Fréttablaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 17. desember 2011 25
Allir vita að jólasveinarnir sem nú tínast til byggða einn af
öðrum hafa í gegnum tíðina þótt
stríðnir, ódælir og hrekkjóttir svo
mörgum þótti og þykir nóg um!
Já, þessir sveinar hafa hrellt þjóð-
ina og skemmt henni á víxl, kallað
fram óttablandin tár eina stundina
og gleðitár þá næstu.
Ég man eftir því að hafa fengið
sitthvað í skóinn frá þeim í æsku.
Mikið sem það var spennuþrung-
in stund að leggjast á koddann
með gluggann í beinni sjónlínu og
spariskóinn þar fyrir miðju. Ekki
veit ég hversu oft ég sá fyrir mér
andlit á glugganum fyrir aftan
skóinn, þannig að ég klemmdi
aftur augun og þóttist jafnvel
hrjóta hressilega svo Sveinki
myndi heyra að ég væri örugglega
sofnaður!
Spennan var ekki lítil þessi 13
kvöld á hverju ári og ekki var
hún minni þá 13 morgna þegar
uppskeran var könnuð, sem var
ekki hvað síst umbun þess hversu
þægur maður hafði verið dag-
inn áður. Dæmi um hluti sem ég
fékk voru mandarínur, Pez-karlar,
litir og hvers konar smádót. Allir
þessir munir veittu mér hamingju
sem í minningunni endurspeglar
bernskujólin sem eru alltaf svo rík
af ljósi og gleði.
Milli jóla og nýárs fór maður
svo í spariskóna og á jólaball og
sá þessa kauða, og varð auðvitað
lafhræddur við ólátabelgina enda
trúði maður því statt og stöðugt að
þeir væru óendanlega stríðnir eins
og í ljóðunum hans Jóhannesar úr
Kötlum sem allir krakkar þekkja.
En í dag virðast jólasveinarn-
ir hafa þróað með sér nýja siði –
með nýjum tímum hefur skapast
tækifæri fyrir þá að vera stríðn-
ir með því að nota hugtök á borð
við „mismunun“ og „markaðssetn-
ingu“. Já, þeir hafa víst tekið upp á
því að gefa sumum börnum dýrar
og stórar gjafir sem börnin þekkja
úr auglýsingabæklingum eða bíó-
myndum, en önnur börn fá víst
„bara“ mandarínur og hluti sem
eru minna umleikis.
Æ, þessir jólasveinar! Þeir vita
nefnilega að með þessu móti geta
þeir sparað sér sporin í því að
hrekkja því auðvitað sjá krakkarn-
ir um það sjálfir, þeir fara bara og
gera grín að þeim sem hafa feng-
ið „lítið“ dót í skóinn. Í kjölfarið
segja börnin foreldrum sínum frá
því, sem veldur þeim áhyggjum og
leiða að auki. Ótrúlega sniðugur
hrekkur, finnst ykkur ekki?
Ég veit ekki með ykkur. En ég
var mjög ánægður með allt það
sem barst í spariskóna mína í
bernsku, nema auðvitað kartöfl-
urnar... þó svo að ég hafi eflaust
átt þær skilið, stundum! Hrekk-
irnir sem sveinarnir sýna hvað
best í vísum Jóhannesar úr Kötl-
um eru afsprengi samfélags sem
er að mestu horfið. Ég hélt að hinir
nýju siðir sem ég minntist hér á
væru sömuleiðis afsprengi sam-
félags sem er horfið. Var það ekki
annars?
Ef þið sjáið jólasvein þarna
úti á förnum vegi, viljið þið vera
svo væn að segja honum að þessi
hrekkur sé farinn að ganga út í
öfgar?
Jólasveinarnir – nýir
tímar og nýir hrekkir
Samfélagsmál
Eiríkur
Valdimarsson
félagsfræðingur
Eg hélt að hinir
nýju siðir sem
ég minntist hér á væru
sömuleiðis afsprengi
samfélags sem er horfið.