Vera - 01.12.1998, Qupperneq 44
Nemendur í fataiðn
í Iðnskólanum í Reykja-
vík komu til liðs við
Veru í tískuþætti sem
Berglind Hlynsdóttir
Ijósmyndari sá um.
Nemarnir eru Hrönn Ósk
Sævarsdóttir, Sigríður
Erla Einarsdóttir, Berg-
lind Ómarsdóttir, Áslaug
Jónsdóttir og Þröstur
Sigurðsson. Þau voru
spurð hvað þeim fyndist
um framboð á tískufatn-
aði hér á landi.
í fataiðn læra nemendur að búa til
sniö, taka mál og sauma flíkur og
útskrifast eftir fjögurra ára nám
sem sveinar í kjólaskurði eða
klæðskurði. Síðan er hægt að
bæta viö tveggja ára meistara-
námi og verða kjólameistari eöa
klæðskeri.
Miklar kröfur eru gerðar til nem-
enda í fataiðn og námið strangt. Á
hverju ári eru teknir inn 28 nem-
endur en aöeins 14 fá að halda á-
fram að lokinni fyrstu önn. Því
geta nemendur með 9.0 í meðal-
einkunn lent í því að komast ekki
áfram því svo margir eru með
hærri einkunnir. Á seinni önn
fjórða námsársins fá nemendur
verklega þjálfun úti á vinnumark-
aði hér á landi eöa erlendis.
21 árs, á 2. ári í námi.
Að námi loknu stefnir hún að fram-
haldsnámi í fatahönnun erlendis.
& „Það vantar meiri fjölbreytni í fatnað í
tískuverslunum hér á landi og mætti
P vera meira til af íslenskri framleiðslu."
27 ára, á 2. ári i námi. Berglind byrjaöi
^ að sauma sér föt því hún fékk ekkert á
cg1 sig i íslenskum verslunum. Hana langar
aö vinna viö saumaskap í framtíðinni.
„Það vantar meiri fjölbreytni í stæröum
og meira úrval af fötum í verslanir hér á
landi."
'S
'O
19 ára, á 3. ári i námi.
Hún stefnir að því að komast í vinnuþjálfun til
® Danmerkur og síðan langar hanna í erlendan
hönnunarskóla.
„Mér finnst mikið úrval af tískufatnaði hér á
landi en íslenska framleiðslan finnst mér of
:£ mikiö miðast við fólk sem vill vera öðru vísi.
Þaö þarf að breikka línuna, hafa meira af venju-
legum fatnaöi - eitthvað fyrir alla.“
24 ára, á 3. ári í námi.
Langar að vinna við búningahönnun í fram-
tíðinni.
„Hér á landi mætti vera meira úrval af tísku-
fatnaði fyrir breiðari aldurshóp, þó finn ég
yfirleitt eitthvað fyrir mig þegar ég leita."
19 ára, á 1. ári í námi.
Aö námi loknu langar Þröst að vinna við hönnun og
hafa áhrif á tískuna.
„Mér finnst að mætti vera meira af íslenskum tísku-
fatnaði á markaði. Það þarf að koma upp þeirri stemn'
ingu að það sé smart að vera í íslenskum fötum.“
ymiiöfr ísUdiraglkDir ffaísiIhi^irairaQíilíBir