Ný saga - 01.01.2000, Blaðsíða 12

Ný saga - 01.01.2000, Blaðsíða 12
Sigurður Narfi Rúnarsson stætt á að halda uppi árásum á einslaka íþróttagrein og krefjast þess að hún yrði tekin út af stefnuská I.S.I., sér í lagi þar sem ráðstefna Ríkisíþróttasambanda Norð- urlanda hefði nýlega samþykkt að mótmæla árásum á hnefaleikana: vil ég skora á blaðsljórn blaðsins að víkja hr. Thorolf Smith strax frá blaðinu. Hann verður Iþróttablaðinu ekki meira til skammar ef hann starfar ekki við það. Ég veit að ég mæli fyrir munn allra sannra íþróttamanna. Burt með Thorolf Smith frá íþróttablaðinu og það strax!62 Ætla má að gagnrýnin á hnefaleikana hafi verið búin að berast víða og ná eyrum margra, þótl lítið færi fyrir hnefaleikunum sjálfum, því þeir voru í lægð á árunum 1954-56. Islandsmót féllu niður þessi ár, en síðasta íslandsmótið var haldið 1953.63 Bar nú fátt til tíðinda fyrr en háli'u ári síðar að lagt var fram á Alþingi frumvarp til Iaga um að banna hncfaleika á íslandi. Frumvarp um bann við hnefaleikum Þann 21. mars 1956 var lagt fram í neðri deild Alþingis fumvarp til laga um að banna hnefa- leika. Flutningsmenn voru alþingismennirnir og læknarnir Kjartan J. Jóhannsson og Helgi Jónasson. Frumvarpið vakti strax athygli og var fjallað um það í Morgunblaðinu64 og því fagnað í leiðara þess: Almenningur á íslandi mun yfirleitt telja þetta frumvarp tímabært. ... Enginn, sem séð hefur keppni í hnefaleikum, getur með góðri samvizku talið það fagra athöfn eða íþrótt. Þvert á móti er hnefaleikurinn ógeðsleg barsmíð, sem hlýtur að vekja við- bjóð. íslenzkar íþróttir missa einskis þótt hún verði bönnuð. Verður því að vœntci þess, að Alþingi samþykki fyrrgreint frumvarp hið fyrsta,65 Frumvarpið var sagt hafa vakið mikla athygli. Þeir sem höfðu hagsmuna að gæta hefðu átt að geta sett sig inn í málið. Það gerði að minnsta kosti Iþróttasambandið. Framkvæmdastjórn I.S.I. tók málið lil um- ræðu á fundi þann 26. mars. Þar var samþykkt Mynd 12. Thorolf Smith blaðamaður var um skeið ritstjóri Iþróttablaðsins og hóf þar kröftuga sókn gegn hnefa- leikum. Mynd 13. Alfons Guðmunds- son og Þorkell Magnússon eigast við. ályklun og undirrituð fyrir hönd íþróttasam- bandsins af Ben. G. Waage forseta Í.S.Í. og send Alþingi samdægurs. Þar var frumvarp- inu mótmælt og skorað á Alþingi að vísa því frá. Bent var á að keppt væri í hnefaleikum á hverjum Olympíuleikum og þeir væru og hefðu um langan aldur verið viðurkennd íþrótt hvarvetna í heiminum.66 Svo hefði einnig til skamms tíma verið á Islandi: „Hér á landi hafa hnefaleikar verið iðkaðir um ára- bil, en gagnrýni eigi komið fram á þeim sem íþrótt fyrr en á síðari árum.“67 I.S.I. var Ijóst að hnefaleikar höl'ðu annars staðar í heiminum orðið fyrir aðkasti yfir- valda, t.d. í Svíþjóð, enda hafði verið fjallað um þessi mál á ráðstefnu íþróttasambanda Norðurlanda 1955 og samþykkt að mótmæla aðförinni að íþróttinni, eins og kom fram hér að framan. Tekið var l'ram í mótmælabréfi Í.S.f. að þá hefði verið upplýst að Norður- löndin öll að íslandi undanskildu hefðu um nokkurl skeið Iátið fara fram rannsóknir á hnefaleikum, bæði læknisfræðilegar og félags- legar. Þessar rannsóknir átti nú að fella sam- an í eina heild og leggja niðurstöðurnar fyrir næsta sameiginlega þing. Meira norrænt sant- starf var einnig til uniræðu, stofnun sam- norrænnar vísindastofnunar til rannsóknar á áhrifum íþrótta og samvinna við læknadeild Háskóla íslands eða Læknafélagið.68 Ekki var tekið fram að fyrirhugaðar rannsóknir væru afmarkaðar við hnefaleika. Hugsanlega var þetta því sagt til að slá ryki í augu Alþing- is til að koma í veg fyrir afskipti þess af mál- efninu, enda kom það skýrt l'ram síðar í mól- mælabréfinu að Alþingi hel'ði þegar allt kæmi til alls enga lögsögu í ntálinu: Samkvæmt gildandi lögum er það verk- efni íþróttasambandsins að ákveða sjáll't, hvaða íþróttagreinar það hefur á stel'nu- skrá sinni. Hefur svo verið frá því að íþróttalögin voru samþykkl 1940 og í raun og veru miklu lengur, eða allt frá því að ÍSÍ var stofnað 1912, að um þetta hefur verið viðurkennd hefð. Ef Alþingi nú tæki sig til og samþykkti framkomið frumvarp um að banna hnefa- leika, verður það eigi skilið á annan veg en þann, að sjáll'l löggjafarvaldið líli svo á, að íþróttasambandið sé ekki l'ært uni að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.