúsaloftteg- unda á heimsvísu lýst sig reiðu- búin að halda áfram skuldbinding- um í takt við Kýótó-bókunina, en betur má ef duga skal. Hafa við- ræður því stefnt að því að auka það hlutfall til muna í nýju sam- komulagi, sem gæti tekið gildi þegar fyrsta skuldbindingatíma- bil Kýótó endar undir lok árs 2012. Því miður var niðurstaða loftslagsráðstefnunnar í Durban í meginatriðum sú að eina ferð- ina enn var ákveðið að komast að niðurstöðu síðar. Kýótó-bókunin verður framlengd um nokkur ár í stað þess að nýtt samkomulag taki gildi en vonir eru bundnar við að hægt sé að ljúka vinnu við alþjóð- lega aðgerðaáætlun fyrir 2015 sem tekið geti gildi árið 2020. Viðhorfsbreyting Einu ber þó sérstaklega að fagna. Það er sú þróun sem hefur verið undanfarin ár en kom sérstaklega skýrt fram í Durban, að þjóðir heims eru hættar að karpa um það hvort loftslagsváin sé raunveruleg og aðgerða sé þörf. Þetta er mikil- vægt skref, því nú virðast öll lönd heimsins vera tilbúin að nálgast lagalega bindandi samkomulag – þótt enn greini þau á um eðli og inntak slíks samkomulags. Í fyrsta sinn eru ríki eins og Bandaríkin, Kína og Indland, sem til þessa hafa ekki viljað ljá máls á lagalega bindandi samkomulagi, komin að samningaborðinu. En tíminn er naumur og aðgerða er þörf. Heimurinn hefur ekki efni á því að sífellt sé bætt við viljayfirlýs- ingum um að senn þurfi að bregð- ast við loftslagsvandanum. Fyrir sum ríki heims er tíminn í raun runninn út, fyrir enn fleiri er of seint að bregðast við vandanum innan einhverra ára. Að óbreyttu þurfum við að horfast í augu við gjörbreytt veður- og náttúrufar um alla jörð. Í þessum málum hefur Ísland tekið skýra stöðu með þeim ríkj- um sem vilja framlengja Kýótó- bókunina. Fyrir tveimur árum var sú ákvörðun tekin að vera í samfloti með nágrannaþjóðum okkar í Evrópu í samningavið- ræðunum, en Evrópusambandið myndar meginstoð þeirra ríkja sem standa undir losunarskuld- bindingum samkvæmt Kýótó- bókuninni. Hér skiptir máli að ganga fram með góðu fordæmi, sama hversu stór eða smá ríki eru. Í því skyni hafa íslensk stjórnvöld sett saman aðgerðaráætlun í loftslagsmálum sem til stendur að endurskoða rækilega á næsta ári. Þar eru sett fram metnaðarfull og raun- hæf skref í átt að minni losun á þeim sviðum þar sem Íslending- ar standa sig ekki sem skyldi. Við megum vera ánægð með það hversu lítil losun er hér á landi í tengslum við húshitun og orku- framleiðslu en þegar kemur t.d. að samgöngum erum við óvenju- miklir umhverfissóðar. Stærsta verkefni samtímans Loftslagsmálin eru stærsta við- fangsefni stjórnmála samtím- ans og eitt stærsta jafnréttis- mál okkar daga. Loftslagsmálin snúast um jafnrétti á milli þjóða heims, en þau ríki sem verst verða úti við loftslagsbreyting- ar eru mörg hver meðal þeirra fátækustu og þau sem menga mest oft þau auðugustu. Lofts- lagsmálin snúast líka um jafn- rétti kynslóðanna, að tryggja að komandi kynslóðir hafi sama rétt og við til að njóta gæða jarðarinn- ar um ókomna tíð. Umhverfisvernd Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra Fyrir sum ríki heims er tíminn í raun runn- inn út, fyrir enn fleiri er of seint að bregð- ast við vandanum innan einhverra ára.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.