Fréttablaðið - 17.12.2011, Qupperneq 104
17. desember 2011 LAUGARDAGUR72
Þ
egar Bítlarnir komu
fram á tónleikum
í hinni sögufrægu
bardagahöll Budok-
an í Tókýó árið 1966
móðgaðist fjöldi þar-
lendra, sem þótti það jaðra við
helgispjöll að síðhærðir, engil-
saxneskir popphvolpar fengju inni
í einu helsta stolti þjóðarinnar.
Sjálfir skildu fjórmenningarnir frá
Liverpool lítið í öllum hamagangin-
um. „Sko,“ útskýrði Paul McCart-
ney á blaðamannafundi. „Ef dans-
hópur frá Japan kæmi til Bretlands
myndi enginn segja að verið væri að
brjóta neinar hefðir eða eyðileggja
nokkurn skapaðan hlut... samt bygg-
ir breskt samfélag alveg jafn mikið
á sterkum hefðum.“
Rótgróin hefð
Þar hitti bassaleikarinn naglann
á höfuðið, því Bretar eru sannar-
lega þjóð hefða. Tedrykkja, fiskur
og franskar (eða öllu heldur Tikka
Masala, samkvæmt nýlegum rann-
sóknum), pípuhattar, gláp á ræðu
drottningarinnar á gamlárskvöld,
fótbolti á laugardögum og roast beef
á sunnudögum eru meðal rót gróinna
hefða sem auðkennt hafa England í
lengri tíma, þótt sumar skolist til í
áranna rás eins og gengur.
Ein hefð er þó fráleitt líkleg til
að breytast í bráð, en það er hama-
gangurinn sem brestur á ár hvert
varðandi það hvaða dægurfluga
nær efsta sæti vinsældalista síð-
ustu vikuna fyrir jól. Þessi æsing-
ur í kringum toppsætið um jólin
er fyrir brigði sem hingað til hefur
verið nokkuð bundið við England,
en einnig í minni mæli við nágrann-
ana á Írlandi. Þannig hefur það
verið nánast óslitið síðan um miðja
síðustu öld, þegar tónlistartímaritið
New Musical Express (NME) hóf að
birta lista yfir mest seldu smáskífur
hverrar viku fyrir sig.
Grínlögin taka völdin
Hefðbundnir poppsmellir manna
á borð við Al Martino (sem náði
fyrsta toppsætinu á jólunum árið
1952 með laginu Here in My Heart)
og téðra Bítla (sem áttu þrjú jóla-
topplög í röð á árunum 1963 til 1965
og lögin í tveimur efstu sætunum
1967), sem tengdust jólunum ekki
á nokkurn hátt, réðu ríkjum fyrstu
árin, með örfáum undantekning-
um. Strax árið eftir, 1968, riðu þó
sveitungar Bítlanna í hljómsveitinni
Scaffold, með Mike bróður Pauls
innanborðs, á vaðið með lagið Lily
the Pink. Hófst þá sterk til hneiging
bresks almennings til að koma lau-
fléttum barna- eða grínlögum á
jólatoppinn.
Mörg slík fylgdu í kjölfarið, til
dæmis náði sjálfur Benny Hill topp-
sætinu árið 1971 með Ernie (The
Fastest Milkman in the West) og
fígúrurnar Mr Blobby 1993 og Bob
the Builder árið 2000 en dónarnir
í South Park rétt misstu af efsta
sætinu árið 1998 með hinu eftir-
minnilega Chocolate Salty Balls.
X-Faktorinn kemur til sögunnar
Glysrokkararnir í Slade gerðu allt
vitlaust með jólasmellinum Merry
Xmas Everybody árið 1973 (eins
og nánar er vikið að hér á síðunni)
og áttu sinn þátt í að koma þeirri
hugmynd í kollinn á poppurum og
almenningi að jólasmellir ættu í
raun og veru að fjalla um jólin.
Með einföldun mætti því segja
að jólalög, grín- eða barnalög og
hefðbundin popplög hafi skipst á að
verma toppsætið í Englandi næstu
áratugina, allt þar til raunveruleika-
þættir á borð við Popstars og X-Fac-
tor héldu innreið sína í þarlenda
þjóðarsál eftir aldamótin. Síðan
2005 hafa sigurvegarar í X-Fac-
tor nánast einokað jólatoppsætin á
vinsældalistum, í flestum tilfellum
með blygðunarlausum vinsældalög-
um sem skora himinhátt hjá alþýðu
fólks en eiga ekki upp á pallborðið
hjá poppmenningarelítunni.
