Fréttablaðið - 17.12.2011, Síða 36

Fréttablaðið - 17.12.2011, Síða 36
17. desember 2011 LAUGARDAGUR36 M ig langaði að færa litlu systur Barbíbíl í jólagjöf þegar ég var átta ára, og sannfærðist í kjölfarið um tilvist Guðs. Þá fór ég í Stapafell, sem var aðal gjafavöruverslun Keflavíkur, og gekk út með rándýran Barbíbíl án þess að borga. Ég þráði það eitt að gleðja hana, en vissi að ég ætti ekki nægan aur fyrir bílnum svo ég tók hann ófrjálsri hendi. Kaupmaðurinn vissi vel hver ég var því þarna var ég farin að syngja inn á plötur og ákvað að gera enga uppákomu úr þessu heldur hringdi í mömmu sem kom að mér inni í bílskúr þar sem ég reyndi að fela bílinn. Mamma sendi mig rak- leiðis aftur í Stapafell til að skila ránsfengn- um en kaupmaðurinn var svo almennileg- ur að úr því ég lagði þetta ekki á mig fyrir sjálfa mig heldur systur mína gaf hann mér bílinn,“ segir Ruth þegar hún er beðin um að rifja upp atvik sem styrkti hana í trúnni á Jesú Krist. „Eftir stuldinn fékk ég nagandi samvisku- bit, en átti trúnað vinkonu minnar sem var í kristnu samfélagi. Hún tók mig á fund for- eldra sinna sem fóru á hnén og báðu fyrir mér. Þau ráðlögðu mér að gefa Jesú hendur mínar því þá mundi ég ætíð muna að Jesús ætti hendurnar og þær mætti aldrei nota til að stela. Þetta var pottþéttur lærdómur fyrir barnið sem ég var og eftir þetta gat ég ekki stolið, því ég gat ekki gleymt því sem Guð kenndi okkur í boðorðunum tíu og þar sem segir: „Þú skalt ekki stela“,“ segir Ruth og brosir blítt að minningunni. Ást við fyrstu sýn Ruth Reginalds býr rétt utan við San Diego í Kaliforníu og heitir þar Ruth Moore. „Ég kynntist eiginmanni mínum Joseph þegar ég fór vestur um haf eftir skilnað við fyrri eiginmann minn 2005. Það var ást við fyrstu sýn og eftir sjö ára ástarsamband gengum við í hjónaband á fjórða afmælis- degi dóttur okkar í fyrra. Jói, eins og ég kalla hann upp á íslensku, er stóra ástin í lífi mínu og bað mín fljótlega eftir okkar fyrstu kynni, en ég var þá nýskilin og allt hefur sinn tíma. Þegar ég gekk með Kieu dóttur okkar vildi ég aftur heim til Íslands, því ég vildi finna hvert hjartað leitaði í aðskilnaði okkar og það leitaði sífellt til hans,“ segir Ruth í hjartans einlægni. Heima á Ruth þrjár dætur og barnabörn, og fyrir átti Joseph uppkomna dóttur. „Ég ætlaði mér sannarlega ekki að verða barnshafandi 42 ára en Kiea er himnesk blessun og mikill karakter. Það er öruggt að eitthvað mikið bíður hennar í framtíð- inni því hún er einkar hæfileikarík og getur sungið, leikið og dansað. Sæbjörg dóttir mín varð ólétt á sama tíma og ég, sem var óneit- anlega skrýtin tilfinning, en ég var í skýjun- um allan tímann,“ segir Ruth hamingjusöm. Hún segist sakna eldri dætra sinna mikið, en tvær þeirra eru komnar með fjölskyldur. „Oft vildi ég geta slitið sjálfa mig í tvennt og verið á báðum stöðum. Mér finnst erf- iðast að vera ekki til staðar fyrir yngstu dóttur mína sem í vor lýkur grunnskóla og býr nú hjá föður sínum. Hún þarfnast móður sinnar á viðkvæmum táningsaldri en gæti ekki átt betri föður, né föðurömmu og afa, sem eru ævinlega til staðar fyrir hana. Það