Ný saga - 01.01.2000, Blaðsíða 21
Aldur Landnámslagsins
eru upprunnin. Með mælingum á sýrustigi í
ísnum mátti greinilega sjá tvo sýrutoppa á lík-
legunr stað fyrir Landnámslagið - annan við
árið 898 en hinn 871.11 Sumum þótli sá yngri
líklegri og þaðan komið að kalla Land-
námslagið Vö 900. Hvert árlag er þunnt og
þar sem ískjarnar hafa takmarkað þvermál og
nrargt senr menn vilja mæla þá leið nokkur
tími þar til farið var að leita að sjálfri öskunni
í ísnum. Þegar byrjað var að bora á Summit-
svæðinu á Grænlandi voru tvær holur borað-
ar - önnur af Evrópumönnum (GRIP) en hin
af Bandaríkjamönnum (GISP2). Þessar holur
voru betur staðsettar en eldri holur og þegar í
upphafi gert ráð l'yrir að leita að öskulögum í
GRIP kjarnanum. Eitt af því senr okkur lék
að sjálfsögðu mikil forvitni á að vita var hvort
aska fylgdi öðrum hvorum ofangreindra sýru-
toppa. Voru því lekin þrjú sýni við hvorn
topp, eitt í miðu og svo önnur l'yrir ofan og
neðan.
Þegar ísinn var bráðnaður var valnið látið
gul'a upp en það sem þá var eftir var skoðað í
rafeindasmásjá hjá Iðntæknistofnun á
Keldnaholti. Aðeins eitt þessara sýna - það
við sýrutoppinn 871 - reyndist innihalda ösku
og reyndust einstök korn ná allt að 40 míkró-
metra þvermáli (0,04 mm). Þessi rafeinda-
smásjá og önnur hjá Norrænu eldfjallastöð-
inni (örgreinir) gera það mögulegt að efna-
greina einstök svona öskukorn. Er skemmst
l’rá því að segja að askan úr Grænlandísnum
frá 871 hefur tvær efnasamsetningar og á önn-
ur við hinn súra hluta Landnámslagsins en
hin við þann basíska. Samsvörunin milli
greininga á sýnum úr laginu hér á landi og
öskukornanna er eins góð og á verður kosið.12
Líkurnar á að á ferðinni séu tvö gos með
sömu einkenni nánast á sama tíma eru hverf-
andi.
Lokaorð
Landnámslagið er einstakt leiðarlag t'yrir
fornleifarannsóknir hér á landi - vel aí'mark-
aö í jarðvegi og tímasett nánast upp á ár og á
suðvesturhluta landsins er það auðþekkjan-
lega tvílitt. Erfiðara getur verið að þekkja það
í öðrum landshlutum þar sem einungis dökki
hlutinn er til staðar en eins og Guðrún Larsen
hefur sýnt frarn á er það vel gerlegt þegar
grannt er skoðað.13
Það er því mikilvægt þegar ráðist er í rann-
sóknir á fornleifum frá landnámstímanum að
taka öskulögin með í reikninginn og spilla
ekki afstöðu mögulegra öskulaga við það sem
kann að l'innasl.
Elstu byggðaleifar finnast rétt ofan við
Landnámslagið en hvergi hefur það l’undist
ótvírætt ofan á slíkum minjum. Sterkasta vís-
bendingin um annað er í Húshólma í Krísuvík
en hann er óbrynnishólmi sem myndaðist er
Ögmundarhraun rann, líklegasl árið 1151.
Þar er hlaðinn torfgarður en Landnámslagið
ekki sjáanlegl í hleðslunni, hvorki ofan á né
undir. Neðst í pælunni (þar sem stungið var
upp til þess að hlaða garðinn) fannst hins veg-
ar dreil' al' Landnámslaginu. Túlkun höfunda
er sú að Landnámsaskan hafi fallið rétt eftir
að stungið hafði verið upp fyrir garðinum. í
uppgreftri í Reykjavík að Aðalstræli 14
fannst Landnámslagið rétt við elstu minjar. Á
einum slað vantar lagiö undir forna hleðslu
og er mögulegt að askan hafi einnig l'allið eft-
ir hleðsluna en lýsingar eru mun óljósari en
við torfgarðinn í Húshólma.14
í öðrum hleðslum í Reykjavík var Land-
námslagiö í torfhleðslum og þær því yngri. I
jarðvegssniði í Vatnsmýrinni hafa fundist
kornfrjó undir Landnámslaginu senr einnig er
sterk vísbending um mannaferðir fyrir eld-
gosið.15
Af engu þessara tilfella má ráða hversu
löngu fyrir öskufallið kornið fauk eða garðar
voru hlaðnir.
Mynd 5.
Smásjármynd af
öskukornum i
GRIP-kjarnanum
frá 871. Kvarðinn er
20 mikron (0,02 mm).
Kornin eru samt
nógu stór til þess
að hægt sé að
efnagreina þau og
sjá að þau hafa
sama efnainnihald
og landnámslagið
Vll+þ. Myndin er
tekin i rafeinda-
smásjá Iðntækni-
stofnunar íslands
í Keldnaholti.