Niðurhalið skiptir sköpum
Slíkt er að sjálfsögðu gömul saga
og ný. Fljótlega eftir að vinsælda-
listar hófu að taka niðurhöluð lög
inn í reikninginn um miðjan síð-
asta áratug sáu þeir vandlátari sér
þann leik á borði að koma gömlum
eftirlætislögum á toppinn með hjálp
nútíma tækni. Hópar hafa komið sér
saman um að freista þess að koma
gömlum lögum með The Smiths,
The Trash men, John Cage og fleiri
listamönnum á toppinn með mis-
jöfnum árangri, og hið mikils metna
jólatoppsæti er engin undantekning.
Fyrir tveimur árum var sautján
ára gamalt rokklag Rage Against
the Machine, Killing in the Name,
sett til höfuð X-Factor-lagi þess árs
og stóð uppi sem sigurvegari. Nú í
ár beinist slíkur kosningaáróður,
meðal annars á Facebook (þar sem
hlutirnir gerast víst þessi misser-
in) að því að koma Nirvana-laginu
Smells Like Teen Spirit á toppinn,
en lagið á einmitt tvítugsafmæli um
þessar mundir. Margir Bretar, sem
orðnir eru langþreyttir á X-Factor
væðingunni, kættust yfir sigur-
göngu Rage Against the Machine
og binda miklar vonir við Nirvana
þessi jólin. Aðrir eru meira efins
um þessa þróun mála.
Úthugsaðar markaðsherferðir
Einn hinna vantrúuðu er
menningar blaðamaðurinn Paul
Kilbey, sem skrifar í bresku útgáfu
veftímaritsins Huffington Post um
þetta nýlega fyrirbrigði. Að ekki
sé nóg að kaupa tónlistina sem þér
sjálfum líkar heldur þurfi nú líka
um að sannfæra alla hina um að
kaupa sömu tónlist.
„Auðvitað er gaman að gefa X-
Factor fingurinn,“ segir Kilbey um
toppsætisherferðirnar fyrir Rage
Against the Machine og Nirvana.
„En það er sjálfsblekking að trúa
því að slíkir sigrar vinnist með
nokkru öðru en kosninga áróðri,
jafn ísköldum og úthugsuðum og
þeim sem kemur sigurvegurum X-
Factor í topp sætin.“
Kilbey sér lítinn mun á því hvort
slíkur áróður komi frá „gras-
rótinni“ eða stórfyrirtækjum, og
gildi einu þótt lag Rage Against the
Machine, sem dæmi, hafi greini-
lega verið valið beinlínis vegna þess
hversu illa það hentar til spilunar
um hátíð ljóss og friðar. Þrátt fyrir
allt sé verið að beita fólk þrýstingi
til að kaupa tónlist á allt öðrum for-
sendum en að því líki hún sérstak-
lega.
„Smells Like Teen Spirit með
Nirvana er svo frægt lag að allar
líkur eru á að þú annað hvort eigir
það nú þegar eða sért ekkert sér-
staklega hrifinn af því,“ heldur
Kilbey áfram. „Í mínum huga hafa
vinsældalistar alla tíð átt að endur-
spegla hvaða tónlist fólk vill í raun
og veru kaupa og hlusta á. Þessir
listar hafa aldrei verið mælikvarði
á gæði tónlistarinnar... að minnsta
kosti finnst mér líklega að þeir sem
kaupi X-Factor lagið geri það vegna
þess að þeir vilji hlusta á lagið. Þeir
sem hala niður Nirvana-laginu fyrir
jólin gera það væntanlega vegna
þess að þeir falla kylliflatir fyrir
markaðsherferð eða hafa einhverja
falska trú á því að það fái Simon
Cowell (æðstaprest tónlistar-raun-
veruleikaþáttanna) til að bresta í
grát. Það sem gerir þetta enn fárán-
legra er að velja lag með Nirvana,
hljómsveit sem kunni alltaf frem-
ur illa við miklar vinsældir meðal
almennings, til að reyna að koma á
toppinn.“
Framboð og eftirspurn
Sitt sýnist hverjum um þessi mál
öll sömul, enda velta þau í grunninn
upp aldagömlum vangaveltum um
framboð andspænis eftirspurn, vin-
sældir andspænis gæðum, hámenn-
ingu, lágmenningu og ótal margt
fleira. Ljóst er þó að kapphlaupinu
um efsta sætið um jólin mun ekki
linna í allra nánustu framtíð.