veitir mikla huggun og ró,“ segir Ruth. Heldur íslensk jól í Ameríku Í nýju heimalandi er Ruth heimavinnandi húsmóðir og kann lífinu afspyrnu vel. „Ég vildi hvergi annars staðar vera, nema á sjálfum jólunum. Mér finnst framandi að sjá hvítar sandstrendur og pálmatré á aðventunni. Ég hef alltaf verið mikið jóla- barn og finnst engin jól án snjós. Hér er þó afslappandi og notalegt að búa, sundlaug fyrir utan húsið og stutt á ströndina. Ég nýti aðventuna til að baka til jólanna og Kiea litla upplifði í fyrsta sinn jólabjöllur í mag- anum þegar pabbi hennar keypti risastórt jólatré og biðin eftir því að fá að skreyta það varð of löng,“ segir Ruth sem heldur íslensk jól á aðfangadagskvöld í Ameríku. „Ég á lambakjöt í frystinum og reyni að hafa íslenskan brag á jólahaldinu, en vildi óska að ég ætti hangikjöt. Hér er hægt að kaupa óreyktan hamborgarhrygg í sneiðum, en ég suða daglega í kjötkaupmanninum að reykja nú fyrir mig einn stóran fyrir jólin,“ segir hún hlæjandi. „Auðvitað sakna ég Íslands óskaplega, það gerum við öll sem höfum kvatt fósturjörð- ina til langs tíma. Hins vegar fannst mér ég hafa gert það sem ég vildi gera heima og kominn tími til að breyta til og prófa nýja hluti í lífinu. Ég sé ekki eftir því.“ Ein hvít meðal svertingja Söngur er aldrei fjarri Ruth. Nú syngur hún með ekta gospelkór og stundum einsöng í kirkjunni Outcast Ministry í Oceanside. „Þangað dröslaðist ég inn fyrir einskæra tilviljun og féll umsvifalaust í stafi, því ég hef alltaf elskað trúartónlist. Nú rætist loks draumurinn um að syngja í alvöru gospel- kór, en mér hefði þótt lyginni líkast ef ein- hver hefði spáð því fyrir mér að ég ætti eftir að enda í svertingjakór í Ameríku og sem eini hvíti kórfélaginn. Það er býsna óraun- verulegt á köflum, en nýlega bættist við önnur hvít kona í söfnuðinn,“ segir Ruth og skellir upp úr. „Ég get með sanni sagt að ég trúi á Guð almáttugan. Áður var ég alltaf ein í trúnni og bað til Guðs þegar ég þurfti á honum að halda, en nú vil ég vera í virku samfélagi við Guð og lifa eftir hans lögmálum. Söfnuð- urinn í Outcast Ministry er samheldinn og náinn, og presturinn Pastor Hye yndislegur maður og duglegasti prestur sem ég hef hitt. Í kirkjunni hef ég því eignast sanna vini í gefandi kirkjustarfi,“ segir Ruth. Jarðsprengja slasaði systur í Írak Ruth er þeirrar gæfu aðnjótandi að búa í sömu götu og móðir hennar og systir, en í sömu götu kynntist hún einmitt nágranna þeirra, Joseph, sem hún er nú gift. „Það er gott að hafa mömmu og Steinunni systur svo nærri. Steinunn var landgöngu- liði og barðist tvívegis fyrir Bandaríkja- her í Írak. Hún hlaut Purpurahjartað fyrir framgöngu sína en slasaðist illa á baki og missti heyrn á öðru eyra þegar hún ók yfir jarðsprengju í Írak. Síðan hefur hún einnig glímt við áfallastreituröskun og virkilega erfitt að horfa upp á hvernig fólk er útleikið eftir þátttöku í stríði,“ segir Ruth, en móðir hennar sá um börn Steinunnar þegar hún var send á vígvöllinn. „Hér á ég bæði hvíta og svarta fjölskyldu, en kynþáttafordómar eru mun meiri hér en heima. Gamalt fólk sem man eftir þrælkun blökkumanna heldur