Ný saga - 01.01.1987, Page 93

Ný saga - 01.01.1987, Page 93
fræðimenn beitt aðferðum mannfræðinnar á íslendinga- sögurnar og látið þær vitna um íslenskt þjóðfélag fyrir 1200. Þetta eru þau Jesse Byock, Carol Clover, William lan Miller og Paul Durren- berger. Hins vegar leiðir mannfræðingurinn Kirsten Hastrup íslendingasögurnar að mestu hjá sér í bók sinni Culture and History frá 1985 og hefur verið gagnrýnd fyrir það.'S í því sem á eftir fer verða nefnd dæmi um það hvar þessir fræðimenn þykjast greina kerfi eða mynstur, fé- lagsleg eða hagræn, í sögun- um. Þótt hér sé greint á milli kerfanna, er vert að hafa í huga kenningu Polanyis um samþættingu. Hið félagslega Þeir Byock og Miller eru lög- fræðilega menntaðir og er einkum hugstætt hvernig deilur voru leystar í hinu ís- lenska þjóðfélagi þar sem skorti miðstjórnarvald (kon- ung) en blóðhefnd var tíðkuð. Segja má að íslenska stjórn- kerfið (goðorð, vorþingsdóm- ar, alþingi) hafi verið miðað við að tryggja valdajafnvægi og frið. Deilumálum var þó ekki ætíð vísað til dómstóla og telur Byock að íslendinga- sögur snúist einkum um það hvernig deilur (,,feuds“) í mjög almennri merkingu, td. bænda um skóg, voru leystar eða reynt var að leysa þær á söguöld og síðar. Samkvæmt niðurstöðum Byocks var fylgt ákveðnum reglum eða kerfi sem var ntiðað við að tryggja festu í þjóðfélaginu og afstýra ofbeldi. Byock lýsir ýtarlega, í bók sinni Feud og annars staðar, hvaða aðferðum var AÐ VITA SANN Á SÖGUNUM beitt í þessu skyni.16 Hann gildir einu hvort td. Arnkell goði, sem segir frá í Eyr- byggju, og bændur sem hann studdi, voru til í reynd en tel- ur að frásögnin af deilum þeirra við Snorra goða og bændur sem leituðu til hans sé raunsönn lýsing á deilunt manna fyrir 1200. Þetta rök- styður hann rna. með sarnan- burði við Grágás og Sturlungu . Byock notar aðferðir mann- fræði við að athuga og skil- greina félagsleg kerfi og að hætti þeirra sem stunda félagssögu kannar hann félagslega hegðun fjöldans frernur en einstaklinga. Báðir vísa þeir Byock og Miller til Turners en Miller hneigist meir en Byock að mannfræðilegum viðhorfum. Hann finnur svo miklar sam- svaranir með því þjóðfélagi sem lýst er í íslendingasögum og öðrum frumstæðum sam- félögum að honum finnst að mestu óþarft að bera saman við Grágás og Sturhmgu og á sammerkt með Odner að taka íslendingasögur fram yfir þar sem þeim og Grágás ber á milli.17 Segja má að Miller beini athyglinni einkum að blóðhefnd („bloodfeud") og reglum sem giltu um hana en Byock fremur að ,,feud" í almennri merkingu (illdeil- ur?) en annars virðast skoð- anir þeirra vera mjög líkar. Norski sagnfræðingurinn Sverre Bagge er einn þeirra sem telja að of langt hafi verið gengið í gagnrýni á „sögurn- ar" og hefur þá konungasög- ur í huga jafnframt. Hann not- ar þær talsvert í nýlegri grein sem heimildir um samfélags- skipan 11. og 12. aldar.18 í annarri nýlegri grein færir hann sér í nyt athuganir Byocks á „feud" og tekur í og á sammerkt með Odner að taka Islendinga- sögurnar fram yfir þar sem þeim og Grágás ber á milli. báðum greinum sínum dæmi af Selsbanaþætti í Ólafs sögu helga eftir Snorra Sturluson. í þessum þætti og öðrum áþekkum frásögnum í Ólafs sögu og íslendingasögum er lýst félagslegu kerfi að mati Bagges þar sem fram kemur hvernig hinir efnaminni leita verndar hinna voldugri eða þeir síðarnefndu bjóða vernd sína í samkeppni við aðra ríkismenn. Sagan um Sels- bana er etv. ekki rétt sagn- fræðilega en að ætlan Bagges gefur hún raunsanna mynd af deilum í íslenska þjóðveldinu og norsku þjóðfélagi fyrir 1200.19 Áður hafði Lunden ályktað með svipuðum hætti um Selsbanaþáttinn og sýnt hversu góð heimild hann er um samþætt hag- og félags- kerfi þar sem höfðingi reynir að tryggja félagslega stöðu sína með veislum.20 Þá skal vikið að athyglis- verðum þætti í kerfi blóð- hefndar. Miller bendir á það að konur hvöttu stundum karla til hefndarvíga með því að sýna þeim afhöggvið höfuð eða blóðug klæði hins látna. Hann finnur sjö dæmi um þetta í íslendingasögunum og telur vera fornan sið en ekki bókmenntalegt atriði. Með samanburði við önnur blóð- hefndarsamfélög kemst hann að þeirri niðurstöðu að siður- inn sé hluti af kerfi. Hann tel- ur að á íslandi hafi þetta verið formleg athöfn sem gerði kon- um kleift að velja hefnanda og skuldbinda hann til hefnda.21 Bandaríski bókmennta- fræðingurinn Carol Clover beitti svipaðri aðferð við lýs- ingar nokkurra fslendinga- sagna á líkri hvöt eða áeggjan kvenna við karla að hefna vígs. Hún telur að jafnan sé litið á slíka hvöt sem bók- 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.