■ BRESKIR JÓLASMELLIR LIÐINNA ÁRA
Breska baráttan um toppsætið
Kapphlaupið um að eiga vinsælustu smáskífuna um jólin í Englandi er jafn rótgróin og drottningarræðan og tedrykkja. Kjartan
Guðmundsson leit yfir sögu þessarar baráttu og þá nýlegu tilhneigingu að freista þess að koma gömlum rokklögum á toppinn.
E itt lífseigasta jólapopplagið er Last Christmas sem breski
dúettinn Wham!, með George
Michael í broddi hinnar smáu
fylkingar, gaf út á hápunkti eitís,
1984. Lagið náði þó aldrei jóla-
toppsætinu í Englandi því sama
ár tróndi góðgerðarlagið Do They
Know It‘s Christmas? (sem George
Michael tók þátt í) á toppnum, en
síðarnefnda lagið hefur alls náð
þessu eftirsótta efsta sæti þrisvar,
1984, 1989 og 2004, í mismunandi
útgáfum. Last Christmas-smáskíf-
an seldist þó með afbrigðum vel og
varð sú smáskífa sem seldist best
án þess þó að ná á toppinn í Eng-
landi. Lagið náði þó toppsætinu í
mörgum öðrum löndum og hefur til að mynda komist á topp fimm í Þýskalandi fyrir jól
á hverju ári síðan 1997. Allur ágóði af sölu Last Christmas rann til góðgerða í Eþíópíu.
Söngvarinn Barry Manilow höfðaði mál á hendur George Michael vegna líkinda lag
hans Can‘t Smile Without You og Last Christmas, en málið var útkljáð utan dómstóla.
Komst ekki á toppinn í Englandi
Þegar Noddy Holder og Jimmy Lea úr glys-rokksveitinni Slade sömdu einn stærsta jóla-
poppsmell allra tíma, Merry Xmas Everybody, á
sjóðandi heitum sumardegi árið 1973, voru þeir
óvissir um að sex ára farsæll ferill sveitarinnar
gæti haldið áfram lengi enn. Trommarinn Don
Powell hafði slasast alvarlega í bílslysi nokkrum
vikur áður og meðlimir sveitarinnar veltu því
alvarlega fyrir sér að hætta öllu tónlistarstússi.
Í viðtali við Telegraph segir Holder jóla-
smellinn vinsæla hafa verið tilraun til að
hressa hljómsveitina við og um leið að stappa
stálinu í bresku þjóðina. „Þegar við tókum
lagið upp var Bretland í miðri kreppu.
Bakarar, námuverkamenn og allir hinir voru
í verkfalli. Sjónvarpsdagskránni lauk klukkan tíu á kvöldin.
Lagið átti að virka hvetjandi á erfiðum tímum og þess vegna er það enn viðeigandi í dag,“
segir Holder og vísar í texta lagsins: „Look to the future now / It‘s only just begun,“ máli
sínu til stuðnings.
Lagið náði toppsæti breska vinsældalistans fyrir jólin 1973 og dvaldi þar langt fram
í febrúar meðan rúmlega milljón eintök af smáskífunni seldust. Í könnun sem gerð var
árið 2007 var Merry Xmas Everybody valið vinsælasta breska jólalag sögunnar.
Vinsælasta breska jólalagið
NIRVANA Tuttugu ára gamalt lag Kurts Cobain og félaga, Smells Like Teen Spirit, er með í slagnum um jólatoppsætið í Englandi í ár.
Þessi æsingur í
kringum toppsætið í
jólunum er fyrirbrigði
sem hingað til hefur
verið nokkuð bundið
við England, en einnig
í minni mæli við
nágrannana á Írlandi.