Ný saga - 01.01.2000, Blaðsíða 72

Ný saga - 01.01.2000, Blaðsíða 72
Guðmundur J. Guðmundsson Mynd 4. Niels P. Sigurðsson sendiherra fór víða til að kynna málstað Islands. Mynd 5. Haraldur Kröyer sendiherra kynnti máiið innan örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna. Afstaða Jakobs Maliks fastafulltrúa Sovét- stjórnarinnar er athyglisverð. Hann taldi að deilan í heild væri ekki á verksviði Öryggis- ráðsins og heyrði í raun undir Alþjóðadóm- stólinn en lofaði hins vegar að leggja málið fyrir sovéska utanríkisráðneytið.17 Hálfum mánuðu síðar kom svo svar frá Sovétmönn- urn á þá leið að valdbeiting Breta væri ógnun við frið og öryggi og Sovétmenn mundu ekki leggjast gegn því að kæra íslendinga yrði tek- in upp á vettvangi ráðsins. Hins vegar ítrek- aði Sovélstjórnin þá skoðun sína að fiskveiði- og landhelgismál ættu heima á hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna.18 Sendiherrar Norðurlanda í New York fund- uðu í lok maí um þá ákvörðun Islendinga að vísa málinu til Öryggisráðsins. Norski sendi- herrann laldi þetta óráð því ýmsar þjóðir svo sem Frakkar og Bandaríkjamenn myndu þá neyðast til að fylkja sér um Breta þótt þeim væri það þvert um geð.19 Islenskir sendimenn l'óru víða þetta sumar og ráku áróður fyrir málstað íslendinga. Niels P. Sigurðsson fór til Portúgal og ræddi þar við þá dr. Vag Pinto viðskiptamálaráðherra og dr. Rui Patricio utanríkisráðherra og gerði þeim grein fyrir stöðu mála. Hann lagði á- herslu á að margir stuðningsmenn NATO á íslandi væru farnir að veikjast í trúnni á gildi bandalagsins þegar eitt ríkja þess réðist á annað með vopnavaldi. Portúgalskir ráða- menn höfðu af þessu nokkrar áhyggjur en þó meiri af afstöðu Norðurlanda til málefna nýlendna Portúgala í Afríku. Patricio utanrík- isráðherra hafði um hana hörð orð og vildi fá íslendinga til að sitja hjá við atkvæðagreiðslu urn málið hjá Sameinuðu þjóðunum.20 Skömmu áður hafði Niels verið í Hollandi og rætt þar við utanríkisráðherrann, Van Der Stoel, og embættismenn. Niels sagði að fram- ferði Breta: „gæti haft áhrif á skoðanir Islend- inga um hvort ekki væri rélt að endurskoða afstöðu þeirra til NATO og varnarsamnings- ins við Bandaríkin.“ Hann bætti því við að jafn- vel stuðningsmenn veru íslands í NATO og herstöðvarinnar á Miðnesheiði væru farnir að velta þessu fyrir sér. Van Der Stoel sagði fátt um málið en vonaði að deilan leystist skjótt.21 Samhliða var reynt að hafa áhrif gegnum einkasambönd. Alþýðuflokksmenn reyndu m.a. að hafa áhrif á félaga sína í breska Verka- mannaflokknum og sendu formanni hans, Harold Wilson, bréP2 og 30. maí 1973 sendi Varðberg, samtök um vestræna samvinnu, framkvæmdastjóra NATO skeyti þar sem sagði að með aðgerðum sínum hefðu Bretar eyðilagt margra ára starf samtakanna.23 Eins og í 12 mílna deilunni ráku íslensku sendiráðin viðamikla kynningarstarfsemi víða um lönd. Pau dreifðu kynningarritum um málstað íslendinga, sendimenn ræddu við málsmetandi fólk og reyndu að hafa áhrif á það. Miklu varðaði að kynning málsins í Bret- landi tækist vel og var Llewellyn Chanter blaðamaður ráðinn til að kynna málstað Is- lendinga.24 Þessi starfsemi var í svipuðum dúr og verið hafði í 12 mílna deilunni. fslendingar áttu sér líka hauka í horni í Bretlandi og með- al þeirra sem lögðu málstað íslendinga lið var Ted Willis lávarður ásamt tvennum samtök- um, Friends of Iceland og British Movement for the Defence of Icelandic Fishery Con- servation25. En nú barst íslenskum stjórnvöldum óvæntur liðsauki. íslenskir námsmenn, eink- um á Norðurlöndum, hófu mikla áróðursher- ferð fyrir málstað íslendinga og gáfu út dreifi- bréf og blöð sem fóru víða. Einnig beittu þeir sér fyrir því að ýmsir hópar og félög sem þeir áttu innhlaup hjá sendu íslendingum stuðn- ingsyfirlýsingar. Þarna voru róttækir stúdent- ar mjög áberandi, einkurn þeir sem tilheyrðu samtökum yst á vinstri væng stjórnmálanna, svo sem maóistar. Þeim var leikurinn auð- veldari en öðrum því þeir voru vel skipulagð- ir. í áróðri þeirra var barátta íslendinga fyrir 50 mílna fiskveiðilögsögu tengd baráttu þjóða þriðja heimsins gegn heimsvaldastefnunni og baráttu Víetnama gegn Bandaríkjunum.26 En það voru ekki bara róttæk samtök sem lýstu yfir stuðningi við málstað íslendinga því að í skjölum utanríkisráðuneytisins má einnig finna stuðningsyfirlýsingar frá sam- tökum ungra hægrimanna á Norðurlöndum og Kristilega þjóðarflokknum í Noregi. En þar er fleira að sjá. Um miðjan júní 1973 barst utanríkisráðuneytinu bréf undirritað af Liam Fitzkelly, rilara Provisonal and Official Alli- ance, IRA, þar sem hann býður upp á viðræð- 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.