þeim við, en vitaskuld er enginn munur á svörtum og hvítum. Ég er þó ósátt við að blökkumenn megi kalla hvorn annan negra á meðan það sama verður stór- alvarlegt mál þegar hvítur maður á í hlut. Mér þætti eðlilegast að sömu reglur giltu um alla, burtséð frá kynþætti, og finnst að útrýma ætti negratali í tónlist því það er hvorki smart né svalt,“ segir Ruth. Dásamlegur og duglegur eiginmaður Eiginmaður Ruthar var áður á verðlauna- pöllum fyrir ameríska glímu og á skóla- styrk þegar hann lærbrotnaði illa og þurfti að segja skilið við íþróttina. „Brotið var svo slæmt að setja þurfti í Joseph gervimjöðm. Það útilokar búsetu okkar hjóna heima á Íslandi því kuldi fer illa í mjöðmina,“ segir Ruth um ástkæran eiginmann sinn. „Jói er yndislegur maður og mikill dugnaðarforkur. Hann var áður sjálfstæður atvinnurekandi í viðhaldi og við- gerðum húsa, en í kreppunni hallaði á þann rekstur og nú starfar hann sem umsjónar- maður öldrunarheimilis vel stæðra Kali- forníubúa í Carlsbad og gengur afar vel. Bandaríkjamenn eru virkilega ólíkir Íslend- ingum, enda komnir úr allt öðrum menn- ingarheimi. Þeir eru kurteisari og ástunda marga góða siði sem Íslendingar mættu að ósekju tileinka sér.“ Enn með gríska, stóra nefið Ruth lenti á milli tannanna á landslýð þegar hún tók útlit sitt í gegn að hætti Extreme Make Over-þáttanna með íslensku ívafi. „Það var skemmtileg reynsla og ég öðl- aðist fullt af heilsu að launum. Ég átti hins vegar erfitt með að skilja Barbídúkkutalið þegar framleidd var mislukkuð dúkka af Birgittu Haukdal sem sögð var líkjast mér. Ég vona að ég sé ekki alveg svona ófríð,“ segir Ruth og hlær dátt. „Ég er ánægð með það sem Guð gaf mér og hef alltaf verið. Ég er heppin að hafa ekki þurft að glíma við offitu þótt ég sé mikill sælkeri. Margir misskildu að við vildum fyrst og fremst sýna fram á að hægt væri að umbylta útliti á sex mánuðum með holl- um lifnaðarháttum, í mótsögn við öfgarnar í amerísku þáttunum. Í viðtali var ég spurð hvort ég hefði látið breyta nefi mínu en svaraði sem satt var að ég mundi aldrei láta breyta mínu yndislega, stóra og gríska nefi. Það næsta sem ég las á forsíðu var: „Ruth með nýtt nef!“. Eina lýtaaðgerðin var lyfting á augnlokum, gerð til að skapa spennu hjá áhorfendum; allt annað var púl, sviti og tár hjá Hress í Hafnarfirði,“ segir Ruth. Ruth fékk aftur að kenna á illu umtali þegar hún gekk með og eignaðist yngstu dóttur sína, Kieu. „Þá var margt skrifað sem átti enga stoð í raunveruleikanum. Mér þótti skelfilegt að þurfa í mál við Séð og heyrt, en þegar fólk fær borgað fyrir að segja sögur koma marg- ir óprúttnir til að ná sér í aur. Það reynd- ist dætrum mínum erfitt, en sjálfri þótti mér ekki svaravert að fara í fjölmiðlastríð við kerlingar úti í bæ sem fengu færi á að rústa mannorði sálar fyrir smápeninga. Ein þeirra á sér langa sögu hjá lögreglunni en það þótti ekki skipta neinu hjá Séð og heyrt; allt var gert til að selja blaðið,“ segir Ruth sem hefur lifað tímana tvenna og finnur nú til með mörgum í ástandinu á Íslandi. „Fátæktin er raunveruleg. Ég hef ekki alltaf búið við vellystingar og þekki vel fordómana sem fylgja því að eiga ekki til hnífs og skeiðar. Íslenskt þjóðfélag er lítið og fólk fljótt að dæma þá sem þurfa að leita til hjálparstofnana án þess að átta sig á því sem þar liggur að baki. Það er þyngra en tárum taki að geta ekki séð fjölskyldu sinni farborða og ekki síst fyrir börnin að geta ekki litið út eins og aðrir né eiga vísa máltíð í svangan maga.