Morgunblaðið - 19.01.2011, Page 40

Morgunblaðið - 19.01.2011, Page 40
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Sýning á tillögum sem bárust í hönn- unarsamkeppni um húsgögn í Hörpu var opnuð síðastliðinn föstudag í Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi í Garðabæ. Síðastliðið sumar var efnt til hönnunarsamkeppni um tillögur að húsgögnum í almenningsrými í Hörpu, Tónlistar- og ráðstefnuhúsi í Reykjavík. Samkeppnin var opin íslenskum hönnuðum og arkitektum og var haldin í samstarfi við Hönnunar- miðstöð. Eitt af meginmarkmiðum samkeppninnar var að efla vitund um íslenska hönnun og stuðla að auknum sýnileika hennar. Höfundar að verðlaunatillögunni eru þær Helga Sigurbjarnadóttir og Kristín Aldan Guðmundsdóttir, inn- anhússarkitektar FHI. Samstarfs- aðilar þeirra um framleiðslu hús- gagnanna eru GÁ húsgögn, Stjörnustál, Pelco og Pólýhúðun, en skilyrði í samkeppninni var að hús- gögnin yrðu framleidd hér á landi. Naumhyggja „Við ákváðum að taka mið af húsinu eins og það liggur fyrir, þ.e. stíla inn á arkitektúrinn og það er glerhjúpurinn sem er hvað mest einkennandi,“ segir Kristín Aldan. „Inni í húsinu, það er anddyrinu þar sem húsgögnin verða, er frem- ur lágstemmt rými og við spiluðum inn á það, erum með gráa og hvíta tóna og erum að elta þær for- sendur sem eru fyrir hendi.“ Hún segir útgangspunktinn hafa verið þann að hafa þetta einfalt og tímalaust og nokkurs konar naum- hyggja hafi ráðið för. „Einnig mátti þetta ekki vera dýrt í framleiðslu og við urðum að taka mið af því. Þannig að hönn- unin þarf að vera hagstæð, svo ein- falt sé að smíða úr stáli og áli. Þetta eru einfaldlega þær að- stæður og þær áskoranir sem ís- lenskir hönnuðir standa frammi fyrir í dag. Við settum svo gulan lit í barnakollana til að hafa smá leik og lit með líka.“ Hönnunin taki mið af arkitektúrnum  Rætt við hönnuði húsgagnanna í Hörpu  Einfalt og tímalaust Fríðar Margrét, Margrét og Arnheiður létu sig ekki vanta.Fallegar Kristín Gunnarsdóttir og Hlín Guðlaugsdóttir. Sigurvegarar Helga og Kristín stilla sér upp framan við vinningstillöguna. Reffilegir Reynir Syrusson og Eyjólfur Pálsson. KAbear – I Used to be athletic bbmnn Ræflarokk, bílskúrsrokk, jafnvel Mús- íktilraunarokk eru stimplar sem gætu hæglega átt við þennan frumburð KAbe- ar. Hér er talið í og trukkað í gegn- um þriggja gripa gruggskotið rokk eins og enginn sé morgundagurinn. Ég fíla rifinn gítarhljóminn nokkuð vel en söngurinn er býsna þreytandi. Hér er ekki verið að finna upp hjólið en það rúllar sæmilega áfram í gruggugri rokkforinni. Silfur – Ekkert vesen bbnnn Að hlusta á þessa plötu Silf- urs er eins og að ferðast tíu ár aft- ur í tímann, er reffilegar popp- sveitir eins og Sóldögg, Land og synir, Írafár og Buttercup réðu ríkjum. Bæði um- slag og tónlist eru í þeim gírnum, lagasmíðarnar óttalegt klastur svona heilt yfir þó að vissulega séu sprettir („Stefnum fram á við“ og „Í faðmi þér“). Skelfileg tökulög hefðu þá mátt missa sín en mikil útgeislun söngkonunnar Thelmu bjargar því sem bjargað verður. Silfur starfar fyrst og fremst sem ballsveit og þar er hennar styrkur, fremur en í frum- sömdu deildinni, en það er vel skilj- anlegt að fólk þurfi að hleypa skáldklárunum á skeið með þessum hætti. Ýmsir – Sönglagakeppni Vestfjarða bbbnn Slagæð ís- lenskrar al- þýðumenn- ingar liggur m.a. í gegnum hljómdiska eins og þessa og það er mik- ilvægt að efni eins og því sem hér lúrir sé komið út. Svona plötur munu enda halda áfram að koma út á með- an sól gyllir haf, enda þægilega laus- ar við tiktúrur tískunnar. Áhugalagasmiðir, ef svo mætti kalla, eiga flest lögin hér og eðli málsins samkvæmt eru lögin jafn- mismunandi og þau eru mörg. Sum hver óeftirtektarverðar stemmur sem maður hefur heyrt þúsund sinn- um áður á meðan önnur ná í gegn, sökum lunkinnar melódíusamsetn- ingar eða áhrifaríks flutnings (og standa þar Heiða Ólafs og Hreindís Ylva fremstar á meðal jafningja). Textarnir eru þá sérkapítuli, allir sem einn lofsyngja þeir fegurð Vest- fjarðanna og virkar platan því eins og nokkurs konar baráttuplata. Er það vel. Attilla – Attilla bbbbn Attilla er listamannsnafn Sveins Hauks- sonar rafvirkja sem hefur unn- ið að verkinu í ein ellefu ár. Skemmst er frá því að segja að margt er glúrið og gott hérna. Þetta er nokkurs konar bræðingstónlist, með nokkuð dökkum keim. Munka- söngur og dulúðugt kvenmannshvísl sjá m.a. til þess. Alla jafna nær Sveinn flugi og heldur eyrunum sperrtum, hann er t.a.m. með frá- bæra spilara með sér; Jóhann Hjör- leifsson, Jóhann Ásmundsson, Stein- grímur Guðmundsson, Hilmar Jensson og Óskar Guðjónsson koma m.a. við sögu og Arnar Guðjónsson sér um upptökur. Á köflum kann þetta að hljóma eins og hippasýra, tónlistarlegur steingervingur, en það er einhver óræður kraftur sem hefur yfirhöndina og heldur manni spenntum við hlustir. South River Band – Um jólin bbbmn Þessi sveit ættingja og vina frá Syðri-Á, Kleif- um í Ólafsfirði er mikil perla í íslensku tón- listarlífi, þótt ekki væri nema bara fyrir þær sakir að hér stýrir hrein ástríða fyrir sjálfri tónlistinni framkomu- og út- gáfumálum. Hér er að finna vel þekkt jólalög frá Íslandi og Norð- urlöndum í bland við tónsmíðar með- lima. Það er nettur Ríó-fílingur í gangi, enda Ólafur Þórðarson einn meðlima. Annars er tónlistin þjóð- lagatónlist þar sem öllu ægir saman; vísnatónlist, balkantöktum og ýmsu fleiru. Allt er þetta framreitt bæði af gáska og fagmennsku og platan fín- asta viðbót í íslenska jólaplatnaflóru. Góðglöð South River Band sendi frá sér fínustu jólaplötu á síðasta ári. Úr staflanum Arnar Eggert Thoroddssen arnart@mbl.is Nýútkomnar íslenskar hljómplötur 40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2011

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.