Fréttablaðið - 17.12.2011, Page 135
LAUGARDAGUR 17. desember 2011 103
Sigurvegari í Jólalagakeppni
Rásar 2 árið 2011 er hljómsveitin
White Signal frá Reykjavík og
Hafnarfirði. Lag hennar, Jóla-
nótt, er eftir Guðrúnu Ólafsdótt-
ur við texta Guðrúnar og Katrín-
ar Helgu Ólafsdóttur og hlaut það
flest atkvæði hlustenda Rásar 2.
White Signal skipa fimm fjórtán
til sextán ára gamlir tónlistar-
menn.
Í öðru sæti var lagið Desember
eftir Hólmfríði Ósk Samúelsdótt-
ur í flutningi dúettsins SamSam
sem hún skipar ásamt systur
sinni, Gretu Mjöll Samúelsdóttur.
White Signal
sigurvegari
NÚMER EITT Lagið Jólanótt með White
Signal var kjörið besta jólalagið.
Oft hafa verið uppi kenningar
um fegrunaraðgerðir Jennifer
Aniston en hún hefur hingað til
neitað því staðfastlega að hafa átt
nokkuð við útlit sitt.
Núna hefur hún þó viðurkennt
að hafa prófað að sprauta fegr-
unarlyfinu bótoxi í andlit sitt en
að hún hafi hætt því strax aftur.
„Fólk heldur að ég sé alltaf að
sprauta mig með bótoxi en ég
geri það ekki.
Ég hef hins vegar prófað það
og get vel skilið hvernig hægt er
að ánetjast því.
Allar þessar fegrunarleið-
ir fara mér bara alls ekki og ég
lít fáránlega út,“ sagði leikkon-
an í viðtali á dögunum. Aniston
var nýverið valin mest aðlað-
andi kona allra tíma af tímariti
vestanhafs, en hún segir að hún
hafi lengi vel ekki verið örugg í
eigin líkama. „Mamma mín var
fyrirsæta og hugsaði mikið um
útlit, þannig að ég gerði uppreisn
þegar ég var unglingur sem fólst
í því að gerast „goth“.
Það tók mig mörg ár að vera
nógu sjálfsörugg til að hætta að
fela mig á bak við grímu af farða
og líða vel í eigin skinni.“
Aniston prófaði að nota bótox
NÁTTÚRULEG Aniston notar sólarvörn
með SPF 60 til að vernda húðina gegn
geislum sólarinnar.
Christian Bale var meinað að
hitta Chen Guangcheng sem er
í stofufangelsi í Kína eftir að
hafa barist fyrir auknum mann-
réttindum þar í landi. Leikarinn
er staddur í Kína til að kynna
myndina The Flowers of War
sem gerist þar á fjórða áratugn-
um. Þegar hann ætlaði að heim-
sækja Guangcheng með tökulið
frá CNN með í för var honum
vísað á brott. „Ég er ekkert
hugrakkur. Ég vil bara styðja
við bakið á fólki sem býr hérna
og stendur upp í hárinu á yfir-
völdum og hefur verið lamið og
fangelsað,“ sagði
Bale. „Mig lang-
aði bara að heilsa
þessum manni
og segja honum
hversu mikinn
innblástur hann
hefur veitt
mér.“
Bale vísað á
brott í Kína
Í KÍNA Bale
var meinað
að hitta
mannrétt-
inda frömuð í
Kína.
Angelina Jolie skilur ekki þann mikla áhuga sem fólk
hefur á einkalífi hennar því sjálf segist hún lifa ósköp
viðburðasnauðu lífi þar sem allt snúist um barnaupp-
eldi.
Jolie segist leggja mikið upp úr því að fjölskyldan sam-
einist yfir kvöldmatnum hvert kvöld en viðurkenn-
ir að borðhaldið geti verið ansi líflegt á stundum.
„Við borðum saman sem fjölskylda öll kvöld. Okkur
Brad finnst það mikilvægt. En það getur orðið villt,
í fimm mínútur sitja allir kyrrir og hljóðlátir og svo
byrja lætin,“ sagði leikkonan sem á sex börn með
sambýlismanni sínum, leikaranum Brad Pitt.
HÁVÆRT BORÐHALD Angelina Jolie segir fjöl-
skylduna borða saman kvöldmat öll kvöld.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hávært borðhald