“ Skrýtið að vera barnastjarna Í aðdraganda jóla heyrist rödd Ruthar dag- lega í jólalagavali útvarpsstöðvanna. „Ég hugsa alltaf til dætra minna og óska þess að þær væru hjá mér þegar ég heyri dúett okkar Björgvins Halldórssonar, Þú komst með jólin til mín. Fyrir hugskots- sjónum rennur mynd af mér barnungri í jólasveinabúningi að hoppa ofan af skáp fyrir myndatöku Dagblaðsins Vísis, þegar ég heyri Jólasveinninn kemur í kvöld, en öllum þessum gömlu jólalögum fylgja minn- ingar um æskujólin í Keflavík,“ segir Ruth um Keflavík sem verður ætíð jólabærinn í hjarta söngkonunnar. „Einnig eru hjartfólgnar minningar um jólin með mínum fyrrverandi. Mér þykir óskaplega vænt um þann góða strák og við verðum alltaf vinir. Hugurinn hvarflar því oft til þess tíma þegar stelpurnar voru litl- ar og við áttum jólin öll saman,“ segir Rut í einlægni þegar hún horfir um öxl. „Það var skrýtin upplifun að vera barna- stjarnan Ruth Reginalds en ég var voða mikið niðri á jörðinni og meira feimin en allt annað. Mér leið best inni í stúdíói og alltaf illa á sviði, og hef ekki getað staðið á sviði án þess að skjálfa fyrr en í seinni tíð. Ég vil frekar vera hluti af heildinni en í aðalhlutverki. Mér finnst notalegt að hlusta á sólóplöturnar sem ég söng á sem barn því í þær var lögð vönduð vinna, notuð alvöru strengjasveit í stað tölvugerðs hljóðfæra- leiks og ekki hægt að laga röddina ef hún fór út af laginu. Það er svipað því að kaupa jólatré eða gervijólatré. Bæði eru falleg en alvöru trénu fylgir ilmur af lífi.“ Ruth sendir öllum heima bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Hún segir Þú komst með jólin til mín vera í mestu dálæti af sínum jólalögum. En hver kemur með jólin til Ruthar Reginalds? „Drottinn kom með jólin til mín. Ég held upp á afmæli sonar hans og finnst trúarlegur boðskapur jóla skipta mestu yfir hátíðarnar.“ Ég ætlaði mér sannarlega ekki að verða barnshafandi 42 ára en Kiea er himnesk blessun og mikill karakter. Drottinn kom með jólin til mín Keflvíska barnastjarnan Ruth Reginalds yljar landsmönnum enn á ný í aðdraganda jóla með kraftmikilli og undurfagurri röddu sinni í sígildum jólalögum ljósvakanna. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir sló á þráðinn til Ruthar sem nú er hamingjusamlega gift og heimavinnandi húsmóðir í Ameríku, eini hvíti kórfélaginn í ekta gospelkór við Kaliforníustrendur og heitir þar Ruth Moore. RUTH, JOSEPH OG KIEA Ruth opnaði á dögunum YouTube-síðu undir nafninu ruthregin. Þar má sjá persónuleg, heimagerð myndbönd við lagasafn hennar. „Mig langaði að koma lögunum á góðan stað svo fólk gæti haft aðgang að þeim aftur eftir að upprunalegu myndböndin týndust árið 2000,“ segir Ruth.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.