Vera - 01.12.1998, Qupperneq 28
Strokkva rtetti n n
ttrrjHfiM
Animumar hafa farið nýja leið í að kynna klassíska tónlist. F.v. Sólrún, Valgerður, María og Hildur
Anima
Það var í ágúst síðastliðnum að víða mátti sjá bleik plaköt hang-
andi um bæinn, auglýsing fyrir tónleika strokkvartettsins Animu.
Þann 19. ágúst voru það síðan fjórar ungar konur sem stigu á
stokk í ÍR húsinu við Landakot fyrir troðfullu húsi og léku þar af
fingrum fram verk eftir Jón Leifs, Stravinsky og Borodin. Þetta
voru þær Álfheiður Hrönn Hafsteinsdóttir (fiðla), Hildur Ársæls-
|jparliðadóttij\(selló) og MmMÆjk
sást síðan aftur til þeirra víða um bæinn á
jarnótt. Strokkvartettínn er enn starfandi en sú breyting
Jefur orðið á skipan hans að í stað Álfheiðar er komin María Huld
Sigfúsdóttir en sú fyrrnefnda er horfin af landi brott til framhalds
náms. Stúlkurnar eru allarvið nám í Tónlistarskólanum í Reykja
vík. Þær einnig nám í MH en þær eru báð
ar 18 ára. sem eru 21 árs, eru hins vegar [
fullu námi iaWffiBamlmHml /
•tr
Hvernig hófst þetta samstarf ykkar?
Sólrún: Viö Álfheiður vorum að spjalla saman ein-
hvern tíma hérna frammi á gangi og þá kviknaði sú
hugmynd að sækja um styrk til Hins Hússins um
laun fyrir að æfa upp prógram fyrir tónleika í lok
sumarsins.
Vala: Við vissum um fordæmi fyrir því að slíkur
styrkur hefði verið veittur fyrir nokkrum árum og
höfðum verið hvattar til að sækja um. Annars er
það nú frekar óalgengt að nemendur í klassískri
tónlist leiti til Hins Hússins eða séu yfirleitt eitt-
hvað að láta á sér bera opinberlega.
Sólrún: Við fengum styrkinn og vorum á bæjar-
vinnulaunum í júlí og ágúst við að æfa upp
prógram. Við byrjuðum að æfa strax í júní en svo
fóru nokkrar okkar til útlanda til að spila með sin-
fóníuhljómsveit fyrir ungt fólk á Norðurlöndunum.
Pannig að við þurftum að taka okkur frí frá æfing-
um í tvær vikur.
I/ala: Við sóttum um styrk fyrir okkur fjórar og
leiðbeinanda en það var Guðmundur Kristmunds-
son víóluleikari sem leiðbeindi okkur. Við æfðum
á hverjum degi en það fór líka ótrúlega mikill tími
í að skipuleggja allt í kringum þetta, t.d. að búa til
plakatið og finna húsnæði sem hentaði.
Þið sáust líka spila á Menningarnóttinni.
Sólrún: Já, það var hluti af samningnum við Hitt
húsið að við myndum spila á Menningarnóttinni.
l/a/a:Svo spiluðum við líka á 17. júní niðri í bæ.
Voruð þið ánægöar með tónleikana í ÍR-húsinu?
Hildur: Já, það komu að minnsta kosti ótrúlega
margir.
I/ala: Enda vorum við búnar að veggfóðra bæinn
með bleiku plakötunum. Myndirnar af okkur á
d