Ný saga - 01.01.2000, Blaðsíða 29

Ný saga - 01.01.2000, Blaðsíða 29
Verkið sem tókst að vinna af sögunni, átta áratugum yngri. Af biskupa- sögum notar Gunnar F. Guðmundsson oftast útgáfu Guðna Jónssonar og íslendingasagna- útgáfunnar frá 1953, sem stendur líklega einna neðst í fræðilegum virðingarstiga (án þess að hún sé endilega verri en aðrar). En hann grípur líka til Þorlákssögu sem Ásdís Egilsdóttir og Þorlákssjóður gál'u út 1989 og görnlu Bókmenntafélagsútgáfunnar af biskupasögum; ekki veit ég hvort þau till'elli eiga sér fræðilegar skýringar. Laurentius saga biskups í úlgáfu Árna Björnssonar og Hand- ritastofnunar íslands 1969, Árna saga bisk- ups, sem Þorleifur Hauksson og Árnastofnun gáfu út árið 1972, og Byskupa sögur II, út- gáfa Jóns Helgasonar og Árnastofnunar í Kaupmannahöfn af Þorlákssögu helga og Páls sögu 1978, eru í heimildaskrá hans, en ekki kom ég í l'ljótu bragði auga á tilvísanir til þeirra. Útgáfa Guðrúnar Ásu Grímsdótlur af Árna sögu og Lárentíus sögu í íslenzkum fornritum XVII er þar hins vegar ekki, enda kom hún út árið 1998, og mun lítið urn svo ung rit í heimildaskrám kristnisögunnar. Af Sturlungu notar Gunnar ýmist útgáfu Guöna Jónssonar 1954 eða útgál'u Örnólfs Thors- sonar og Svarts á hvítu 1988. Ég á ekki von á að það hafi neins staðar komið sérstaklega að meini þólt vönduðustu útgáfur væru ekki ævinlega notaðar. Samt er nágranna okkar textafræðinni gefið langt nef með svona miklu umburðarlyndi í riti með eins fræðilegu yfirbragði og kristnisagan hefur. I stórum ritum, einkunr þar sem margir koma að verki, fer ekki hjá því að minni hátt- ar mótsagnir og ósamræmi komi upp í frá- sögnum. Svolítið al' þessu tagi hefur flotið í gegnum ritstjórn kristnisögunnar. Þannig segir Þórunn Valdimarsdóttir að húsvitjanir presta hafi verið „að miklu leyti aflagðar" urn miðja 20. öld (IV, bls. 143), en Pétur Pétursson heldur því fram að það hal'i verið „algengt ... að prestar húsvitjuðu flesl heimili lil sveita fram á miðja öldina“ og ber fyrir sig starfsskýrslur presta (IV, bls. 224). Þetta er fremur meinlítið, enda ber ekki mikið á milli. Verra er þegar ekki er hægt að lylgja framvindu sögunnar l'rá einum höfundi lil annars, annað hvort vegna þess að hug- takanotkun þeirra passar ekki saman eða eitl- hvað nauðsynlegt hefur orðið eflir ósagt á milli frásagna þeirra. Tökum sem dæmi um- fjöllun um stöðu presta. Þegar Hjalti Huga- son skilur við prestana voru þingaprestar að taka við al' öllum eldri tegundum presta, og þingin voru „undanl'ari l'ast afmarkaðra prestakalla og sókna.“ (I, bls. 243) El'tir það á ókunnugur lesandi ekki von á nema einni gerð sóknarpresta. í öðru bindinu, senr þekur meginhluta miðalda, korna hugtökin þing og þingaprestur ekki fyrir, ef við treystum atrið- isorðaskrá. Mismunandi lífskjör presta eru líll eða ekki rædd þar, en af frásögn af niður- stöðu staðamála síðari má ráða að el'lir þau hafi verið tvær megingerðir presta, lénsmenn biskups á stöðum og launþegar bændakirkna á bændakirkjustöðum. En varla síðar en um 1400 rnisstu kirkjubændur í hendur biskups rétlinn til að velja presta lil kirkna sinna, segir Gunnar (II, bls. 92-93). í þriðja bindi rekur Loftur Guttormsson reglur um veitingu prestakalla el'tir siðaskipti, og þá kemur þetta í ljós (III, bls. 149): „í prestaköllum án léns- / stórum rítum, einkum þar sem margir koma að verki, fer ekki hjá því að minni háttar mótsagnir og ósamræmi komi upp í frásögnum AF BÓKUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.