Fréttablaðið - 17.12.2011, Síða 85
KYNNING − AUGLÝSING Spil17. DESEMBER 2011 LAUGARDAGUR 3
Alltaf pláss fyrir góða gjöf
Tilboð
Vinsælasta spilið
í Eymundsson!
Alias er frábært fjölskylduspil þar sem
allir aldurshópar geta spilað saman.
Það er auðvelt að taka þátt og lítil fyrir-
höfn að setja spilið upp og ganga frá.
Gleðileg spilajól!
Eymundsson býður upp á fjölda spennandi spila allt árið um kring og hefur bætt
framboðið fyrir jólin. Að sögn Sæ-
dísar Guðnýjar Hilmarsdóttur,
vörustjóra hjá Eymundsson, hefur
úrvalið sjaldan eða aldrei verið
eins gott og nú.
„Það er eins og sprenging hafi
átt sér stað því framboðið er
gríðar legt. Mikið af nýjum spil-
um og alls konar gerðir; spurn-
ingaspil, ævintýraspil og leik- og
orðskýringaspil sem henta öllum
aldurshópum, alveg frá ólæsum
börnum og upp úr,“ upplýsir hún
og getur þess að íslenskum spilum
hafi snarfjölgað.
„Íslendingar hafa verið ötulir
við að hanna spil síðustu ár en eiga
örugglega met fyrir þessi jól,“ segir
hún og nefnir nokkrar nýjungar
til sögunnar. „Eitt óvenjulegasta
spilið er sjálfsagt Ævintýralandið,
sem Ólafur Stefánsson landsliðs-
fyrirliði í handbolta hannaði ásamt
fleirum og hefur verið að kynna
undan farið. Spilið byggist á spuna
þar sem fjölskyldan fer í ímyndað
ferðalag og spinnur kringum það
persónur og sögusvið.“
Ferðalag um Ísland bíður hins
vegar þátttakenda í Ísland-Opoly,
sem Sædís segir undir áhrifum frá
hinu sívinsæla Monopoly-spili.
„Nema að spilarar versla með
fyrir tæki og bæjarfélög víðs vegar
um landið, en þess má geta að
Halldór Baldursson teiknaði spil-
ið,“ útskýrir hún og nefnir annað
spil, Fíaskó, sem er líka að hluta til
gert að erlendri fyrirmynd. „Þetta
er orðskýringa- og látbragðsspil
sem er tilvalið að grípa til í partí-
um og hentar því kannski meira
unglingum og upp úr.“
Þá bendir hún á að fyrir þessi
jól njóti vinsælda afmælisútgáfa af
Gettu betur og nýjasta útgáfa Alias
og fyrir áhugafólk um fótbolta séu
KR spilið og Fótboltaspilið í boði.
Spurð út í óvenju gott framboð af
spilum nú segir Sædís það haldast í
hendur við þennan árstíma. „Jólin
eru tími spila rétt eins og bóka. Svo
virðist afþreying heima fyrir vera í
mikilli sókn. Fjölskyldan vill verja
meiri tíma saman og spil eru ávís-
un á góðar stundir. Og með hlið-
sjón af því er kostnaðurinn, 1.199
krónur og upp úr, ekki ýkja mikill,“
bendir hún á og brosir.
Ávísun á góðar samverustundir
Framboð af spilum hefur sjaldan eða aldrei verið eins gott og í ár, segir Sædís Guðný Hilmarsdóttir, vörustjóri hjá Eymundsson. Hún bendir á að fjöldi
spennandi nýjunga sé í boði fyrir alla aldurshópa.
Party & Co - Disney
er fjölskylduspil sem allir ættu að
njóta. Lestrarkunnátta er óþörf
og því geta yngstu meðlimir
fjölskyldunnar spilað sjálfir. Spilið
byggir á vinsælu Party & Co spili
nema að nú eru Disney-persón-
urnar í lykilhlutverki. Rafstýrður
Mikki Mús segir á íslensku hvaða
þrautir á að leysa og telur niður
tímann og spilar tónlist.
Sædís Guðný Hilmarsdóttir með hluta af þeim spilum sem Eymundsson selur í ár. MYND/VALLI
Alias er frábært fjölskylduspil
fyrir alla, auðvelt að komast
inn í spilið, lítil uppsetning og
frágangur. Allir aldurshópar geta
spilað saman og skemmt sér
stórkostlega.